Morgunblaðið - 29.04.1987, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRIL 1987
Borgarráð;
Vill f riða
bmmiinn við
Bjarnaborg
RAGNHEIÐUR H. Þórarinsdótt-
ir borgarminjavörður fer þess á
leit í bréfi til borgarráðs að íhug-
uð verði varðveisla á vatnsbóli á
lóð Bjarnaborgar.
Fyrir nokkru fannst gamall
brunnur sem Bjarni Jónsson lét
gera fyrir íbúa Bjarnaborgar árið
1902 og var hann notaður í nokkur
ár. Brunnurinn er um 4 metrar í
þvermál og 5,5 metrar á dýpt. „Eg
tel þetta mjög merkilegan fund, því
þetta er sennilega eina vatnsbólið,
sem eftir er í miðborg Reykjavíkur
frá fyrri tíð og við eigum einhvern
möguleika á að varðveita,“ segir í
bréfi Ragnheiðar.
Erindinu var vísað til borgarverk-
fræðings og borgarminjavarðar.
Morgunblaðið/Bjami
Starfsmenn Dögunar sf. við brunninn sem fanst á lóð Bjarnaborgar.
VEÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hádegi í gœr: Á Grænlandshafi er hægfara 992 milli-
bara djúp lægð.
SPÁ: Suðvestanátt um mest allt land, víðast kaldi (5 vindstig).
Snjó- eða slydduél um vestanvert landið en þurrt og sums staðar
léttskýjaö um landið austanvert. Hiti á bilinu 2 til 8 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FIMMTUDAGUR: Hæg suðvestlæg átt með slydduéljum vestantil
á landinu en víðast úrkomulaust og bjart veður um landið austan-
vert. Hiti á bilinu 1 til 5 stig.
FÖSTUDAGUR: Vindur snýst til norðlægrar áttar og smám saman
léttirtil sunnanlandsen él verða norðantil. Hiti um og yfirfrostmarki.
TÁKN:
Heiðskírt
x Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
1 o Hitastig:
10 graður á Celsíus
y Skúrir
*
V El
Léttskýjað / / / / / / / Rigning ==
f r > * / * •> • *
SkýÍað / * / + Slydda / * / * * * oo -4
f ^ Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K
Þoka
Þokumóða
Súld
Mistur
Skafrenningur
Þrumuveður
\ /
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyrl hiti 5 veöur úrkomaígr.
Reykjavík 2 snjóél
Bergen 11 skýjað
Helsinki 12 skýjað
Jan Mayen -4 alskýjaö
Kaupmannah. 18 skýjað
Narssarssuaq 5 léttskýjað
Nuuk -7 snjókoma
Osló 19 iéttskýjað
Stokkhólmur 16 léttskýjað
Þórshöfn 9 rigning
Algarve 20 skýjað
Amsterdam 21 léttskýjað
Aþena 13 alskýjað
Barcelona 18 þokumóða
Berlín 16 léttskýjað
Chicago 6 skýjað
Glasgow 20 mistur
Feneyjar 25 heiðskírt
Frankfurt 20 léttskýjaö
Hamborg 12 hálfskýjað
Las Palmas London 22 vantar heiðskírt
Los Angeles 18 mistur
Lúxemborg 18 léttskýjað
Madrld 19 skýjað
Malaga 21 skýjað
Mallorca 23 skýjað
Miami 19 léttskýjað
Montreal 5 snjóél
NewYork 5 rigning
París 21 heiðskirt
Róm 21 heiðskirt
Vín 12 skýjað
Washington 10 léttskýjað
Winnipeg 9 skýjað
1 maí í Reykjavík:
Formanni V.R. hafnað
sem ræðumanni af nefnd
verkalýðsf élaganna
í atkvæðagreiðslu í 1. maí nefnd
verkalýðsfélaganna í Reykjavík
um ræðumenn á 1. maí hátíða-
höldunum, var samþykkt að
Hildur Kjartansdóttir varafor-
maður Iðju, og Þröstur Ólafsson
framkvæmdastjóri Dagsbrúnar
flyttu hátíðarræður. Einnig var
stungið upp á Magnúsi L. Sveins-
syni formanni Verzlunarmanna-
félags Reykjavíkur sem
ræðumanni en sú tillaga var felld
og lét fulltrúi VR í nefndinni
bóka mótmæli vegna þess að
formanni stærsta verkalýðsfé-
lags landsins hefði verið hafnað
á þennan hátt.
Sjö félög eiga fulltrúa í nefndinni
auk Bandalags starfsmanna ríkis
og bæja sem hefur ekki atkvæðis-
rétt þar sem bandalagið sér um sinn
þátt í hátíðahöldunum sjálft. Félög
þessi eru Félag járniðnaðarmanna,
Trésmiðafélag Reykjavíkur, Félag
pípulagningarmanna, Verka-
kvennafélagið Framsókn, Sókn,
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
og Dagsbrún.
Þegar velja átti ræðumenn 1.
maí í nefndinni var stungið upp á
Hildi Kjartansdóttur, Þresti Ólafs-
syni og Magnúsi L. Sveinssyni. Var
þá kosið um þessar tilnefningar og
í atkvæðagreiðslunni fékk Hildur 5
atkvæði, Þröstur 3 og Magnús 2.
Einn fulltrúi var fjarverandi og eitt
atkvæði var ógilt.
Undirbúningur að 1. maí hátíða-
höldunum gengur eftir áætlun.
Farin verður kröfuganga frá
Hlemmi á Lækjartorg og þar mun
Kristinn Sigmundsson syngja við
undirleik Jónasar Ingimundarsonar.
Gunnar Eyjólfsson leikari les ljóð
og síðan flytja Hildur Kjartans-
dóttir, Þröstur Ólafsson og Harald-
ur Hannesson formaður Starfs-
mannafélags Reykjavíkur ræður.
Þingflokksfundur Alþýðuflokksins:
Umboð formannsins
til að leiða sljórnar-
myndunarviðræður
NÝKJÖRINN þingflokkur Al-
þýðuflokksins kom saman til síns
fyrsta fundar í gærmorgun. Þar
var Jóni Baldvin Hannibalssyni,
formanni flokksins, formlega
veitt umboð til að leiða stjórnar-
myndunarviðræður fyrir hönd
Alþýðuflokksins. Ekki hefur ver-
ið ákveðið hverjir aðrir munu
taka þátt í slíkum viðræðum fyr-
ir hönd flokksins.
Jón Baldvin sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að hann myndi
kveðja þingmenn flokksins til við-
ræðna við aðra aðila, eftir málefn-
um og málsatvikum. „Að öðru leyti
var þessi fundur, eins og lög gera
ráð fyrir um fyrsta fund nýs þing-
flokks, eftir kosningar, til þess að
meta hina pólitísku stöðu eftir kosn-
ingar,“ sagði Jón Baldvin. Hann
sagði að þar hefðu verið rædd fyrstu
drög að málefnagrundvelli, sem
þingmenn Alþýðuflokksins fengu í
hendur í fyrradag.
Jón Baldvin var spurður hveiju
hann svaraði gagnrýni þess efnis
að hann hefði farið of geyst af stað
í viðræðum við aðra flokka: „Frum-
kvæði er lofsvert, en ekki gagnrýni-
svert. Þetta eru ekki stjómarmynd-
unarviðræður, heldur könnunarvið-
ræður. Þær þurfa að fara fram
áður en einhverjum er falið umboð.
Ella er hætta á að stjómarmyndun-
arferillinn verði í hefðbundnu fari,
eftir stafrófsröð eða höfðatölu, en
ekki markviss vinnubrögð byggð á
könnun fyrirfram um vilja flokka
til samstarfs," sagði Jón Baldvin.
Fiskmarkaðurinn í Bremerhaven:
Verð á karfa
er enn lágt
Varað við offramboði af grálúðu
VERÐ á ferskum karfa í Þýzka-
landi er enn mjög lágt, en hefur
þó hækkað frá því í síðustu viku.
Vigri RE seldi á mánudag og
þriðjudag í Bremerhaven og
fékk að meðaltali 38,7 krónur á
kíló. Þórarinn Guðbergsson,
starfsmaður Engelnetze, í Brem-
erhaven sagði i samtali við
Morgunblaðið, að hann byggist
við því að verð á karfa sigi upp
á við í þessari og næstu viku.
Hins vegar varaði hann við hættu
á offramboði af grálúðu.
Vigri seldi alls 276,5 lestir, mest
karfa. Heildarverð var 10,7 milljón-
ir króna, meðalverð 38,70. Það er
aðeins yfir lágmarksverði, en verð
á karfanum hefur verið yfir 50
krónur á kíló að meðaltali í vetur.
Verð í síðustu viku hmndi og tals-
vert af fiski fór í gúanó vegna
offramboðs. Þórarinn Guðbergsson
sagði, að þar væri ekki aðeins ís-
lendingum um að kenna. Allmargar
þjóðir hefðu hrúgað karfa inn á
markaðinn vegna hás verðs og erf-
iðleika við vinnslu vegna páskanna.
Nú virtist sem framboð færi minnk-
andi aftur. Á mánudag hefðu 650
lestir verið á markaðnum og það
hefði allt selzt. Sér virtist áætlað
framboð í þessari viku og næstu
skynsamlegt, en nauðsynlegt væri
fyrir okkur að halda jöfnu og stöð-
ugu framboði, ætti verð að haldast
hátt.
Þá sagði hann að svo virtist sem
400 til 500 lestir af grálúðu yrðu
á markaðnum í næstu viku og það
væri að sínu mati í það mesta. Að
vísu hefði grálúðuna vantað að und-
anförnu, en kaupgeta á þessum
fiski markaðist af frystigetu. Grá-
lúðan væri öll reykt, en fryst fyrst.
Hann vildi því vara menn við því
að senda of mikið af þessum fiski
á markaðinn, sem tæplega þyldi
meira en 500 lestir vikulega í allt.