Morgunblaðið - 06.01.1987, Page 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1987
Með blátt blóð
í æðum en dreyrrauða
fortíð
Það er gjaman sagt um aðals-
fólk að það hafi blátt blóð í
æðum, til aðgreiningar frá okkur
hinum. Fregnir eru þó af einum,
sem virtist þurfa að endumýja forð-
ann öðm hverju og virtist vera sama
hvemig litt blóðið væri, en það var
Vlad stjaksetjari, sem betur er
þekktur sem fyrirmyndin að Drak-
úia greifa. Öðm hveiju hafa illvirki
Vlads þessa verið rifjuð upp, en nú
fyrir skömmu komst upp að hann
er einn forfeðra Michaels prinsessu
á Englandi.
Forfeður prinsessunnar hafa ver-
ið nokkuð í sviðsljósinu. Ekki alls
fyrir löngu var upplýst að faðir
Michael, Gunther heitinn von Reib-
nitz, hafi verið nazisti á stríðsámn-
um. Er hermt að þessi uppljóstmn
hafi fengið mjög á prinsessuna og
talið að þessi fregn muni ekki hafa
jákvæðari áhrif.
Michael prinsessa.
Prinsessan er afkomandi stjak-
setjarans Vlads í 17. ættlið móður-
ættar, en fyrst byijað er að rekja
ættir er ástæðulaust að láta þarna
staðar numið. Ái téðs Vlads í sjö-
unda lið var nefnilega Gengis Khan,
svo fáum þarf að koma eðli Vlads
á óvart.
Hvað Vlad varðar em heimildir
Þessi mynd var tekin fyrir utan Windsor-kastala um jólin og sést
prinsessan hér ein á gangi og það i herðaslá!
Tina í góðum
félagsskap
Tina Turner hefur lent í mörgu mis-
jöfnu um dagana, en haft var á
orði að líkast til væri þetta í fyrsta
skipti, sem hún hefði verið í jafnafger-
r andi góðum félagsskap og á myndinni.
Ekki svo að skilja að Tina sé að ganga
í klaustur. Síður en svo! Hins var hún
að gera tónlistarmyndband á dögunum
og kemur þar fram sem abbadís. En
eins og máltækið segir er engin abbadís
án nunna, svo úr því þurfti að bæta.
Datt einhveijum það snjallræði þá í hug
að fá nunnur úr nærliggjandi klaustri
til þess að vera aukaleikarar gegn því
að Tina greiddi ríflega fjárfúlgu, sem
fara skyldi til einhvers góðgerðarmálefn-
is að þeirra vali. Nunnumar tóku því
og hér er myndin af tveimur þeirra og
Tinu.
Þrátt fyrir að Tina komi fram sem
abbadís, er sérstaklega tekið fram að
hún sé „djarfasta abbadís samanlagðrar
mannkynssögunnar og hiki ekki við að
sýna hina guðdómlega fótleggi sína.“
Tina og nunnurnar tvær.
Peter Holm:
Vill tæpar tvær milljónir
í mánaðarlaun!
Morgunblaðið hefur að und-
anfömu sagt undan og ofan
af skilnaðarmálum Joan Collins og
hins sænska manns hennar Peter
Holm.
Þau eru ekki alveg einleikin, því
að Joan vill ekki fá skilnað frá
Peter, heldur ógildingu hjónavígsl-
unnar, á þeim forsendum að Peter
hafí hlunnfarið sig í fjármálum
þeirra. Hann sver hins vegar og
sárt við leggur, að sem bókhaldari
beggja hafí hann aldrei gert neitt
nema það sem væri þeim báðum í
hag. Til þessa hefur Holm vonað
að sættir myndu takast, en hann
virðist nú hafa gert sér grein fyrir
því að lítil von er til þess.
Því hefur hann tekið til þess
bragðs að krefjast lífeyris af Joan;
sem svarar 1,75 milljónar íslenskra
króna á mánuði. Það gerir hann á
þeirri forsendu að í hjónabandinu
með sjónvarpsstjömunni víðfrægu
hafi hann orðið svo góðu vanur að
minna skotsilfur hrökkvi ekki til. í
bandaríska tímaritinu Star sagði
hann að hann teldi þetta höfðing-
lega gert af sér, því hann hefði
getað krafíst helmings eigna þeirra,
en einmitt þess vegna vill Joan láta
ógilda hjónabandið, en ekki skilja.
Hún hefur haldið því fram að
Peter hafi haft um 35 milljónir tsl.
króna af sér og tryggingafélagi sínu
með ýmsum beliibrögðum, auk þess
að leggja á sig hendur, en hann
segir að það hafí verið öðm nær.
Hún hafí hvað eftir annað barið sig ir rétt innan nokkurra vikna og
þannig að á sæi. verður fróðlegt að fylgjast með nið-
Talið er að málið verði tekið fyr- urstöðum hans.
Peter og Joan
meðan lífið var
dans á rósum.
Heilsíðuauglýsingin gegn Schlliter. Poul Schliiter.
Burt með manninn!
Frændur vorir Danir þykja oft í
glaðværara lagi og er lítið gefn-
ir fyrir að skafa utan af hlutunum,
eða að vera með óþarfa heilagleika.
Þetta kom ljóslega fram í dönskum
dagblöðum fyrir nýárið.
Þrátt fyrir Poul Schliiter sé einn
vinsælasti forsætisráðherra Dan-
merkur og hafí ná undraverðum
árangri í efnahagsmálum, eru ekki
allir á eitt sáttir um ágæti hans.
Dönsk verkalýðsfélög virðast t.a.m.
á því að hann sé fól og illmenni,
ef dæma má af áramótaauglýsingu
þessara félaga.
Það eru ríflega þijátíu félög
víðsvegar að í Danmörku, sem þátt
taka í þessari kveðju sinni til lands-
manna að ekki sé minnst á lands-
föðurinn, en hún ber fyrirsögnina:
„Við höfum fengið nóg af þvi að
vera í skollaleik við Schliiter.
Hann þarf að víkja á árinu 1987!“
Sem sjá má fylgir mynd af Schluter
með bundið fyrir augun, væntan-
lega í skollaleik, en fyrir neðan
stendur: „Hér er maðurinn, sem
gerir tilveruna leiða!"
Það væri ekki amalegt ef kveðj-
umar væru vandaðar á þennan
máta hér uppi á skeri!
L
I
I