Morgunblaðið - 08.02.1987, Síða 29

Morgunblaðið - 08.02.1987, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. FEBRUAR 1987 29 því. Ég vona að fjöldi unglinga sem sér Platoon hugsi sig um tvisvar. Þá gera þau kannske ekki sömu mistökin og ég.“ Oliver Stone hefur að líkindum verið eini maðurinn sem hélt til Víetnam til að kæla sig niour. Sem táningur var hann tímasprengja. Sem einkasonur föður af gyðinga- ættum og fransk-kaþólskrar móður, hlaut hann mikil sárindi við Hill og Trinity skólana í Pennsylvaniu og ekki tók betra við heima fyrir. Lou, faðir Stones, var ákaflega íhalds- samur verðbréfasali sem hlaut sitt verðmætamat í kreppunni. Þó Stone deildi íhaldssömum stjómmálaskoðunum með föður sínum þá gat hann ekki fylgt þeirri slóð sem búið var að varða fyrir hann. Hann gafst upp í Yale eftir ársnám árið 1965 og hélt til Víet- nam í sex mánuði, til að kenna kínverskurti nemendum ensku, sögu og stærðfræði. Eftir tímabil í kaup- skipaflotanum gerðist hann sjálf- boðaliði í hernum og gekk í fótgönguliðið. „Þetta var mín leið til þess að láta föður minn vita að ógrynni af grasi því það slævir meðvitundina og ég vildi ekki leng- ur vita hvað gekk á í kringum mig. Öll rómantík var horfín og föður- landsástin fór þverrandi og markmið mitt var að telja dagana uns ég gat snúið aftur til umheims- ins.“ Stone sneri til Bandaríkjanna í nóvember 1968 með The Purple Heart og Bronze Star fyrir hug- rekki. Skömmu síðar reyndi hann að laumast yfír landamærin eftir ferðalag til Mexíkó og var hand- tekinn fyrir að vera með marihuana undir höndum. Faðir hans þurfti að snara út 2.500 dölum til að fá hann lausan úr fangelsi í San Di- ego. „Ég var útfríkaður," segir Stone. Stone flæktist um í eiturvímu uns hann hóf nám í NY University 1969. Til að byija með féll hann ekki inn í mynstrið. „Hann var hinn dæmi- gerði, beiskjufulli einfari," segir handritahöfundurinn Stanley Weis- er, einn bekkjarbræðra hans. „Mjög einangraður, mjög tortrygginn, mjög „macho“.“ leigubílaakstrinum: Þegar haf- skipin sigldu inn höfnina leitaði hugurinn til baka, til Víetnam. „Endanlega fékkst ég við stríðið á raunsannan hátt. Það tók mig tíu ár að ná til þessa handrits því ég gat ekki tekið á því fyrr. Eg þarfnaðist fjarlægðarinnar." Eftir örfáa mánuði hafði Stone lokið við Platoon. Handritið vakti mikinn áhuga hjá framleiðendum og kvikmyndaverum, þó það tæki Stone tíu ár til viðbótar að vinna úr því kvikmyndina. Én hæfíleikamir sem komu í ljós í handriti Stones urðu til þess að Columbia Pictures réð hann til að skrifa handrit Midnight Express, ásamt framleiðandanum David Puttnam (sem nú stjómar Columb- ia) og leikstjóranum Alan Parker. Myndin var byggð á sannri lífs- reynslu bandarísks eiturlyfjasmygl- ara í tyrknesku fangelsi og var tekin á Möltu fyrir 3 milljónir dala. Midnight Express sló í gegn og vorið 1979 hlaut Stone Óskarsverð- launin fyrir handritið. „Þetta var eins og í ævintýri," segir Stone. Salvador: Tamdi ofsa leikstjórans. ég væri maður,“ segir Stone. „Jafn- framt hafði ég til að bera föður- landsást í ríkum mæli. Ég trúði á land mitt og hugsjónir og að komm- arnir væru að grafa undan okkur hvarvetna." Svo Stone eyddi 21. afmæiisdegi sínum á leið til Víetnam þar sem hann var sendur til 25. fótgöngu- liðssveitarinnar við landamæri Kambódíu. Hann lenti í eldlínunni innan tveggja vikna. „Rétt eins og í bíó. Ég sá norður-víetnamskan hermann og dreng og hreinlega fraus. Mér leið bölvanlega á eftir af því að náunginn við hliðina á mér missti handlegginn. Ég slasað- ist líka, þökk sé Guði, því ég hefði ekki verið fær um að taka háðs- glósum félaganna." En eftir því sem leið á stríðið og Stone varð betri hermaður slævðist skilningur hans á réttu og röngu. „Við brenndum þorpin, unnum heil- mikil skemmdarverk," segir hann. „Ekki á mælikvarða My Lai, en við vorum sífellt að. Láttu ekki neinn telja þér trú um neitt helvítis kjaft- æði.“ Hann minnist þess að í einu þorpinu missti hann stjórn á sér og lét blýinu rigna við fætur gamal- mennis. „Ég hataði þennan ná- unga,“ segir Stone, sem notaði atburðinn árum síðar í Platoon. „Ég skipaði honum að koma útúr holunni. Hann vildi ekki hlýða. Ég vildi bara hræða hann að mörkum dauðans. Ég hafði hug á að drepa hann en ég gat ekki komið mér að því að stíga skrefið til fulls." Alagið jókst er herdeild Stones varð verr og verr úti (hann slasað- ist aftur, að þessu sinni fékk hann sprengjubrot í fót og afturenda). Eftir að hann var fluttur á milli herdeilda, rétt fyrir slátrun Tet- sóknarinnar, var honum hegnt fyrir óhlýðni. „Ég vildi bara komast í burtu lifandi. Ég byrjaði að reykja Við NYU fékk Stone veigamikið tækifæri: Kennari hans var Martin Scorcese sem var kominn langt á leið með að ávinna sér virðingu sem áhrifavaldur í kvikmyndaheiminum. Hinn töfrandi, röggsami og skiln- ingsríki Scorsese hvatti Stone og undir vemdarvæng hans gerði Stone röð stuttra nemendamynda, meðal annars sláandi impress- jóníska hugleiðingu um heimkomu, Last Year in Vietnam. „Ég taldi hann sannan kvikmyndagerðar- mann,“ segir Scorsese. „Hann hafði gengið í gegnum mikið meira en aðrir nemendur og hafði eitthvað að segja. Sumt var óhóflegt, en ég tel að óhófið hafí haldið honum gangandi." „Það var góður hlutur að Martin gaf mér kvikmyndina sem leið til að losa um orku sem bjó innra með mér því eftir stríðið var ég ákaflega reiðiþrunginn og hefði getað endað sem mjög hættuleg manngerð. Ég var eitthvað í átt við Travis (Taxi Driver) Bickle." Útskrifaður úr skóla og án um- boðsmanns hespaði Stone af tíu kvikmyndahandritum á meðan hann vann fyrir sér sem leigubil- stjóri. Aðeins eitt handrit, annars flokks hryllingsmynd, Seizure, var framleitt. Stone hélt áfram að berjast, með hjálp fyrstu eigin- konu sinnar, Najwu Sarkis, háttsettri í sendinefnd Marokkó við SÞ. Útlitið var ömurlegt en hann neitaði að gefa kvikmynd- irnar upp á bátinn og fara að fordæmi föður síns. „Faðir minn áleit mig ónytjung,“ segir Oliver Stone. Fjórða júlí, á meðan afgangur bandarísku þjóðarinnar fagnaði 200 ára afmælinu, gerði Stone upp hug sinn. Hann var að verða þrítugur, hjónabandið í rúst og hann hafði tæpast í sig eða á í „Stórkostlegt kvöld. Skyndilega var ég, 32 ára gamall, gullni drengurinn í fáeinar mínútur. En í rauninni var ég ekki undir það búinn." Um tíma leit svo út sem líf Ston- es væri að lokum að púslast saman. Hann flutti til Kalifomíu og fór að fá stöðuga, ábatasama vinnu. En það urðu eldgos hneykslanlegrar framkomu. Hann braut niður sal- emishurðir í partíum, hélt langar æsingaræður um eiturlyíjalöggjöf- ina við verðlaunaafhendingu, drakk eins og svampur, lifði lífínu yfir höfuð á ystu mörkum. „Oliver er eina manneskjan sem ég þekki sem hefur farið til Póllands í frí,“ segir kvikmyndaframleiðandinn Edward Pressman. Pressman réð Stone til að leik- stýra hryllingsmyndinni The Hand með Michael Caine, árið 1981. En myndin hlaut enga náð fyrir augum gagnrýnenda né almennings. „Hún var hið gagnstæða við alla vel- gengnina sem Midnight Express hafði fært mér. Ég féll frá toppnum niður á botninn í einum áfanga." Nú átti Stone ekki annarra kosta völ en að skrifa handrit fyrir aðra leikstjóra. Eitt þeirra var Scarface, endurgerð gangstermyndarinnar frá 1932 og fjallaði um kúbönsku kóksalana á Miami í dag. Með A1 Pacino í aðalhlutverki og Brian De Palma ráðinn sem leikstjóra, sökkti Stone sér niður í rannsóknarstörf. „Ég notaði kókaín talsvert um þetta leyti,“ segir Stöné, „SVO ég vissi talsvert um viðfangsefnið. Ég eyddi tímanum með fíkniefnasölum jafnt sem lögreglunni. Brá mér til Perú. Þetta er töfrandi saga.“ En Stone heldur því fram að hann hafí hætt neyslu þegar hann settist niður við að skrifa handritið. „Ég hætti að yfirlögðu ráði þar sem ég þráði að endurskipuleggja líf mitt — rithöfundar hafa dirfsku til að gera slíkt. Ef ég hefði unnið í banka hefði það orðið öllu erfíð- ara.“ Hann giftist á nýjan leik, að þessu sinni leikkonunni Elizabeth Cox og flutti frá LA um tíma. Ekk- ert þessa mildaði Scarface, sem var frumsýnd síðla árs 1983. Stone var orðinn þreyttur á að skrifa handrit fyrir aðra leikstjóra. Hann vann með Michael Cimino að Year of the Dragon, — enn einni mynd sem orsakaði deilur og umtal — í þeirri von að framleiðandinn, Dino de Laurentiis, myndi í fram- haldi gera Víetnam-mynd hans. En de Laurentiis ákvað síðar að hann væri ekki í stakk búinn að dreifa Víetnam áætlun rithöfundarins og Stone var búinn að fá sig fullsadd- an. „Ég fékk ekki í rauninni það út úr vinnunni sem ég þarfnaðist. Með Platoon í lagalegri hönk um þessar mundir tók Stone djörfustu ákvörðun ævi sinnar, skrifaði hand- rit sem hann ákvað að leikstýra og nefndist Salvador. „Ég varð að gera þessa mynd eða ég var bú- inn,“ segir hann. „Ég var reiðubú- inn að gera hana fyrir hvað sem. var, hvað sem það kostaði." Salvador umbylti áliti fólks á Stone. Margir gagnrýnendur hrif- ust af myndinni því í henni beislar Stone ofsafenginn kraft sinn í þágu alvarlegra málefna. Jafnvel fyöl- skyldumeðlimir hans voru ekki við þessu búnir. „Það var engu líkara en Salvador væri yfirlýsing Stones að hann væri breyttur maður,“ seg- ir Jim Stone. Upprifinn af þeirri staðreynd að Platoon var nú laus úr öllum lagaflækjum, hélt Stone til Filippseyja snemma árs 1985 til að láta þann draum rætast sem hann hafði átt svo lengi með sér — að kvikmynda Víetnam-söguna. Á dæmigerðan, hráan Stone- máta hélt kvikmyndatökuhópurinn innreið sína í Filippseyjar um þær mundir sem Corazon Aquino tók við völdum. „Það var ákaflega ruglandi,“ segir Dale Dye, fyrrver- andi kafteinn í landgönguliðinu, sem Stone réð til að þjálfa leikar- ana — m.a. Tom Berenger, Willem Dafoe og Charlie Sheen, (sonur Martin Sheen) — til að bera sig eins og hermenn. „Við hittum fyrir hermenn sem biðu aðeins eftir því að vita af hvaða átt stæði.“ Fyrir Sheen, mælskan, hæfileik- aríkan, 21 árs gamlan, hafði umhverfið sársaukafull áhrif. „Ég hafði verið á Filippseyjum u.þ.b. tíu árum áður, þegar pabbi lék í Víet- nam-mynd sinni, Apocalypse Now,“ segir hann. „Og eftir að hafa orðið vitni að allri þessari Coppola reynslu — og faðir minn með hjartaáfall — þá hafði ég eng- an áhuga að því að verða leikari." Um síðir breytti Sheen þessari ákvörðun en undirbúningur Plato- on minnti hann á gamlar efasemdir. Dye hélt með leikarana út í frum- skóginn þar sem þeir höfðust við í æfingabúðum í hálfan mánuð. „Það fyrsta sem ég gerði var að skipa þeim að draga upp skotgrafaáhöld- in og láta þá grafa holu sem þeir áttu að sofa í næstu vikurnar," seg- ir Dye. „Þú hefðir átt að sjá á þeim hendurnar á eftir. Blóðug kjöt- stappa.“ Til allrar lukku fyrir Stone þá tóku flestir þetta hraðsuðu-nám- skeið í frumskógakarlmennsku án uppsagnarhótana. „Þetta voru lengstu tvær vikumar í lífí mínu,“ segir Sheen, sem er, eins og faðir hans í Apocalypse Now, jafnframt þulur myndarinnar. „En þær voru líka með mínum mikilvægustu dög- um. “ Berenger bætir við, „eftir þetta sagði einn gaurinn að það yrði erfitt að snúa aftur til sælgæt- isauglýsinganna". Leikhópurinn var píndur áfram í langar marséringar, (axlandi 35 idló ar útbúnáði Og vopnum) og árásir um miðjar nætur af ráðgjöfum Stones, þar sem „special-effects" sprengingar dmndu. „Hugmyndin var sú að mgla þá í kollinum," segir Stone, „til þess að ná þessari útkeyrðu, mér-stendur-andskotans-á-sama afstöðu, reiðinni, pirringnum, hinni kæmlausu leið til hrottaskapar, hinni kæmlausu leið til drápa. Það sem ég man skýrast eftir af vem minni í stríðinu og fjölmargir aðrir náungar er aðeins þreyta“. Stone sviðsetti útgáfur af at- burðum sem hann lenti í persónu- lega og endurskapaði eijumar innan hans eigin flokksdeildar á milli rústanna, „djúsaranna" og „moðhausanna“, grasreykinga- mannanna, sem fyrst og fremst reyndu að sleppa lifandi. Myndin sýnir hermennina í árásamppnámi, í stríði hver gegn öðmm, engu síður en andstæðinginn. Nú, þegar Stone er að fást við sitt ósvikna verkefni, ber hvergi á því hófleysi sem gætti svo í fyrri myndum hans. Hinsvegar leitar hann eftir skarpri, uggvekj- andi, raunsærri stríðssýn sem situr áhorfendum í minni. Reyndar sá Stone leik Charlies Sheen sem opinbemn. „í gegnum Charlie sá ég sjálfan mig sem ung- an mann," segir Stone. „Og ég gat horfið aftur í tíma án nokkurrar sjálfsmeðvitundar og gat skoðað sjálfan mig í fyrsta skipti í gegnum þennan tímaspegil. Og það var sárt. Að sjá hvað varð úr mér í Víetnam í gegnum hann. Ég á við, vissulega varð hluti af mér slæmur eða illur og ég gerði mér ekki nokkra grein fyrir því á þessum tíma. . . þar er botninn. Þar finnurðu hvort einhver er siðferðilega þroskaður eða ekki. Um þetta fjallar myndin.“ Hann lítur þungbúinn út. „Ég er ekkert einstakur. Ég var einn fjögurra eða fímm milljóna náunga sem fóm þangað. Ég er aðeins í aðstöðu til að gera eitthvað í því.“ Þrátt fyrir áhyggjur er Stone rólegri þessa dagana. „Að ljúka við Platoon var sannkölluð geðhreins- un fyrir hann,“ segir gamall vinur hans. „Hann varð að gera hana. Lundemið er mjög breytt. Núna er hann rórri. Jafnvel hamingjusam- ari.“ Hann náði jafnvel að sættast við föður sinn áður en hann dó. „Hann sagði að ég hefði tekið rétta ákvörð- un. Hann taldi að kvikmyndabrans- inn væri góður kostur þar sem heimilisafþreyingin yrði afgerandi þáttur næsta áratuginn. Allt blóðið mnnið undir brúna.“ Núna býr Stone í Santa Monica ásamt konu sinni og Sean, tveggja ára syni. Hann er með nokkur verkefni í vinnslu, þ.á m. kvikmyndagerð skáldsögu Cliffords Irving, Tom Mix and Pancho Villa og handrit um Wall Street sem hann hefur hugleitt að kalla Greed, en hann fullyrðir að hann sé með nokkuð virkilega hneykslanlegt sem han’n ætli að taka fyrir fljótlega. „Mig langar til að gera mynd um hunda,“ segir hann. „Eg á við mynd svipaða Old Yeller eða Lassie. Þú heldur að það sé skrýtið? Jæja, ég kem öllum á óvart. Ég elska þessar myndir. Ég á strák núna. Ég vil ekki endalaust vera þekktur sem náunginn sem gerði myndir um fólk í eiturlyfjum eða var skotið í fésið. Hvað get ég sagt? Ég fékk köllun." Hann er á leiðinni heim, kvöldið er myrkt og svalt. En í hálfrökkri bflsins beinir Stone augum að um- ferðinni á móti, brosir og gefur í botn. Heimildir: The New York Magazine, Vari- ety, Time Magazine, The New York Times.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.