Morgunblaðið - 08.02.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 1987
Albert GK líklega
breytt í Bretlandi
TILBOÐ hafa verið opnuð í breyting'ar á nótaskipinu Albert GK 31
frá Grindavik. Lægsta tilboðið kom frá brezkri skipasmíðastöð og
verður því væntanlega tekið. Kostnaðaráætlim var upp á 44 milljón-
ir króna en tilboð Bretanna var upp á 39,4 milljónir.
Alls bárust 14 tilboð í breyting-
amar og voru þau frá 39,4 milljón-
um upp í rúmlega 71 milljón. Tvö
tilboð bárust frá íslenzkum aðiljum.
Skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts
á Akranesi var þriðja neðst með
Ljósatölvan
bilaði í
óperunni
ÍSLENSKA óperan lenti í nokkru
stimabraki með Ijósatölvu á sýn-
ingu Aidu á föstudagskvöld.
Tafðist sýningin um eina klukku-
stund, en gekk síðan snurðulaust.
Að sögn Kristínar S. Kristjáns-
dóttur, sýningarstjóra óperunnar,
kom í ljós strax í forleik að ljósatölv-
an vann ekki sem skyldi. „Þau litiu
ljós sem eru uppi í forleiknum blikk-
uðu og þá var ákveðið að stöðva
sýningu og kanna orsakir þessa,"
sagði Kristín. „Eftir eina klukku-
stund var sýningin hafín að nýju
og gekk án nokkurra áfalla. Að-
faranótt laugardagsins var unnið
við tölvuna til að fínna bilunina.
Áhorfendur voru afskaplega þolin-
móðir og indælir og sýndu okkur
skilning í þessum erfíðleikum og
vonandi verðum við laus við óhöpp
sem þessi í framtíðinni."
43,8 milljónir og Stálsmiðjan var í
7. sæti með 54 milljónir. Önnur til-
boð vom frá ýmsum erlendum
aðiljum og það næst lægsta var frá
skipasmíðastöð í Hamborg upp á
42 milljónir króna. Að loknu mati
á tilboðunum og samhæfíngu kom
í ljós, að verðmunur á tilboði Bret-
anna og Þjóðveijanna var 5 milljón-
ir króna og tilboð Þorgeirs og
Ellerts var 7 milljónum hærra en
það lægsta, að sögn Frímanns Stur-
lusonar, skipatæknifræðings hjá
Skipatækni hf.
Breytingamar á Albert em sam-
kvæmt útboði lenging um 5 metra,
breyting á skut fyrir skuttog, pem-
stefni, endurbætur og breytingar á
íbúðum, nýtt stýrishús ogþilfarshús
undir það og hvalbak verður ljrft.
Áætlað er að vinna við breytingam-
ar heQist með vorinu og taki rúma
tvo mánuði.
Albert GK 31 hét áður Birting-
ur. Hann var byggður í Flekkefjord
í Noregi 1967 og lengdur og yfír-
byggður 1976. Hann mælist nú 316
brúttólestir og er á loðnuveiðum.
Eigandi er Þróttur hf. (Þórarinn
Ólafsson), Grindavík.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
500 tölvurmeð þotu tíl landsins
Þeir eru stórtækir á tölvuöld innflytjendur tölva
hér á landi. Fyrirtækið Einar J. Skúlason hf.
leigði í fyrradag þotu af Flugleiðum og flutti
með henni liðlega 500 tölvur af Victor-gerð frá
Stokkhólmi til Islands. Að sögn Kristjáns Auð-
unssonar framkvæmdastjóra fyrirtækisins var
þessi háttur hafður á innflutningnum, vegna
farmannaverkfaUsins. Hann sagði að fyrirtækið
hefði náð hagstæðum samningum við Flugleiðir
um leiguflugið, og þvi væri þetta ekki tiltakan-
lega kostnaðarsamt. Tölvumar, sem velflestar
væm þegar seldar, hækkuðu að sögn Kristjáns
ekki í verði við þennan flutningsmáta.
Útgerð minni togara 1985:
13% tap á suðursvæðinu, en
Reykur úr ofni
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var
kvatt að húsi við Reykás i gær-
morgun, þar sem reyk lagði út
úr íbúð þar.
íbúar í húsinu tóku eftir að reyk
lagði út úr einni íbúð í stigagangin-
um. Þegar lögregla og slökkvilið
komu á vettvang um kl. 7 reyndist
vera kveikt á bakaraofni eldavélar
og stafaði reykurinn af því. Engan
sakaði og skemmdir voru engar.
0,8% hagnaður á norðursvæði
Ástæðan mismunandi verðmæti afla
Númer síma-
þjónustunnar
f frétt blaðsins í gær um hina
nýju símaþjónustu Rauða krossins
fyrir böm og unglinga féll niður
símanúmerið. Númerið er 622260.
ÚTGERÐ minni togara á svæðinu frá Látrabjargi suður um að Höfn
í Homafirði gengur talsvert verr en útgerð minni togara annars staðar
á landinu samkvæmt úrtaki úr rekstrarreikningum 51 togara, sem
unnið hefur verið af Þjóðhagsstofnun. Árið 1985 sýndi meðaltal 20
togara af suðursvæðinu 13% tap en meðaital 31 togara af norðursvæð-
inu 0,8% hagnað. Talið er að mismunur þessi stafi fyrst og fremst af
minni þorski í aflamarki togara af suðursvæðinu og lægra þorskafla-
hámarki í sóknarmarki. Afli togara af suðursvæðinu sé því verðminni
en togara af norðursvæðinu. Samkvæmt úrtaki Þjóðhagsstofnunar úr
rekstrarreikningum fiskvinnslunnar kemur fram að staða frystihúsa á
suðursvæðinu sé lakari en á norðursvæðinu.
Ekki liggja fyrir sambærilegar ávöxtun. Sama ár voru togarar af
tölur fyrir síðasta ár, en líklegast
er að munurinn á útgerð eftir svæð-
um sé enn nokkur, þó rekstrarstað-
an á báðum svæðunum hafí batnað
verulega. Árið 1985 voru 78 minni
togarar að meðaltali reknir með
7,5% tapi af tekjum miðað við 6%
suðursvæðinu reknir með 13% tapi
eða 140,9 milljóna króna miðað
sama úrtak. Hagnaður togara á
norðursvæðinu var þá 0,8% af tekj-
um eða 17 milljónir króna. Afla-
verðmæti umræddra 20 togara af
suðursvæðinu var rúmur einn millj-
arður en 31 togara af norðursvæð-
inu rúmir 2 milljarðar. Rekstrar-
gjöld togara af suðursvæðinu námu
92,4% af tekjum en 84,3% á norður-
svæðinu. Allir helztu útgjaldaliðir
togara af suðursvæðinu voru hærra
hlutfall af telqum en á norðursvæð-
inu. Togarar á suðursvæðinu seldu
að meðaltali 210,5 lestir af ísfíski
erlendis en togarar lestir á hinu
svæðinu 254,8 árið 1985. Sala fisks
í gámum er þá ekki meðtalin.
Á aðalfundi LÍÚ í nóvember
slðastliðnum var felld tillaga þess
efnis, að afnema bæri svæðaskipt-
ingu í sóknarmarki. Þorskaflahá-
mark togara í sóknarmarki á suður-
svæðinu er 1.150 lestir, en 1.750 á
norðursvæðinu. Ennfremur miðast
aflamark við reynslu áranna 1981
til 1983, en á þeim tíma var karfí
og ufsi verðbættur og því hugsan-
lega hærra hlutfall í afla togara
sunnanmanna en ella. Þessar físk-
tegundir eru ekki verðbættar
lengur.
Norðurlandamótið í skólaskák:
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Innanhússgolfmót í Oskjuhlíð
ÓVENJULEGT golfmót er haldið nú um helgina í Keilusalnum
í Öskjuhlíð. Þar hefur verið settur upp svokallaður golfhermir,
tölvustýrt tæki sem líkir eftir golfleik á golfvellinum Pebble
Beach i Kaliforníu. Keppendur slá golfkúluna i tjald og tölvan
reiknar út högglengd og stefnu, og gefur upplýsingar um hvar
kúlan hefur lent. Þessi mynd var tekin þegar Ragnar Ólafsson
fyrrverandi Islandsmeistari í golfi sló upphafshögg á einni braut-
inni á Pebble Beach, en 27 keppendur voru skráðir til leiks á
mótinu.
Tveir íslendingar
leiddu sína flokka
ÍSLENSKIR skákmenn leiddu í tveimur flokkum af fimm
þegar þremur umferðum var lokið af fimm á Norðurlandamót-
inu í skólaskák sem nú fer fram í Otta í Noregi. Mótinu lýkur
í dag, sunnudag.
Tveir skákmenn frá hverri þjóð
tefla í hveijum flokki á mótinu. í
aldursflokki 17-20 ára tefla Þröstur
Þórhallsson og Davíð Ólafsson og
þeir höfðu báðir gert jafntefli í
þremur fyrstu skákum sínum, og
raunar eitt þeirra innbyrðis. í þeim
flokki leiddi Svíinn Hans Jonsson
með 2,5 vinninga, en með 2 vinn-
inga var íslenskur piltur, Reynir
Helgason, sem er búsettur í Svíþjóð
og keppir fyrir Svía á mótinu.
í flokki 15-16 ára var Magnús
Pálmi Ömólfsson með 1,5 vinninga
og Amaldur Loftsson með 1 vinn-
ing. Þar leiddi Norðmaðurinn Lars
Hjelmás með 3 vinninga eftir 3
umferðir.
Hannes Hlífar Stefánsson hafði
forustu í flokki 13-14 ára með 2,5
vinninga ásamt Finnanum Petri
Hokkanen, en þeir tveir höfðu þá
gert innbyrðis jafntefli. Þröstur
Amason var með 1,5 vinninga en
hann tapaði fyrir Hannesi í fyrstu
umferð mótsins.
Héðinn Steingrímsson var með
fullt hús, 3 vinninga, í flokki 11-12
ára, en Magnús Armann var í miðj-
um hóp með 1,5 vinninga. í flokki
10 ára og yngri var Helgi Áss Grét-
arsson með 2 vinninga eftir 3
umferðir en Heiðar Þór Hreinsson
hafði fengið 2 vinninga af 4 þegar
Morgunblaðið hafði síðast fréttir
af mótinu á laugardagsmorgun en
þá stóð 4. umferðin yfír. í yngsta
flokknum leiddi Svíinn Patrick Lyr-
berg með 3 vinninga af þremur.
Þetta er í sjötta skiptið sem Norð-
urlandamótið í skólaskák er haldið
og hafa íslendingar verið mjög sig-
ursælir hingað til. Þeir hafa 10
sinnum unnið til gullverðlauna,
Danir hafa 9 sinnum unnið, Svíar
6 sinnum, Norðmenn 4 sinnum og
Finnar einu sinni. Margir þeirra
skákmanna sem nú tefla á mótinu
hafa áður unnið til gullverðlauna í
sínum flokkum, og þar er fremstur
í flokki Hannes Hlífar Stefánsson
sem unnið hefur sinn aldursflokk
fjórum sinnum í röð. ólafur Ólafs-
son fararstjóri skákhópsins sagði
að í mótsskránni væri Hannesi helg-
uð heil síða, þar sem ferill hans er
rakinn.
Fjórða umferð mótsins var tefld
á laugardagsmorguninn og síðasta
umferðin verður tefld á sunnudag-
inn en skákmennimir eru væntan-
legir heim á þriðjudag.