Morgunblaðið - 29.04.1987, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Siglufjörður
Blaðberar óskast í Suðurgötu, Laugaveg,
Hafnartún, Hafnargötu.
Upplýsingar í síma 71489.
Sjúkraliðar
Sjúkrahús Vestmannaeyja vill ráða sjúkraliða
í föst störf frá 1. júní og til sumarafleysinga
í júlí og ágúst.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri á staðn-
um og í síma 98-1955.
Sjúkrahús Vestmannaeyja.
Auglýsingastarf
Vinsælt og útbreitt tímarit óskar eftir að ráða
mann eða konu sem tæki að sér að safna
auglýsingum í ritið. Ef vel tekst til er hér um
framtíðarstarf að ræða.
Svar óskast sent auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Ábyrgðarstarf — 2159“ fyrir 5. maí nk.
Járniðnaðarmenn
Óskum eftir járniðnaðarmanni til starfa.
Upplýsingar (ekki í síma) á púströraverk-
^ stæði Fjaðrarinnar, Grensásvegi 5.
Klavörubúðin Skjtfim2
82944
Kaupþing Norður-
lands hf. Akureyri
óskar eftir að ráða nú þegar
framkvæmdastjóra
Um er að ræða starf er krefst viðskipta-
fræði-/rekstrarhagfræði- eða annarrar
háskólamenntunar. Viðkomandi þarf einnig
að hafa víðtæka þekkingu og áhuga á fjár-
málamarkaðnum.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri
störf skulu berast skrifstofu okkar eigi síðar
en þriðjudaginn 5. maí nk. Með allarumsókn-
ir verður farið sem algert trúnaðarmál.
Kaupþing Norðurlands hf.,
Ráðhústorgi 5, pósthólf914,
602Akureyri, sími96-24700.
Tresmiðir
Byggingafélagið Frami hf. óskar eftir að ráða
trésmiði og verkamenn.
Upplýsingar í síma 42039.
Byggingafélagið Frami hf.
Afgreiðslustarf
Óskum að ráða nú þegar aðstoðarstúlku í
eldhús og sal. Vinnustími frá kl. 11.00-19.00
annan hvern dag, virka daga.
Upplýsingar hjá matreiðslumeistara á staðn-
um frá kl. 14.00-15.00.
Brauð hf.,
Skeifunni 11.
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahúsið á Blönduósi óskar að ráða í eftir-
taldar stöður: Hjúkrunarfræðinga í fastar
stöður og til sumarafleysinga.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í símum
95-4206 og 95-4528.
Au-pair
óskast strax
til starfa víðsvegar í Englandi.
Uppl. í síma 76233, Belinda.
Fiskvinna
— Grindavík
Vantar starfsfólk strax. Fæði og húsnæði á
staðnum.
Upplýsingar í síma 92-8102.
Hraðfrystihús Grindavíkur.
Útkeyrslumaður
Heildverslun óskar eftir manni til útkeyrslu-
starfa. Um framtíðarstarf er að ræða.
Umsóknir leggist inn á auglýsingadeild Mbl.
merkt: „Útkeyrsla — 908“ ekki síðar en um
hádegi nk. laugardag.
Sumarafleysingar
Starfsfólk vantar í eldhús á Hrafnistu í Hafnar-
firði.
Upplýsingar gefur matsveinn í síma 54290.
Matreiðslu- eða
matargerðarmaður
Kokkur eða fólk vant matreiðslu óskast nú
þegar í matvælaframleiðslu á Akureyri. Fjöl-
breytt og skapandi starf, góður vinnutími.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
6. maí nk. merkt: „M — 8230“.
Starfsfólk óskast
í kvikmyndahús
sem tekur til starfa um 20. maí nk.
Um eftirfarandi störf er að ræða:
Sýningarmenn, miðasala, sælgætissala,
ræsting.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „Kvikmyndahús — 5145" fyrir 4.
maí nk. Meðmæli æskileg.
'Slippfélagið íReykjavíkhf
MálningarverksmiÖjan Dugguvogi
Simi84255
Verksmiðjufólk
Okkur vantar verksmiðjufólk til framtíðar-
starfa í Málningarverksmiðju Slippfélagsins.
Nánari upplýsingar gefnar á staðnum.
SVÆÐISSUORN MALEFNA FATLAÐRA
NORÐl'RLANDI EVSTRA
Stórholti 1
600 AKUREYRI
Staða
forstöðumanns
Á Vistheimilinu Sólborg á Akureyri er laus
til umsóknar staða forstöðumanns.
Forstöðumaður ber ábyrgð á daglegum
rekstri heimilisins, mótar meðferðarstarf og
skipuleggur og stjórnar á annan hátt starf-
semi þess. Starfið býður einnig upp á
samvinnu við aðrar þjónustueiningar og fag-
fólk sem vinnur að málefnum fatlaðra í
umdæminu.
Starfið er áhugavert fyrir fólk með ferskar
hugmyndir og hæfileika til samstarfs við ólíka
starfshópa og vilja til að taka þátt í þróunar-
og skipulagsstarfi innan málaflokks fatlaðra.
Þeir einir koma til greina sem umsækjendur,
sem lokið hafa fullgildu námi sem þroska-
þjálfar, sálfræðingar, félagsráðgjafar eða
sérkennarar eða hafa annars konar menntun
á sviði uppeldis-, félags- eða heilbriðgismála.
Almenn þekking á málefnum fatlaðra og
reynsla af stjórnunarstörfum er nauðsynleg.
Umsóknarfrestur er til 10. maí nk. og skal
senda umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf í pósthólf 557, 602
Akureyri.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri
Svæðisstjórnar í síma 96-26960.
Svæðisstjórn málefna fatlaðra
á Norðurlandi eystra.
VELSMIÐJA
PÉTURS AUÐUNSSONAR
Óseyrarbraut3-220 Hatnarfirði - Simar 51288-50788
Járniðnaðarmenn
Óskum eftir að ráða vélvirkja og rennismiði
og menn vana járniðnaðarvinnu. Mikil vinna.
Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 51288.
Aðstoðarfólk
Vantar vanar konur í eldhús.
Upplýsingar á staðnum frá 8.00 til 14.00
báða dagana.
Jfl \ MATSTOFA MiÐFELLS SF.
j! i Funahöföa 7 — sími: 84939, 84631
Sjúkraliðar
Sjúkraliða vantar á dvalar- og sjúkradeild
Hornbrekku, Ólafsfirði.
Umsóknarfrestur er til 22. maí 1987. Upplýs-
ingar gefur forstöðumaður í síma 96-62480.
HA6KAUP
Skeifunni 15.— Starfsmannahald.
íbúð óskast á leigu
Óskum eftir að taka á leigu 3ja herb. íbúð á
Stór-Reykjavíkursvæðinu fyrir einn af starfs-
mönnum okkar.
Nánari upplýsingar gefur Guðmundur Frið-
riksson verslunarstjóri í síma 686566 og í
síma 37436 eftir kl. 19.00.
■■■■■■■MMH
- ■■ - | . .