Morgunblaðið - 22.02.1987, Side 12

Morgunblaðið - 22.02.1987, Side 12
12 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. FEBRUAR 1987 Mynd fyrir fólk en ekki fræðinga — segir Menahem Golan, leikstjóri og framleiðandi, sem vísaði spurningunni um sögulokin til fulltrúa áhorfenda sjálfra Kvikmyndir Sveinbjörn I. Baldvinsson „Þetta er ameríski draumurinn. Þetta er saga um mann sem fær að bæta fyrir mistök sín. I uppáhalds atriðinu mínu, þar sem Linc er í fangelsi og Mike í heimsókn hjá honum, þá segir hann allt sem segja þarf um sjálfan sig. — Eg er bara faðir sem gerði vitleysu. Það er málið." Það er leikstjórinn og annar framleiðandinn, Menahem Golan, sem talar. Þetta er roskinn gyð- ingur, eins og nafnið gefur til kynna. Fluttist til Bandaríkjanna frá ísrael eftir að honum fór að ganga vel með kvikmyndir sínar. Hann verkar á mig sem vellauð- ugur listiðnaðarmaður með sál. Gengst greinilega fremur upp í því sem hann gerir, heldur en til dæmis því sem hann klæðist. Við sitjum við dálítið hringborð í einni svítunni á Century Plaza ásamt David Mendenhall. „Ég var strax með Sly (Stall- one) í huga í þetta hlutverk. Ég byrjaði að þróa þessa hugmyd fyrir fjórum og hálfu ári síðan og svo núna þegar ég hafði sam- band við hann, þá liðu ekki nema tuttugu og fjórir tímar þangað til hann gaf svar og það var já- kvætt. Ég hef alltaf verið hrifinn af Stailone sem kvikmyndaleikara. Hann er stjama á tjaldinu. Hann er einn sá besti í Hollywood. Hann er auðvitað ekki menntaður sem leikari sem getur leikið hvað sem er, eins og Paul Newman eða Dustin Hoffman. En á tjald- inu er hann jafn áhrifaríkur og John Wayne og Cary Cooper, þegar best tekst til. Þetta er eitt- hvað sem hann býr yfir, eitthvað náttúmlegt og fjarri því að vera úthugsað eða gáfulegt." „Talaðu við mig, Sly“ Cannon-kvikmyndastórveldið er fyrst og fremst þekkt fyrir vin- sælar myndir eins og „Missing in Action", „Superman 4“ og fleira í þeim dúr. En þar með er þó ekki öll sagan sögð því þeir félag- ar Menahem Golan og Yoram Globus hafa einnig fengið til starfa virta leikstjóra og framleitt mjög metnaðarfullar myndir eins og „Runaway Train" og „Maria’s Lovers" eftir Rússann Andrei Konchalovsky, „Camorra" eftir Linu Wertmiilíer og „Othello" eft- ir Franco Zeffírelli. „Ég leitaðist við að nálgast efn- ið ekki sem einhvers konar „sápuþátt". Leitaðist við að koma einhverju til skila, bæði sögu og meiningu. Reyndi að bregða upp mynd af félagslegum andstæðum, Menahem Golan leikstjóri og framleiðandi. sem óvíða em reyndar meiri en hér í Bandaríkjunum. En þetta er líka ástarsaga og saga um mikilvægi fjölskyldunnar. Ég vona að hún verði til að breikka áhorfendahóp sem Stall- one á vísan. Hann leikur hér mann sem ekki getur dulist á bak við vélbyssu. Mann sem ekki tjáir sig bara með ofbeldi. Það var reyndar mjög skemmtilegt að vinna með honum. Hann er sér- stakur leikari. Hann leit til dæmis aldrei nokkurn tímann í handritið á meðan við vomm við upptökur. Alveg óvíst að hann hafi haft ein- tak af því með sér. Hann kunni það bara. Allt saman. Hveija ein- ustu línu. En ég þurfti alltaf að vera að passa að hann dytti ekki í gamla farið með umlið og korrið í stað þess að tala eins og maður. Það fyndna við það er, að hann talar alls ekki svona í raun og vem. Svo ég var alltaf að hóa í hann og segja: — Talaður við mig, Sly! TALAÐU við mig!“ Golan getur ekki varist hlátri þegar þetta riijast upp fyrir hon- um. Ekki bara að græða peninga „Annars var þetta svolítið erfíð mynd í töku. Þriðjungur hennar gerist inni í vömbílnum og það em nú takmörk fyrir því hve mik- ið getur verið að gerast í myndinni á svoleiðis stað. Þessar senur gera því miklar kröfur til leikaranna. Þetta gekk allt vel. Við byijuð- um á útiskotum á hraðbrautunum og enduðum á alþjóðlega arm- glímumótinu í Las Vegas. Það var gaman að því. Fyrst tókum við upp efni á sjálfu mótinu með sex vélum og svo settum við allt á svið aftur og klipptum þetta svo saman. En keppnin var að þessu leyti alveg raunvemleg, þótt Stall- one væri auðvitað ekki raunvem- lega keppandi á mótinu sjálfu. Það var þá sem við vomm dá- lítið að velta því fyrir okkur hvort Linc ætti að vinna eða tapa í úr- slitaglímunni. Sly vildi endilega láta hann tapa. Ég brá á það ráð að vísa málinu um það hvemig myndin ætti að enda til fulltrúa- ráðs áhorfenda, sem vom tvö þúsund statistar sem áttu að vera áhorfendur á mótinu. Það var samþykkt einróma að Linc ætti að sigra í keppninni og það varð úr. Þetta var ákvörðun þess fólks sem þessi mynd á að höfða til. Almennings. Annað sniðugt sem við gerðum í Vegas var að framkvæma þá hugdettu Stallones að skjóta inn í myndina stuttum viðtölum við keppenduma á mótinu. Dálítið hliðstætt við það sem var gert í myndinni hans Warrens Beatty, „Reds“. Við ákváðum að prófa þetta bara á staðnum, alveg óund- irbúið og ekki eitt einasta orð skrifað. Armglímukappamir réðu því alveg sjálfír hvað þeir sögðu í þessum viðtölum og það tókst mjög skemmtilega, finnst mér.“ Það er forvitnilegt að heyra hvaða augum Golan lítur á störf sín í kvikmyndaiðnaðinum. „Málið er ekki bara að græða peninga. En auðvitað er nauðsyn- legt að afla fyrirtækinu tekna til að geta staðið undir rekstrinum og nýjum framkvæmdum. Við seldum dreifíngarréttinn að „Over the Top“ í Bandaríkjunum til Warner Brothers fyrir fímmtán milljónir dala og það gerir áhætt- una nánast enga hjá okkur, því myndin kostaði tuttugu og fimm og enn á eftir að selja hana til útlanda. Ég er fyrst og fremst leik- stjóri. í öðm lagi bissnessmaður. Ég held að það sé mikilvægt að einhvers staðar sé til kvikmynda- fyrirtæki þar sem lokaákvarðanir eru ekki teknar af bókhöldurum og peningamönnum, heldur mönnum sem sjálfír eru kvik- myndagerðarmenn. Við erum búnir að gera margar myndir hjá Cannon og við höfum leitast við að halda hlutfallinu 1 á móti 3, milli listrænna mynda og skemmtimynda. Sjálfur vil ég gera svona mynd á tveggja ára fresti. Næst verður það líklega „The Yellow Jersey" sem fjallar um Tour de France-hjólreiða- keppnina. Með mér í því verða líklega Dustin Hoffman og Carl Foreman. Ég er hrifnastur af tilfínninga- ríkum myndum og leitast við að gera myndir í þeim anda. Þessari mynd, sem við erum að fara að sýna núna, „Over the Top“, er heldur ekki ætlað að vinna til neinna verðlauna eða flakka um kvikmyndahátíðir. Þetta er einföld saga. Einföld mynd. Mynd handa fólki fremur en fræðingum. Ég vona að hún snerti við fólki og geri það þokkalegt íjárhagslega. Ef hún gerir það, þá er ég ánægð- ur.“ Til sölu Lengd 5,45 Segl 5 stk. Kojur 4 Upplýsingar í síma 52905 Tölvunámskeid fyrir fullorðna Fjölbreytt, vandað og skemmti- legt byijendanámskeið fyrir fólk á öllum aldri. Dagskrá ★ Grundvallaratriði við notkun tölva. ★ Forritunarmálið BASIC, æfingar. ★ Ritvinnsla með tölvu, æfingar. ★ Notkun töflureikna, æfingar. ★ Notkun gagnasafnskerfa, æfingar. ★ Umræður og fyrirspurnir. Tími: 3., 5., ÍO. og 12. mars kl. 20—23. Innritun í símum 687590 og 686790 Tölvufræðslan BORGARTÚNI 28, REYKJAVÍK Sportvöruútsal- an í Spörtu helduráfram Fimleikaskór kr. 199,- Aerobik-skór kr. 1.490,- Innanhússskór kr. 490,- Uppháir skór kr. 1.190,- Adidas trimmskór kr. 990,- Töskur frá kr. 190,- Sokkar kr. 99,- o.fl. o.fl. Adidas franskir trimmgallar nr. 162—186 kr. 1.690,-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.