Morgunblaðið - 06.01.1987, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1987
17
Er utanríkisþjónustan í núverandi mynd orðin úrelt?
Sendiráðum á að breyta í
sölu- og markaðsskrifstofur
- segir Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins
„ÉG tel tímabært að endurskipu-
leggja utanríkisþjónustunaá
þann hátt að breyta hefðbundn-
um sendiráðum í markaðsöflun-
ar- og söluskrifstofur sem væru
þá kostaðar sameiginlega af sam-
tökum útflytjenda og ríkinu.
Þessi endurskoðun er nauðsyn-
leg í ljósi gerbreyttra aðstæðna
hvað varðar fjarskipti og sam-
skipti þjóða í milli og þá á að
veija fjármunum sem sparast á
þessu sviði til markaðsöflunar
erlendis," sagði Jón Baldvin
Hannibalsson formaður Alþýðu-
flokksins í samtali við Morgun-
blaðið, en i svari við áramóta-
spurningum blaðsins sagðist
hann telja að íslendingar ættu
aðeins að hafa 4 sendiráð, í Was-
hington, Moskvu, Kaupmanna-
höfn og hjá NATO. Jón tók það
fram að þetta væru hans per-
sónulegu hugmyndir og Alþýðu-
flokkurinn hefði ekki mótað
stefnu hvað þetta varðar.
„Tilgangurinn er sá að breyta
utanríkisþjónustunni úr hefðbundn-
um sendiráðum í þjónustu við
viðskptaaðila á helstu markaðs-
svæðum,“ sagði Jón Baldvin enn-
fremur. „Það hefur dregið úr
pólítísku mikilvægi þess að hafa
hefðbundin sendiráð í öðrum lönd-
um til að fylgjast með stjómmála-
ástandi, afla upplýsinga og svo
framvegis. Og þegar um er að ræða
mikilvæg viðskiptamálefni hefur
reynslan verið sú að sendar eru út
sendinefndir sérfróðra manna hvort
er er. Því tel ég æskilegra að hafa
frekar skrifstofur sem hafa það að
meginverkefni að afla upplýsinga
og þjónusta fyrirtæki og aðila hér
við að afla markaða og viðhalda
þeim og til þess þarf starfsfólk sem
hefur annarskonar þjálfun en hefð-
bundin utanríkisþjónusta krefst.
Utanríkisviðskipti eru orðinn stór
liður í okkar þjóðarbúskap en það
er greinilegt að við vanrækjum þau
og gætum í því máli lært mikið af
öðrum þjóðum. Þá þurfum við auð-
vitað að vera sveigjanlegir og
einblína ekki alltaf á höfuðsvæðin.
Þó við viljum halda samskiptum við
Norðurlöndin, og því nefndi ég
Kaupmannahöfn, þá eru viðskipta-
sambönd okkar við þau lönd ákaf-
lega takmörkuð og viðskiptajöfnuð-
ur okkar við þau óhagstæður. En
hinsvegar mætti frekar hugsa til
þess að auka samskipti okkar við
aðrar þjóðir, sem við höfum nærri
því engin formleg samskipti við,
hvort heldur það er Japan eða Kína
eða Suður-Evrópa," sagði Jón Bald-
vin.
Jón var spurður hvort táknrænt
gildi sendiráða skipti engu máli
lengur. „Hvað vilja menn borga
fyrir sögu og tákn?“ sagði Jón Bald-
vin Hannibalsson.
tóru yinningunum okkar
eru þér allir vegir feerir!
ARGUS/SÍA
9( á kr. 2.000.000; 108 á kr. 1.000.000; 216 á kr. 100.000;
'1 á kr. 10.000; 122.202 á kr. 5.000; 234 aukavinnirxgar á kr. 20.000.
trir á kr. 907.200.000.
HAPPDRÆTTI
HASKÓLA ISLANDS
Vœnlegast til vinnings