Morgunblaðið - 29.04.1987, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 29.04.1987, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRIL 1987 31 Varaþingmenn úr sömu kjördæmum og þingmenn SAMKVÆMT lögunum, sem kos- ið var eftir í þingkosningunum á laugardaginn, koma allir vara- þingmenn úr sömu kjördæmum og þingmenn, sem þeir koma í staðinn fyrir eða leysa af tíma- bundið. Eldri kosningalög gerðu hins vegar ráð fyrir því að vara- menn landskjörinna þingmanna kæmu af sérstökum lista iands- kjörinna varaþingmanna og þar með gætu þeir verið úr öðru kjör- dæmi. Ef tekið er dæmi úr Vestfjarða- kjördæmi þá er Einar K. Guðfinns- son, 3. maður á framboðslista Sjálfstæðisflokksins, fyrsti vara- maður þingmannanna Matthíasar Bjarnasonar og Þorvaldar Garðars Kristjánssonar, en flokkurinn fékk tvo kjördæmakjörna menn. Ólafur Kristjánsson, sem skipaði 4. sæti listans, er annar varamaður þeirra. Á Vestljörðum fékk Alþýðuflokkur- inn einn kjördæmakjörinn mann, Karvel Pálmason, og einn jöfnunar- mann, Sighvat Björgvinsson. Fyrsti varamaður þeirra er Björn Gíslason, sem skipaði 3. sæti listans, og ann- ar varamaður þeirra er Unnur Hauksdóttir, sem skipaði 4. sæti listans. Sama regla gildir um varamann þess þingmanns er hlýtur 63 þing- sætið, óbundna jöfnunarsætið (sem fjölmiðlar hafa nefnt ,,flakkara“). Hann kemur úr sama kjördæmi og viðkomandi þingmaður og er næst- ur á eftir honum á framboðslistan- um. Anna Kristjánsdóttir, Bandalagi jaf naðarmanna: Vorum að mótmæla lýðræðisbroti „ÚRSLITIN staðfesta það sem við vissum raunar fyrir, að ekki dugir einn mánuður til þess að endurvekja stjórnmálaafl sem reynt hefur verið að brjóta nið- ur í þrjú ár,“ sagði Anna Kristj- ánsdóttir, efsti mað.ir á lista Bandalags jafnaðar lanna í Reykjavík og talsmaður Banda- lagsins, þegar Morgunblaðið leitaði álits hennar á kosnin- gaúrslitunum. Bandalag jafnað- Anna Kristjánsdóttir Aukið öryggi fyrir börnin í bílum armanna bauð fram í tveimur kjördæmum, fékk 246 atkvæði, eða um 0,2% greiddra atkvæða á öllu landinu. UMFERÐARRÁÐ hefur látið út- búa veggspjald um öryggisbúnað fyrir börn í bilum. Á síðastliðnum 5 árum hafa að meðaltali 47 börn slasast árlega sem farþegar í bílum. Ekkert barnanna var í bílstól eða bílbelti. Veggspjald Umferðarráðs er meðal annars sent á dagvistar- heimili, heilsugæslu- og lögreglu- stöðvar. Spjaldinu er ætlað að vekja athygli almennings á því að nú er völ á góðum öryggisbúnaði fyrir alla aldurshópa. Árið 1986 slösuð- ust 45 börn yngri en 7 ára í umferðinni, og 2 létust. Mörg þeirra slösuðust sem farþegar I bílum, þ.e. 21 barn. Í frétt frá Umferðarráði segir að hægt hefði verið að koma ( veg fyrir mörg þessara slysa, og draga úr öðrum, ef börnin hefðu verið nægjanlega vel varin. böbn 1 pubjfa vöfN; g: ----------, ■Qóðum öryggísbúnai t-’1* Krir atta 47 btim slasast arlega j mimmiíuiituiim Fn^inr «'tti nð nitja t*us I bt' BjöölAokKl hmttunnihafm. I NOÖJ öfý-flgisbd'mð / WVIFEROAR RAO Veggspjald Umferðarráðs „Það sem vakti fyrir okkur kjós- endum Bandalags jafnaðarmanna með framboðinu nú var að mót- mæla því lýðræðisbroti sem okkur fannst það vera, þegar reynt var að leggja þetta stjómmálaafl niður án þess að halda landsfund, með því að þingmennirnir gengu inn í aðra þingflokka. Allt okkar starf var unnið með uppbyggingu þessa stjórnmálaafls í huga. Við getum hugað að því fyrir alvöru nú eftir kosningar," sagði Anna. „Ég er ánægð með að fjór- flokkakerfið virðist vera farið að éta sig innan frá. Það hryggir mig aftur á móti að fyrirgreiðslupólitík- in, eins svakaleg tímaskekkja og hún nú er, skuli fá stuðning í kosn- ingum,“ sagði Anna Kristjánsdótt- ir. Sljórn Þýðingarsjóðs: Tíu aðilar f engu styrki til að þýða 23 bækur STJÓRN Þýðingarstjóðs hefur veitt tíu aðilum styrki vegna 23 bóka að upphæð 3.547 þúsund krónur. AIls sóttu ellefu aðilar um styrki til Þýðingarsjóðs vegna 32 bóka, samtals að upp- hæð um 4 millj. kr. Mál og menning hlaut styrk vegna sjö bóka óg Almenna bókafé- lagið vegna þriggja bóka. Bókaútg- áfurnar Svart á hvítu, Setberg, ísafold, Forlagið og Fjölvi hlutu öll styrk vegna tveggja bóka hver. Hið íslenska bókmenntafélag og Iðunn hlutu styrk vegna einnar bókar hvor og Egg-leikhúsið hlaut styrk til þýðingar á einu leikriti. Þýðingarsjóður var stofnaður með lögum í maí 1981. Hlutverk sjóðsins er að veita útgefendum styrki eða lán til útgáfu vandaðra erlendra bókmennta á íslensku máli, jafnt skáldverka sem viður- Þing’konur eru 13 KONUR á Alþingi eru þrettán eftir þingkosningarnar á laugar- daginn en ekki tólf eins og ranghermt var hér í blaðinu á gær. Þar féll niður nafn Guð- rúnar Helgadóttur, þingkonu Alþýðubandalagsins í Reykjavik. Þingkonurnar eru sex af Kvenna- lista, tvær frá Alþýðubandalaginu og Sjálfstæðisflokknum og ein frá Alþýðuflokknum, Framsóknar- flokknum og Borgaraflokknum. Beðist er velvirðingar á þessu mishermi. kenndra fræðirita. Greiðslur skulu vera framlag ríkissjóðs samkvæmt fjárlögum hvers árs. Uthlutað var úr sjóðnum í fyrsta skipti árið 1983- Menntamálaráðherra skipar stjórn Þýðingarsjóðs og eiga nú sæti í henni Sverrir Kristinsson, til- nefndur af Félagi íslenskra bókaút- gefenda, Þovarður Helgason, tilnefndur af Rithöfundasambandi Islands, og Sólrún Jensdóttir, skip- uð án tilnefningar. Leiðréttar tölur úr Norðurlandi vestra í FRÉTT Morgunblaðsins í gær um kosningaúrslitin í Norður- landskjördæmi vestra var rangt farið með prósentutclur um breyt- ingar á fylgi flokka frá síðustu þingkosningum. Fylgi Alþýðuflokksins í kosningun- um var 10,2% en 1983 var það 7,2%. Munurinn er +3,0%. Fylgi Framsóknarflokksins í kosn- ingunum var 35,2% en 1983 var það 28,8. Ef fylgi BB-lista 1983 er tekið með var heildarfylgið 40,4%. Munur- inn er -5,2%. Fylgi Sjálfstæðisflokksins í kosn- ingunum var 21,2% en 1983 var það 31,3%. Munurinn er -10,1%. Loks var fylgi Alþýðubandalagsins í kosning- unum 15,7% en 1983 var það 11,6%. Munurinn er +4,1%. Lesendur eru beðnir velvirðingar á þessum mistökum. A „ Arangur af góðu samstarf i í kosn- ingabaráttunni“ - segir Sighvatur Björgvinsson, sem endur- heimti þingsæti sitt á Vestfjörðum „ÉG er auðvitað ánægður með árangur okkar Alþýðuflokks- manna á Vestfjörðum í þessum kosningum. Það tókst að ná mjög góðu samstarfi okkar á milli eftir þau átök sem urðu í prófkjörinu og menn sann- færðust um að við ættum möguleika á tveimur mönnum og unnu samkvæmt því“, sagði Sighvatur Björgvinsson, annar maður á lista Alþýðuflokksins á Vestfjörðum, sem endur- heimti þingsæti sitt i kosning- unum. „Árangur okkar er því fyrst og fremst árangur af nyög góðu starfi, sem unnið var í kosningabaráttunni", sagði hann ennfremur. Sighvatur var fyrst kjörinn á þing 1974 og sat á þingi til árs- ins 1983. I prófkjöri Alþýðu- flokksins fyrir kosningarnar 1983 lenti hann í öðru sæti, en flokkurinn fékk hins vegar aðeins einn mann kjörinn á Vestíjörðum f þeim kosningum. og Sighvatur féll út af þingi. Hann endur- heimti nú þingsæti sitt og sagði m.a. í því sambandi: „Úrslit þess- ara kosninga eru auðvitað sérs- taklega ánægjuleg fyrir mig með Sighvatur Björgvinsson. því að ná pólitískri endurkomu á þing með þessum hætti." Aðspurður kvaðst Sighvatur einkum vilja beita sér fyrir þeim málefnum, sem Alþýðuflokks- menn á Vestfjörðum lögðu áherslu á í kosningabaráttunni, það er að afnema kvótakerfið og gera sérstakt átak i samgöngu- málum kjördæmisins."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.