Morgunblaðið - 29.04.1987, Side 21

Morgunblaðið - 29.04.1987, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987 21 Mynd Ragnars Axelssonar, ljósmyndara Morgnnblaðsins, en Ragnar var eini íslenski ljósmyndarinn sem tók þátt í keppninni. Myndin sýnir Vigdísi Finnbogadóttur og Ronald Reagan á göngu við Bessastaði. Þessi mynd hlaut fyrstu verðlaun í flokknum Fólk i fréttum og er tekin af Valentin Kuzmin. Myndin sýnir Andrei Sakharov eftir að honum var leyft að snúa aftur til Moskvu í desember sl. eftir útlegðina í Gorky. Verðlaimamyndir fréttaljós myndara í Listasafni ASÍ Fréttaljósmyndasýningin World Press Photo ’87 verð- r- ur opnuo í Listasafni ASI a morgun 30. april kl. 16.00. Þetta er í þrítugasta sinn sem alþjóðleg samkeppni og sýning fréttaljósmynda er haldin, en Listasafn ASÍ hef- ur fengið þessar sýningar þrisvar áður. í samkeppnina bárust að þessu sinni 6.765 myndir eftir 969 ljósmyndara frá 55 löndum. Verðlaun voru veitt í 9 efnisflokkum, en auk þess hlutu nokkrar myndir og mynda- flokkar sérstaka viðurkenningu. Úr samkeppninni voru síðan valdar myndir í tvær misstórar sýningar og voru þær frum- sýndar í Amsterdam 16. apríl sl. Minni sýningin er sú sem fólki gefst kostur á að sjá í Listasafni ASI. Á henni eru allar verðlaunamyndimar og þær sem fengu viðurkenningar. Á stærri sýningunni eru einnig aðrar myndir, sem sérstaklega voru valdar úr þeim aragrúa sem í keppnina barst. Aðeins einn íslenskur ljósmyndari tók þátt í keppninni að þessu sinni, Ragnar Axelsson (RAX) frá Morgunblaðinu. Mynd hans, af forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur og Ronald Reagan Bandaríkjaforseta á gönguferð um Bessa- staði, er meðal þeirra sem valdar vom á stærri sýninguna. Fréttaljósmynd ársins 1986 er eftir Alon Reininger, ísra- elskan ljósmyndara, sem búsettur er í New York. Myndin sýnir eyðnisjúkling fáeinum dögum fyrir andlát sitt. Reinin- ger hlaut einnig mannúðarverðlaun Búdapestborgar fyrir myndaflokk sem lýsir starfí manns, sem helgar sig umönnun eyðnisjúklinga. Oskar Barnack-verðlaunin eru kennd við höfund Leica- myndavélarinnar. Þau eru veitt árlega fyrir þá mynd eða myndaflokk sem best lýsir tengslum mannsins við umhverfi sitt. Þessi verðlaun hlaut Bandaríkjamaðurinn Jeff Share fyrir myndaflokk sem lýsir 3.500 mílna langri friðargöngu um Bandaríkin. Fréttaljósmynd ársins 1986 er tekin af Alon Reininger, ísraelskum Ijósmyndara. Myndin sýnir eyðnisjúkling fáeinum dögum fyrir andlátið. Þessi mynd hlaut önnur verðlaun i flokknum Daglegt líf og er tekin af Bradley Clift. Myndin sýnir Stevie Jacques, 9 ára gamlan bandarískan dreng, sem brennd- ist mjög illa sem ungbarn í eldsvoða á heimili hans. Móðir hans er með honum á myndinni. Sýningin í Listasafni ASÍ verður opin kl. 16.00-20.00 virka daga og kl. 14.00-22.00 um helgar. Sýningunni lýkur 17. maí nk. Iðgjald ábyrgðartrygginga bifreiða var á gjalddaga 1. mars. Við leggjum þó ekki dráttarvexti á ógreidd iðgjöld fyrr en á miðvikudaginn kemur TRYGGING HT=”

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.