Morgunblaðið - 29.03.1987, Page 40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1987
4Í>
Fjárhagsbókhald
Viðskiptamenn — skuldunautar
Viðskiptamenn — lánadrottnar___
Birgðabókhald
Söluaðilar
EinarJ. Skúlason hí., Grensásvegi 10, Reykjavík, s.: 686933
Rafreiknir hf.r Ármúla 40, Reykjavík, s.: 681011
Skrifstofuvélar hf., Hverfisgötu 33, Reykjavík, s.: 20560
Atlantis, Skúlagötu 51, Reykjavík, s.: 621163
Heildi - Níels Karlsson, Steinbergi, Akureyri, s:. 96-25527
Skólavörðustíg 42,
101 Reykjavík, símar 91-22243 og 26282.
[I Bladburöarfólk
óskast!
AUSTURBÆR GRAFARVOGUR
Þingholtsstræti o.fl.
Sóleyjargata
Laufásvegur 2-57
Hverfisgata 4-62 o.fl.
Gerðhamrar
Dverghamrar
Krosshamrar
Hesthamrar
Áhorfendur með hvatningarspjöld fylgjast með mælskukeppninni. Frá mælskukeppninni milli
Seljaskóla og Austurbæjar-
skóla. Ræðumaður frá Selja-
skóla er í pontu.
Úrslit í ræðukeppni grunnskóla
Reykjavíkur í Breiðholtsskóla
UNDANFARNAR vikur hefur
staðið yfir keppni í mælskulist
meðal unglinga i grunnskólum
borgarinnar. Ellefu skólar tóku
þátt í keppninni sem er skipu-
lögð og stjórnað af íþrótta- og
tómstundaráði Reykjavíkur.
Það vakti athygli að í keppn-
inni milli Seljaskóla og Austur-
bæjarskóla var aðeins einn piltur
í sveitunum tveimur. Það var
Austurbæjarskóli sem sigraði og
mætir því sveit Hagaskóla í úrslit-
um miðvikudaginn 1. apríl nk. kl.
20.30 í samkomusal Breiðholts-
skóla. Ræðuefnið verður „Reyk-
laust ísland árið 2000“.
Verðlaunaafhending fer fram
sama kvöld, en verðlaunin gefur
íþrótta- og tómstundaráð.
Joseph Allard
flytur fyrirlestur
JOSEPH Allard, lektor í bók-
menntum við háskólann ■' Essex,
flytur opinberan fyrirlestur í boði
heimspekideildar Háskóla íslands
mánudaginn 30. mars nk. kl. 17.15
í stofu 101 í Odda.
Fyrirlesturinn nefnist „Emily
Dickinson: The Regulation of Belief"
og verður fluttur á ensku.
Joseph Allard hefur ritað um bók-
menntir, m.a. um Nathaniel
Hawthome, Emily Dickinson, Thom-
as Smith, West og Copley. Einnig
er hann ljóðskáld sjálfur. AUard
kemur hingað til lands á vegum
British Council, m.a. til að halda
málstofu með enskunemum í heim-
spekideild.
Fyrirlesturinn er opinn öllum.
Morgunblaðið/Gunnar
Þátttakendurnir á námskeiðinu ásamt leiðbeinanda. Kvenmaðurinn
á námskeiðinu var fjarverandi þegar myndin var tekin.
Matreiðslunámskeið eftirsótt
hjá karlmönnum í Bolungarvík
Bolungarvík.
AUK ÞESS að færa eiginkonum sínum blóm á konudaginn bregða
eiginmennirnir á sig svuntum og glíma við eldamennskuna þann
daginn. Þetta á að minnsta kosti við um marga eiginmenn sem þess-
ari vinnu geta við komið og á sig bætt. Hvort að eitthvað hafi farið
úrskeiðis í eldamennskunni hjá þeim átta karlmönnum sem nú stunda
nám í matreiðslu á kvöldnámskeiðum við grunnskólann í Bolung-
arvík fæst sennilega ekki upplýst.
Á námskeiði þessu eru eins og
áður sagði átta karlmenn og einn
kvenmaður, leiðbeinandi er Björg
Kristjánsdóttir matreiðslukennari
grunnskólans.
Undirritaður hefur sjálfur verið
þátitakandi á þessu námskeiði og
mun hann ekki láta uppi ástæður
þess að hann sótti slíkt nám. Sú
fræðsla sem þarna fer fram er þörf
öllum því einhverstaðar stendur að
matur sé mannsins megin.
Á námskeiðunum, sem eru einu
sinni í viku tvo tíma í senn, eru
eldaðir listaréttir, gerðir forréttir
og eftirréttir auk þess sem bakkelsi
er skellt í ofninn. í lok hvers tíma
er sest að matarborði og útkoma
kennslustundarinnar étin og það
bókstaflega upp til agna því þarna
eru einföldustu réttir gerðir að
veislumat. Sem dæmi skal hér í
lokin gefið upp það sem var á borð-
um er meðfylgjandi mynd var tekin.
Forréttur: Júlíönnusúpa borin
fram með bökuðum ostastöngum.
Aðalréttur: Karrýsteiktar kótilettur
með hrísgijónum og iceberg-salati.
Eftirréttur: Sérrýís með' sveskjum
og sótkaka með súkkulaði.
Þá er loksins komin á markaöinn sann-
kölluð draumableia. Bleia sem situr vel
og er þægileg, og um leið svo auðveld í
meðförum að afi gamli fer létt með bleiu-
skiptin. Minsten bleian er þannig úr garði
gerð að hún dregur í sig mjög mikinn