Morgunblaðið - 22.02.1987, Page 7

Morgunblaðið - 22.02.1987, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1987 B 7 Líkanið af nýju Parísaróperunni hefur verið til sýnis í Frakkiandi og í Kanada. Það stendur við Bastillutorgið og verður húsið vígt á 200 ára afmæli stjórnarbyltingarinnar 1989. Líkan af píramída Peis, sem verður úr glæru og glampafríu gleri, til að trufla sem minnst hina frægu sjónlínu milli Sigurbogans og safnsins Glerpíramídinn fyrir framan Louvresafnið, en þar verður inngangurinn ísafnið úr neðanjarðaranddyri. skartgripi, mynt o.fl. frá fyrri öld- um. Fimm ára starf Undanfarin fimm ár hefur verið unnið gífurlegt verk við breyting- amar á Louvre. Haustið 1981 fól forseti Frakklands sínum mönnum að he§a undirbúning að stækkun Louvresafnsins og byrjað var á framkvæmdum í árslok 1984. Einn- ig var þá hafist handa um að velja og undirbúa þær sýningar, sem komið yrði upp þegar rýmkaði. Jafnframt hefur verið endurskipu- lagt fyrirkomulag í safninu og komið fyrir nýjum vinnustofum. Mestur hluti rýmisins, sem losnar þegar fjármálaráðuneytið flytur, fer undir ýmis sérsöfn, sem hvergi hef- ur verið rúm fyrir. Mestur verður munurinn á að- komunni um móttökusalina neðan- jarðar. Þangað er hægt að aka og leggja bílum á stór bílastæði og greið leið er þaðan og þangað um stiga og lyftur beint inn í safnið. Þarna niðri er áformuð þægileg þjónusta fyrir gesti, stórar fata- og böglageymslur, snyrtiherbergi, leið- beininga- og bæklingaþjónusta, sjálfsalar fyrir póstþjónustu, banka- þjónusta, hvíldarherbergi, að ógleymdum gríðarmiklum veitinga- sal. Jafnan verður á hveijum tíma hægt að fylgjast með umferðinni á hinum ýmsu stöðum í safninu og fjölda gesta, til að stýra straumnum um safnið. Og þjónusta öll miðar nú strax við 4,5 milljón gesta ársað- sókn. Þama í móttökunni á fólk að geta áttað sig á því sem það leitar sérstaklega eftir, hvort sem það eru sérsýningar, listar um ákveðið efni eða annað. Og við hvetja deild er svo líka leiðbeiningaborð og upplýs- ingaefni á mörgum tungumálum. Texti: Elínu Pálmadóttur bjuggu um sig frá upphafi. Þótt mest af því sem upp hefur komið sé frá 16. og 17. öld, ná minjar allt aftur á 14. öld. Og er ætlunin að ganga þannig frá að gestir Lo- uvresafnsins geti skoðað leirmuni, Picassosafniö í hinni gömlu Saléhöll Ný Bastillu- ópera á bylt- ingarafmælinu Operuhús 21. aldarinnar „A la Bastille", syngja menn í viðlagi byltingarsöngsins al- kunna. Við Bastillutorgið með háa minnismerkinu um stjórnar- byltinguna má um þessar mundir sjá miklar byggingarf ram- kvæmdir. Þar er að rísa nýtt óperuhús, sem á að verða tilbúið á 200 ára afmælisdag byltingar- innar 14. júlí 1989. Miðað er að því að þetta verði eitt stærsta óperuhús i heimi. Þar verði að- stæður fyrir nútímaóperur og tilraunastarfsemi fyrir höfunda, auk þess sem húsið rúmi allar hefðbundnar óperusýningar frá fyrri tíma. Þegar„Parísaróperan“ var byggð og vígð á árinu 1875 fór fram sam- keppni meðal frægustu arkitekta á þeim tíma. Nú var aftur efnt til alþjóðlegrar samkeppni um nýja óperuhúsið og þetta mikla verk fal- ið kanadíska arkitektinum Carlos Ott. Þar eiga að vera aðstæður til mjög fjölbreytts ljóðaflutnings auk allra tegunda af óperum og tækni- legar nýjungar til að gera möguleg- an flutning á öllu nútíma efni í óperum og tónlist. Er gert ráð fyrir 450 sýningum á ári og reiknað með 900 þúsund sýningargestum fyrsta árið. Til þess verða tveir sýningar- salir á sömu hæðinni. Annar með 2700 sætum fyrir umfangsmiklar nútímaóperur, 20 sýningar á ári þar af 5 uppfærslur á nýjum óperum. Eitt stórt svið er þar og fímm hliðar- svið til þess að gera auðveldari skiptingar. Hinn salurinn með 600-1300 sætum fyrir venjulegar óperur og þar hægt að stækka og dýpka svið og sal eftir þörfum. Carlos Ott leggur áherslu á að gæði gangi fyrir stærðinni og því séu tveir salir heppilegri, sjónrænt og vegna hljómburðar, en einn risa- salur. í þessu nýja óperuhúsi verða líka bókasafn, plötusafn, kvik- myndaóperusafn og fyrirlestrasalir. Enda er því líka ætlað að þjóna skapandi list á óperusviðinu. Sérsal- ir verða þar fyrir erlenda og inn- lenda listamenn á þessu sviði, sem gerir þeim fært að prófa og æfa væntanlegar óperusýningar. Byggingin, sem er 150 þúsund fermetrar að stærð, virðist gera fallið ágætlega inn í umhverfið við Bastillutorgið og virða þetta gamal- gróna umhverfi. Fyrir utan neðan- jarðarbrautarstöðina, sem verður innangengt úr í óperuhúsið, og neð- anjarðarbflastæðin, er þama skammt frá Lyonjámbrautarstöðin, sem gerir bæði dreifbýlisfólki í Frakklandi og útlendingum auð- veldara fyrir að sækja þangað sýningar. Rétt hjá er smábátahöfn- in við Signu. í neðri hluta hússins verður verslanamiðstöð með kaffi- húsum og börum og áformað að gera upp kvikmyndahúsin og veit- ingahúsin við Bastillutorgið, svo sem hinn gamalþekkta matstað „Tour d’Argent". Auk ópemsalanna tveggja í nýja húsinu verða á efri hæð salir, sem taka í sæti 280 manns, ætíaðir undir ýmiskonar sýningar og kvik- myndir. Og saumastofur, leik- myndaverkstæði og snyrtistofur í húsinu ættu að gera öllum sem þarna starfa lífið léttara. Vegna fjölbreyttrar notkunar og samnýt- ingar á þjónustu á óperuhúsið nýja að verða hagkvæmara í rekstri og þar með spara niðurgreiðslur frá ríkinu. Auk þess sem tilgangurinn er að ná með tónlistina til fjölbreytt- ari gestahóps en hingað til. Hugmyndin er að þessi listamiðstöð verði ópemshús með sýningum, samkomum, upplýsingum og gögn- um, hljómleikum og tónlistarhátíð- um frá útlöndum og utan af landi. Á þessum stað eiga tónskáldin líka að fá tækifæri til að þróa listrænt sköpunarverk sitt, þar geti orðið nokkurs konar vinnustaður þeirra. Ópemhúsið og starfsemin þar á að vera sveigjanleg. Þetta á að verða ópemhús 21. aldarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.