Morgunblaðið - 29.03.1987, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1987
Morgunblaðið/ólafur K. Magnússon
Frá hinnm fjölmenna fundi trúnaðarmanna Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi í Kirkjuhvoli í Garðabæ á laugardagsmorgnn
Fjölmennur fundur sjálfstæðismanna í Reykjaneskjördæmi:
Eindreginn stuðningur
við flokksforystuna
Hafnarfjörður
Bruna-
y
vörðum
fjölgað
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fjölga
brunavörðum í Hafnarfirði úr
þremur í ellefu. Alls sækja 38
manns um nýju stöðurnar.
Að sögn Guðmundar Áma Stef-
ánssonar bæjarstjóra hafa þrír
brunaverðir verið á vakt hjá slökkvi-
liðinu hveiju sinni, en það þykir
ekki nægjanlegt öryggi. Slökkvilið-
ið sinnir, ásamt bmnavörslunni,
sjúkraflutningum í Hafnarfirði,
Garðabæ og í Bessastaðahreppi.
„Þegar um sjúkraflutninga er að
ræða er einungis einn maður eftir
á stöðinni og ef til brunaútkalls
kæmi á sama tíma þyrfti að kalla
út aukavakt, en það getur tekið
tíma,“ sagði Guðmundur. „Með því
að fjölga branavörðum um átta er
gert ráð fyrir að fimm verði saman
á fjórskiptum vöktum."
Umsóknarfresturinn rann út 6.
mars, en gengið verður frá ráðning-
um á bæjarstjómarfundi 31. mars.
Reiknað er með að branaverðimir
he§i störf um miðjan aprfl.
TÆPLEGA 400 manns sóttu
fund kjördæmisráðs, fulltrúar-
áða, sljórna sjálfstæðisfélaganna
í Reykjaneskjördæmi og fram-
bjóðenda Sjálfstæðisflokksins,
sem haldinn var í Kirkjuhvoli í
Garðabæ í gærmorgun. Á fundin-
um rikti mikil eining og þar var
samþykkt ályktun, þar sem lýst
er yfir fullum stuðningi við Þor-
stein Pálsson, formann Sjálf-
stæðisflokksins, og skorað á
kjósendur að fylkja liði um lista
flokksins.
Þorsteinn Pálsson ávarpaði fund-
inn og rakti aðdraganda að fram-
boði Alberts Guðmundssonar og
stuðningsmanna hans. Hann vakti
athygli á því, að þetta framboð
gæti kallað fram á Alþingi nýjar
aðstæður og skapað forsendur fyrir
ijölflokkastjóm vinstri manna, sem
ekki myndi geta náð neinum tökum
á stjóm efnahagsmála. Ef framboð-
ið fengi hljómgrann gæti blasað við
nýtt upplausnartímabil.
Formaður Sjálfstæðisflokksins
sagði, að sjálfstæðismenn þyrftu
ekki að reiða hátt til höggs gegn
framboði Alberts. Þeir ættu að
koma fram af festu og rómsemi og
leggja áherslu á sterka málefna-
stöðu Sjálfstæðisflokksins.
Þorsteinn Pálsson sagði, að at-
burðir síðustu daga hefðu skyggt á
alvarlegri hlut í þjóðfélaginu, sem
væri sú staðreynd að skólar hefðu
lokast og neyðarástand blasti við á
sjúkrahúsum vegna kjaradeilna.
Engin framboðsmál, stjómmálaat-
burðir eða persónumetnaður ættu
að skyggja á þetta og þessi mál
Ályktun sjálf-
stæðismanna
Á fundi sjálfstæðismanna í
Garðabæ í gærmorgun var eftir-
farandi ályktun samþykkt:
„Trúnaðarmenn Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjaneskjördæmi lýsa
yfir fyllsta stuðningi við störf form-
anns Sjálfstæðisflokksins, Þor-
steins Pálssonar, ijármálaráðherra,
og telja að hann hafi bragðist rétt
við í fyllsta samræmi við skyldur
sínar, sem formaður í mjög erfiðu
máli sem Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur átt við að etja.
Um leið og sjálfstæðismenn í
Reykjaneslqördæmi harma þá at-
burði, sem gerst hafa skora þeir á
sjálfstæðisfólk og alla kjósendur að
standa þétt saman um framboðs-
lista Sjálfstæðisflokksins í komandi
alþingiskosningum og tryggja þau
úrslit í Reykjaneskjördæmi að Sjálf-
stæðisflokkurinn verði eftir kosn-
ingar áfram lang stærsti stjórn-
málaflokkurinn - flokkur á réttri
leið.“
Við upphaf fundarins í Garðabæ í gærmorgun. F.v. Gisli Ólafsson,
formaður kjördæmisráðsins, Matthías Á. Matthisen, Ólafur G. Einars-
son og Þorsteinn Pálsson.
væri knýjandi að leysa.
Þorsteinn sagði, að sjálfstæðis-
menn yrðu jafnframt að huga að
framtíðarverkefnum þjóðarinnar.
Staðreyndin væri sú, að Islendingar
væra ekki nógu fjölmenn þjóð mið-
að við það atvinnulíf og þá fjöl-
breyttu þjónustu sem hér hefði verið
byggð upp. Hann sagði að þjóðinni
þyrfti að fjölga til að renna styrk-
ari stoðum undir atvinnulífið og
þjóðlífið allt. Að þessu þyrfti að
huga í fullri alvöra. „Svo ég tali
hreint út,“ sagði Þorsteinn, „þá er
ég að tala um það, að bameignum
þarf að ijölga." Kanna yrði hvemig
haga mætti opinberum aðgerðum
til að ná þessu fram.
„Við íslendingar þurfum nýja
aldamótakynslóð, sem tekur á mál-
um og horfir til nýrra tíma af
bjartsýni og áræðni," sagði Þor-
steinn.
Meðal þeirra sem kvöddu sér
hljóðs á fundinum vora Ólafur G.
Einarsson, formaður þingflokks
sjálfstæðismanna, og Matthías Á.
Mathiesen, utanríkisráðherra. Ólaf-
ur gagnrýndi harðlega framboð
Alberts og sagði að hann nyti ráða
frá óráðvöndum ráðgjöfum. Hann
taldi skattamál Alberts sýnu alvar-
legra en Albert vildi sjálfur vera
láta. Þá sagði hann, að á framboð-
listum Borgaraflokksins væri fólk,
sem orðið hefði fyrir vonbrigðum í
Sjálfstæðisflokknum, þar sem það
hefði ekki notið stuðnings til að
komast á þing.
„Hér hafa verið gerð mikil mi-
stök,“ sagði Matthías Á. Mathiesen
um framboð Borgarflokksins. Hann
lagði hins vegar áherslu á, að menn
væra ekki of uppteknir af atburðum
gærdagsins og horfðu þess í stað
fram á við, og tryggðu Sjálfstæðis-
flokknum góða kosningu.
1NNLENT
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Guðmundur Sigurðsson ávarpar fulltrúaráðsmenn í sjálfstæðishúsinu
á Selfossi.
Suðurland:
Óvænt breyting á lista
Sjálf stæðisflokksins
Selfossi.
ALLS bárust sjö framboðslistar
til yfirlgörstjómar Suðurlands-
kjördæmis. Ovænt breyting varð
á framboðslista sjálfstæðis-
manna þegar Óli Þ. Guðbjartsson
hætti við setu í fimmta sæti list-
ans og tók fyrsta sæti Borgara-
flokksins. Þetta olli því að aðilar
urðu að hafa hraðar hendur við
frágang framboðslista og lista
yfir meðmælendur.
Það var Guðmundur Sigurðsson
framkvæmdastjóri SG-einingahúsa
á Selfossi sem tók fimmta sætið á
lista sjálfstæðismanna í stað Óla
Þ. Guðbjartssonar. Fjölmennur
fundur í fulltrúaráði sjálfstæðis-
félaganna í Ámessýslu, sem haldinn
var með skömmum fyrirvara á
föstudagskvöldið, lýsti sig einhuga
fylgjandi þeirri ákvörðun að Guð-
mundur skipaði þetta sæti.
Það vora fulltrúar tveggja
flokka, Alþýðuflokks og Framsókn-
arflokks, sem biðu eftir yfirkjör-
stjómarmönnum á tröppum
sýsluskrifstofu Ámessýslu klukkan
hálf níu á föstudagskvöldið 27.
mars til að afhenda framboðslista.
Nokkra seinna barst kjörstjóminni
listi Alþýðubandalagsins og listi
Flokks mannsins var næstur og
Samtök um kvennalista lögðu fram
sinn lista skömmu síðar. Um klukk-
an hálf ellefu barst listi Sjálfstæðis-
flokksins og um hálftíma síðar
komu Borgaraflokksmennimir Óli
Þ. Guðbjartsson og Skúli B. Áma-
son með fullskipaðan lista flokjisins.
Yfirkjörstjómarmenn tóku við
listunum, fóra yfir nöfn meðmæl-
enda en formlegri ákvörðun um
formlegt gildi listanna var frestað
til næsta dags.
Það var Pálmi Eyjólfsson frá
Hvolsvelli sem færði listana inn í
sérstaka bók. Pálmi hefur setið
lengst í yfirkjörstjóminni og sagðist
reyndar ekki muna almennilega
hvað hann væri búinn að vera þar
lengi. Aðrir í yfirkjörstjóminni era
Kristján Torfason, Vestmannaeyj-
um, formaður, Magnús Aðalbjam-
arson, Selfossi, Jakob Havsteen,
Selfossi, og Stefán A. Þórðarson,
Selfossi.
Sig. Jóns.