Morgunblaðið - 22.02.1987, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 22.02.1987, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1987 B 15 Morðin hafa leitt tii einskonar óeiginlegrar ritskoðunar sem fáirþora að brjóta SJÁ: Blaðamennska ■ BLAÐAMENNSKAI Þar um slóðir geta frétt- irnar verið ban- vænar Rétt fyrir síðustu jól var út- varpsfréttamaður í Guatemala skotinn til bana. Fyrir Julio Godoy, kunnasta rannsóknarblaðamanninn þar í landi, var morð tímabær við- vörun og áminning um, að i Guatemala er fijáls fréttamennska ennj)á barátta upp á líf og dauða. A áratugnum fram að 1985 voru um 60 blaðamenn myrtir í landinu og flestir fyrir þær sakir að hafa skýrt frá mannréttindabrotum. Yfírleitt var um að ræða útvarps- fréttamenn, sem jafnan eiga mest á hættu í landi þar sem 85% þjóðar- innar eru ólæs. „Þótt undarlegt sé hefur aldrei verið um opinbera ritskoðun að ræða í Guatemala," sagði Godoy fyrir skömmu þegar hann var staddur í Bretlandi til að taka þátt í ráðstefnu um málefni Mið- Ameríku. Godoy sagði, að engin þörf hefði verið fyrir eiginlega ritskoðun. Flest dagblöðin væru í eigu kaupsýslu- manna og í þeim væru ekki leyfðar neinar umræður um efnahags- og stjómmálaástandið í landinu. Blaðamannafélagið lagði upp laup- ana eftir að leiðtogar þess hefðu ýmist verið myrtir eða flúið land. Morðin hafa svo aftur komið á eins- konar óeiginlegri ritskoðun, sem fáir þora að btjóta. Það á þó ekki við um Godoy, pólitískan fréttaritara La Hora, síðdegisblaðs í Guatemala-borg. „Það er fijálslynt blað, ekki vinstri- sinnað eins og sumir halda fram," segir hann, en blaðið hefur samt orðið til að ögra valdastéttinni, einkum hemum, með fréttaskrifum um mál, sem herforingjamir vilja að liggi í þagnargildi. Godoy skýrði til dæmis frá því hvemig háttsettir stjómmálamenn og herforingjar hefðu orðið sér úti um ókeypis síma í nærri 20 ár. Frá 1968 heftir safnast fyrir reikningur upp á 10 milljónir dollara og þegar tveir starfsmenn símafélagsins fóm að rannsaka málið vom þeir myrtir á dularfullan hátt. í annarri grein tók hann fyrir sjálfa meginmeinsemdina í þjóðlíf- inu, ofurvald og áhrif hersins á stjóm landsins. Birtist hún í nóv- ember síðastliðnum og var stíluð beint til hershöfðingjanna, sem vilja helst ekki sætta sig við hlutleysis- yfírlýsingu nýju stjómarinnar. Hvaða rétt hafíð þið til þess sam- kvæmt stjómarskránni, spurði Godoy, að skipta ykkur af hlutleys- HJÓNASKILNAÐIR Kaninn kann á því lagið (talskir þingmenn em nú orðnir þess fysandi að auðvelda hjóna- skilnaði og að hafa þar á svipaðan hátt og Bandaríkjamenn. Þótt hjónaskilnaðir hafí verið löglegir á Ítalíu í 17 ár, fylgir þeim mikið umstang og vafstur og það getur tekið 10 ár að slíta hjúskap að lög- um. Hópur þingmanna hefur nýlega lagt fram fmmvarp til laga um að unnt verði að flýta hjónaskilnuðum og er nú um fátt meira rætt í sjón- varpsþáttum eða ritað í blöðin. Vincenzo Palumbo, þingmaður Frjálslynda flokksins, er einn þess- ara manna. Hann sagði fyrir skömmu: „Við fömm fram á raun- vemlegar endurbætur. Með öðmm orðum — við viljum hjónaskilnaði að bandarískum hætti og engin undanbrögð." Það tók 20 ára baráttu að fá löglegan hjónaskilnað heimilaðan á Ítalíu. Þegar málið var í höfn árið 1970 dönsuðu borgaramir á götum isyfírlýsingunni, sem er eingöngu á valdi forsetans? Godoy hefur engin bein afskipti af stjómmálunum. Hann telur sitt hlutverk vera að starfa sem óháður fréttamaður og hann var einn þeirra, sem bundu vonir við, að myndun borgaralegrar ' stjómar undir forystu Cerezo Arevali myndi verða til að draga úr spennunni í landinu eftir 30 ára herstjóm. „Sannleikurinn er sá, að fátt hefiir breyst," segir hann nú. „Á fyrsta hálfa ári nýju stjómarinnar vom framin 200 pólitísk morð. Meðal hinna myrtu er stjómmála- menn, verkalýðsleiðtoga og bar- áttumenn fyrir mannréttindum." Vinsældir stjómarinnar hafa dvínað mikið vegna efnahagserfið- leikanna og ef eitthvað er þá er ástandið jafnvel verra nú en það var á tímum herstjómarinnar. Þeg- ar stjómin þarf að veija gerðir sínar úti. En frá sjónarmiði annarra Vest- urlandabúa þóttu lög þessi samt mjög íhaldssöm, því samkvæmt þeim þurftu hjón að vera skilin að borði og sæng í fimm ár áður en þau gátu sótt um lögskilnað. Síðan gátu þau þurft að bíða í fimm ár í viðbót þar til dómstóll hafði fjallað um málið. Þingnefnd mælti nýlega með því að skilnaður að borði og sæng tæki aðeins þijðu ár. Frum- varpið, sem lagt var fram, mælir jafnframt með því að það teljist glæpur ef maki skirrist við að greiða meðlag eftir skilnað. Ifyrsta misserið eftir að hjóna- skilnaðir höfði verið lögleiddir sóttu um 40 þúsund manns um hjúskap- arslit. Síðan dró talsvert úr ásókn- inni. Á síðustu fimm árum hafa 30.000—35.000 hjón fengið skilnað að borði og sæng árlega á Ítalíu. Lögskilnaðir eru yfírleitt helmingi færri árlega, en í landinu búa 56 milljónir manna. Lögfræðingar sem annast hjóna- skilnaði segja, að það séu einkum hjón úr millistéttum sem leggja á sig allt það vafstur sem lögskilnaði fylgir, en fátæklingar og efnafólk láti sér yfírleitt nægja skilnað að er forsetinn hins vegar vanur að vitna í skrif Godoys og hefur þau til marks um, að lýðræðið sé virt. „Þeir þurfa á að halda mönnum eins og mér. Ég á að vera sönnun þess, að við búum í lýðræðislegu þjóðfélagi en ég og aðrir verðum að gæta þess að ganga ekki of langt, sjálfra okkar vegna og ást- vina okkar," segir Godoy. Godoy: Teflir á tæpasta vaðið. borði og sæng. Fátæklingarnir hafa ekki efni á að greiða þær tug- þúsundir, sem lögskilnaður kostar, en efnafólkið vill komast hjá deilum um skiptingu eignanna. Hinn langi biðtími getur haft í för með sér erfiðleika fyrir fólk sem hyggst ættleiða böm eftir að það gengur í hjónaband. Samkvæmt ítölskum lögum mega hjón ekki ættleiða böm fyrr en þremur árum eftir stofnun hjúskapar. Þótt margir fagni nýju frumvarpi um hjónaskilnaði eru samt ýmsir úrtölumenn sem finna því margt til foráttu. Til dæmis segja sumir, að hjón, sem hyggi á skilnað, þurfí að fá góðan umþóttunartíma til þess að reyna sættir til fullnustu. Anna Peschiera er ekki á sama máli. Hún er ein af 10 dómurum, sem fjalla um hjónaskilnaði í borgardómi Milanó og lét af þessu tilefni hafa eftir sér í viðtali við blaðið Republica: „Það er mjög sjaldgæft að sættir takist með hjónum, sem hafa ákveðið að slíta hjúskap. Og yfírleitt er það skammgóður verm- ir, því innan tíðar hafa flestir sótt um skilnað að nýju.“ - FRANCES D’EMILO ÖRLAGAÞRÆÐIR | Maðurinn sem barðist fyrir lífláti sínu Allt þar til kúlnahríðin batt enda á líf Garys Gilmore fyrir tíu árum hefði hann getað breytt rás viðburðanna, sögunni, sem hann skráði sjálfur, með lífí sínu. Aftakan, sem fór fram 17. janúar árið 1977 og Gilmore sjálf- ur neitaði að stoppa, var sú fyrsta í Bandaríkjunum í áratug og kynti að nýju undir deilum manna um dauðarefsinguna. Gilmore hlaut frægð sína fyrir að krefjast þess að vera tekinn af lífí, fyrir að velja heldur aftöku- sveitina en fangaklefana, sem höfðu geymt hann í 18 ár. Síðan hafa 66 menn verið líflátnir í bandarískum fangelsum en Gil- more hefur eftir sem áður tákn- ræna þýðingu jafnt fyrir þá, sem hlynntir eru dauðarefsingu, og þá, sem henni eru andvígir. „Þið dæmduð mig til dauða og ef þið gerðuð það ekki bara að gamni ykkar vil ég, að við það verði staðið," sagði Gilmore, sem þá var 36 ára gamall, við J. Ro- bert Bullock dómara þegar hann neitaði að undirrita bænarskjal, sem hefði ef til vill haldið í honum lífínu allt til þessa dags. Á þeim tíu vikum, sem nú voru fram að aftökunni, reyndi Gilmore tvisvar að svipta sig lífi ásamt einu konunni sem hann hafði nokkru sinni elskað, hætti að nærast í 25 daga til að móta- mæla tilraunum lögfræðinga til að koma í veg fyrir aftökuna, seldi einkarétt á ævisögu sinni og komst á forsíðu tímaritsins News- week. Að lokum gerði hann að engu tilraunir alríkisdómara til að fresta aftökunni á síðustu stundu, lögfræðingarnir fengu 10. áfrýjunarréttinn í Denver til að falla frá frestuninni aðeins hálftíma áður en aftakan fór fram. Þegar Gilmore hafði verið bundinn við stól í ríkisfangelsinu í Utah sagði hann, „látið nú hend- ur standa fram úr ermum", og fímm manna aftökusveitin lét ekki segja sér það tvisvar. Saga Gilmores var vissulega gott efni í bók og fyrir hana voru honum greiddir 52.000 dollarar. Fyrir bókina „Söng böðulsins" fékk Norman Mailer Pulitzer- verðlaunin og síðar var gerð eftir henni sjónvarpskvikmynd. Gary Gilmore var mikill örlaga- valdur í lífí margra manna en stundum var eins og glæpir hans féllu í skuggann fyrir frægðinni, sem honum hafði fallið í skaut. Sumarið 1976, þegar Gilmore hafði aðeins gengið laus í þijá mánuði eftir að hafa afplánað 11 ára fangelsi fyrir rán, rændi hann og myrti bensínsölumanninn Max Jensen og nóttina eftir hótel- starfsmanninn Bennie Bushnell. Skipaði hann þeim báðum að leggjast niður áður en hann skaut þá í höfuðið. Jensen, sem var 24 ára gam- all, og Bushnell, 25 ára, voru báðir háskólanemar og létu eftir sig eiginkonu og ung börn. Debbie Bushnell, sem hélt um blóðugt höfuð eiginmanns síns þegar hann lést, hefur ekki gifst aftur. Mörg ár liðu áður en henni fannst blóð- lyktin vera horfín úr vitum sér og þótt rúmur áratugur sé liðinn fínnst henni enn sem líf hennar sjálfrar hafí fjarað út að nokkru ieyti þessa örlagaríku nótt. Colleen Jensen Östergaard, sem er vinkona Debbie Bushnell, segir, að hlutskipti þeirra sé að ýmsu leyti ólíkt. „Ég kom ekki að manni mínum látnum og ég er því þakklát," segir hún. Gilmore framdi glæpina í bræðikasti eftir að slitnað hafði upp úr sambandi hans og Nicole Baker, laglegrar tveggja bama móður, sem átti þijú hjónabönd að baki. Nicole, sem átti þátt í að Gilmore var náðaður sumarið 1976 og vitnaði síðar gegn hon- um, fékk taugaáfall þegar ár var liðið frá aftökunni. Hún var bar- stúlka og kvöld eitt kom einn viðskiptavinanna til hennar og vildi borga reikninginn sinn með belti, sem var að hluta búið til úr ólunum, sem Gilmore var bund- inn með á dauðastundinni. Það kvöld reyndi Nicole að svipta sig lífí. Vem Damico, frændi Gilmores, var viðstaddur aftökuna að ósk Gilmores og ámm saman kom honum ekki blundur á brá án þess að dreyma um hann. „Skot- hríðin hefur glumið í eyrum mér oftar en nokkur getur ímyndað sér,“ segir hann. - VERN ANDERSON w jt*u Jt "‘'fcý t;-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.