Morgunblaðið - 06.01.1987, Side 32

Morgunblaðið - 06.01.1987, Side 32
32 MORGUNBLABIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1987________ Haraldur Olafsson Kaupfélagið á Djúpavogi óskar eftir greiðslustöðvun: Skuldír 35 milljónir króna umfram eignir KASK á Höfn hefur tekið verslun og mjólkursamlag á leigu KAUPFÉLAG Kaupfélags Berufjarðar á Djúpavogi (KFB) á við trésmíðaverkstæði, og eru þau rek- mikla rekstrarerfiðleika að etja og hefur stjóm félagsins óskað eft- in áfram. ir greiðslustöðvun jafnframt því sem hún hefur óskað eftir aðstoð Kaupfélags Austur-Skaftfellinga (KASK) á Höfn. Til bráðabirgða hefur KASK tekið á leigu verslun félagsins og mjólkursamlag. Friðrik Sophusson: Verður ekki á framboðs- lista Framsóknarflokksins HARALDUR Ólafsson, þingmaður Framsóknarflokksins I Reykjavík, hefur ákveðið að taka ekki sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í Reykjavík í komandi alþingiskosningum. í prófkjöri flokksins í Reykjavik hlaut Haraldur funmta „Ég lenti nú þama í fimmta sæti og það var ekki kosið nema um íjög- ur efstu sætin, þannig að ég tel mig alveg óbundinn af því,“ sagði Harald- ur í samtali við Morgunblaðið. Hann sagðist því enga ástæðu sjá til þess sætið. að taka sæti á þessum lista, en þar með væri ekki sagt að hann hefði hætt afskiptum sínum af póltík. „Ég er bara rétt að byija," sagði Harald- ur. Egilsstaðir; Gott veður tefur flug FJÖLDI farþega beið á flugvellinum á Egilsstöðum í gær eftir að komast til Reykjavíkur, en fluginu seinkaði um nokkra klukku- tíma. Ástæða þessarar tafar var þó ekki slæmt veður á Egilsstöðum eða Reykjavik heldur góð flugskilyrði annars staðar á landinu. „Við gerum okkur grein fyrir þeim óþægindum sem svona tafir hafa í för með sér, en við erum að reyna að halda uppi flugsam- göngum í þessu erfiða landi og látum því flug til þeirra staða sem ófært hefur verið á ganga fyrir öðru flugi, meðan flugskilyrði þar eru góð" sagði Einar Helgason for- stöðumaður innanlandsdeildar Flugleiða. Hann sagði að reynt væri að nota dagsbirtuna til að fljúga á þá flugvelli um landið sem ekki væru upplýstir. Það gæti haft í för með sér nokkurra klukku- stunda seinkun á áætlun til þeirra staða sem eru með upplýsta og betur búna flugvelli. „Þetta er þó frekar óvenjulegt og f flestum til- fellum aðeins um nokkurra klukku- stunda seinkun að ræða.“ „Mun ekki starfa meira með Finni Ingólfssyni“ Sverrir Hermannsson:„Oheilindi í piltinum.“ „ÞAÐ má vera alveg ljóst af minni hálfu, að ég get ekki hugsað mér að starfa að þessum málum í framtíðinni með Finni Ingólfssyni, sagði Friðrik Sophusson í samtali við Morgunblaðið,„ og sú spum- ing, sem mér finnst mest áríðandi að fram komi svar við, er hvort þetta frumhlaup Finns er gert með vitund og vilja forsætisráð- herra. Ef svo er, er ljóst að ríkisstjórnin mun vart leggja fram frumvarp til laga um sjóðinn á þessu þingi. Ef svo er hins vegar ekki, finnst mér eðlilegt, að Steingrímur Hermannsson dragi flokks- bróður sinn til pólitískrar ábyrgðar." Stjóm kaupfélagsins óskaði eftir greiðslustöðvun samkvæmt heimild í gjaldþrotalögum til að fá tóm til að koma fjármálunum í lag. Úr- skurður hefur ekki verið kveðinn upp í málinu en Sigurður Eiríksson bæjarfógeti á Eskifírði sagði í gær- kvöldi að það yrði gert í dag, þriðjudag, eða einhvem næstu daga. Oli Björgvinsson stjómar- formaður Kaupfélags BeruQarðar •sagði í gær að skuldir félagsins væru 35 milljónir umfram eignir samkvæmt bráðabirgðauppgjöri fé- lagsins eftir fyrstu níu mánuði síðastliðins árs. Heildarskulir væru rúmar 100 milljónir kr. Ef til gjald- þrots kemur tapa ýmsir fé, meðal annars Samband íslenskra sam- vinnufélaga og sambandsfyrirtæki, heildsalar og bændur. Formenn stjóma KASK og KFB sendu viðskiptamönnum á félags- svæði KFB dreifibréf í gær þar sem greint er frá erfíðleikum Kaupfé- lags BeruQarðar og aðgerðum stjómar félagsins. Þar kemur fram að stjóm félagsins hafí óskað eftir greiðslustöðvun frá áramótum, eftir •'að niðurstöður níu mánaða uppgjörs reikninga lá fyrir og rætt hafði verið við löggilta endurskoðendur félagsins, helstu lánadrottna og forráðamenn SÍS. Jafnframt hafí verið óskað eftir viðræðum við stjóm KASK um hugsanlega aðstoð þess félags. Niðurstaða viðræðna stjóma KASK og KFB er eftirfarandi, sam- kvæmt þvi sem segir í dreifíbréfinu: Á meðan á greiðslustöðvunartíman- um stendur tekur KASK verslun og mjólkursamlag KFB á leigu og annast þann rekstur. Innlánsdeild KFB verður sameinuð innlánsdeild KASK ef sparifjáreigendur og stjóm Tryggingasjóðs innlánsdeilda samþykkja þá ráðstöfun. Á meðan á greiðslustöðvuninni stendur verð- ur unnið að frambúðarlausn á vandamálum kaupfélagsins. Verður megináherslan lögð á að leita eftir samningum sem stuðlað geta að því að viðskiptamenn verði fyrir sem minnstu fjárhagslegu tjóni. Fram kemur að KASK hefur ráð- ið starfsfólk KFB í verslun og mjólkursamlagi, en því var sagt upp í tengslum við ráðstafanir stjómar KFB. Már Karlsson hefur tekið við stjóminni á Djúpavogi sem fulltrúi KASK, en verslunarstjóri og mjólk- ursamlagsstjóri voru endurráðnir. Gunnlaugur Ingvarsson kaupfé- lagsstjóri lét af störfum hjá KFB í haust. I niðurlagi dreifíbréfs kaupfélag- anna segir að Ijóst sé að breyting- amar verði ekki sársaukalausar en það sé von forráðamanna þeirra að hægt verði að leysa sem flest vandamál. Kaupfélag BeruQarðar á hlut í sjávarútvegsfyrirtækinu Búlands- tindi hf. og hafa fyrirtækin verið rekin að miklu leyti saman, meðal annars var kaupfélagsstjórinn framkvæmdastjóri beggja félag- anna. Kaupfélagið er nú orðið minnihlutaeigandi í Búlandstindi en Samband íslenskra samvinnufélaga og ýmis dótturfyrirtæki þess hafa komið þar til skjalanna. Fyrirtækið gerir út skuttogarann Sunnutind og rækjubátinn Stjömutind og er með hraðfrystihús, saltfískverkun og sfldarsöltun. Fýrirtækið hefur átt í miklum rekstrarerfíðleikum eins og kaupfélagið en ekki hefur komið til greiðslustöðvunar hjá því. Óli Björgvinsson sagði að staðan hefði heldur lagast hjá Búlandstindi á sfðasta ári. KFB hefur rekið sláturhús á Djúpavogi en í haust var slátrað á vegum KASK í sláturhúsinu á Djúpavogi. Þá hefur kaupfélagið rekið hótel á Djúpavogi en það er í vetur leigt til skólans fyrir heima- vist. Þá hefur félagið rekið verk- stæði ýmist eitt sér eða í samvinnu við aðra, svo sem vélaverkstæði og Finnur Ingólfsson aðstoðarmað- ur sjávarútvegsráðherra og fyrrum formaður ungra framsóknarmanna lýsti því yfír á fundi samtaka náms- manna erlendis síðastliðinn laugar- dag að hann væri ekki lengur bundinn af þeim drögum, sem Sverrir Hermannsson menntamála- ráðherra hefði sent fulltrúum námsmannahreyfínganna þann 29. desember og sagt var frá í Morgun- blaðinu þann 30. desember síðast- liðinn. Á fundinum sagði Finnur að það væri ekki rétt að hann hefði samþykkt þessi drög og kynnti hann þar hugmyndir sínar að nýjum drögum. I hugmyndum Finns er horfíð frá þaki á námslán en þegar lán hafí náð 1.950.000 kr. taki stjóm sjóðsins það sérstaklega til ummfjöllunar, hvort viðkomandi geti fengið meiri lán. Einnig er því hafnað að taka upp lántökugjald. „Sú yfírlýsing Finns, að hann lýsi sig óbundinn af drögum þeim, sem send voru námsmönnum eru vitaskuld út í hött, vegna þess að hann er einn af aðalhöfundum drag- anna og og hefír tvisvar sinnum skrifað undir þau, segir Friðrik. „Það sem ég held hins vegar að hafi kallað fram þessi viðbrögð Finns, var að hann hafí komið sér í einhvetja persónulega klemmu, vegna yfírlýsinga, sem hann hafi haft uppi við námsmenn, og hann kýs að losa sig úr áþennan hátt.“ „Eftir að íjögurra manna nefnd stjórnarflokkanna hafði komið sér saman um drög að frumvarpi til nýrra laga í september og Finnur Ingólfsson samþykkti, fól mennta- málaráðherra okkur að reyna að ná samkomulagi við námsmenn. Nefnd þessi átti Iangar og strangar viðræður við námsmenn og lauk störfum hennar í byrjun desember. í bréfi, sem nefndarmenn sendu menntamálaráððherra og Finnur skrifaði undir, segir að það sé skoð- un nefndarmanna að verulegur árangur hafí náðst í viðræðum við námsmenn og hafi nefndin með til- boði sínu til námsmanna komið mjög til móts við óskir námsmanna, þó ekki hafí náðst endanlegt sam- komulag. í bréfinu telur nefndin starfí sínu lokið, og að framvinda málsins væri hér eftir í höndum ráðherra." Friðrik sagði að lokum: „Ég tel ekki útilokað, að unnt væri að ná samkomulagi við námsmenn á grundvelli tillagna þeirra enda lögðum ég og Finnur samdægurs til breytingar á drögunum frá 4. desember í samræmi við þær hugmyndir. Menntamálaráðherra „Þegar viðræðurnar við náms- menn hófust í haust, sögðu námsmenn, að forsenda fyrir við- ræðum við stjómarfulltrúana, væri að ýta upphaflegu drögunum til hliðar og ræða málin út frá núll- punkti. Á fundi menntamálaráð- herra og samvinnunefndarinnar þann 23. október var þetta sam- þykkt. Því tel ég mig óbundinn af upphaflegu drögunum. Einnig tel ég mig óbundinn af drögum þeim, sem menntamálaráðherra kynnti þann 29. desember á bláðamanna- fundi, vegna þess að Sverrir Hermannsson stóð ekki við það lof- orð sitt að hafa hljótt um drögin, tók það skýrt fram á blaðamanna- fundi þann 29. desember, að ætlunin væri að leggja drögin fyrir ríkisstjómina í fyrri hluta janúar og um það væri samkomulag milli hans og forsætisráðherra. Eg og Finnur fengum það hlutverk að reyna að ná samkomulagi við náms- menn fram að þeim tíma, en með með frumhlaupi sínu hefir hann spillt verulega fyrir möguleikum á samkomulagi, brugðist trúnaðar- trausti því, sem honum var sýnt af hálfu menntamálaráðherra og for- sætisráðherra og hljóta þessi forkastanlegu vinnubrögð að setja mark sitt á stjómarsamstarfíð." í samtali við Morgunblaðið sagði Sverrir Hermannsson menntamála- ráðherra að „allir venjulegir menn hlytu að sjá óheilindin í piltinum“, en vildi ekki að öðru leyti tjá sig um málið, þar eð hann ætti eftir að ræða um það við forsætisráð- herra og yrði það lagt fyrir ríkis- stjórnarfund. heldur hljóp með þau í fjölmiðl- ana,“ sagði Finnur. Um framvindu þessa máls hafði Finnur þetta að segja: „Það er mín ósk, að ákvörðun um framhald þessa máls verði í höndum forsæt- is- og menntamálaráðherra. Ég tel að unnt sé að komast að samkomu- lagi við námsmenn um leið, sem nær markmiðinu um hærra endur- greiðsluhlutfall betur en upphafleg- ar tillögur og eru auk þess mun réttlátari. Þegar manni er bent á betri tillögur en sínar eigin, má maður ekki vera of einstrengings- legur, heldur skoða viðkomandi tillögur. Slíkt er ekki trúnaðarbrest- ur.“ Reykjavík: Ríkið eignast hlut í • hlj ómflutningskerfinu UNNIÐ er að samkomulagi milli Reykajvíkurborgar og ríkisins um að ríkið eignist um 10 milljón króna hlut í hljóm- flutningskerfi, sem Reykjavík- urborg festi kaup á í tilefni 200 ára afmælishátíðar borgarinn- ar. Að sögn Davíðs Oddssonar borgarstjóra mun Reykjavíkur- borg annast urnsjón með tækjun- um og sjá um rekstur þeirra. Tekið er mið af samkomulagi sem gert var árið 1974 um rekstur sviðsvagns sem Reykjavíkurborg og ríkið keyptu í sameiningu. Finnur Ingólfsson; „Friðrik ferst að tala um trúnaðarbrot“ ÉG VIL vísa því á bug, að ég hafi verið undir einhveijum óeðlilegum þrýstingi af hálfu námsmanna og ásökunum um trúnaðarbrot vísa ég til föðurhúsanna, af þeirri ástæðu, að hafi einhver brotið trún- að, þá er það Friðrik Sophusson," sagði Finnur Ingólfsson í samtali við Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.