Morgunblaðið - 29.03.1987, Side 34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1987
34
HREINT
OG KLÁRT
í/list frummanna, Assýríumanna,
Súmera, Grikkja og Rómveija, og
í raun byggist öll myndlist og bygg-
ingarlist á náskyldum lögmálum og
hér hafa hvorki stærðfræði né heim-
spéki verið útundan.
Eins og nýrri rannsóknir eru til
vitnis um, og þar á meðal íslend-
ingsins Einars Pálssonar, er hér um
mjög djúpa speki að ræða, sem
varpar ljósi á margt, sem áður var
mönnum hulin ráðgáta í hugsunar-
hætti og heimspeki fommanna.
Hvað vísindi, heimspeki, stærð-
fræði og listir voru samofin sjáum
við t.d. ljóslega í verkum Leonardos
da Vinci og margra annarra meist-
ara endurreisnartímabilsins, og
þetta náði jafnvel til herstjómarlist-
ar og byggingar vamarmannvirkja,
svo sem frægt er í sögunni.
Smátt og smátt hefur þetta í æ
ríkara mæli greinst í sundur, og
það er fyrst á síðustu tímum með
tilkomu örtölvunnar, sem menn
hafa rekist harkalega á það, hve
þessir þættir em samofnir og að
vísindi geta ekki án skapandi hugs-
unar verið. Og ósjálfrátt hefur
þróunin orðið sú um leið, að almenn-
ingur sækir meira til lista en nokkru
sinni fyrr og sér ekki fyrir endann
á því.
. — Að vinna út frá hreinu bygg-
ingarlegu formi varð að sérstakri
grein myndlistar á þessari öld og
nefndist stefnan „konstruktivismi"
og enn áður „tatlinismi" í höfuðið
á einum fmmkvöðlanna, Vladimir
Tatlin f. í Kraká í Rússlandi 1885,
d. 1958 í Novedevicij nálægt
Moskvu. Þessi stórmerkilegi mynd-
listarmaður var nánast dýrkaður
sem hálfguð af ýmsum fulltrúum
hugmyndafræðilegu listarinnar,
sem rannsökuðu innihald hlutanna
og heimspekilegar forsendur ekki
síður en ytri byrði og sérhæfðu sig
á því sviði.
Við eigum hér ágæta fulltrúa í
bræðumnum Kristjáni og Sigurði
Guðmundssonum og má vart á milli
sjá, hver er hér dýpri í list sinni.
Sigurður hefur haslað sér völl í
Amsterdam, svo sem alþjóð mun
kunnugt, en Kristján fluttist þaðan
heim eftir nokkurra ára búsetu og
hefur mestan part dvalist á Hjalt-
eyri við Eyjafjörð síðan. Telur sig
vera þar í útlöndum heima hjá sér
og í því er að sjálfsögðu fólgi'n viss
hugmyndafræði.
Kristján sýnir um þessar mundir
og út vikuna nokkur verk sinna í
Ásmundarsal við Freyjugötu og er
sýningin í sjálfu sér engu ómerkari
viðburður en hin vel auglýsta sýning
„Sjávarlandslag" í Norræna húsinu.
En eitt er að vinna hér heima
og annað að koma heim forframað-
ur á listamarkaði .útlandsins.
Á sýningu Kristjáns er mjög gott
sýnishom á því, sem ég var að lýsa
hér að framan um byggingar- og
hugmyndalistina, ásamt með til-
fínningunni fyrir tíma og tými.
Hjá Kristjáni er allt hreint og
klárt og sver sig til naumhyggjunn-
ar í myndlist og segir langtum
meira en í fljótu bragði virðist.
Sýning sem þessi er fjarri því að
vera jafn tormelt og hinum almenna
sýningargesti virðist í fyrstu, en það
er ekki sök sýnandans heldur tak-
markaðrar fræðslu um myndlistir í
skólakerfinu og í sterkasta íjölmiðl-
inum, sjónvarpinu, til skamms tíma.
En með aukinni kynningu og
þekkingu á myndlist má heita ör-
uggt, að hér verði mikil breyting á
í framtíðinni því að listbylgjan mun
fyrr eða síðar ná til íslands af full-
um krafti.
Sýning Kristjáns myndi vafalítið
sóma sér hvar sem væri í hinum
virtustu alþjóðlegu sýningarsölum
erlendis ...
Myndlist
Bragi Asgeirsson
Hið byggingar- og hugmynda-
fræðilega hefur aldrei verið langt
undan í vinnu myndlistarmanna frá
upphafi vega. Þetta sjáum við jafnt
Kristján
Guðmundsson
ásamt hluta
verka sinna.
sugenae
Á tímum harðnandi samkeppni um vöruverð og þjónustu er okkur sérstakt gleði
efni að boða þér eftirfarandi tíðindi:
Salan á LENI eldhúsrúllum og salernispappír hefur tvöfaldast
milli ára og sóknin heldur áfram. Þessi staðreynd heíúr ekkert að
gera með heppni eða tilviljanir. Ástæðan er einföld. Leni rúllurnar
eru þéttvafnari, endast lengur og því raunverulega ódýrari.
Gerðu þinn eigin verðsamanburð. Við vitum að þú verður
okkur sammála um niðurstöðuna.
—r—f
•i 4y i J 1 ^
Y a m 1 W
1 \ A i
Sdi ) M rSd HmI