Morgunblaðið - 29.03.1987, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1987
Blústöfrar
Blús
Árni Matthíasson
Einhvern veginn er að svo að
menn fínna alltaf sérstaklega
til með þeim biúsmönnum sem
deyja eða hætta að geta spilað
í þá mund sem þeir eru að ná
til almennings, oft eftir margra
ára streð. Reyndar finnst
manni oft sem slík örlög séu
sérlega ætluð blúsmönnum.
Einn þeirra sem þannig fór fyr-
ir var Sam Maghett, sem kallaður
var „Magjp" Sam.
Magic Sam fæddist í Missisippi
1937 og lærði að spila blús af
plötum með Muddy Waters og
Little Walter. Er hann var þrettán
ára flutti flölskyldan til Chicago
og þegar hann var nítján fór hann
að spila opinberlega með Shakey
Jake.
1957 kom fyrsta plata Magic
út á vegum Cobra, sem Otis Rush
tók hvað mest upp hjá á þessum
árum. Fyrir þá útgáfu var ákveð-
ið að Sam þyrfti að fá sér nýtt
listamannsnafn, en alt fram að
því hafði hann notað Good Rock-
ing Sam. Útgefandinn vildi nota
Sad Sam, en því var hafnað á
þeirri forsendu að það væri of
gamaldags, hinir ungu blúsmenn
sem voru að hasla sér völl á árun-
um eftir stríð vildu enga uppgjöf.
Eftir miklar vangaveltur varð til
Magic úr Maghett og Sam Mag-
hett varð að Magic Sam. Á fyrstu
plötunni var lagið AU Your Love,
sem náði töluverðum vinsældum.
Hver platan rak aðra og Magic
virtist fær í flestan sjó. 1959 var
hann hinsvegar kallaður í herinn
og er hann sneri aftur eftir mán-
aðar herþjónustu og sex mánaða
fangelsi fyrir strok, átti hann í
erfíðleikum með að taka upp þráð-
inn þar sem frá var horfíð. Hann
komst þó á samning hjá Mel Lon-
don, en úr því varð lítið, enda var
Mel mjög áfram um að breyta
þeim listamönnum sem voru á
hans snærum f poppara. Ekki
gekk það vel með Magic og hann
var í lægð allt þar til hann gaf
út West Side Soul og Black Magic
hjá Delmark á seinni hluta sjötta
áratugarins.
Árið 1969 þegar Magic lést
óvænt úr hjartaáfalli var hann á
góðri leið með að endurheimta
vinsældimar frá sjötta áratugnum
og víst er að hefði hann ekki fall-
ið frá, þá 32 ára, þá væri hann
eflaust á meðal fremstu Chicago
blúsara í dag.
Charly gaf nýlega út saman-
safn af Cobra upptökum Magic
Sam. Platan, sem ber heitið Easy
Babe, hefur verið fáanleg hérlend-
is og verður að teh'ast góð kynning
á Magic Sam. Oskandi væri þó
að fáanlegar væru Delmarkplöt-
umar hans (svo og aðrar Delmark
plötur). Á Easy Babe sýnir Magic
góðan gítarleik í anda Chicago-
blúsins og er með góða menn með
sér. Má þar nefna Willie Dixon,
Otis Spann og Syl Johnson. Sér-
lega er gaman að heyra All Your
Love og Easy Babe. Góð eru einn-
ig lögin 21 Days in Jail og
keyrslublúslögin All My Lotta Life
og Look Watcha Done.
jakkafötum
«g
stökum jökkum
FRA BELGIU
Ferðafélag íslands:
Reglur verði
settar um
notkun fjór-
hjóla
FERÐAFÉLAG íslands hélt aðal-
fund sinn fyrir skömmu. Á
fundinum var samþykkt tillaga
þess efnis að setja beri reglur
um notkun „fjórhjóla" f umferð-
arlög og beinir fundurinn um það
tillögu til Alþingis. Ennfremur
hvetur fundurinn þau samtök
seni vinna að náttúruvernd og
ferðamálum og samtök drykkjar-
vöruframleiðenda til að taka
höndum saman um að berjast
gegn mengun af völdum drykkj-
arvöruumbúða.
í frétt frá Ferðafélagi íslands
segir að aðalfundur félagsins telji
biýna þörf á að vekja athygli eig-
enda ijórhjóla á viðkvæmri náttúru
íslands, ljóst sé að þau faratæki
skilji eftir sig svöðusár í náttúrunni
ef ekki sé sýnd fyllsta aðgæsla í
akstri þeirra utan vega. Bent er á
að víð a erlendis séu fjórhjól bönn-
uð, vegna fyrirbyggjandi starfs í
náttúruvemd.
Jafnframt beinir fundurinn þeim
tilmælum til menntamálaráðherra
að hann hafí forgöngu um að vakin
verði athygli nemenda á gildi ósp-
illtrar náttúru. Telur fundurinn að
vel fari á því að nú í vor verði a.m.
k. einni kennslustund í hverri
bekkjardeild varið til slíkrar
fræðslu.
Sauma-
dagar um
allt land
VIKUNA 23.- 31. mars eru
svokallaðir Saumadagar um land
allt. Vefnaðarvöruverslanir
bjóða upp á afslátt á vörum
sínum, víða er heitt kaffi á könn-
unni fyrir viðskiptavini, glaðn-
ingur fyrir ungviðið og i sumum
tilfellum veitt ráðgjöf varðandi
saumaskap.
Að sögn Hjördísar Sigurðardótt-
ur sem hefur setið í undirbúnings-
nefnd vegna saumadaganna ásamt
þeim Ragnheiði Valdimarsdóttur og
Sigríði Sigurðardóttur, er tilgang-
urinn að hvetja fólk til að sauma
sinn eigin klæðnað í auknum mæli.
Þetta er í fyrsta skipti sem slíkir
dagar eru haldnir og sagði Hjördís
að vefnaðarvörukaupmenn hefðu
hug á að gera þetta að árlegum
viðburði. „Við völdum þennan tíma
þar sem við erum að taka upp sum-
arefnin auk þess sem fermingar eru
framundan. Móttökur hafa verið
mjög góðar, margir hafa komið í
vefnaðarvöruverslanir nú að und-
anförnu og mikið bollalagt. Það
má segja að saumaskapur sé nú í
tísku og jafnvel unglingsdrengir
setjast við saumavélina."
Mikil þorskgengd
við SV-Grænland
KAupmannahBfn. Frá Nils JBrgen Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
MIKIL þorskgengd er nú á Dana-
banka úti fyrir Fredriksháb í
Suðvestur-Grænlandi, að sögn
Grænlenska útvarpsins.
Þetta hefur haft í för með sér, að
grænlenska landstjómin hefur orðið
að samþykkja tilslakanir á reglunum
um, að aðeins 10% af þorski megi
vera í karfaafla
Einn af togurum landstjómarinn-
ar, Maniitsok, fékk nýlega 1000
tonna afla. Þar af vom 950 tonn
þorskUr.
Þrátt fyrir þessar tilslakanir er
ekki ætlunin að leyfa, að farið verði
fram úr 5800 tonna heildarþorsk-
kvótanum við vesturströndina.