Morgunblaðið - 29.04.1987, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 29.04.1987, Qupperneq 1
56 SIÐUR STOFNAÐ 1913 95. tbl. 75. árg. MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Ekkert sannar að ég hafi brotið af mér Vestur-Evrópusambandið: Hámarkshrað- inn hækkaður Varasamt að flana að af- vopnunarsamkomulagi Kurt Waldheim sár: Vín, Reuter. KURT Waldheim, forseti Aust- urríkis, vísaði í gær á bug ásökunum Bandaríkjamanna um að hann hefði gerst sekur um striðsglæpi. Sagði hann að ekk- ert bæri því vitni að hann hefði brotið af sér í heimsstyijöldinni siðari og krafðist þess að hann yrði ekki fyrir ásökunum án sannana. „Ég hef hreina samvisku," sagði Waldheim í sjónvarpsyfirlýsingu, sem tekin hafði verið upp fyrir út- sendingu. Bandaríkjamenn til- kynntu á mánudag að Waldheim fengi ekki að koma þangað til lands í einkaerindum. „Ég legg áherslu á að engar sannanir liggja fyrir því að ég hafi brotið af mér,“ sagði Waldheim. Bandaríska dómsmálaráðuneytið sagði ákvörðunina reista á lögum um að meina rriönnum af erlendu þjóðerni, sem tekið hefðu þátt í saknæmu athæfi í seinni heims- styrjöld, landvist. Sjá „Ásakanir á hendur____“ á bls. 27. Reuter Alvaran var látin víkja er fulltrúar ríkja Vestur-Evrópusambandsins stilltu sér upp fyrir ljósmyndara í Lúxemborg í gær. Lengst til vinstri er Van Den Broek frá Belgíu. Við hlið hans er Manfred Wörner frá Vestur-Þýskalandi, þá Alfred Kahen, framkvæmdastjóri Vestur-Evrópusambandsins, og loks Lynda Chalker, fulltrúi bresku ríkisstjórnarinnar. John Sununu, ríkisstjóri í New Hampshire í Bandaríkjun- um, sést hér festa upp nýtt skilti sem heimilar 65 mílna hámarkshraða á klukkustund á þjóðvegi 93. Ákveðið hefur verið að hækka hraðamörkin um 10 mílur en þau voru takmörkuð við 55 mílur á klukkustund er olíukreppan svonefnda reið yfir. Lúxemborg, Reuter. FULLTRÚAR ríkja Vestur-Evrópu lýstu því yfir í gær að ekki yrði látið undan þrýstingi stórveldanna um að samið verði sem fyrst um upprætingu kjarnorkuflauga í Evrópu. Utanríkis- og varnarmálaráðherrar aðildarríkja Vestur-Evrópusambandsins voru sammála um þetta að sögn embættismanna í Lúxemborg þar sem fundur þeirra fór fram. Hvöttu þeir til þess að öll sam- komulagsdrög um útrýmingu meðaldrægra eldflauga í Evrópu yrðu skoðuð gaumgæfilega áður en afstaða yrði tekin til þeirra. Lynda Chalker, aðstoðarut- I fréttamannafundi í gær að ríki anríkisráðherra Bretlands, sagði á | Atlantshafsbandalagsins mættu Sovétríkin: V erðbólgndraugur- inn gerir vart við sig „Húðlatir verkamenn“ eru helsta orsökin Moskvu, Reuter. í GREIN, sem virtur sovéskur hagfræðingur hefur ritað og birtist í Prövdu, málgagni sovéska kommúnistaflokksins, í gær segir að verðbólga fari vaxandi í Sovétríkjunum. Segir að vandinn sé til kominn vegna þess að kaupmáttur almennings hafi aukist en framboð á vörum ekki. Kveður hagfræðingur- inn húðlata verkamenn ábyrga fyrir þessu ófremdarástandi. í greininni leggur prófessor Ruslan Khaslubatov til að fram- kvæmdastjórum verksmiðja verði heimilt að ákveða laun starfs- mahna í samræmi við framleiðni. Þá mælir hann einnig með því að letingjum verði sagt upp störfum. Khaslubatov segir að kaup- máttur almennings hafi aukist verulega á undanförnum árum. „Þegar framleiðni helst ekki I hendur víð lautiahækkanir raskast efnahagurínn," segir hann, Hann kveður það einnig hafa gleymst í umræðum um efnahagsmál að sumir verkamenn sinni ekki störf- um sínum og skorti nauðsynlega sjálfsvirðingu og aga. „Verksmið- justjórarnir eru iðulega gerðir ábyrgir,“ segir Khaslubatov. Að sögn vestrænna sérfræð- inga er þetta í fyrsta skipti sem það er opinberlega Viðurkehht að sovéska hagkerfið eigi við verð- bólguvanda að etja iíkt og iðhríki Vesturlanda. Sovéskir hagfræð- ingar hafa að undanfömu hvatt til þess að verðlagskerfi og fram- leiðslustýring í Sovétríkjunum verði tekið til endurskoðunar. Jó- sef Stalín setti lög varðandi þessi atriði á þriðja áratug aldarinnar, en ein grundvallarkenning Stalíns var sú að sovéski verkamaðurinn væri ný og áður óþekkt manngerð sem ætlaðist ekki til umbunar fyrir verk sín. Khaslubatov lætur (ljós efasemdir um gildi þessarar kenningar f grein sinni. „Við verð- um að brúa það hyldýpi sem myndast hefur milli napurs Veru- leika alþýðu manna og háfleygra dratitnsýha um hinh fuiiktimna mann," segir í iok greinarinnar; ekki láta undan þrýstingi, sem leitt gæti til flausturslegra samn- inga. „Við erum sammála um að öryggi aðildarríkjanna verður best tryggt með fælingarmætti kjarn- orkuvopna og sveigjanlegum viðbrögðum á átakatímum," sagði hún. Lynda Chalker lagði á það áherslu að fundur embættismanna Vestur-Evrópusambandsins hefði verið haldinn til að styrkja varnar- samstarf Atlantshafsbandalags- ríkjanna. Sovétmenn kynntu í gær drög að samkomulagi um Evrópuflaug- arnar svonefndu þar sem einnig er lagt til að samið verði jafnframt um útrýmingu skammdrægra flauga. Talið er að viðbrögð aðild- arríkja Atlantshafsbandalagsins muni að verulegu leyti mótast af afstöðu Vestur-Þjóðveija en ákaf- ar deilur eru komnar upp í samsteypustjórn Helmuts Kohl kanslara um þetta atriði. Hans- Dietrich Genscher utanríkisráð- herra hefur lýst því yfir að ganga beri að tillögum Sovétstjórnarinn- ar. Manfred Wörner varnarmála- ráðherra hefur á hinn bóginn lýst sig þessu andvígan. Charles Redman, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytis- ins, sagði í gærkvöldi að tilboð Sovétstjómarinnar væri ekki í samræmi við kröfur Bandaríkja- manna varðandi skammdrægar flaugar og eftirlit. Sagði hann stjórnina vera því andvíga að skammdrægar flaugar í Evrópu yrðu upprættar með öllu þar eð Sovétmenn réðu yfir þess háttar vopnabúnaði í Asíuhluta Sov- étríkjanna. Portúgalir og ítal- ir að kjörborðinu Lissabon, Róm, Reuter. MARIO Soares, forseti Portúgals, tilkynnti í gær að hann hefði leyst upp þingið og hefur verið boðað til þingkosninga þann 19. júlí. Francesco Cossiga, hinn ítalski starfsbróðir hans, leysti þingið einnig upp í gær og batt þar með enda á átta vikna stjórnarkreppu. Boðað hefur verið til þingkosn- Íhga þar 14; júili; MinnihlUtastjórh Ahiititöfes Éah- fahi, forsætisráðherra Ítaiíu, féíl f gær eflir að hafa verið 10 daga við völd. Stjórnin fékk ekki traustsyfir- lýsingu þingsins og ákvað Cossiga forseti þá að efna til kosninga. Minnihlutastjóm Anibals Cavaco Silva, forsætisráðherra Portúgals, mun sitja áfram þar til ný stjórn hefur verið mynduð. Undanfarnar þrjár vikur hefur ríkt stjórnarkreppa í lahdinu en þá var samþykkt van- tfauststiilaga gegn stjórninhi. Sjá náilftt Uhl stjórnniálaástand- ið á ÍtaÍÍU á bís. 26.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.