Morgunblaðið - 29.03.1987, Side 2

Morgunblaðið - 29.03.1987, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1987 Sjálfstæðisflokkurinn: Flokksráðið fundar í dag FLOKKSRÁÐ Sjálfstæðisflokks- ins kemur saman til fundar í ValhöH klukkan 14 i dag, sunnu- dag. Á dagskránni er ræða Þorsteins Pálssonar formanns Sjálfstæðisflokksins og umræður um stjórnmálaviðhorfið í ljósi þeirra atburða sem orðið hafa í stjórnmálalífinu undanfarna daga. Rétt til setu á fiokksráðsfundum eiga um 250 manns, hvaðanæva af landinu. Eru það meðal annars kjömir fulltrúar frá kjördæmisráð- um og landssamtökum flokksins, þingmenn og frambjóðendur í aðal- sætum, miðstjómarmenn og fulltrú- ar í ýmsum nefndum flokksins. Flokksráð er æðsta vald í málefn- um flokksins á milli landsfunda og kemur saman einu sinni á ári, í upphafí hvers reglulegs þings. Auk þess getur formaður flokksins kall- að það saman til funda þegar ástæða þykir til, eins og nú. Flokksráðið markar stefnu flokks- ins gagnvart öðrum stjómmála- flokkum, sem þýðir að það tekur ákvarðanir um aðild Sjálfstæðis- flokksins að ríkisstjómum. Vakt yfir eig- um borgarinnar SÉRSTAKRI vaktsveit hefur nú verið komið á fót í Reykjavík til að koma í veg fyrir skemmdar- verk á eigum borgarinnar. Það sem af er árinu hafa mikil brögð verið að því að ýmiss konar skemmdarverk hafi verið unnin á eigum borgarinnar, umferðarspegl- um stolið og þeir skemmdir og um 80 stöðumælar brotnir upp. Mesta tjónið er í sambandi við stöðumæl- ana, en þeir sem sækjast eftir peningum úr þeim hafa lítið upp úr krafsinu, því mælamir eru tæmdir daglega. Kostnaður við að endurnýja skemmd og stolin tæki er á bilinu 2-2,5 milljónir króna. Nú hafa borg- aryfirvöld, í samráði við lögregluna, komið á fót sérstakri vaktsveit sem mun sinna þessum málum. Morgunblaðið/Bjarni Fótbolti í veðurblíðunni Börnin hafa kunnað að meta góða veðrið undanfarna daga. Þessir strákar voru að leika sér í fótbolta við Austurbæjarskól- ann einn blíðudaginn eftir að skóla lauk og er ekki annað að sjá en tilburðimir séu atvinnumannslegir. Stjörnuhrap villti mönnum sýn FLUGVÉL frá vamarliðinu til- kynnti aðfaranótt laugardagsins að neyðarblys sæist yfir hafinu um 70 mílur norð-austur af Mel- rakkasléttu. Skömmu síðar tilkynnti önnur flugvél að hún sæi einnig blys, en þegar málið var kannað nánar þótti líklegast að ekki gæti verið um blys að ræða. Hallast menn helst að því að ljósið hafi verið frá skæru stjörnuhrapi, enda. voru rúmlega 150 mílur á milli flugvélanna tveggja. Ekki er mögulegt að sést hafi til neyðarblyss svo langan veg. Morgunblaðið/Júlíus Lóðirnar við Brúarás þar sem búið er að urða grunnanna. Mokað yfir tíu hús- grunna í Selásnum Gmnnarair við Brekkubæ sem enn standa óhreyfðir. MOKAÐ hefur verið yfir tíu húsgrunna við Brúarás í Selás- hverfi. Vinnu við þá lauk fyrir sex ámm, en framhald hefur ekki verið á byggingafram- kvæmdum síðan. Við tvo grunna við Brekkubæ hefur vinna sömuleiðis legið niðri í þennan tíma. Að sögn Hjörleifs Kvaran skrifstofustjóra borg- arverkfræðings er það eins- dæmi i byggingarsögu Reykjavíkurborgar að gmnnar standi jafn lengi óhreyfðir. Hjörleifur sagði að þama væri um eignarland að ræða og hefði Björn Traustason húsasmíða- meistari keypt þessar lóðir af felagi landeigenda sem stofnað var af þeim einstaklingum sem áttu land í Selásnum. Bjöm á því lóðimar og í slíkum tilvikum gilda aðrir skilmálar en þegar lóðum er úthlutað á vegum borgarinnar. Reykjavíkurborg skipulagði svæð- ið og bygginganefnd samþykkti teikningar að fyrirhuguðum bygg- ingum á sínum tíma. „Það er ekki hægt að aftur- kalla eignarlóðir," sagði Hjörleif- ur. „Bygginganefndin hefur samt sem áður verið að ýta við Bimi og það bar þann árangur í vetur að hann mokaði yfir gmnnana í Brúarásnum og fyllt þar upp. Grunnamir verða því ekki hreyfð- ir í bili.“ í byggingarnefnd hafa teikn- ingar að raðhúsunum við Brekkubæ verið til umfjöllunar. Björn hefúr óskað eftir að breyta húsunum þannig að þar verði gert ráð fyrir tveimur íbúðum í hverju húsi og hefur hann samþykki ná- grannanna fyrir þessari breyt- ingu. „Hann hefur lofað byggingarnefnd og öðmm að drífa þessi hús upp verði teikningamar samþykktar,“ sagði Hjörleifur. Samskonar samþykkt fékkst ekki hjá íbúum í Brúarási. „Reyndar vom þarna ákvæði á sínum tíma um að gefa afslátt af gatnagerðagjöldum ef menn kæmu upp botnplötu innan árs frá því lóðin var byggingarhæf. Þetta gerði Bjöm, hann kom upp botn- plötunni, en síðan hefur ekkert gerst. Við héldum reyndar að þeg- ar menn væm komnir með jafn mikla fjárfestingu þá mundu þeir halda áfram og ljúka við bygging- una. Þetta er reyndar einsdæmi í byggingarsögunni í borginni að menn hætti á þessu bygginga- stigi,“ sagði Hjörleifur. Brunaverðir í Reykjavík óánægðír með kjör sín: Erum verst settir en berum mesta ábyrgð - segir Armann Pétursson formað- ur Brunavarðaf élags Reykjavíkur MJÖG mikil óánægja ríkir meðal branavarða í Slökkviliði Reykjavíkur vegna launa og tvo daga í síðustu viku höfðu þeir uppi mótmælaaðgerðir sem fól- ust í því að tilkynna veikindi og neita að ganga aukavaktir. Formaður Bmnavarðafélags Reykjavíkur segir að aðgerðir af svipuðu tagi gætu hafist aftur hvenær sem er en brunaverðir myndu samt sem áður sinna út- köllum vegna eldsvoða. I samtali við Morgunblaðið sagði Ármann Pétursson formaður Brunavarðafélags Reykjavíkur að brunaverðir væru óánægðir með að krafist skuli iðnmenntunar í starf brunavarðar en síðan væru launin ekki í samræmi við það. Samkvæmt kjarasamningi Alþýðusambands Is- lands eru byrjunarlaun iðnaðar- manns 35 þúsund en í samningum Starfsmannafélags Reykjavíkur við borgina, sem felldir voru í atkvæða- greiðslu, voru byrjunarlaun bruna- varða 29 þúsund fyrir utan vaktaálag. Ármann benti á að í nýgerðum kjarasamningi Starfsmannafélags Hafnarfjarðar væru byrjunarlaun brunavarða samkvæmt 66. launa- flokki eða 33.900 krónur, meðan byijunarlaun varðstjóra í Reykjavík eru samkvæmt 64. launaflokki. A Akureyri væru einnig mun betri samningar. „Við erum verst settir en höfum mestu ábyrgðina," sagði Ármann. Hrólfur Jónsson varaslökkviliðs- stjóri í Reykjavík sagði að aðgerðir brunavarða hefðu tvímælalaust þau áhrif að öryggi borgarans veiktist. Þær bitnuðu aðallega á almennri þjónustu eins og sjúkraflutningum; neyðarbílnum væri kippt úr sam- bandi, námskeiðahald og önnur vinna á stöðinni truflaðist og hugs- anlega þyrfi að loka Árbæjarstöð- inni ef mikil forföll verða. Hrólfur sagði að það væri reynt að taka á þessu máli eftir Öllum leiðum, sem væri þó erfítt því brunaverðir viður- kenndu ekki að um skipulagðar aðgerðir væri að ræða og það væri til dæmis erfítt að rengja veikindi. Hrólfur sagði að á síðustu tveim- ur árum hefði nánast heil vakt sagt upp í slökkviliðinu vegna óánægju með laun. Talsverðan tíma tæki síðan að þjálfa upp brunavörð þvl’ nýliðar væru látnir taka námskeið sem væri 103 bóklegar stundir, og annað eins verklegt námskeið. Að auki þyrftu þeir að taka námskeið í meðferð tækja og bíla, reykköfun- amámskeið og námskeið vegna neyðarbílsins og ekkert af þessu væri metið í launum nema nám- skeiðið á neyðarbílinn. Þess vegna fyndist brunavörðum þeir hafa ver- ið lítilsvirtir í síðustu samningum við borgina því stjóm Starfsmanna- félags Reykjavíkur neiti að viður- kenna að brunaverðir eigi að hafa hærri laun en strætisvagnabílstjór- ar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.