Morgunblaðið - 08.02.1987, Qupperneq 61
Minning:
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 1987
61
Guðrún Einarsdóttir
Vestmannaeyjum
Fædd 28. febrúar 1909
Dáin 28. desember 1986
Norður í Húnavatnssýslu, austan
Blöndu, liggur blómlegt hérað, Engi-
hlíðarhreppur. I þeirri sveit, á bænum
Neðri-Mýrum, fæddist amma mín,
Guðrún Einarsdóttir, hinn 28. febrúar
árið 1909. Hún lést í sjúkrahúsinu í
Vestmannaeyjum 28. desember sl.,
eftir stranga sjúkdómslegu.
Ömmuforeldrar mínir voru þau
Einar Guðmundsson, bóndi á Neðri-
Mýrum, og kona hans, Guðrún
Margrét Hallgrímsdóttir. Þar ólst
amma upp næstelst fjögurra systk-
ina. Af þeim systkinum er nú auk
hennar eldri bróðirinn, Guðmundur,
látinn en hin tvö yngri, Unnur og
Hallgrímur, lifa. Þau búa bæði á
æskuslóðunum á Neðri-Mýrum.
Blönduós er skammt frá Neðri-
Mýrum og í kvennaskólanum þar
stundaði amma gagnfræðanám. Leið
hennar lá síðan til Reykjavíkur er hún
var átján ára að aldri. Fyrstu árin
sem hún starfaði þar hafði hún þann
hátt á að fara norður á sumrin og
koma aftur að hausti til starfa í
Reykjavík. Eftir að hún hóf nám og
síðan fullt starf við saumaskap hjá
Andrési klæðskera varð aðstaða til
norðurferða erfiðari. Síðustu ár sín í
Reykjavík annaðist hún heimili frök-
en Ingibjargar H. Bjamason, skóla-
stýru Kvennaskólans í Reykjavík. Sú
dvöl varð henni lærdómsrík og
ánægjuleg og hún minntist frk. Ingi-
bjargar jafnan með miklum hlýhug.
Kaflaskipti urðu í lífi hennar árið
1935. Það sumar lá leið hennar til
Vestmannaeyja. Þar hitti hún afa,
Jóhannes Gíslason frá Eyjahólum við
Hásteinsveg í Vestmannaeyjum, og
örlög þeirra vom ráðin. Brúðkaup
þeirra fór fram 30. ágúst ári síðar,
1936.
Ég heyrði hana sjaldan hafa orð á
því, en sjálfsagt hafa viðbrigðin verið
mikil að flytjast úr sveitum Húna-
vatnssýslu til Vestmannaeyja, þar
sem aðstæður allar em gjörólíkar.
Allur þeirra búskapur eftir þetta var
í Vestmannaeyjum, ef gostímabilið
er frátalið. Dvölin í Reykjavík varð
þó ekki lengri en brýnasta nauðsyn
krafði. Út í Eyjar vom þau komin
aftur í byijun árs 1974. Hjónabandið
var farsælt og samheldnin mikil.
Gullbrúðkaup þeirra var orðin stað-
Skreytum
við öll tækifæri
^ Roykjavikurvogi 60, simi 53848. ^ Álfheimum 6, simi 33978.
Blómastofa
Fridfmns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öil kvöid
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öii tilefni.
Gjafavörur.
reynd hinn 30. ágúst á sl. sumri.
Á þeim ámm, sem ég man fyrst
eftir mér, bjuggu amma og afi enn
á Kanastöðum við Hásteinsveg, þar
sem búskapur þeirra hófst. Vega-
lengdir milli húsa í Vestmannaeyjum
vom þá ekki eins langar og síðar
varð. Það var ekki lengi gengið frá
Kirkjubæjarbraut að Kanastöðum.
Seinna, eða árið 1963, fluttu þau á
Brimhólabraut 31. Bömin urðu tvö,
Ema Margrét, gift Sveinbimi Hjálm-
arssyni í Vestmannaeyjum, og
Hjálmar Þór, vélvirki hjá Isfélaginu
hf. Bamabömin urðu sex og bama-
bamabömin fimm.
Það var gott að sækja til ömmu
og afa. Við bamabömin vomm kær-
komnir gestir, hvemig sem á stóð.
Störf fyrir Slysavamadeildina Ey-
kyndil í Eyjum vom henni mikið
áhugamál, en þess utan var heimilið
henni allt. Dugnaðurinn var mikill
og allur heimilisbragur bar þess
glöggt vitni. Hún hafði mikla ánægju
af hvers kyns handavinnu og mér er
nær að ætla að fárra stunda hafi hún
notið betur en þeirra, sem gáfust til
hannyrða frá öðmm störfum.
Það er erfitt að kveðja vini sína
og skyldmenni, er þeir hefja þá för,
sem enginn snýr úr aftur. Hennar
er saknað. En samvemstundimar em
geymdar í minningasjóði. Ég geri orð
hins ókunna höfundar Sólarljóða að
mínum lokaorðum:
Hér við skiljumst
og hittast munum
á feginsdegi fíra;
drottinn minn
gefí dauðum ró
en hinum líkn, er lifa.
Nú þegar amma er öll, bið ég henni
fararheilla á ókunnum brautum.
G.Sv.
Sigurlaug Eggerts-
dóttir - Kveðjuorð
Þriðjudaginn 6. janúar var til mold-
ar borin frá Dómkirkjunni skólasystir
og vinkona okkar, Sigurlaug Égg-
ertsdóttir.
Hún fæddist á Fossi á Skaga í
Skagafjarðarsýslu 9. febrúar 1930,
dóttir hjónanna Sigríðar Ásgeirs-
dóttur og Eggerts Amórssonar.
Vinátta og kunningsskapur, sem
stofnað er til í heimavistarskóla getur
orðið sérstakur og sterkur.
Vorið 1964 fjölmenntu nemendur
í 20 ára afmæli Húsmæðraskólans á
Löngumýri. Þar tók á móti okkur ung
og glæsileg kona sem bauð okkur
velkomnar. Þetta var Sigurlaug Egg-
ertsdóttir. Þama sá hún um móttöku
og veitingar fyrir 200—300 manns
af þeirri alúð og myndarskap, sem
alla tíð einkenndi hana. í þessu af-
mæli var að áeggjan frk. Ingibjargar
skólastjóra ákveðið að stofnað yrði
nemendasamband. Þessi fyrstu ár
sem félagið var að mótast eru okkur
ógleymanleg, en þar var Sigurlaug
drifQöðurin. Það var geislandi reisn
yfir störfum hennar og allir hlutu að
hrífast með henni. Þegar Ásgerður
Hrönn, dóttir hennar, fæddist, fannst
okkur við eiga talsvert í þessu óska-
bami móður sinnar.
Við sendum Ásgerði Hrönn og
Sigríði Ásgeirsdóttur okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Við þökkum Sigurlaugu, það er
ógleymanlegt að hafa átt samleið
með slíkri konu.
Helga Bjarnadóttir,
Gurrý, Lára, Guðlaug, Jó-
hanna og Þórey.
+
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð
og vinóttu við fráfall og útför,
SR. EIRÍKS J. EIRÍKSSONAR.
Sigr.
Aðalsteinn Eirfksson,
Jón Eirfksson,
Hildur Eiríksdóttir,
Ágústa Elrfksdóttir,
Jónfna Eirfksdóttir,
Magnús Eirfksson,
Guðmundur Eirfksson,
Ásmundur Eirfksson,
Aldfs Eirfksdóttir,
Ingveldur Eirfksdóttlr,
Kristfn Jónsdóttir,
Guðrún Larsen,
Sjöfn Kristjánsdóttir,
Sœvar Valdemarsson,
Snorri Björn Sigurðsson,
Guðlaugur Óskarsson,
Ástþóra Kristinsdóttlr,
Dagmar Hrönn Guðnadóttir,
Páll Skaftason
og barnabörn.
Leflsteinar
Framleiðum allar stærðjr og gerðir af legsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
um
S| S.HELGASON HF
ISTEINSNIIÐJA
^ SKCMMUVEGI 48 SlMl 76677
+ Faöir okkar, sonur og bróðir, SIGURÞÓR BREIÐFJÖRÐ GUNNARSSON, lést í Svíþjóð 27. desember 1986. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Áslaug Sigurþórsdóttir, Gunnar Sigurþórsson, Sigrfður Hulda Sigurþórsdóttir, Lilja Kristjánsdóttir, Gunnar B. Þórarinsson, systkini, börn og tengdabörn. f
+ Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR BJÖRGVIN BJARNASON, Sólheimum 16, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 10. febrúar kl. 13.30. Guðrún Björnsdóttir, Sigurmunda Guðmundsdóttir, Magnús Guðmundsson, Halifrfður Guðmundsdóttir, Karl Jósepsson, Bjarni Guðmundsson, Hólmfrfður Jónsdóttir, Baldur Guðmundsson, Björg Guðmundsdóttir, Björn Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Útför sonar míns, eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, GRÍMS AÐALBJÖRNSSONAR, Hraunbæ 86, fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 10. febrúar kl. 15.00. Þorbjörg Grfmsdóttir, Lovfsa Rut Bjargmundsdóttir, Þorbjörg Grfmsdóttir, Einar Magnússon, Auður Grfmsdóttir, Sæmundur Kristjánsson, Kristján Grfmsson, Jocelyn Lankshear, Bjargmundur Grfmsson, Sólveig Guðlaugsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Móðir okkar, SOFFÍA BJARNADÓTTIR, Öldugötu 53, Reykjavfk, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 9. febrúar kl. 13.30. Agnar Egilsson, Sjöfn Egilsdóttir, Sigurbjörn Egiisson, Egill Egilsson, Bjarni Egilsson.
+ Móðir min, SVAVA ÁSMUNDSDÓTTIR, Mjósundl 3, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 10. febrúar kl. 15.00. Ásmundur Sigvaldason.
+ Innilegar þakkir fyrir auösýnda vináttu og samúö við andlát og útför mannsins míns, EGILS PÁLSSONAR, Grettisgötu 20c. Fyrir hönd vandamanna, Alda Jóhannsdóttir.
Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu er auðsýndu okkur samúö og
vinarhug við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður okkar,
sonar og tengdasonar,
SIGURÐAR M. GUÐMUNDSSONAR,
Gauksstöðum, Garði.
Gunnþórunn Þorsteinsdóttir og börn,
Guðmudur f. Agústsson, Guðrfður Þórðardóttir,
Þorsteinn Jóhannesson, Kristín Ingimundardóttir.
Hjartans þakkir til allra þeirra er sýndu samúð og hlýhug við
veikindi og frófall eiginmanns míns, föður okkkar, tengdaföður
og afa,
KJARTANS J. JÓHANNSSONAR,
læknis,
og heiðruðu minningu hans.
Jónfna B. Ingvarsdóttir,
Kristiana S. Kjartansdóttir, Þorbjörg K. Kjartansdóttir,
Jóh. Arm. Kjartansson, Ingvar E. Kjartansson,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.