Morgunblaðið - 22.02.1987, Síða 30
30 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1987
ÉE UEIMI rVirMTNW)ANNA
Streep og Nicholson hittast í fyrsta skipti í brúðkaupi.
Háskólabíó/Regnboginn:
Nýjar myndir vestra
Þá hefur nýjasta Sylvester
Stallone-myndin verið frumsýnd
vestur í Bandaríkjunum. í þetta
skiptið snýst myndin, sem heitir
Over the Top, ekki um hnefa-
leika eða eins-manns-hernað
heldur Sjómann, þ.e. kraftaleik-
inn Sjómann. Stallone fékk litlar
12 milljónir fyrir að leika í mynd-
inni sem þeir Golan og Globus
framleiða en það er einmitt
Menahem Golan sem leikstýrir.
Handritið er eftir Stallone og
Stirling Silliphant en Giorgio
Moroder sér um tónlistina. Mót-
leikarar Stallone eru Robert
Loggia, Susan Blakely og David
Mendenhall. Stallone leikur
vörubílstjóra sem er þrusugóður
í Sjómanni en hann þarf líka að
ala upp ungan son sinn og
kenna honum á lífið. Það er ekki
allt fengið með sigrum, segir
pabbinn þótt hann lifi að vísu
ekki fyrir annað.
Anne Bancroft og Anthony
Hopkins leika saman í myndinni
84 Charing Cross, sem David
Jones (Betrayal) leikstýrir, um
sérkennilegt samband banda-
Good Father). Leikstjóri er Mike
Newell, sá sami og gerði hina
bráðgóðu mynd í trylltum dansi
(Dance With a Stranger).
Nýjasta Arthur Penn-myndin
er þriller sem heitir Dead of
Winter og er með Mary Steen-
burgen og Roddy McDowall í
aðalhlutverkum. Penn mun
sækja sitthvað í smiðju Hitc-
hcocks í þessari mynd sinni eins
og Bob Rafelson í Black Widow
Julie Andrews í Dúett fyrir einn.
Svarta ekkian með
Winger og Russell
Svarta ekkjan er heitið á
nýjustu mynd Rob Rafelsons,
en við minntumst lítillega á
hana hér um daginn. Það er
sálfræðilegur þriller í ætt við
meistara Alfred Hitchcock en
þetta er í fyrsta skipti sem
Rafelson reynir færni sína á
slíkum myndum.
Hún er um konu sem tælir,
giftist og myrðir auðuga og
valdamikla menn. Morðkvend-
ið leikur Theresa Russell en
Debra Winger leikur lögreglu-
Theresa Russell
konu, sem verður gagntekin
af því að koma henni undir lás
og slá.
Rafelson segist ekki hafa
horft á aðrar myndir til að und-
Anne Bancroft
rískrar konu við bókavörð í
London.
Hopkins leikur í annarri mynd
sem frumsýnd var nýlega vestra
en það er Góði faðirinn (The
Nicholson og Streep
í„Heartburn“
Líklega er einfaldast að segja
að „Heartburn", nýjasta mynd
Mike Nichols, sé um nútíma hjóna-
band. Myndin, sem væntanleg er
í annaðhvort Regnbogann eða
Háskólabíó á næstunni, segir sögu
Rachel Samstat, sem býr í New
York og skrifar um mat, og Mark
Forman, dálkahöfundar frá Wash-
ington, og hún hefst þegar þau
hittast og verða ástfangin. Rachel
og Mark giftast, kaupa hús, eign-
ast barn, eyða letilegum frídögum
með vinum sínum og einn daginn,
komin sjö mánuði á leið með ann-
að barn þeirra, uppgötvar Rachel
að Mark er ástfanginn af annarri
konu.
Þetta erfyrsta mynd Mike Nich-
ols (The Graduate) eftir Silkwood.
Með aðalhlutverkin fara þau Meryl
Streep og Jack Nicholson en með
önnur hlutverk fara Jeff Daniels,
Maureen Stapleton, Stockard
Channing og m.a. leikstjórinn Mil-
os Forman (Amadeus), sem leikur
júgóslavneskan vin Rachel. Þetta
er í fyrsta skipti sem leikstjórinn
frægi stendur framan við mynda-
vélarnar.
Myndin er byggð á samnefndri
metsölubók Nora Ephron um skiln-
að hennar við Watergate-blaða-
manninn Carl Bernstein. Ephron
sjálf skrifar handritið aö myndinni
en þau Nichols, Streep og Ephron
unnu áður saman að gerð Silk-
wood. Það var einmitt á meðan á
tökum þeirrar myndar stóð að
Ephron lauk við þessa fyrstu bók
sína. Löngu seinna sendi hún hana
til Nichols, sem þá var að færa
upp leikrit í Boston. „Það var ekki
ætlun mín að hann gerði mynd
eftir sögunni," segir Ephron. „Ég
vildi bara að hann læsi hana." En
Nichols segir: „Mér fannst að það
væri hægt að gera góða mynd
eftir bókinni. Flestir sem ég þekki
eru að skilja." Hann hringdi í Ephr-
on og þau ákváðu að gera mynd.
Sagan breyttist mjög mikið við
flutning hennar frá bók yfir á filmu.
„Það sem Nora var að hugsa í
upphafi þegar hún skrifaði bókina
hefur breyst svo mörgum sinnum
í meðförum okkar," segir Nichols.
„Myndin sýnir hvað ég veit um
menn og konur og um hjónabönd
og skilnaði og hvað Meryl veit og
hvað Jack veit. Þetta er mynd um
upphaf, miðju og endi á ástarsam-
bandi en mest er hún um hversu
erfitt og fyndið það er að búa í
stórri borg og reyna að elska ein-
hvern.“
„Heartburn" er nýjasta og fer-
tugasta mynd leikarans Jack
Nicholsons. „Ég elska konur," seg-
ir hann þegar hann er spurður að
því hvort hann sé kvennabósi eins
og Mark í myndinni. „En það er
ekki satt að ég sé kvennabósi. Ég
skal viðurkenna hinsvegar að ég
er svolítið karlrembusvín. Þegar
konur eru sífellt að leggjast að
fótum manns er eina leiðin sú að
fara illa með þær. Það koma þeir
tímar þegar maður vill eiga frum-
kvæðið sjálfur."
Þegar Nicholson velur sér
myndir að leika í er það leikstjórinn
sem skiptir.öllu máli fyrir hann. „Ég
leita eftir leikstjóra með handrit
sem hann er sjálfur mjög ánægður
með, en leikstjórinn er númer eitt.
Það eru margir miðlungsleikstjórar
sem gert hafa mestanpart góðar
myndir og svo eru þeir sem hafa
gert góðar og siæmar myndir. Ég
býst við að líf mitt hefði getað orð-
ið auðveldara ef ég hefði haft
dálæti á einhverjum öðrum en
þeim."
í þennan síðari flokk leikstjóra
setur Nicholson Stanley Kubrick,
Roman Polanski, John Huston,
Bob Rafelson, Mike Nichols og
Micelangelo Antonioni. Auðvitað
hefur hann unnið með þeim öllum
en hann hefur líka leikstýrt sjálfur
(Drive, He Said og Goin’ South)
og ekki með góðum árangri.