Morgunblaðið - 06.01.1987, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1987
55
Skákþing Reykjavíkur
hefst á sunnudaginn
Fiskvinnslufólki hefur verið sagt upp störfum í nokkrum frystihúsum vegna verkfalls sjómanna.
Hreint siðleysi hjá
atvinnurekendum
- segir Karl Steinar Guðnason, varaformaður VMSÍ, um
að fiskvinnsluf ólk skuli tekið út af launaskrá
FORS V ARSMENN Verkamanna-
sambandsins eru mjög ósáttir við
að fiskvinnslufyrirtæki stöðvi
launagreiðslur til fiskvinnslu-
fólks vegna verkfalls sjómanna.
Karl Steinar Guðnason, vara-
formaður Verkamannasam-
bandsins, segir að það sé hreint
siðleysi hjá atvinnurekendum að
standa þannig að málum, þó það
kunni að vera matsatriði hvort
um brot á samningum sé að ræða.
Hann sagði að boðað yrði til
fundar i framkvæmdastjórn
VMSÍ á miðvikudaginn kemur til
þess að ræða þetta mál.
í samningunum í febrúar á
síðasta ári er fískvinnslufólki gefín
kostur á fastlaunasamningum, sem
gera það að verkum að það hefur
fjögurra vikna uppsagnarfrest í
stað einnar viku áður. I samningn-
um er vísað til laga nr. 19/1979
um rétt verkafólks til uppsagnar-
frests frá störfum og til Iauna vegna
sjúkdóms og slysaforfalla. í 3. grein
þeirra laga kemur meðal annars
ffam að atvinnurekenda er ekki
skylt að greiða launþega ef hráefni
er ekki fyrir hendi hjá fískiðjuveri.
Karl Steinar sagði að það tíðkað-
ist ekki í öðrum starfsgreinum að
segja fólki upp með engum fyrir-
vara. Hann teldi að þama væri
komið öðru vísi fram við físk-
vinnslufólk en tilefni væri til og
þessi framkoma stefndi samskipt-
um þess við atvinnurekendur í
ákveðna hættu. Hann sagði að ef
útgerðarmenn hefðu búist við því
að af verkfalli yrði, hefðu þeir haft
nægan tíma til þess að segja fólki
upp með eðlilegum fjögurra vikna
fyrirvara.
„Þessi aðgerð er spuming um
hugarfar gagnvart fískverkunar-
fólki og heiðarleika gagnvart
samningamönnunum og anda sam-
komulagsins. Áður fyrr var fólki
hent út með viku fyrirvara en nú
er það gert fyrirvaralaust,“ sagði
Karl Steinar. Hann sagði jafnframt
að gildi fastlaunasamningsins væri
mjög mikið, þó atvinnurekendur
hefðu staðið svona að málum nú.
Áður en til hans hefði komið, hefði
fólki í sífellu verið sagt upp með
viku fyrirvara víða um land.
Þórir V. Daníelsson, fram-
.kvæmdastjóri VMSÍ, sagði að úr
því sem komið væri, væri réttast
að láta reyna á málið fyrir Félags-
dómi, en til þess þyrfti að kæra út
af einstöku máli, þar sem Félags-
dómur úrskurðaði ekki um almenn
ágreiningsatriði.
SKÁKÞING Reykjavíkur 1987
hefst sunnudaginn 11. janúar og
verður teflt í félagsheimili Tafl-
félags Reykjavíkur að Grensás-
vegi 46.
í aðalkeppninni sem hefst á
sunnudaginn kl. 14.00 munu kepp-
endur tefla saman í einum flokki
11 umferðir eftir Monrad-kerfí.
Umferðir verða þrisvar í viku, á
sunnudögum kl. 14.00 og á mið-
vikudögum og föstudögum kl.
19.30. Biðskákdagar verða inn á
milli. Aðalkeppninni lýkur væntan-
lega 4. febrúar.
Keppni í flokki 14 ára og yngri
á skákþingi Reykjavíkur hefst laug:
ardaginn 17. janúar kl. 14.00. I
þeim flokki verða tefldar níu um-
ferðir eftir Monrad-kerfí, umhugs-
unartími 40 mínútur á skák fyrir
hvern keppenda. Keppnin tekur þijá
laugardaga, þijár umferðir í senn.
Bókaverðlaun verða fyrir a.m.k.
fímm efstu sæti.
Lokaskráning í aðalkeppnina
verður laugardaginn 10. janúar kl.
14.00-18.00 ogeröllum heimil þátt-
taka.
Taflfélag Reylqavíkur hefur
haldið skákþing Reykjavíkur árlega
frá árinu 1931. Ingi R. Jóhannsson
hefur oftast orðið skákmeistari
Reykjavíkur, alls sex sinnum.
Næstir koma Ásmundur Ásgeirs-
son, Baldur Möller, Eggert Gilferj
Benóný Benediktsson, Bjöm Þor-
steinsson og Jón Kristinsson, en
þeir hafa unnið meistaratitilinn §ór-.
um sinnum hver. Núverandi
skákmeistari Reykjavíkur er hinn
komungi skákmaður Þröstur Ama-
son, sem var aðeins þrettán ára^.
þegar hann varð Reykjavíkurmeist- '
ari í fyrra, og hefur hann fullan
hug á að veija titilinn nú.
(Fréttatilkynning)
Þrír á veiðar
fyrir verkfall
Ytri-Njardvík.
ÞRÍR togarar af sex sem gerðir
eru út á Suðurnesjum héldu á
veiðar áður en verkfall sjómanna
hófst. Voru það Gautur GK, Dag-
stjarnan KE og Ólafur Jónsson
GK. Fyrirhugað er að Dagstjarnan
selji aflann í Þýskalandi og fari
þar í slipp til ýmissa lagfæringa.
Aðalvík KE og Bergvík KE liggja
við bryggju í Njarðvíkurhöfn og Keil-
ir RE er í Hafnarfirði. Bátaflotinn
liggur allur bundinn, ýmist í höfninni
í Keflavík eða Njarðvík og sagði
hafnarvörðurinn í Njarðvík Meinert
Nilssen að vel færi um bátana í höfn-
inni.
Raunar hafa flestir bátanna legið
í höfn síðan fyrir jól og menn tekið
lífínu með ró. Einn og einn hefur þó
brugðið sér í róður á milli hátíðis-
daganna. Afleiðing sjómannaverk-
fallsins leynir sér ekki þegar farið
er um hafnimar. Þar var ekkert ys
og þys eins og á góðum degi og
nokkrir bátanna sem ekki voru með
vélar í gangi vögguðu eins og lífvana
reköld þegar myrkið tók að grúfa
sig yfir höfnina.
- BB
Yfirlýsingar forystumanna.
YMSI koma mjög á óvart
- segir Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ
„Það er útbreiddur misskilning-
ur að um uppsagnir sé að tefla.
Fyrirtæki í sjávarútvegi, sem
verða fyrir barðinu á verkfalli
sjómanna, hafa heimild til þess
að fella niður launagreiðslur á
meðan á vinnsiustöðvun stendur,
en starfsfólkið á rétt til atvinnu-
leysisbóta frá og með fyrsta
degi,“ sagði Þórarinn V. Þórar-
insson, framkvæmdastjóri VSÍ,
aðspurður um stöðvun launa-
greiðslna til fiskvinnsiufólks.
„Mér vitanlega hefur ennþá ekki
verið gengið frá hækkun atvinnu-
leysisbóta frá 1. desember síðast-
liðnum, en ég á fastlega vón á því
að þetta fólk, starfsfólk í fiskvinnsl-
unni, hafí litlu minna út en það
myndi hafa haft úr hendi fyrirtæk-
isins. Tjón starfsfólks í fiskvinnsl-
unni felst því fyrst og fremst í því
að bónusgreiðslur falla að sjálf-
sögðu niður þegar engin vinnsla á
sér stað. Það eru beinar og óhjá-
kvæmilegar afleiðingar sjómanna-
verkfallsins, sem fískvinnslunni
verður með engu móti kennt um,“
sagði Þórarinn.
„í viðræðunum við VMSÍ á
síðasta ári var allan tímann mjög
skýrt að við myndum ekki skuld-
binda fiskvinnslufyrirtæki til þess
að halda uppi launagreiðslum þegar
vinnsla lægi niðri vegna verkfalls
sjómanna. Krafa um annað væri
reyndar næsta ósæmileg, því víðast
út um landið eru sjómenn og físk-
vinnslufólk í því sama verkalýðs-
félagi, sem boðað hefur vinnustöðv-
un. Mér koma því yfírlýsingar
nokkurra forystumanna Verka-
mannasambandsins, sem tóku
beinan þátt í samningaviðræðunum
um þennan þátt málsins mjög á
óvart, því mér er óskiljanlegt að
ekki eldri menn hafí gleymt því
hvað þeir sömdu um fyrir aðeins
11 mánuðum síðan. Texti sam-
komulagsins er auk þess mjög skýr
fyrir alla þá sem til þekkja, því
hann vísar til áratugahefðar og
framkvæmdar umræddra lagaá-
kvæða þegar eins háttar til og nú.
„Ástæðan fyrir því að við stönd-
um fast á þeim rétti að geta fellt
niður launagreiðslur þegar verkföll
annarra hópa stöðva vinnslu,
grundvallast ekki síst á því að við
viljum ekki skapa þær aðstæður að
verkbönn og samúðarverkbönn á
hendur því fólki sem við eigum
ekki í deilu við, séu einasta mögu-M
lega vamaraðgerð atvinnurekenda
í fískiðnaði. Verkbanni fylgir launa-
leysi og engar atvinnuleysisbætur,
andstætt því sem gildir um þá að-
gerð að taka starfsfólk af launaskrá
tímabundið vegna þessara sérstöku
aðstæðna," sagði Þórarinn V. Þór-
arinsson að lokum.
ALDFtlFI!
MAZDA E 2000/2200
I1ÚMEÐ
Síðastliðið ár var MAZDA E 2000/
2200 mest seldi sendibíllinn í sínum
stærðarflokki. Nú er líka hægt að fá
þennan afbragðsbíl með aldrifi og
vökvastýri.
Sérlega hagstætt verð.
BILABORG HF
SMIÐSHÖFÐA 23, SÍMI 68-12-99