Morgunblaðið - 22.02.1987, Blaðsíða 16
16 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1987
\
Ég leitaði blárra blóma
eða
Þú bláfjallageimur
með heiðjökla hring
eða
Bláa vegu
brosfögur sól
gengur glöðu skini
eða
Nú blánar yfir beijamó
eða
Svarblá alda
saga ný
eða
Belja rauðar fossavöður
blágrár reykur yfir sveif
Varla fer á milli mála að íslend-
ingar hafa mikið dálæti á bláa
litnum. Hann kemur alls staðar
fyrir þegar góðskáldin vilja dá-
sama eitthvað. Ekki laust við að
hann sé líka meira áberandi í
myndlist hér en annars staðar.
Hvað annað? Er ekki landið okkar
„blátt"? Enginn grænn litur til að
trufla bláma fjarlægðarinnar
nema 2-3 mánuði á ári. Og honum
ekki einu sinni ausið í okkur þenn-
an stutta tíma. Það sér maður
best á gerfitunglamyndunum af
landinu yfír hásumarið, þegar
gróðurbletti má vart greina í
auðninni. Fjarlægðin gerir fjöllin
blá og mennina mikla. Málshátt-
urinn sýnir meðal annarrar visku
að við teljum bláa litinn til tekna.
Miklumst af honum.
Blái liturinn er yfirgnæfandi í
þjóðfánanum okkar. Við segjum
gjaman að hann tákni bláma fjall-
anna. En ef farið er í merkinga-
fræði vexillológíunnar, sem er víst
sérstök og merkileg fræðigrein
um fána og á sér alþjóðasamtök
með rannsóknastöð í Banda-
ríkjunum, þá kemur í ljós að blái
liturinn í öllum þessum þjóðfánum
er talinn merki um staðfestu og
öryggi. Gæti ekki hið síðara átt
við okkur? En dæmin um þetta
em t.d. blár grunnur Sameinuðu-
þjóðafánans og Evrópubandalags-
ins. Og býsna margir þessara 170
þjóðfána í heiminum hafa bláan
lit, þótt rauði liturinn hafí þar
vinninginn. Táknmálið vísar þá
ekki til blárra fjalla, heldur er
bláfáninn í fræðunum tákn fyrir
haf og himin. Kannski rökrétt,
því fánastússið sem hófst af þörf
fyrir merki til að flykkja mönnum
í orustum og láta vita hvort omst-
an væri að tapast eða óvinurinn
sigraður, varð brátt líka að nauð-
synlegum siglingafána á höfun-
um. Himininn er vissulega oft blár
á íslandi, en líklega þó oftar hul-
inn gráma og skýjum en víða
annars staðar. Og sjórinn okkar
við ströndina er sem betur fer
ekki jafti blár og hafflötur svo
margra annarra hafa, því slikt er
merki um dauða, að svæðið sé
lífvana. Verður að fara alla leið
suður í Karabískahafið til eyjar-
innar Sánkti Luciu til að fínna
eina fjallatáknið í bláma þjóð-
fánans. En það er líka eldfjalla-
eyja sem hefur tvær bláar
abstrakt mjmdir af eldfjallakeilum
á gulum og svörtum gmnni í fána
sínum og á að sýna hvemig þessi
bröttu eldfyöll renna saman við
bláan hafflötinn og ofan í „hið
djúpa bláa haf“, vonartákn um
betri daga. Kannski er blái ein-
kennisliturinn okkar bara einfald-
lega að okkur þyki blátt svo
fallegt. Eða liggur eitthvað annað
að baki? Dekur þessa spjallara á
bláu byggist a.m.k. mest á því.
En af hveiju? Og af hveiju allt
þetta blámatal núna?
Blái liturinn og hvemig menn
sjá hann reynist nefnilega gagn-
merkt rannsóknarefni. Og að
öllum rannsóknum er einhver
kveilq'a. Fmmmaðurinn þurfti vit-
anlega einhveija ástæðu til að
fara að velta fyrir sér hlutunum.
Og bömin til að spyija af hveiju.
Kveikjan að þessum bláu vanga-
veltum_ barst úr nánasta um-
hverfi.Áttatíu og fjögurra ára
gamall faðir minn fór nefnilega í
augnuppskurð hjá þeim fádæma
flínku augnlæknum á Landakoti.
Þeir skiptu snarlega um augastein
í honum. Gátu meira að segja
gert það án svæfíngar, sem fer
oft illa í slitna skrokka. Nýi auga-
steinninn reynist þvílíkt djásn, að
ekki aðeins veitir hann nýja og
gleggri sýn heldur líka gleði yfír
nýjum bláum lit, sem eigandinn
mundi vart eftir að hafa séð, a.m.
k. ekki í langan tíma. Þegar haft
var orð á þessu við lækninn sagði
hann bara: Nú tókstu eftir því?
Gámhöfundur, sem aldrei virð-
ist ætla að vaxa upp úr bama-
spumingunni „akkuru?", greip
tækifærið til að leggja þá spum-
ingu fyrir sinn augnlækni, Eirík
Bjamason, og kom ekki að tómum
kofanum. Það kom í ljós, að þetta
er þekkt fyrirbrigði. Danskur
augnlæknir, sem hafði málað alla
æfi í tómstundum sínum og var
því áhugamaður um málaralist,
hafði veitt því athygli að margir
frægir listmálarar virtust mála æ
sterkari bláan lit í myndir sínar
með aldrinum. Þegar hann svo
komst á eftirlaun og fékk rýmri
tíma, fór hann að rannsaka þetta
fyrirbrigði vísindalega. Niðurstað-
an varð sú að með aldrinum
daprist sýn á bláum lit. Þetta
gerir flestum lítið til. Þeir veita
því ekki einu sinni athygli. Ekki
nema þeir allt í einu öðlist aftur
snögglega sýn á blátt og séu
nægilega vakandi til að veita því
athygli. Svona getur lífíð lengi
átt óvæntan glaðning í pokahom-
inu, ef fólk hefur þá enn hæfileik-
ann til að taka við og njóta. Sá
með nýja augasteininn er himinlif-
andi.
Og þá kemur að hinni hliðinni
á peningnum. Þeim sem ekki vita
að þeir sjá ekki lengur bláa litinn
sem fyrr. Er það vont eða gott?
Kannski hefðu fjölmörg málverk-
anna , sem við dáum á söfnum
og sýningum, ekki orðið svona
dásamlega blá ef málarinn hefði
áttað sig á breytingunni á skynjun
sinni. Læðist að manni grunur um
að ef til vill hefðu dýrðarmálverk-
in hans Manets af vatnaliljunum,
sem setja heimsmet um verðlag á
listaverkauppboðum þá sjaldan
þau liggja á lausu, orðið eitthvað
svolítið minna blá ef meistarinn
hefði ekki verið orðinn aldraður
þegar hann málaði þau. Og tákn-
ar dálæti okkar íslendinga á bláu
í margar aldir kannski einhveija
skynvillu? Svo mjög höfum við dáð
blátt að við köllum svertingja blá-
menn. Þama kemur upp heil syrpa
af spumingum, sem gæti dugað
í margar doktorsritgerðir, nú þeg-
ar svo mikil framleiðsla er á
doktorum að efnivið fer vísast að
þijóta.
En við höldum bara áfram að
segja með Jóhannesi úr Kötlum:
Mín fjöll eru blá
min fjöll eru bvít
lífsins fjöll
við dauðans haf.
MinfjöU
eru sannleikans fjöU
blátt gijót
hvítur snjór.
Mín fjöU standa
þegar lygin hrynur
min bláu fjöU
min hvitu fjöU
COSTA DEL SOL
Ferðatilhögurr. Flogið síðdegis í beinu leiguflugi til
Malaga.
í Torremolinos og Fuengirola mun fararstjóri Sögu
efna til fjölbreyttra kynnisferða, en einnig gefst
þátttakendum kostur á því að leigja bíl og ferðast
um Spán og Marokkó á eigin vegum, eða í
skipulögðum ferðum með enskumælandi
fararstjórum. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu
okkar.
RÓM
Ferðatilhögun: Flogið til Rómar í gegnum
Amsterdam. Akstur frá flugvelli að HÓTEL
METROPOLE, sem er gott fyrsta flokks hótel í
miðbænum. Dvalið þar næstu 5 næturnar og farið í
kynnisferð um Róm, aðra um Vatíkanið og síðan
snætt á ítölskum veitingastað með ítalskri tónlist
o.fl. Að öðru leyti er dvölin frjáls. Á heimfarardegi er
akstur frá hóteli að flugvelli og síðan flogið heim
aftur um Amsterdam. Fararstjóri verður Pétur
Björnsson. Innifalinn er morgunverður, þær
skoðunarferðir er nefndar eru að framan ásamt
kvöldverðinum.
Aukagjald vegna einbýlis kr. 4.500.-
PARÍS
Ferðatilhögun: Flogið til Parísar í gegnum
Amsterdam. Akstur frá flugvelli að HÓTEL
MERCURE MONMATRE, sem er fyrsta flokks hótel
í Pigalle hverfinu, stutt frá verslunum og næturlífi. Á
meðan dvalið verður í París verður farið í kynnisferð
um borgina og aðra um Versali. Að lokinni dvöl er
akstur aftur á flugvöllinn og flogið heim um
Amsterdam. Fararstjóri verður Torfi Tuliníus.
Innifalinn morgunverður og kynnisferðirnar.
Aukagjald vegna einbýlis kr. 8.000.-
AMSTERDAM
Hér er um einstaklingsferð að ræða
án fararstjóra. Innifalið er flug, gisting, morgunverður
og akstur til og frá flugvelli í Amsterdam.
VOR OG PASKAFERÐIR
I/
13
Verð í
íhtóáPB'NCPITOSOU
,4,4-27/4 27.825 me6 Sögualsl®® z • MftRBELLft
34 ,30
28,6 SÆoU4,4—.
n h^lmwcub^on^
35.410 hotelmetbopols
l5/4-2-'/4
6n33ú/7 ðag-
26/3-31/3
5 n33l/® ðag-
-14/4-21/4
7 na3l ./8 dag-
g/4-30/4
3 vikur
„ hotelbembbanot
28300 Smorgunverö.
JM
GA
VÆTLUM