Morgunblaðið - 08.02.1987, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 1987
i>cyMrr)Ma
Afmæliskveðja:
Dr. med. Guðmundur
Bjömsson augnlæknir
ER EHNÞÁ í FVLLIIH CANGI
B. MAGNUSSON HF.
HÓLSHRAUNI2 - SÍMI 52866 - P.H.410 ■ HAFNARFIRÐI
Góðan daginn!
Afmæliskveðja frá
Augndeild Landakotsspítala
Á morgun, mánudaginn 9. þ.m.,
verður Guðmundur Bjömssosn, pró-
fessor í augnlæknisfræði, sjötíu ára.
Hann lauk kandidatsprófi í læknis-
fræði frá Háskóla íslands vorið
1955 og nam augnlæknisfræði í
Bandaríkjunum. Hann hefur starf-
að sem augnlæknir í Reykjavík
síðan 1948 og farið árum saman í
reglulegar augnlækningaferðir um
vesturland. Hann var augnlæknir í
sjúkrahúsi Hvítabandsins, þar til
það hætti starfsemi og í Landa-
kotsspítala með stofnun augndeild-
ar þar árið 1969. Guðmundur varð
yfirlæknir augndeildarinnar 1972.
Hann nýtur vinsælda sjúklinga
sinna og er farsæll í starfi.
Árið 1973 var opnuð að fmm-
kvæði Guðmundar göngudeild við
augndeild Landakotsspítala, þar
sem vel skipulögð starfsemi hefur
farið fram undir hans stjóm allar
götur síðan. Frá upphafi göngu-
deildarstarfseminnar hefur höfuð-
verkefnið verið greining og meðferð
gláku, sem hefur verið einn skæð-
asti blinduvaldur á íslandi. Fljótlega
var einnig hafin sjónþjálfun á rang-
eygðum bömum og hafa margir
hjúkmnarfræðingar heilsugæslu-
stöðva fengið þar tilsögn í augn-
skoðun á ungbömum.
Verkefni göngudeildarinnar hafa
vaxið mjög á síðustu ámm með til-
komu aukinnar þekkingar á sjúk-
dómum í æðakerfí augans og bættri
rannsóknar- og meðferðartækni.
Guðmundur var skipaður dósent
í augnlæknisfræði við Háskóla ís-
lands árið 1973, settur prófessor
1979 og skipaður í embættið 1984,
sem fyrsti prófessor í greininni.
Hann hefur lagt mikla alúð við
kennsluna alla tíð og glætt áhuga
læknanema á áhugaverðri og þarfri
starfsgrein, augnlækningum.
Árið 1966 varð Guðmundur dokt-
or við Háskóla íslands. Doktorsritið,
The Primary Glaucoma in Iceland,
er umfangsmikið rit um rannsóknir
hans á gláku. Hann hefur síðan
verið ötull rithöfundur í fræðigrein
sinni eins og sjá má í ritskrá há-
skólakennara. Hann ber mikla
virðingu fyrir sínu fagi, er ekki
IIÝIT- NÝTT* Uííl
lilli
JJ
M\' NÝIT- NÝff -
rw
|j f £•*' fe £5'' lif V; ■; , v’, ftl'ir'ui. : MUBiaBfiR
fesgk 'é$
Í||*jaK jpi raj mí,kW 11 tt r . ; p PjSg f § í l'W- raBHii
I B ra HB |k Hbfl IIII
jg NB BH Rg h
HR M
■__. |1 il I p, fs '*'§ ' , racsp m,
mm 1 ■VI B"a
b mwm ■ u mm i § 11 ■I wwL ■ il
, gf*§,
Lllll
Þóra Dal, auglýsingastofa
Við klófestum nokkur eintök af
þessum glæsilega draumabíl:
ALFA 33 GIARDINETTA 4x4
árg.'87 f staðlaðri útfærslu á
undraverði:
AÐEINS KR.518.300.-
INNIFALIÐ í VERÐI: Rafdrifnar
rúður og læsingar, litað gler, fjar-
stilltir útispeglar, þokuljós
framan og aftan, metalic lakk,
þurrkur og sprautur á afturrúðu,
þrýstisprautur á framljósum,
digital klukka, veltistýri o.m.fl.
6 ára ryövarnarábyrgð.
SUNNUDAG KL.13-17
NYBYLAVEGI2
KÓPAVOGI
SÍMI 42600
kreddufastur, og gerir skýran mun
á auka- og aðalatriðum, sem er
aðalsmerki góðs kennara.
Eiginkona Guðmundar er Kristín
Benjamínsdóttir og eiga þau fimm
böm. Annar sonurinn, Bjöm, er
læknir og Gunnar er í læknisnámi.
Á þessum tímamótum óskar sam-
starfsfólkið á augndeildinni
Guðmundi og íjölskyldu hans alls
hins besta um ókomin ár.
Guðmundur er að heiman á af-
mælisdaginn með fjölskyldu sinni.
Skipsljóra-
félagið styður
undirmenn
í FRÉTT frá stjórn og samninga-
nefnd Skipstjórafélags íslands,
sem Morgunblaðinu hefur borist,
segir svo:
„Stjórn og samninganefnd Skip-
stjórafélags Islands lýsir yfir fyllsta
stuðningi við kjarabaráttu Sjó-
mannafélags Reykjavíkur og tekur
undir að uppsafnaður vandi far-
mannafélaganna sé vegna síendur-
tekinna afskipta ríkisvaldsins af
kjaramálum þeirra. Skipstjórafélag
Islands fordæmir þá óbilgirni sem
kaupskipaútgerðirnar hafa sýnt í
núverandi kjaradeilu og ekki hvað
síst að þær hafa í síauknum mæli
látið leiguskip annast flutninga að
og frá landinu."
Fjölskyldu-
skemmtun í
Mosfellssveit
LEIKFÉLAG og Skólahljómsveit
Mosfellssveitar efna til fjöl-
skylduskemmtunar í íþróttahús-
inu að Varmá sunnudaginn 8.
febrúar og hefst skemmtunin kl.
17.00.
Leikfélagið og Skólahljómsveitin
hafa átt samstarf um árabil við
skemmtanahald í Mosfellssveit en
fá nú, til liðs við sig dansara frá
Heiðari Ástvaldssyni. Einnig mun
Sigríður Þorvaldsdóttir koma fram
í hlutverki Rympu úr nýju leikriti
Herdísar Egilsdóttur, Rympa á
ruslahaugnum.
Erindi hjá Fé-
lagi kaþólskra
leikmanna
SÉRA Hjalti Þorkelsson, sóknar-
prestur í Landakoti, flytur erindi
í safnaðarheimilinu við Hávalla-
götu 16 mánudagskvöldið, 9.
febrúar, kl. 20.30 á fundi hjá
Félagi kaþólskra leikmanna. Er-
indi séra Hjalta nefnist: „Tákn-
mál í helgisiðum páskanna".
Fundurinn er öllum opinn.