Morgunblaðið - 29.03.1987, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1987
7
MEÐAL EFNIS
í KVÖLD
iimiimim
A þessari öld hafa margar smá-
þjóðir og þjóðarbrot tapað
menningu sinni og tungu. Er
íslensk menning ihættu eða er
nýtt blómaskeið i uppsiglingu ?
Umsjónarmaður erJón Óttar
Ragnarsson.
EUREKA VIRKID
Eureka Stockade). Fyrriþáttur
ástralskrar sjónvarpsmyndar
með einum frægasta leikara
Ástraliu, Bryan Brown (Þyrni-
fuglarnir) i aðalhlutverki.
STÖÐ2
Auglýsingasími
Stöðvar 2 er 67 30 30
Lyklllnn fsarð
þú hjá
Heimlllstaskjum
iþ
Heimilistæki hf
FLUGLEIDIR
---fyrir þig-
Heimsborgin og háskólaborgin Boston hefur
upp á að bjóða flest það á sviði menningar, lista og
afþreyingar sem hægt er að hugsa sér. Boston er
vinaleg borg - mörkuð hlýju og stolti þeirra er
fyrstir brutu sér þar land. Það er unun að spásséra
um strætin og gleypa í sig sögu, menningu og fegurð
þessarar hrífandi borgar, rölta milli Iitskrúðugra
útimarkaða, tylla sér niður á kaffihúsi eða einhverju
hinna fjölmörgu veitingahúsa, kínverskra,
japanskra, indverskra og að sjálfsögðu amerískra.
Tónlist - ballett - leikhús - söfn.
Menningarstofnanir eins og Boston Sym-
phony Orhestra, Boston Pops, Museum of Fine Arts
og Boston Ballet eru með þeim bestu í heiminum á
sínu sviði og draga listunnendur að úr fjarlægustu
heimshornum.
Strandlíf með menningarívafi.
Skammt undan er Cape Cod, víðfrægur bað-
staður með mörg hundruð mílna strandlengju og
frábærum sumarleikhúsum. Þar eru einnig úti-
tónleikar, litskrúðugir Iistmunamarkaðir, tennis-
vellir, golfvellir, sundlaugar og möguleikar til
siglinga og sjóskíðaiðkana. Þú mátt hafa í huga að
þótt Boston sé með nyrstu borgum í Bandaríkjunum
er hún á sömu breiddargráðu og Barcelona.
Eitt enn . . .
... amerískir bílaleigubílar eru ódýrir. Ef þú
treystir þér til þess að aka í umferðinni í Reykjavík
muntu sannarlega spjara þig hvar sem er í
Bandaríkjunum.
Hvernig væri að hringja og fá upplýsingar um
fargjöld og áætlanir til BOSTON og annarra
áfangastaða okkar í Bandaríkjunum. NEW YORK -
CHICAGO - WASHINGTON OG ORLANDO.
Hver veit hve lengi dollarinn helst jafn ódýr.
Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur
Flugleiða, umboðsmenn um allt land og ferða-
skrifstofurnar.
FLUGLEIÐIR
Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju
og Álfabakka 10. Upplýsingasími 690 100.
Bein áætlun
Keflavík — Boston 29/3-21/10 miðvikudaga og sunnudaga
Boston — Keflavík 30/3-20/5 mánudaga og miðvikudaga
24/5-30/9 miðvikudaga og sunnudaga
5/10-21/10 mánudaga og miðvikudaga
* KEFLAVÍK - BOSTON - KEFLAVÍK
Verð miðast við APEX-fargjald á tímabilinu 1/4-14/6 ’87.
AUK M. 110-1/SlA