Morgunblaðið - 29.03.1987, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1987
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna —- atvinna
Vélvirkja
Menn, vana verkstæðisvinnu, vantar nú þeg-
ar. Mikil vinna. Frítt fæði og fríar ferðir til
og frá vinnustað.
Uppl. gefur Sigurður Karlsson í síma 53999.
HAGVIBKI HF
SÍMI 53999
Trésmiðir
Óskum að ráða trésmiði nú þegar.
Framtíðarstörf.
AÐALGEIR FINNSSON HF
BYGGINGAVERKTAKI & TRÉSMIÐJA
FURUVÖLLUM 5 ' P O. BOX 209 602 AKUREYRI • ICELAND
SlMAR: 21332 & 21552 • NAFNNÚMER: 0029-0718
ÍMd
L»~«i
Starfskraftar
Eitt af viðskiptafyrirtækjum okkar, sem er
þekkt bifreiðaumþoð í Reykjavík, óskar eftir
að ráða eftirfarandi starfskrafta í framtíðar-
störf:
Starfsmann í varahlutaverslun
Þarf að hafa áhuga og þekkingu á bílum,
vera þjónustulipur og koma vel fyrir.
Skrifstofustúlku
Þarf að geta gengið inn í öll almenn skrif-
stofustörf: Bókhald, bréfaskriftir, skjala-
vörslu, tölvuskráningu o.fl. Þýskukunnátta
auk annarrar málakunnáttu kæmi sér vel.
Þarf að koma vel fyrir og vera áhugasöm.
Æskilegt er að viðkomandi starfskraftar
gætu hafið störf sem fyrst.
Umsóknir sem tilgreina aldur, menntun og
fyrri störf sendist Ráðgjafastofunni,
Bíldshöfða 18, fyrir 10. apríl nk. Farið verður
með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
RÁÐGJAFASTOFAN
REKSTRAR- OG TÖLVURÁÐGJÖF
val hugbúnaðar — val vélbúnaðar
ráðningarþjónusta-tölvuþjónusta-innheimta.
®LAUSAR STÖÐURUJÁ
REYKJAVIKURBORG
Mæðraheimili Reykjavíkurborgar óskar eftir
starfsfólki í sumarafleysingar.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
25881.
Umsóknarfrestur er til 6. apríl nk.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð,
á sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Siglufjörður
Blaðberar óskast í Suðurgötu, Laugaveg,
Hafnartún, Hafnargötu.
Upplýsingar í síma 71489.
SINDRAAmSTÁLHF
PÓSTHÓLF 881 BORGAHTÚNI 31 121 REYKJAVlK SlMAR 27222 - 21684
Stálbirgðastöð
Sindra-Stál hf., sem flytur inn ýmsar vörur
fyrir málmiðnaðinn, óskar eftir að ráða í stál-
birgðastöð:
Birgðastjóra
Við leitum eftir starfsmanni með reynslu og
stjórnunarhæfileika til að sjá um verkstjórn
í vöruskemmu fyrirtækisins.
Jafnframt leitum við eftir:
Málmiðnlærðum sölumanni
Starfið felur í sér sölu á rafsuðuvörum —
vélum og tækjum til málmiðnaðar ásamt
sölu á efni frá stálbirgðastöð okkar. Suðu-
kunnátta nauðsynleg ásamt þekkingu á
málmiðnaðartækjum.
Farið verður með allar umsóknir sem algjört
trúnaðarmál og öllum umsóknum verður
svarað.
Umsóknir sendist fyrir 5. apríl nk. til:
Sindra-Stál hf.,
B/T SigurðarSn. Gunnarssonar,
starfsmannastjóra,
Borgartúni 31, Pósthólf880,
121 Reykjavík.
Upplýsingar ekki gefnar í síma.
Enskur ritari
Við leitum að enskum ritara fyrir forstjóra
innflutningsfyrirtækis hér í borg.
Þarf að hafa fullkomið vald á enskri tungu
ásamt þjálfun í ritarastörfum.
Nánari upplýsingar á skrifstofu okkar.
CfUDNT TÓNSSON
RÁDCJÖF b RÁDN l NCARÞjÓN USTA
TÚNGÖTU 5. 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMI62Í322
Afgreiðslustörf
Óskum að ráða nú þegar duglegan og reglu-
saman starfskraft til afgreiðslustarfa í véla-
verslun. Hálfs dags starf (kl. 13.00-17.00).
Upplýsingar um aldur og fyrri störf sendist
auglýsingadeild Mbl. fyrir 1. apríl nk. merkt-
ar: „Afgreiðslustarf — 9355“.
Húsvörður
Rótgróið íþróttaféiag í borginni, vill ráða
húsvörð til starfa, frá og með 1. maí nk. Um
er að ræða framtíðarstarf.
Starfssvið: Almenn húsvarðarstörf, umsjón
með rekstri íþróttahúss ásamt skyldum verk-
efnum.
Leitað er að hressilegum aðila, sem vinnur
sjálfstætt og er lipur í allri umgengni.
Laun samningsatriði. Nánari upplýsingar á
skrifstofu okkar.
Bakari
Fyrirtækið er ný brauðgerð á Vesturlandi.
Starfið felst í daglegum rekstri, s.s. innkaup-
um starfsmannahaldi og bakstri.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu lærð-
ir bakarar með nokkra starfsreynslu. Fyrir-
tækið útvegar húsnæði á staðnum.
Viðkomandi þyrfti að geta hafið störf sem
fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 3. apríl nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9.00-15.00.
Gijðntíónsson
RÁÐGJÖF &RÁÐN1NCARHÓNUSTA
TÚNGÖTU 5. I0l REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322
Skólavórðustig la - 707 Reykjavik - Simi 621355
Hlutastarf
Fyrirtækin eru þrjú og sameinast um rekstur
mötuneytis fyrir tuttugu starfsmenn.
Starfið felst í framreiðslu á léttum hádegis-
verði, frágangi og innkaupum.
Hæfniskröfur eru að viðkomandi hafi gaman
af matreiðslu, sé snyrtilegur og léttur í lund.
Vinnutími er frá kl. 10.00-14.00.
Umsóknarfrestur er til og með 3. apríl nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9.00-15.00.
Skólavörðustig ta - 101 Reyk/avik - Simi 621355
Jarðfræðingur
óskast á rannsóknarstofu
B.M.Vallá hf.
Við viljum bæta við starfsmanni á rannsókn-
arstofu fyrirtækisins. B.M. Vallá hf. starfræk-
ir steypustöð, steinaverksmiðju og
einingaverksmiðju og hefur lagt
höfuðáherslu á strangt gæðaeftirlit og þarf
nú vegna aukinna verkefna að bæta við
starfsmanni á rannsóknarstofu fyrirtækisins.
Starfið er aðallega fólgið í:
a. Daglegu gæðaeftirliti: Sýnatökur, prófanir
og mælingar, úrvinnsla á gögnum, tölvu-
skráning og tölfræðileg úrvinnsla á
niðurstöðum.
b. Sérstökum verkefnum.
Við leitum að duglegum og nákvæmum
starfsmanni. Krafist er jarðfræðimenntunar.
Skrifleg umsókn með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist til:
B.M. Vallá hf„
c/o Guðmundur Benediktsson,
Nóatúni 17,
105 Reykjavík,
fyrir hádegi þann 6. apríl nk.
Upplýsingar ekki gefnar í síma. Farið verður
með allar umsóknir sem trúnaðarmál og
þeim öllum svarað.
B.M.VALÚ'
Hárgreiðslufólk ath!
Hárgreiðslunemi á 3ja ári, sveinn eða meist-
ari, óskast á stofu úti á landi. Góð lauri í
boði fyrir góðan starfskraft.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merkt: „H - 8219“.
Tölvumaður
Stórt innflutnings-, verslunar- og þjónustu-
fyrirtæki i Reykjavík leitar að hæfum starfs-
manni til að kerfissetja og skipuleggja
tölvuvinnslu fyrirtækisins.
Leitað er að starfsmanni sem hefur gott
vald á kerfissetningu og forritun og þekkir
vel til umhverfis IBM System 36.
í boði er umfangsmikið og skemmtilegt verk-
efni hjá traustu fyrirtæki.
Skriflegar umsóknir um menntun og fyrri störf
leggist inn á auglýsingadeild Mbl. merktar:
„Tölvumaður — 1987" fyrir 10. apríl 1987.