Morgunblaðið - 29.04.1987, Side 20

Morgunblaðið - 29.04.1987, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRIL 1987 Morgunblaðið/Bjami Gestir á sýningfunni Sumarið ’87 koma úr ferðaherminum eftir ein- hverja ævintýraferð. Söfnun Krýsuvíkursamtakaima gengur illa: Aðeins 100 þúsund krónur hafa safnast AÐEINS um 100 þúsund krónur hafa safnast í söfnun Krýsuvík- ursamtakanna fyrir starfsemi meðf erðarheimilis fyrir ungl- inga sem hafa ánetjast eiturlyfj- um en markmiðið var að safna um einni milljón króna á meðan sýningunni Sumarið '87 stæði í Laugardalshöll. Pétur Ásbjörnsson fjallamaður mun dvelja á þaki Laugardalshall- arinnar til loka sýningarinnar, 3. maí næstkomandi, og er hann þar til að vekja athygli á söfnun Krýsuvíkursamtakanna. Vonast er til að söfnunin gangi betur nú síðari viku sýningarinnar. Pétur Ásbjöms- son tekur við áheitum í söfnunina í síma sem hann hefur hjá sér á þakinu, 687115, og einnig verður söfnunin í gangi á sýningunni sjálfri og hjá Krýsuvíkursamtökunum í síma 621005 og samtökin hafa póstgíróreikning með sama númeri. Seinni hluta mánudagsins höfðu tæplega 13 þúsund manns séð sýn- inguna Sumarið ’87 í Laugardals- höll. Gert er ráð fyrir að um 40 þúsund manns sjái sýninguna. „Markmið kosningalag- anna náðust að mestu“ segir Þorkell Helgason, prófessor „MARKMIÐ nýju kosningalag- anna náðust þokkalega miðað við aðstæður og í raun kom ekkert á óvart við úthlutun þingsæta. Hins vegar eru vissulega ákveðn- ir annmarkar á iögunum, sem erfitt er að sníða af miðað við óbreyttar forsendur, eins og þær eru markaðar í stjórnarskrá", sagði Þorkell Helgason prófess- or, sem var ráðgjafi kosninga- laganefndar við gerð nýju kosningalaganna, er hann var spurður hvort makmið laganna hefðu náðst í nýafstöðnum þing- kosningum. Þorkell sagði að raunar hefðu fleiri listar verið í framboði og meiri dreifing atkvæða, en prófað hefði verið á meðan kerfið var í undirbún- ingi. Megintilgangur lagabreyting- arinnar hefði verið að tryggja jöfnuð á milli flokka, þ.e. að allir flokkar fengju þá heildarþingsæta- tölu, sem þeir ættu skilið miðað við landsfylgi. „Þetta náðist að mestu, nema að það skortir nokkur hundr- uð atkvæði upp á að Framsóknar- fiokkurinn eigi fyrir sínum þrettánda manni. í þessu sambandi vil ég kom því að, að ég veitti þessu ekki athygli er ég var spurður um þetta atriði í útvarpi á sunnudags- morgun. Þetta er þó skárri árangur en gömlu iögin hefðu skilað, en þau hefðu fært Framsóknarmönnum þremur þingsætum of mikið“, sagði Þorkell. „Hins vegar koma þama í ljós úthlutanir sem orka tvímælis ef maður fer að skoða þetta betur. I fljótu bragði stingur það ef til vill mest í augun að sjá að Sjálfstæðis- menn ná ekki tveimur mönnum á Norðurlandi eystra, en ná hins veg- ar tveimur mönnum á Austurlandi. Við nánari athugun sér maður þó að það er hægara sagt en gert að laga þessa úthlutun. I þessum efn- um er í raun engin góð lausn sjáanleg því að stjórnarskrárákvæð- in mæla svo fyrir að Austurland skuli fá sinn fimmta þingmann, hvað sem raular og tautar, þannig að ef Björn Dagbjartsson ætti frem- ur skilið þingsæti en Egill á Selja- völlum yrði að úthluta eihvetjum öðrum flokki þingsæti á Austur- landi. Hugsanlegt væri að láta Alþýðuflokkinn fá þetta sæti, en þá verður hann að skila þingsæti einhvers staðar annars staðar og hvar er sanngjarnt að gera það? Menn geta reynt að hnika til þing- sætum á þennan hátt en munu þá sannfærast um að það „slys“, sem varð á úthlutun á Austulandi skýtur einfaldlega upp kollinumn í öðru kjördæmi eða hjá öðrum flokki. Það má kannski segja að þessi nýju kosningalög séu helst til of flókin og ég held að það mætti ná álíka árangri með einfaldara kerfi. Hins vegar er það staðreynd að sanngjörn iausn finnst ekki á meðan að meginmarkmið laganna, að ná jöfnuði á milli flokkanna, og svo hitt, að viðhalda misvægi atkvæða eftir kjördæmum stangast á svo sem raun ber vitni. Á meðan svo er í pottinn búið hljóta alltaf að verða umdeilanlegar úthlutanir þing- sæta“, sagði Þorkell. Ný tækni hjá Land- helgisgæslunni; Morgunblaðið/Emilía Aðeins eitt mál var á dagskrá á síðasta ríkisstjórnarfundi ríkisstjórn- ar Steingríms Hermannssonar, sem hófst kl. 10 i gærmorgun - lausnarbeiðni stjórnarinnar. Morgunblaðið/Einar Falur Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins kom saman til fundar í Valhöll síðdeg- is í gær. Hér ræðast þeir Kjartan Gunnarsson, Sigurður M. Magnússon og Þorsteinn Pálsson við. Framsóknarmenn vilja að Steingrímur fái umboðið Andstaða við það í Alþýðuflokki og Sjálfstæðisflokki MYNDUN nýrrar ríkisstjórnar gæti tekið langan tíma, ef marka má þær könnunarviðræður sem nú eru hafnar. Eins og kom fram í Morgun- blaðinu í gær eru sjálfstæðismenn og alþýðuflokksmenn áfram um að reyna að fá Samtök um kvennalista til samstarfs, en enn liggur ekk- ert fyrir um afstöðu þeirra. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að skoðanir séu skiptar innan þeirra vébanda um það hvort rétt sé að stefna að þátttöku í ríkisstjórn eða ekki. Framsóknarmenn telja að eðlilegt sé að Steingrími Hermannssyni verði falið umboð til stjórnarmyndunar og samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins þá leggja þeir áherslu á að hann leiði stjórnarmyndunarviðræður. Þeir Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins og Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðu- flokksins hafa á hinn bóginn hafíð óformlega könnunarviðræður sín á milli, auk þess sem þeir hafa rætt við kvennalistakonur um stjómar- þátttöku. „Urslit þessara alþingiskosninga eru mjög ákveðinn stuðningur við áframhaldandi stjómarsamstarf þessara flokka, en það þarf að finna þriðja aðilann," sagði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær. „Ég túlka það svo, að okkur beri að vinna áfram saman,“ sagði Steingrímur. Samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins munu þeir Steingrímur, Halldór Ásgrímsson, Guðmundur Bjamason og Guðmundur G. Þórarinsson vilja leita eftir samstarfi við Alþýðuflokk- inn, en aðrir þingmenn Framsóknar- flokksins munu fremur vilja leita eftir samstarfi við Kvennalista eða Alþýðubandalag. Sömuleiðis er talið að ákveðinn hluti þingflokks Sjálfstæðisflokksins vilji leita eftir áframhaldandi sam- starfi við Framsóknarflokkinn, en sé ekki ginnkeyptur fyrir samstarfi við alþýðuflokksmenn. Þar em nefndir þingmenn eins og Matthías Bjarna- son, Halldór Blöndal, Egill Jónsson og fleiri. Enn aðrar raddir í þing- flokki Sjálfstæðisflokksins hafa uppi miklar efasemdir um ágæti sam- starfs við Kvennalista. Benda ákveðnir þingmenn á að tillögur kvennalistakvenna til úrbóta í hags- munamálum kvenna og barna séu gríðarlega kostnaðarsamar, en fjár- öflunartillögur til þess að fjármagna slík útgjöld ríkisssjóðs fylgi ekki út- gjaldatillögunum. Sömu raddir heyrast úr röðum framsóknarmanna og alþýðuflokksmanna. Þá hafa verið reifaðar hugmyndir Morgunblaðið/Emilía Fyrsti þingflokksfundur Borgaraflokksins var haldinn í Þórshamri í gærmorgun og á þeim fundi var Albert Guðmundsson kjörinn form- aður þingflokksins. í þá veru að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur leiti eftir sam- starfi við Borgaraflokkinn í ríkis- stjórn, en slíkar hugmyndir munu nánast engan hljómgrunn eiga í þing- flokki Sjálfstæðisflokksins. Alþýðubandalagsmenn munu ekki íhuga þátttöku í stjórnarmyndunar- viðræðum af neinni alvöru. Þeir líta svo á að þeir hafí fengið hroðalega útreið í þessum kosningum og því liggi beinast við að þeir verði í stjórn- arandstöðu. Þeir munu jafnframt vera þess fysandi að Kvennalisti ge- rist aðili að ríkisstjóm, og telja að með þeim hætti geti þeir endurunnið það fylgi sem þeir hafa tapað til Kvennalista. Þó heyrast einnig radd- ir innan Alþýðubandalagsins sem segja að nú sé rétti tíminn að semja frið við hinn A-flokkinn, og segja þær sömu raddir að slíkt samstarf A-flokkanna í ríkisstjórn gæti orðið grundvöllur fyrir stofnun öflugs jafn- aðarmannaflokks. Alþýðuflokksmenn eru þess mun meir fýsandi að reyna stjórnarsam- starf með Sjálfstæðisflokki og Alþýðubandalagi, ef ekki takast samningar við Kvennalista, en reyna samstarf við Framsókn. Þeir eru þó ekki mjög bjartsýnir á að svo geti orðið, þar sem Alþýðubandalagið sé í molum vegna innri átaka. Fjarstýrt vél- menni sett í sprengju- eyðingu LANDHELGISGÆSLAN hefur fengið fjarstýrt vélmenni til þess að eyða sprengjum og er það nú til sýnis á sýningunni Sumarið ’87 í Laugardalshöll. Að sögn Gylfa Geirssonai' sprengjusérfræðings Landhelgis- gæslunnar er vélmenni þetta búið vökvabyssu til að skjóta með á sprengjur. Einnig er á tækinu sjálf- virk haglabyssa aðallega til að skjóta upp læsingar á hurðum ef sprengjur eru í læstum húsum. Vélmenninu er ekið með íjarstýr- ingu að sprengjunni og hægt er að fylgjast með á sjónvarpsskermi á stjórnborðinu. Einnig er vélmennið búið gegnumlýsingarbúnaði og með því fylgdi sprengjuheldur búningur til að klæðast ef vélmennið kemst ekki að. Gylfi sagði það öryggisráðstöfun að eiga þetta tæki enda væri slíkur búnaður til í öllum nágrannalöndun- um. Hinsvegar kæmi það sem betur fer ákaflega sjaldan fyrir að gera þarf sprengjur óvirkar hér á landi. Tæki þetta kostaði um 30 þúsund pund eða um 1,9 milljónir króna. Morgunblaðið/Bjami

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.