Morgunblaðið - 22.02.1987, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1987
B 5
Sifjaspell
Umræðuhópur um
sameiginlega reynslu
Á SL. HAUSTI var stofnaður
sjálfboðahópur til þess að vinna
gegn sifjaspellum gegn bðrnum.
Hópurinn kom á símavakt í des. sl.
þar sem allir þeir er orðið hafa fyr-
ir sifjaspellum voru hvattir til að
láta í sér heyra. 27 einstaklingar,
eingöngu konur hringdu og sögðu
frá rejmslu sinni. Á grundvelli þessa
var komið á fót hópstarfi fyrir kon-
ur sem orðið hafa fyrir sifjaspellum
og er hópstarfi fyrsta hópsins nú
að ljúka. Það er mat þáttakenda
að hópstarfíð hafi gagnast þeim vel
til þess að geta rætt sameiginlega
reynslu sína. Ákveðið hefur verið
að halda slíku hópstarfí áfram og
eru allar konur sem orðið hafa fyr-
ir sifjaspellum hvattar til að láta
skrá sig í næstu hópa. Ekkert gjald
er fyrir þáttöku og með allar upplýs-
ingar er farið sem trúnaðarmál.
Skráningarsíminn er 21500.
Vinnuhópur um sifjaspell.
Nígerískum skreiðarsala
stefnt vegna mikilla vanskila
SAMLAG skreiðarframleiðenda
og íslenzka umboðssalan hafa
nú stefnt nígeriskum skreiðar-
sala Naidoo að nafni vegna
vanskila. Honum voru seldir
30.000 pakkar af skreið á síðasta
ári. Engar greiðslur hafa enn
borizt þrátt fyrir að þrír víxlar
að upphæð um 24 milfjónir króna
séu gjaldfallnir. Heildarskuldin
er hins vegar um 140 milljónir
króna.
Ólafur Bjömsson, stjómarform-
aður Skreiðarsamlagsins, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að
skreiðin hefði á sínum tíma verið
seld á víxlum. Naidoo hefði síðan
ekki staðið við greiðslur á réttum
tíma, en í upphafi hefði hann greitt
flutningskostnað. Síðastliðið haust
hefði verið samið við hann um verð-
lækkun, sem hann hefði farið ffam
á vegna þess, að f ljós hefði komið,
að bæði íslenzka umboðssalan og
Skreiðardeild Sambandsins, hefðu
á þeim tíma verið að selja og bjóða
skreið á mun lægra verði en hann
keypti á. Þá þegar hefðu útflytjend-
ur hér ráðið sér lögfræðing í
London, þar sem málið væri rekið,
til að þrýsta á um greiðslur, en það
kæmi fyrir rétt 2. marz.
Ólafur sagði ennfremur, að Nai-
doo hefði boðið greiðslu í nairam,
nígerískum gjaldmiðli. Því boði
hefði enn ekki verið tekið. Verið
væri að leita leiða til að skipta nair-
um í dali og niðurstaða þeirrar leitar
réði því hvort greiðsla yrði þegin í
nairam eða ekki.
ER HÚN TILBÍJIN UNDIR TRÉVERK
EBA ER HÚN BARA FOKHELD?
Jafnframt bjóðum við
mikið úrval af hug-
búnaði sem hentar
verkefnum þínum.
☆ DOS-stýrikerfi
☆ Valmyndakerfi
☆ Wang ritvinnsla
☆ Alíslenskt lyklaborð
Þegar borið er saman verð á PC-tölvum þá er margs að gæta:
er hún tilbúin undir tréverk eða er hún bara fokheld?
(WANG )
PC-tölvan er rúmlega
tilbúin undir tréverk því
með Wang PC-tölvuni fylgir
( wang )
Heimilistæki hf ( Wang )
TÖLVUDEILD-SÆTÚNI8-SÍMI27500 V_ /
Honda Accord
hefurhlotið ein-
róma lof bílasér-
fræðinga um víða
veröld. Honda Ac-
cord varvalinn bíll
ársins 1985 —
1986 íJapanog „Car
and Driver" völdu
Honda Accord og
Honda Prelude meðal
10 bestu bíla ársins í
Bandaríkjunum fimmta
árið í röð.
á Islandi,
Vatnagörðum 24,
sími 38772.
.Civic 3d
frá 390.400..-
Civic 3d Sport
frá 464.100.-
Civic 4d Sedan
frá 458.900.-
.Civic Shuttle 4WD
frá 557.500.-
Prelude EXS
frá 662.900.-
Accord Sedan
frá 669.000.-