Morgunblaðið - 29.04.1987, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987
Hvítur þunnur galli frá Don Cano. íþróttagalli úr bómull frá Henson
Skíðagalli frá Don Cano í tvílitu setti, en Don
Cano fatnaðurinn er framleiddur í stærðum sem
henta jafnt konum sem körlum.
staða íslensks íþróttafatnaðar
væri mjög góð hvað varðar gæði,
en aukinn innflutningur á íþrótta-
fatnaði á liðnum árum hefði mjög
kreppt að þessari framleiðslu. „Við
erum að þessu allt eins fyrir áhuga
á íþróttum og sameinum hann
áhuganum á fataframleiðslu, en
ég get ekki séð að þetta fyrirtæki
myndi bera sig með framleiðslu
íþróttafatnaðar eingöngu," segir
Reinhardt Reinhardtsson, hjá Alís.
Halldór Einarsson lýsir þróun-
inni svo: „Þegar álagning á fatnaði
var gefin hér frjáls fyrir tveimur
árum fóru innkaupaaðilar í auknu
mæli að leita eftir framleiðslu frá
ódýru löndunum.í austri og það,
ásamt því að island er líklega eina
Evrópulandið sem ekki hefur sett
nein höft á innflutning þaðan, hef-
ur verið helsti vandi okkar hér.
íslendingar eru ekkert frekar að
hugsa um hvar flíkin er framleidd
þegar þeir kaupa hana. Við
þennan innflutning hefur verið
erfitt að keppa, en á móti
kemur auðvitað nálægð
HL okkar við markaðinn
hér og það að við
getum þjónustað
'ö, fólk og félög milli-
0 liðalaust og fyrir-
R' varalítið. Það er
g. fyrst og fremst í
fe- beim efnum sem
við skorum,"
segir
„Erlendis þekkist það ekki
að fólk sé að spá í tískuliti
varðandi íþróttafatnað, en
hér heima er allt annað upp
á teningnum - íslendingar
eru bara í tískunni og það
skiptir þá engu hvort um er
að raeða tískufatnað eða
íþróttafatnað, ef flíkin
samræmist ekki tískunni í
efnum, sniði og litum þá er
ekki litið við henni.“
fyrirtæki stór í sniðum sem fram-
leiða íþróttafatnað og eitt slíkra
er fyrirtækið Alís í Kópavoginum,
en þar hafa eigendurnir, Reinhardt
Reinhartsson og Sigrún L. Kvaran,
klæðskeri, á undanförnu eina og
hálfa ári framleitt íþróttafatnað
sem aukagrein með tískufatnaði.
Þau framleiða eftir tveimur grunn-
sniðum fyrir hópa, félög og ein-
staklinga, en selja ekki til verslana.
Það var almennt álit manna að
Þessar setningar og fleiri í
sama dúr heyrðust ósjaldan
þegar blaðamaður Morgunblaðs-
ins fór á stúfana til að kanna stöðu
íslenskrar framleiðslu hvað
íþróttafatnað varðar, framleiðslu
sem á síðustu árum hefur mjög
rutt sér til rúms á markaðnum og
ekki einvörðungu fyrir íþróttafólk
og keppnisvelli.
„Ég mæti fólki í fatnaði frá okk-
ur allt eins á Laugaveginum, á
skemmtistöðum, í ferðalögum og
hvar sem er,“ segir Herdís Björns-
dóttir, sölustjóri hjá Scana h.f.,
fyrirtækinu sem framleiðir Don
Cano fatnaðinn. í sama streng tek-
ur Halldór Einarsson, eigandi
Henson h.f., en leitað var til þess-
ara tveggja fyrirtækja, sem eiga
það sameiginlegt að vera með
nokkuð mikla og fjölbreytta fram-
leiðslu, en eru þó um margt ólík.
Scana h.f. framleiðir nær eingöngu
fyrir íslenskan markað og lítillega
fyrir þann grænlenska, en í Dan-
mörku, Englandi, Noregi, Svíþjóð
og Bandaríkjunum eru fyrirtæki
sem framleiða samskonar fatnað
eftir hönnun Jan Davidson, manns-
ins á bakvið merki Don Cano.
Hjá Henson er á hinn bóginn
um að ræða framleiðslu fyrir
íslenskan markað og erlendan og
fer hún bæði fram hér heima og í
auknu mæli erlendis, aðallega í
Portúgal og Kóreu. Ekki eru þó öll
Halldór, en hann ^ 1 þ
hefur verið í fram-
leiðslu íþróttafatnað- /
ar í 19 ár frá því hann
byrjaði með að kaupa eina
gamla saumavél og ráða til
sín konu sem kunni á hana. Nú
starfa hjá Henson um 90 manns.
Hjá Henson, voru á síðasta ári
framleiddar, í tveimur verksmiðj-
um fyrirtækisins, 94.000 flíkur,
sem skiptast í 31 grunntegund
fatnaðar, sem svo skiptist enn á
ný í ýmsar mismunandi tegundir.
Halldór segir takmarkið að fram-
leiða hérlendis um 100.000 flíkur
árlega, en hann hyggur á enn
meiri aukningu í framleiðslunni og
það erlendis.
„Ég er búinn að kyngja mínum
gömlu skoðunum um að íslenskt
skyldi framleitt á íslandi. Þær hafa
svona aðeins brotlent. Því erum
við að byrja að framleiða undir
merkjum Henson í löndum þar
sem margfalt ódýrara er að fram-
leiða. Ég býst við að reksturinn
verði í framtíðinni þannig, að æ
meira verður framleitt annars
staðar og flutt hingað inn og jafn-
vel héðan aftur. Við ákveðum þá
efni, snið, hönnun og útlit fatnað-
arins, en fáum hann framleiddann
Stakar
stuttbuxurog
vindjakki frá
Don Cano
Hjá fyrirtækinu Alís eru framleiddir tvílitir giansgallar
eftir tveimur grunnsniðum og er þetta önnur tegundin.