Morgunblaðið - 22.02.1987, Side 18
18 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1987
Kristín María Ingimars-
dóttir sýnir í Jónshúsi
Jónshúsi, Kaupmannahöfn.
pÉR f félagsheimilinu er nú sýning á verkum Kristínar Maríu Ingim-
arsdóttur og sýnir hún 12 myndir unnar með mismunandi aðferðum.
Sýningin var opnuð sunnudaginn 8. febrúar og stendur í mánuð.
Kristín María er fædd 1962 á
Egilsstöðum og uppalin þar. Fór
hún ung suður til náms í Mennta-
skólanum við Sund og lagði um
leið stund á teikningu m.a. í Mynd-
listaskóla Reykjavikur. Þá nam hún
við Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands á annað ár og héit 1984 til
San Francisco, þar sem hún var
innrituð í San Francisco Art Insti-
tute. Lauk listakonan þar námi sl.
vor.
Á sýningu Kristínar Maríu hér í
Jónshúsi eru myndir unnar með
pastel og kolum, með bleki ogtrélit-
um, olíumálverk á striga og einnig
notar hún blandaða tækni. Eru
myndimar allar málaðar 1986 og
’87. Kristín hefur haldið sýningu í
Gailery Diego Rivera í listaskólan-
Kristín María Ingimarsdóttir ásamt einu verka sinna.
um í San Francisco og á veitinga-
húsi þar. Þá tók hún þátt í
fjölbreyttri samsýningu 16 Islend-
inga í menningarmiðstöð þar í borg
1983 og loks sýndi listakonan á
íslandi í fyrra í Samkvæmispáfan-
um í Fellabæ ásamt Amgunni Ýri
Gylfadóttur.
Er Kristín María nú aftur á leið
til San Francisco, jafnvel til fram-
haldsnáms, en segist munu láta
kylfu ráða kasti. Rómar hún að-
stæður fyrir listafólk þar á Kyrra-
hafsströnd, er svo margs konar
menning mætist úr austri og vestri
í hinni fögm borg.
- G.L.Ásg.
Um ágreininginn innan BHM
Háskólamenn
eiga mörg
sameiginleg markmið
— rætt við Grétar Ólafsson formann Bandalags háskólamanna
Nokkur umræða hefur skap-
ast um hlutverk Bandalags
háskólamanna og í kjölfar
þess að Félag verkfræðinga
gekk úr Bandalaginu á síðasta
ári hafa fleiri aðildarfélög
BHM íhugað að gera slíkt hið
sama.
Gagnrýni
í framsöguerindi sínu á 7. þingi
BHM í haust sagði Eggert A.
Sverrisson formaður Félags við-
skiptafræðinga og hagfræðinga
m.a.: „Kjaramál og þá einkum
kjaramál ríkisstarfsmanna hafa
verið mjög ríkur þáttur í starfí
BHM. Þegar markmið Bandalags-
ins eru skoðuð gefa þau til kynna
að kjaramál ríkisstarfsmanna
hafa ekki verið megintilgangurinn
með stofnun þess, heldur efling
háskólamenntunar og vísinda.
Þróun í starfsemi Bandalagsins
hefur orðið á þann veg að mikill
hluti starfsins hefur farið í kjara-
baráttu og þá fyrst og fremst
kjarabaráttu ríkisstarfsmanna.
Hagsmunaárekstrar og skoð-
anaágreiningur um áherzlur í
starfí BHM hafa síðan leitt til
þess að stofnuð voru sérstök sam-
tök ríkisstarfsmanna, BHMR, sem
hafa það að meginmarkmiði að
gæta kjaralegra hagsmuna há-
skólamenntaðra starfsmanna
ríkisins.
Það er ljóst að áhugamál og
hagsmunir þeirra einstaklinga,
sem lokið hafa háskólamenntun
eru mjög ólík. Að ríkisstarfsmönn-
um undanskildum er mjög ólíklegt
að hin mörgu félög, sem standa
að Bandalaginu í dag, fínni sam-
eiginlegan starfsgrundvöll í stétt-
arfélagi. Félögin eru ólík vegna
mjög ólíkra starfa og menntunar
félagsmanna. Ennfremur eru sum
félög innan Bandalagsins stéttar-
félög, þar sem kjaramál eru í
fyrirrúmi, en önnur hrein fagfélög
og kjaramál óverulegur hluti
starfsemi þeirra. í sumum félög-
um eru nær allir félagsmenn
opinberir starfsmenn en í öðrum
félögum eru mjög fáir opinberir
starfsmenn og svo allt þar á milli."
Blaðamaður Morgunblaðsins
ræddi við Grétar Ólafsson for-
mann BHM um þann ágreining
sem verið hefur um starfsemi
Bandalagsins.
Því er ekki að neita að nokkur
óánægja hefur verið meðal nokk-
urra aðildarfélaganna og hefur
Félag viðskipta- og hagfræðinga
sett fram gagnrýni á starfsemi
bandalagsins og gert tillögur um
breytingar á starfseminni, sagði
Grétar. Félag viðskiptafræðinga
og hagfræðinga skipaði nefnd
árið 1985 til að kanna kosti þess
og galla að vera áfram í BHM.
Nefndin skilaði ítarlegri greinar-
gerð í nóvember 1985 og var
niðurstaðan sú, eins og Eggert
Á. Sverrisson sagði í framsöguer-
indi á 7. þingi BHM í nóvember
1986, að félagið ætti að segja sig
úr Bandalagi háskólamanna.
Ákvörðun um þetta var þó frestað
en félagið skipaði vinnuhóp til að
endurskoða starfs- og fjárhags-
áætlun BHM og lagði síðan fram
umfangsmiklar breytingartillögur
á starfsáætlun áranna
1986-1988 og íjárhagsáætlun
1987.
Félagsgjöld lækkuð
í þeim tillögum koma fram, að
skilgreina þyrfti betur tilgang
BHM, lækka félagsgjöld, draga
saman rekstur skrifstofu og
fækka starfsfólki þannig að ein-
ungis yrði starfsmaður í 75%
starfí. Einnig gerði FVH að tillögu
sinni að hluti af húseignum
Bandalagsins yrði seldur, svo eitt-
hvað sé nefnt. Þessar tillögur
nefndarinnar voru ræddar ítar-
lega á þinginu og um þær ljallað
í starfs- og fjárhagsáætlunar-
nefnd þingsins.
í nefíidinni varð samkomulag
um að stjóm BHM drægi tillögu
sína til fjárhagsáætlunar til baka
og legði fram aðra, en þar kom
fram að árgjöld félagsmanna yrðu
lækkuð, afsláttur félaga með eig-
in skrifstofu yrði aukinn og fleira.
í umræðum á þinginu komu
fram breytingartillögur við þessa
niðurstöðu og voru þær sam-
þykktar og þegar fjárhagsáætlun
í heild var borin fram til atkvæða,
greiddu fuíltrúar FVLI atkvæði
gegn henni.
Hvað viðvíkur starfsáætlun þá
lagði starfs- og fjárhagsáætlunar-
nefnd þingsins fram tillögu til
viðbótar, þar sem kveðið yrði á
um að markmið og rekstrarum-
fang BHM yrði tekið til endur-
skoðunar á starfstímabili nýrrar
stjómar með hliðsjón af tillögum
FVH. Starfsáætlun var samþykkt
án mótatkvæða.
— Mun starfsemi BHM drag-
ast saman af þessum sökum?
Það á eftir að koma í Ijós en
segja má að samkvæmt starfsá-
ætlun sem þingið samþykkti ætti
hún að vissu leyti að aukast, því
samþykkt var að stofna þrjár nýj-
ar fastanefndir: Atvinnumála-
nefnd, skattamálanefnd og
jafnréttisnefnd. Fjárhagsáætlun
ársins 1987 er hins vegar svipuð
í krónutölu og áranna 1985 og
1986, sem þýðir lækkun að raun-
gildi, þannig að verulega minna
fé er tiltækt til starfseminnar nú.
Þetta kemur sér auðvitað illa
fyrir starfsemi bandalagsins, sér-
staklega í ár, þar sem það kemur
í okkar hlut á þessu árí að halda
fund Bandalags háskólamanna á
Norðurlöndum (Nordisk Aka-
demikerrád). Bandalög háskóla-
manna á Norðurlöndum skiptast
á að veita þessu félagi for-
mennsku og kemur það í Islands
hlut þetta ár.
Ráðgert er að halda fund á
Hótel Sögu í haust á vegum Norr-
æna sambandsins og eigum við
von á u.þ.b. 60-70 fulltrúum
hingað frá hinum Norðurlöndun-
um. Þá er ljóst að af þessum fundi
verður nokkur kostnaður fyrir
BHM, m.a. vegna leigu á fundar-
sölum o.fl., en að öðru leyti greiða
fulltrúar Norðurlandanna sjálfír
ferðir og uppihald. Það er ljóst
að ijárhagur okkar er þröngur,
en við stefnum samt að því að
láta enda ná saman og víkja ekki
frá þeirri fjárhagsáætlun sem
samþykkt hefur verið.
— Hvað um framtíð Bandalags
Háskólamanna?
Víötæk samstaða
Ég hygg að viðtæk samstaða
sé um að BHM starfí áfram. Eins
og fram hefur komið var skipuð
Grétar Ólafsson formaður Bandalags háskólamanna.
nefnd til að endurskoða markmið
og rekstrarumfang Bandalagsins
á starfstímabili nýrrar stjómar.
Framkvæmdastjómin er þessa
dagana að skipa neftidina og hef-
ur hún óskað eftir að fulltrúar
FVH eigi þar sæti. Umbótum á
starfsemi BHM verður hagað í
samræmi við niðurstöðu nefndar-
innar.
Félag verkfræðinga sagði sig
úr BHM árið 1985, en einnig hef-
ur Læknafélag Islands íhugað
úrsögn. Niðurstaða Læknafélags-
ins varð hins vegar sú, að halda
áfram þátttöku og í framhaldi af
því var þess óskað að ég gæfí
kost á mér til formannskjörs sl.
haust á vegum félagsins.
Þó Ijóst sé, að áhugamál og
hagsmunir þeirra einstaklinga,
sem lokið hafa háskólanámi séu
mismunandi, eiga háskólamenn
mörg sameiginleg markmið. Þessi
markmið em skilgreind í starfsá-
ætlun BHM árin 1986-1988. Þar
kemur fram að markmið Banda-
lagsins eru meðal annars: Að efla
samstöðu og samvinnu háskóla-
manna og sameina þá í einu
bandalagi.
Að gæta sameiginlegra hags-
muna félagsmanna á sviði vísinda,
menntunar og endurmenntunar
og á öðrum sviðum, sem hafa
þýðingu fyrir alla háskólamenn.
Að gæta að sameiginlegum
hagsmunum í atvinnu-, skatta-
og jafnréttismálum.
Nýskipuð framkvæmdastjórn
BHM hefur nú hafíð störf af full-
um krafti og er nefndaskipan
hafín í samráði við aðildarfélögin.
Framkvæmdastjóm Bandalagsins
heldur fundi viku til hálfsmánað-
arlega og önnur starfsemi er
svipuð og Verið hefur, sagði Grét-
ar að lokum. - bó.