Morgunblaðið - 06.01.1987, Page 44

Morgunblaðið - 06.01.1987, Page 44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JANUAR 1987 44 Sigurlaug Eggerts dóttir - Minning Sigurlaug Eggertsdóttir fæddist þann 9. febrúar 1930 að Fossi á Skaga í Skagafjarðarsýslu og kvaddi hið jarðneska líf eftir erfiða sjúkdómsbaráttu er jólahátíðin var í nánd, 56 ára að aldri. Sigurlaugu kynntist ég fyrst 1971 í söng- og félagsstarfi Skag- firsku söngsveitarinnar. Það vakti frá byijun athygli mína að þessi kona var jafnan reiðubúin til þeirra margvíslegu hluta er þurfti að framkvæma í sambandi við kór- starfsemina. Stundvísi og reglusemi var í hennar huga og framkvæmd í öndvegi. Sigurlaug var tengd sterkum böndum til átthaganna, Skagaíjarðar, og tók virkan þátt í flestum þeim málefnum er átthög- unum voru tengd. í kvennadeild Skagfirðingafé- lagsins starfaði hún óslitið og lagði af mörkum ómælt framlag. Ekki var það hennar háttur að skorast undan ábyrgðarstörfum og var kjörin í stjórn Skagfirðingafélags- ins og ritari lengst af til hinstu stundar. Skagfirðingafélagið stóð vissu- lega á tímamótum er hún kom í stjóm félagsins, þá voru ráðgerð húsakaup á félagsheimili, sem urðu að veruleika þann 27. janúar 1976 og reyndi því mjög á hvem og einn sem þá stóð í þessum málum fyrir Qárvana átthagasamtök. Það vom tíðir fundir og margir möguleikar ræddir. Sigurlaug var stórbrotin atorkukona, er gerði kröfur til sinna samtíðarmanna, en þó mestar til sjálfrar sín. Oft vom mál rædd af einurð og festu er sköpuðu víðara sjónarhorn er gaf síðar meiri möguleika að taka rétt- ar ákvarðanir og ná settu marki. Hennar málflutningur gat verið ein- beittur og þar sem hún fór var ekki komið til að vera heldur til að finna það, er mætti verða málefnum til framdráttar og halda vöku sinna félaga og samferðafólks. Ég naut oft í okkar samstarfi hennar áhuga og eldmóðs, hún hafði þann eiginleika að afkasta hinum ýmsu störfum á skemmri tíma en flestir aðrir og ekki var vænst endurgjalds fyrir það sem gert var, sjálfrátt eða ósjálfrátt hrifust allir með. Það var aðdáunar- vert viðhorf hennar til þeirra sem aldnir vora eða höfðu orðið fyrir áföllum í lífinu, fyrir þá hafði hún ómældan tíma, á einn eða annan hátt, þeir munu sakna vinar og velgjörðamanns sem nú er horfinn. Eg kveð vin og samstarfsfélaga. Við fráfall Sigurlaugar Eggerts- dóttur vil ég votta einkadótturinni Ásgerði Hrönn og aldraðri móður, Sigríði Ásgeirsdóttur, svo og öðmm aðstandendum dýpstu samúð. Gestur Pálsson Það var erfitt að trúa því að hún væri kölluð frá okkur svona skyndi- lega. Okkur vini hennar setti hljóða og í hugann komu minningarnar. Við kynntumst henni fyrir 16 ámm þegar hún rak sumarhótel á Blönduósi, og endumýjuðum svo kynnin þegar hún stýrði Edduhótel- inu á Húnavöllum á sumrin. Á hveiju sumri í 16 ár gistum við hjá henni eða komum þar við. Vegna vinnu minnar var ég oft á ferðinni og tók þá stundum fjöl- skyldu mína með. Aldrei var svo fullt af gestum hjá henni að ekki gæti hún komið okkur fyrir. Þarna var alltaf sömu hlýjunni að mæta þegar okkur bar að garði. Sama hversu mikið var að gera. Við gist- um hjá henni með öll okkar böm og því kynntist hún þeim öllum, en þó nánast yngsta baminu henni Jenný. Og þegar Jenný heyrði áð Sigurlaug væri dáin, varð hún harmi slegin. Fór inn í herbergi sitt og setti hugsanir sínar á blað og langar mig til að láta þær fylgja: „Nú er elsku vinkonan mín horf- in á braut." Þetta ritar hún Jenný litla til hennar. Við kynntumst fyrst þegar ég í vöggu lá. Með litla fing- ur og litla tá. Sigurlaug hefir fylgst með mér öll þessi ár. Við höfum hist á hveiju ári. Talað saman um heima og geima. En nú er hún horfin á braut. Ég mun alltaf sakna hennar." Já, okkur bregður við. Nú stend- ur Sigurlaug ekki í dyranum á hótelínu með sitt blíða bros og býð- ur gesti velkomna, til að gera þeim allt til hæfis. Það er mikil eftirsjá í góðum vini. Því viljum við með þessum fátæk- legu orðum þakka henni góð kynni og ánægjulegar samvemstundir undanfarin 16 sumur. Við biðjum góðan guð að vernda og styrkja Ásgerði dóttur hennar og aldraða móður og annað venslafólk í mikilli sorg. Guð blessi ykkur öll. Jenny, Guðný og Steinar Ragn- arsson, Stykkishólmi. Það var dimmt í lofti á Þorláks- messumorgni en maður kepptist við að undirbúa komu jólanna, hátíð Ijóssins og hækkandi sólar. Síminn hringdi og mér var sagt frá láti æskuvinkonu minnar, Sigurlaugar Eggertsdóttur. Það er oft erfitt að sætta sig við gang lífsins því þrátt fyrir að ég vissi að hún var mikið veik og baráttan tvísýn vonaði ég að hennar sterki vilji myndi sigra nú eins og áður. Sigurlaug fædaist 9. febrúar 1930 á Fossi á Skaga í Skagafjarð- arsýslu, dóttir hjónanna Sigríðar Ásgeirsdóttur ljósmóður og Eggerts Amórssonar frá Hvammi. Þau eign- uðust síðar aðra dóttur, Margréti, en slitu svo samvistir en góð vin- átta hélst alla tíð við föðurfólkið. Þær systur ólust pp í skjóli móð- ur sinnar, ömmu og afa Sigurlaugar Sigurðardóttur og Ásgeirs Hall- dórssonar sem bjuggu myndarbúi á Fossi um árabil. Foreldrar mínir bjuggu þá á næsta bæ. Vomm við Sigurlaug jafnöldmr, mæður okkar náskyldar og góð vinátta milli heim- ilanna. Ég mun því ekki hafa verið gömul þegar ég fór í heimsókn til þessa frændfólks og leikir okkar byijuðu. Ein mín fyrsta bemsku- minning er einmitt tengd boði þangað á jóladag til að heyra fólk suður í Reylq'avík tala og syngja í kassa sem kallaður var útvarp. í bemskuleikjum okkar kom snemma fram hjá Sigurlaugu vísir að því sem varð hennar lífsstarf, að kenna og búa til mat, taka á móti fólki og bjóða til veislu. Þegar við vomm inni var það kaffiboð fyrir brúðumar en væmm við úti vom búnar til kökur og tertur sem hún skreytti og bakaði. Eftir gagnfræðanám við Mennta- skólann á Akureyri urðum við herbergisfélagar í húsmæðraskól- anum á Löngumýri 1948 en þá var hún búin að ákveða sína framtíð, Húsmæðrakennaraskóli íslands var næsti áfangi. Þegar honum lauk tók við matreiðslukennsla við hús- mæðraskóla en síðan varð hún ráðskona við mötuneyti Olíufélags- ins og vann þar í 14 ár en kenndi jafnframt matreiðslu í skólum hér í borg. Eftir að hún hætti hjá Olíufélag- inu starfaði hún eingöngu við kennslu á vetmm. Um sama leyti byijaði hún með ferðamannaþjón- ustu yfir sumartímann og vann hún þar algert brautryðjendastarf. Tók hún á leigu húsmæðraskólann á Löngumýri og þar gat ferðafólk fengið svefnpokapláss og aðstöðu til að elda eða fengið keyptan mat og þjónustu. Þessa starfsemi rak hún í rúman áratug, fyrst á Löngu- mýri en lengst af í kvennaskólanum á Blönduósi við miklar vinsældir. Síðustu sumrin var hún hótelstjóri Edduhótelsins á Húnavöllum. Sigurlaug starfaði mikið að fé- lagsmálum í ýmsum félögum. Var hún m.a. mörg ár í stjóm Skagfirð- ingafélagsins í Reykjavík og vann þar og í Kvennadeild félagsins mik- ið og fómfúst starf. Þá var hún einn af stofnendum Skagfirsku söngsveitarinnar og söng með henni þar til á síðastliðnum vetri að veik- indi hömluðu því. Hún var æfinlega boðin og búin að hjálpa þegar leita þurfti til félaga um aðstoð. Þegar ég nú að leiðarlokum lít yfir farinn veg þá undrast ég hvað hún kom miklu í verk. Hún var mjög viljasterk kona og ósérhlífin, en hún stóð ekki ein. Fjölskyldan var mjög samhent og þegar syst- umar höfðu lokið námi sínu flutti fjölskyldan til Reykjavíkur og setti saman fallegt heimili, bjuggu þar á tímabili fjórir ættliðir saman. Sigurlaug giftist ekki en eignað- ist eina dóttur, Ásgerði Hrönn, sem nú er 18 ára. Var hún móður sinni mikill gleðigjafi og veit ég að Sigur- iaug lagði sig alla fram til að búa hana sem best undir lífsbaráttuna. Að lokum vil ég þakka Sigur- laugu vináttu og hjálp við mig og mína fjölskyldu og votta dóttur hennar, aldraðri móður, systur og hennar fjölskyldu og öðmm ætt- ingjum einlæga samúð. Lovísa Hannesdóttir í dag fer fram útför Sigurlaugar Eggertsdóttur, eða Dillu frænku, eins og ég kallaði hana. Hún hafði um langt skeið átt við alvarleg veik- indi að stríða og kom lát hennar, þeim er til þekktu, ekki mjög á óvart. Fáir vissu, að hún hafði háð svipaða baráttu við þennan ógn- væna sjúkdóm fyrir 17 ámm og farið með sigur af hólmi. Ástvinir hennar ólu þá von með sér að bata- möguleikar væm fyrir henni, en óskhyggjan er oft svo sterk, að raunvemleikinn gleymist. Sigur- laug lést að morgni hins 23. desember. Sigurlaug fæddist á Fossi á Skaga þann 9. febrúar 1930, dóttir hjónanna Sigríðar Ásgeirsdóttur ljósmóður og Eggerts Amórssonar, síðar skrifstofustjóra í ríkisprent- smiðjunni Gutenberg. Foreldrar hennar slitu samvistir og ólst hún upp, ásamt yngri alsystur sinni Margréti, á Fossi hjá móður sinni og móðurforeldmm. Að loknu gagnfræðaprófi frá Menntaskóla Akureyrar fór hún í húsmæðraskólann á Löngumýri í Skagafirði og þaðan í húsmæðra- kennaraskólann í Reykjavík. Hún lauk kennaraprófi 1952 og kenndi einn vetur við skólann á Löngu- mýri, en hefur síðan verið búsett í Reykjavík og um langt árabil kennt hússtjómarfræði við gmnnskólana í Breiðholti. Sigurlaug ferðaðist mikið um ís- land á sínum yngri ámm og vaknaði þá áhugi hennar á ferðamálum al- mennt. Hún taldi að ekki væri búið að ferðafólki á íslandi sem skildi og í von um að geta átt sinn þátt í úrbótum á þessum sviði, kom hún upp gistiaðstöðu í húsmæðraskólan- um á Löngumýri sumarið 1965. Þar gátu gestir nýtt sinn eigin ferða- útbúnað ef þeir þess óskuðu. Hún starfrækti í fjölda mörg ár sumargistiheimili í Kvennaskólan- um á Blönduósi og síðustu átta1 árin var hún hótelstjóri á Hótel Eddu á Húnavöllum í V-Húnavatns- sýslu. Er ég rita þessar línur þyrlast upp í hugann ótal æskuminningar. Ég minnist þess, er ég sem smá- stelpa hafði gert einhveijar skammir af mér og engum þorði að segja frá nema Dillu. Ég vissi að ákúmr fengi ég engar, því hún myndi hlusta og leysa vandann. Ég minnist sumardvalar á Löngumýri og Blönduósi, þar sem ég og síðar Kristín systir mín vomm sjálfsagðir fylgifiskar. Það var okkur ómetan- leg reynsla að komast í kynni við eitthvað annað en borgarlífið, enda var Dillu frænku það lítt að skapi að dveljast að sumarla^i „á möl- inni“, eins og hún orðaði það. Sigurlaug var traust, áreiðanleg, hjálpfús og sannur vinur vina sinna. Hún var með eindæmum greiðvikin og rpiðubúin að leggja mikið á sig t Eiginmaöur minn, ÓSKAR ELÍSSON, Hringbraut 36, Hafnarfirði, lést á heimili sínu laugardaginn 3. janúar. Guðrún Óskarsdóttir. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, HELGIJÓNASSON, Seljalandsseli, V-Eyjafjallahreppi, andaðist á heimili sínu 4. janúar sl. Aðstandendur. t LOFTEY KÁRADÓTTIR, kjólameistari, Freyjugötu 25, lést í Landspítalanum 4. janúar. Anna Hallgrímsdóttir. t Móðursystir mín, STEFANÍA STEFÁNSDÓTTIR, sem andaðist á Reykjalundi 25. desember, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 7. janúar kl. 10.30. Fyrir hönd vandamanna, Ólöf Ólafsdóttir. t Elskulegur sonur minn og bróðir okkar, BJARNI VESTMAR BJÖRNSSON, Sjónarhóli, Hafnarfirði, sem lést I Borgarspítalanum 27. desember, verður jarðsunginn miðvikudaginn 7. janúar kl. 15.00 frá Fríkirkjuhni í Hafnarfiröi. Blóm vinsamlega afbeðin. Þeir sem vildu minnast hans láti styrkt- arsjóð munaöarlausra barna njóta þess. Guðbjörg Jónsdóttir, Bára, Bragi, Boði, Birgir, Berglind. t Útför ástkær eignmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, KRISTJÁNS JÓHANNS HANSSONAR, Öldugötu 10, Hafnarfiröi, fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 7. janúar kl. 10.30. Þeir sem vildu minnast hans eru beönir að láta Krabbameinsfélag Islands njóta þess. Hulda Jóhannsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Minningarathöfn um RÖGNVALD GUÐMUNDSSON, frá Ólafsdal, sem lést á hjúkrunardeild Hrafnistu í Hafnarfirði 24. desember, fer fram f Fossvogskapellu fimmtudaginn 8. janúar kl. 10.30. Jaröarförin fer fram frá Staðarhólskirkju í Dölum föstudaginn 9. janúar kl. 14.00. Börnin. L [ I I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.