Morgunblaðið - 01.03.1987, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. MARZ 1987
49
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Útréttingar
Fyrirtækið er opinber stofnun í miðbæ
Reykjavíkur.
Starfið felst í léttum útréttingum og sendi-
ferðum.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu
orðnir 16 ára, bóngóðir og léttir í lund. Við-
komandi þarf að geta hafið störf sem allra
fyrst.
Vinnutími er frá kl. 8.00-16.15.
Umsóknarfrestur til og með 4. mars 1987.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9.00-15.00.
Afleysmga- og rádningaþjónusta
Lidsauki hf. W
Skólavörðustig la - 707 Reykiavik - Simi 621355
Lager- og
verslunarstörf
Við leitum eftir áhugasömum og reglusömum
starfskrafti til ýmissa verslunarstarfa. Starfið
fellst m.a. í afgreiðslu á vörum til verslana
og rafverktaka og umsjón með birgðum og
tollvörugeymslu. Umsækjandi verður að hafa
bílpróf. Upplýsingar á skrifstofunni milli kl.
16.00-18.00 (ekki í síma).
Skeifunni 8.
Laghentur maður
Við óskum að ráða laghentan mann til starfa
hjá einum af viðskiptavinum okkar.
Við leitum að ábyggilegum og samviskusöm-
um starfsmanni, sem getur unnið að
almennum framleiðslustörfum.
Hér er um að ræða starf hjá rótgrónu fyrir-
tæki sem stundar framleiðslu á rafbúnaði.
Óskað er eftir manni til framtíðarstarfa. í
boði eru góð laun og fyrsta flokks vinnuað-
staða.
Þeir sem hafa áhuga á þessu starfi, sendi
okkur umsókn fyrir 9. mars nk. Algjörum trún-
aði heitið.
Rekstrarráögjöf
Hvati
S
F
Pósthólf 11024
131 Reykjavík
sími 91-72066
Kostnaöareftirlit
Hönnun — Þróun
Útboö — Tilboö
Viöhaldskerfi
Verkskipulagning
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Fóstrur, þroskaþjálfar eða aðrir með uppeld-
isfræðilega menntun og reynslu óskast til
stuðnings börnum með sérþarfir á dagvistar-
heimilum í vestur- og miðbæ, heil- eða
hlutastarf eftir samkomulagi.
Upplýsingar veitir Gunnar Gunnarsson sál-
fræðingur á skrifstofu Dagvistar barna í síma
27277 eða 22360.
Fóstrur eða fólk með uppeldislega menntun
vantar á dagh. Bakkaborg v/Blöndubakka,
dagh./leiksk. Hraunborg, Hraunbergi 10 og
leiksk. Leikfell, Æsufelli 4. Ennfremur vantar
aðstoðarfólk á dagh. Valhöll Suðurgötu 39
og dagh./leiksk. Grænuborg Eiríksgötu 2.
Upplýsingar gefa umsjónarfóstrur á skrif-
stofu Dagvistar barna í síma 27277 og 22360
og forstöðumenn viðkomandi heimila.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð
á sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Óska eftir
að ráða starfsmann til skrifstofustarfa allan
daginn með símavörslu hálfan daginn.
Upplýsingar á staðnum.
Vöruflutningamiðstöðin hf.,
Borgartúni 21.
Heimilishjálp
Barngóð kona óskast á heimili í smáíbúða-
hverfi. Húsmóðirin er útivinnandi annan
hvern mánuð (flugfreyja). Þrjú börn, 12 ára,
6 ára og 1 árs.
Upplýsingar í síma 39011.
Umbúða-
framleiðsla
— framtíðarstörf
Kassagérð Reykjavíkur hf. óskar eftir starfs-
mönnum til stillinga og keyrslu á iðnaðarvélum.
Við leitum að traustum og heilsugóðum
mönnum sem vilja ráða sig í framtíðarstörf
hjá góðu og traustu fyrirtæki.
Æskilegur aldur 30-55 ára.
Gott mötuneyti er á staðnum.
Þeir sem áhuga hafa á störfum þessum hafi
samband við Þóru Magnúsdóttur milli kl.
13.00 og 16.00. Fyrirspurnum ekki svarað í
$
sima.
Kassagerð Reykjavíkur hf.
KLEPPSVEGI 33-105 REYKJAVfK - S. 38383
Verslunarstörf
Leitum að hressum manni sem hefur áhuga
og helst einhverja þekkingu á bílum.
Starfssvið: afgreiðsla, sölumennska og öll
almenn verslunarstörf.
Skriflegar umsóknir sendist auglýsingadeild
Mbl. merktar: „Verslunarstörf — varahluta-
verslun — 5887".
JÖFUR hf
NÝBÝLAVEGI2 KÓPAVOGI SlMI 42600
Borgarspítalinn
Aðstoðarræstingastjóri
Aðstoðarræstingastjóri óskast á Borgarspít-
alann til sumarafleysinga.
Upplýsingar um starfið veitir ræstingastjóri
í síma 696600 — 516.
BORGARSPÍTALINN
IAUSAR SXÖÐUR HJÁ
REYKJAVIKURBORG
Dagvist
Starfsfólk óskast í heimilishjálp í heilsdags-
og hlutastarf. Einnig unnið í smáhópum.
Hentugt fyrir húsmæður og skólafólk.
Vinsamlegast hafið samband við Heimilis-
þjónustu Félagsmálastofnunar Reykjavík-
urborgar, Tjarnargötu 11, í síma 18800.
Vanur ritari
óskar eftir vinnu. Hefur reynslu í öllum al-
mennum skrifstofustörfum og ritvinnslu.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 6.
mars nk. merkt: „Ritari — 1798“.
Tölvufræðingur
með próf frá EDB-tölvuskólanum í Danmörku
óskar eftir góðu starfi strax.
Svar sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„EDB-5222".
Lager - verkstæði
Okkur vantar hressa og ábyggilega starfs-
menn.
1. Aðstoðarmann á lager. Bílpróf nauðsyn-
legt.
2. Vélvirkja eða laghentan mann vanan við-
gerðum.
Góð vinnuaðstaða, góður andi.
Umsóknir óskast sendar auglýsingadeild
Mbl. merktar: „B — 300“ fyrir 8. mars.
Atvinnurekendur
Ég er ungur og hress sölumaður með margra
ára reynslu í starfi. Ég leita að vellaunuðu
sölustarfi sem fyrst.
Uppl. í síma 42298 eftir kl. 17.00
Óskum að ráða
iðnaðarmenn og laghenta menn til fram-
leiðslu á álgluggum og hurðum í áldeiid okkar
að Bíldshöfða 18.
Uppl. gefnar á skrifstofunni, Síðumúla 20.
Giuggasmiðjan,
Síðumúla 20.
Útkeyrslustarf
— sölumaður
Bifreiðastjóri óskast til framtíðarstarfa að
keyra út vörur hjá matvælafyrirtæki. Aðeins
reglusamur og stundvís einstaklingur kemur
til greina. Hér er um líflegt starf að ræða á
nýjum bíl. Tilboð sendist augl.deild Mbl. fyr-
irfimmtudaginn 5. mars merkt: „P —710“.
Framleiðslustjóri
Trésmíðaverkstæði óskar að ráða verkstjóra
— framleiðslustjóra til starfa sem fyrst.
Starfið er fólgið í stjórnun og skipulagningu
verkefna og mannahaldi. Æskilegt er að við-
komandi hafi reynslu í verkstæðisvinnu.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „F — 5481“ fyrir 9/3 1987.
Lopapeysur
Okkur vantar vandvirkar konur til að prjóna
peysur eftir pöntunum.
Upplýsingar í Skipholti 9, (2. hæð) eða í síma
15858 kl. 2-4 e.h.
Húsgangasmiðir
Smiðir og aðstoðarmenn óskast til starfa
sem fyrst.
Upplýsingar á skrifstofunni frá kl. 9.00-17.00.
Skeifunni 7, 108 Reykjavík,
simar31113 & 83913.