Morgunblaðið - 29.03.1987, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 29.03.1987, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1987 37 Einar Birkir Guð- bergsson - Kveðja Fæddur 17. júlí 1983 Dáinn 23. mars 1987 Jesús sagði: Leyfið bömunum að koma til mín og bannið þeim það ekki, því að slíkra er Guðsríkið. Bömin brjóta ísinn og þannig kynntist ég litla vini mínum, Einari Birki. Hann kom inn í búðina til mín og sagði: „Mig langar í ís.“ Og smám saman urðum við svolitl- ir vinir. Og þegar lítil böm era kát og lífsglöð verðum við fullorðna fólkið það líka. Um helgar þegar von var á honum þá gerði ekkert til þótt úti væri hríð. Það kom allt- af sólarljós þegar hann kom inn í búðina. Ég þakka elsku Einari mínum fyrir komumar, það dregur úr sár- asta harminum að vita að hann er á besta stað í heimi, hjá Guði. Kæra Anna, Guðbergur og fjöl- skyldur, megi minningin um yndis- legan drenghnokka hjálpa ykkur. Ég og fjölskylda mín sendum ykkur okkar dýpstu samúðarkveðj- ur. í Guðs friði. Jenný Grettisdóttir Astarfaðir himinhæða heyr þú bama þinna kvak, enn í dag og alla daga í þinn náðarfaðm mig tak. Hann Einar Birkir er horfínn frá okkur yfír móðuna miklu, þessi fal- legi dugnaðardrengur og allt skeður þetta fljótt og hljótt, því slysin gera ekki boð á undan sér. Þegar þessar sorgarfréttir bárast okkur, gátum við vart talað saman, grátkökkurinn sat í hálsi okkar. Svona er lífíð, að heilsast og kveðjast. Elsku litli langömmu og -afa- drengur með augun sín skæra og bláu hefur kvatt þennan heim, að- eins á fjórða árinu. Þegar hann kom í heimsókn á Brávallagötuna með mömmu og pabba var líf og fjör. Það var spennandi að fara í felu- leik bak við sófa og undir borð og stóla. Hann geislaði af .lífsgleði og krafti en minningin um hann lifír. Já, sefist sorg og tregi þér saknendur við gröf, því týnd er yður eigi hin yndislega gjðf. Hún hvarf frá synd og heimi til himins, fagnið því, og hana guð þar geymi og gefi fegri á ný. (Bjöm Halldórsson frá Laufási.) Langamma og langafi Asta H. Hermanns- dóttir — Minning Fædd 30. ágúst 1925 Dáin 17. mars 1987 Asta Hermína var fædd og uppal- in á Flatey á Skjálfanda, S-Þingeyj- arsýslu. Foreldrar hennar vora: Sigurveig Ólafsdóttir ljósmóðir og Ingjaldur Hermann Jónsson útvegs- bóndi. Hún var fjórða af sjö systkin- um og era nú 5 þeirra á lífi. Kynni okkar af Ástu hófust í október 1951, þegar við hófum nám í Ljósmæðraskóla íslands. Þar bjuggum við í heimavist og kynntumst því í námi, starfí og frístundum. Ásta var dagfarsprúð og traust- vekjandi í hvívetna, hafði gott skopskyn og gat verið hrókur alls fagnaðar þegar svo bar undir. Hún var tiygglynd og vinföst og hafa kynni okkar haldist ætíð síðan. Við munum því sakna hennar og þeirrar hlýju sem frá henni stafaði. Nær óslitið, síðan við útskrifuð- umst úr Ljósmæðraskólanum, starfaði Ásta við ljósmæðrastörf. Fyrst 3 ár á fæðingardeild Lands- pítalans, síðan 4 ár á Sjúkrahúsi Keflavíkur, en frá 1960 starfaði hún nær óslitið á Fæðingarheimili Reykjavíkur þar til kraftar þratu. Hún var vel látin af skjólstæðingum sínum og samstarfsfólki. Fyrir 5 áram kom í ljos að Ásta var með ólæknandi sjúkdóm. Nú hefur hún orðið að lúta í lægra haldi eftir langa og stranga baráttu. leysi og sálarstyrk gegnum öll þessi veikindi. „Aldrei er svo bjart yfir öðlingsmanni að eigi geti syrt eins sviplega og nú og aldrei er svo svart yfir sorgarranni að eigi geti birt fyrir eilífa trú.“ Við vottum eftiríifandi systkinum og öðram skyldmennum samúð okkar. Megi hún hljóta blessun og frið. Skólasystur t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúö og vináttu viö andlát og útför eiginkonu minnar, móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Bala á Miönesi. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkranarfólks á Sjúkrahúsi Keflavíkur. Guð blessi ykkur öll. Guðmundur Guömundsson, Krístmann Guðmundsson, Snjólaug Sigfúsdóttir, Siguröur B. Guðmundsson, Marta Baldvinsdóttir, Sigurbjörg Guömundsdóttir, Haraldur Sveinsson, Guðlaug H. Guömundsdóttir, Kjartan Björnsson, Sigrún G. Guömundsdóttir, Guðmundur L. Guömundsson, Sólmundur Rúnar Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR BETÚELSSON, Langholtsvegi 156, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, miöviðkudaginn 1. apríl kl. 15.00. Guðrún Auðunsdóttir, Andrés B. Sigurðsson, Erla Hafliðadóttir, Svandfs Sigurðardóttir, Marta Sigurðardóttir, Auðun Svavar Sigurðsson, Anna María Sigurðardóttir, Esther Sigurðardóttir, Elfsa Sigurðardóttir, Elías Sigurðsson, Jón Eiríksson, Lárus Einarsson, Karl. S Thorlacius, Guðrún Guðmundsdóttir og barnabörn. t Útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur, afa og langafa, HJALTA KRISTJÁNSSONAR, Gyðufelli 4, Reykjavfk, áður bóndi Stóru-Brekku, Fljótum, fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 31. mars kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á minningarsjóð frú Karolínu Kristjánsdóttur. Þorbjörg Pálsdóttir, Óskar Hjaltason, Anna Gréta Arngrímsdóttir, Trausti Hjaltason, Lilja Sigurðardóttir, Gurí Lfv Stefánsdóttir, Gunnar Vilmundarson, Ásta Hjaltadóttir, Kjartan Þorbergsson, barnabörn og barnabarnabarn. t Eiginmaður minn, faöir, tengdafaðir, afi og bróðir, GÍSLIODDSSON, Ljósheimum 20, Reykjavfk, verður jarösunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 31. mars kl. 15.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagiö. Lára Sæmundsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og systur. t Móðir okkar og tengdamóðir, GUÐNÝ RÓSA JÓNASDÓTTIR frá Bakka f Hnffsdal, verður jarösungin frá Dómkirkjunni 30. þriðjudaginn 31. mars kl. 13. Jónas Elfasson, Ásthildur Erlingsdóttir, Halldór I. Elfasson, Björg Cortes Stefánsdóttir, Þorvarður Elíasson, Elías B. Elíasson, Margrét Elíasdóttir. Inga Rósa Sigursteinsdóttir, Rannveig Lind Egilsdóttir, t Hún hefur sýnt einstakt æðru- + Blómastofa Friöfinm Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 i Einlægar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýnt hafa okkur samúð og vináttu við andlát og útför móður minnar og tengdamóður, GUÐBJARGAR SANDHOLTS, Reynimel 31. Sérstakar þakkir færum viö læknum og hjúkrunarfólki á deild 3-B á Landakotsspítala. Guð blessi ykkur öll. Opið öll kvöld Þórhildur Maggf Sandholt, Gfsll Sigurbjörnsson. ti! kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. BBT . LEGSTEINAR . I MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — Sími 681960 Útför mannsins míns, • SIGURÐAR SVEINSSONAR frá Sleggjulæk, sem andaðist 23. mars sl., fer fram frá Stafholtskirkju þriöjudag- inn 31. mars kl. 14.00. Bílferö verðurfrá Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík kl. 11.00 sama dag. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð. Halldóra Gfsladóttir. t Faðir okkar og tengdafaðir, ÓLAFUR S. KRISTJÁNSSON, Hvassaleiti 155, Reykjavfk, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju þriðjudaginn 31. mars kl. 13.30. Anna Ólafsdóttir, Einar Ólafsson, Tryggvi Ólafsson. Pálmi Gunnarsson, Solveig Vignisdóttir, t Sonur okkar, bróðir og mágur, TÓMAS KOLBEINN HAUKSSON, Birtingakvfsl 15, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju þriöjudaginn 31. mars kl. 15.00. Haukur Tómasson, Karitas Jónsdóttir, Sigrún Hauksdóttir, Loftur Atli Eirfksson, Georg Guðni Hauksson, Sigrún Jónasdóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.