Morgunblaðið - 08.02.1987, Page 1
96 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
32. tbl. 75. árg. _______________________________SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 1987 _____________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sovétríkin:
42 and-
ófsmönn-
um sleppt
Moskvu. AP, Reuter. ■*-
FJÖRUTÍU og tveir andófsmenn,
sem setið hafa í fangelsum í Sov-
étríkjunum, hafa verið látnir
lausir á einni viku. Meðal þeirra
er stærðfræðingurinn Yuri Shik-
hanovich, sem gaf út á Iaun
skýrslu um ástand mannréttinda-
mála í landi sínu. Andrei Sak-
harov og ættingjar sumra
andófsmannanna skýrðu frá
þessu í fyrrakvöld.
Síðastliðin 30 ár hefur aldrei jagn
mörgum andófsmönnum verið
sleppt úr fangelsi og nú en 2. febrú-
.ar ákváðu stjórnvöld að taka mál
ýmissa þeirra til endurskoðunar.
Ekki er þó búist við, að síðustu
atburðir séu liðir í almennri sakar-
uppgjöf andófsmanna.
Sakharov sagði í viðtali við
fréttamenn, að Shikhanovich hefði
hringt til sín strax og hann var
kominn til Moskvu frá fangabúðun-
um í Perm í Úralfjöllum. „Það var
gleðilegt að heyra til hans,“ sagði
Sakharov, sem sjálfur fékk að koma
til Moskvu í desember sl. eftir sjö
ára útlegð í hinni lokuðu borg Gorkí.
Árið 1983 var Shikhanovich
dæmdur í 10 ára vinnubúðavist og
þriggja ára útlegð innanlands fyrir
að hafa ritstýrt „Annál vorra tíma“,
riti um mannréttindamál í Sov-
étríkjunum. Aðrir, sem voru látnir
lausir, voru dæmdir fyrir ýmsar,
aðallega andsovéskan áróður.
Er fríðurinn úti
*
a
Manila. AP. Reuter.
KOMMÚNÍSKIR skæruliðar
felldu fimm stjómarhermenn og
særðu aðra fimm I skyndiárás á
herstöð á Norður-Filippseyjum á
föstudag, tveimur sólarhringum
áður en 60 daga vopnahléið i
landinu skyldi renna út.
Manuel Avila, yfírmaður herstöðv-
arinnar, sem er í Kalinga Apayao-
hérði, um 400 km fyrir norðan
Manila, sagði, að um 70 skæruliðar
úr Nýja þjóðarhemum, NPA, hefðu
gert harða árás á stöðina og komið
jarðsprengjum fyrir í vegum í kring
til að tefla fyrir því, að liðsauki
kæmist á vettvang.
Vopnahléið átti samkvæmt samn-
ingum að renna út um miðjan dag
í dag, en Luzon-deild Lýðræðisfylk-
ingarinnar, NDF, stjómmálaarms
NPA-skæmliðahreyfmgarinnar, til-
kynnti á föstudag, að vopnahléið
væri þegar úti af hálfu skæruliða þar.
Lýðræðisfylkingin dró sig út úr
samningaviðræðunum í síðustu viku
og sakaði stjómina um að hafa ekki
áhuga á að koma á varanlegum friði.
„Við ætlum ekki að una þessu vopna-
hléi sýndarmennskunnar lengur,"
sagði í tilkynningu NDF.
„Ef eitthvað hefur á sannast í
samningaviðræðunum, er það, að
stjómin hefur ekki nokkum áhuga á
að leysa gmndvallarvandamál þjóð-
arinnar; áhuginn beinist allur að því
að fá skæruliða til að leggja niður
vopn,“ sagði enn fremur í tilkynningu
NDF.
Spengjugnýrinn bergmálaði um
alla Beimtborg í gær þegar hermenn
shíta gerðu enn eina atlöguna að
flóttamannabúðum Palestínumanna
í Chatilla og Bouij El-Barajneh.
35.000 manns hafast þar við í kjöll-
umm og byrgjum, aðallega konur
og böm, en um 85% búðanna em í
rústum. Matarskorturinn er svo mik-
ill, að fólkið hefur étið hunda og
I yfir vilja sínum til að framlengja
vopnahléið, jafnvel án loforðs skæm-
liða um að setjast að samningaborð-
inu, en Fidel Ramos, yfirmaður
herráðsins, hefur skipað stjómar-
I hemum að vera í viðbragðsstöðu.
ketti og í gær sagði fulitrúi PLO hjá
SÞ, að fólkið hefði farið fram á leyfí
trúarleiðtoga sinna til að leggja sér
til munns „þá, sem falla í valinn".
Líbönsk samtök, sem hlynnt em
írönum, kváðust í gær mundu drepa
tvo Bandaríkjamenn og einn Frakka,
sem þau hafa í haldi, ef bandaríski
herinn gerði árás á Líbanon og
Corazon Aquino.
franska stjóm héldi áfram að sjá
írökum fyrir vopnum. Nabih Berri,
leiðtogi shíta í Líbanon, segir í við-
tali, sem birtist í líbönsku tímariti,
að nauðsynlegt sé að láta til skarar
skríða gegn mannræningjaflokkun-
um í landinu. Sagði hann, að
mannránin væm búin að leggja í
rúst allt skólastarf í tveimur stærstu
háskólunum í múhameðska hluta
Beimtborgar, Bandaríska háskólan-
um og Beimtháskóla. Á einum
mánuði hafa 11 útlendingar fallið í
hendur öfgamanna, sem beijast fyr-
ir íslamskri byltingu í Líbanon í
anda Khomeinis erkiklerks í íran.
Skoðanakönnun
í Bretlandi:
Naumur
meirihluti
fhalds-
flokksins
London. Reuter.
ÍHALDSFLOKKURINN fengi
nauman meirihluta í þinginu, ef
efnt yrði tU almennra kosninga
í Bretlandi nú, samkvæmt niður-
Gallup-könnunar, sem birt var í
gær.
Ef marka má könnunina, sem
gerð var fyrir Breska ríkisútvarpið,
BBC, fengi íhaldsflokkurinn 37,4%
atkvæðanna, Verkamannaflokkur-
inn 36,6% og kosningabandalag
fíjálsiyndra og jafnaðarmanna
23,8%.
BBC sagði, að þessi útkoma
gæfi Ihaldsflokknum 14 sæta meiri-
hluta í neðri málstofunni.
Kosningar eiga í síðasta lagi að
fara fram í Bretlandi á næsta ári,
en fastlega er búist við, að Margar-
et Thatcher forsætisráðherra ijúfi
þing þegar á þessu ári og boði til
kosninga, jafnvel strax í aprfl.
Undanfama mánuði hafa niður-
stöður skoðanakannana verið mjög
breytilegar. Telja sumir fréttaskýr-
endur hugsanlegt, að sú staða geti
komið upp, að enginn flokkanna
nái meirihluta.
Corazon Aquino forseti hefur lýst
Skelfilegft ástand í flótta-
mannabúðunum í Beirut
Beirut, Tel Aviv, SÞ. AP, Reuter.
HARÐIR bardagar geisuðu í gær um tvennar flóttamannabúðir Pal-
estinumanna í Beirut í Líbanon. Sitja hermenn shíta um búðirnar og
skutu á þær af fallbyssum og skriðdrekum. Fulltrúi Frelsisfylkingar
Palestinumanna, PLO, hjá Sameinuðu þjóðunum sagði á blaðamanna-
fundi í gær, að ástan
í búðunum væri svo skelfilegt, að fólkið, sem hefðist þar við, hefði
beðið trúarleiðtoga sina leyfis til að leggja sér mannakjöt til munns.