Morgunblaðið - 29.04.1987, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987
55
MorgunblaðiÖ/Júlíus
• Rúnar Kristinsson til hœgri í leik t Reykjavíkurmótinu á dögunum.
Hann lók sinn 19. landsleik í gær og bar af á vellinum.
Evrópukeppni unglingalandsliða:
Danir þökkuðu fyrir
óverðskuldað stig
Rúnar Kristinsson bestur á vellinum
„LEIKURINN var harður og gróf-
ur, en mjög skemmtilegur. Okkar
strákar léku frábærlega, voru
mun betri og áttu skilið að sigra.
Við getum samt vel sætt okkur
við 1:1 jafntefli gegn Dönum á
útivelli, sem sýnir, svo ekki verð-
ur um villst, að við erum á réttri
leið,“ sagði Lárus Loftsson, þjálf-
ari islenska landsliðsins í knatt-
spyrnu skipað piltum 18 ára og
yngri, eftir fyrsta leik liðsins í
Evrópukeppninni í gær.
Að sögn Lárusar áttu Danir í vök
að verjast allan tímann. íslenska
liðið sótti stíft og misnotaði þrjú
dauðafæri í fyrri hálfleik, en á 43.
mínútu tókst gestgjöfunum óvænt
að skora. Þeir náðu boltanum á
miðlínu, brunuðu upp og skot frá
vítateigshorni í hornið fjær var
óverjandi fyrir Karl Jónsson í mark-
inu.
Sókn íslands hélt áfram í seinni
hálfleik og á 53. minútu jafnaði
Rúnar Kristinsson, besti maður
leiksins, með hnitmiðuðu skoti.
Skömmu síðar var Valdimar Kristó-
ferssyni brugðið innan vítateigs
Dana, en slakur finnskur dómari
sá ekkert athugavert. Danir töfðu
undir lokin og tókst að halda jöfnu.
Um tvö þúsund áhorfendur voru
á leiknum og var mikil stemmning.
Fjölmargir hinna dönsku áhorf-
enda voru klæddir í rautt og hvítt
og málaðir í framan eins og í Mexi-
kó í fyrra. Þeir komu til að sjá
auðveldan sigur sinna manna, en
varð ekki að ósk sinni.
„Danirnir voru gersamlega búnir
í lokin og gengu niðurdregnir af
velli, en þeir þökkuðu okkur fyrir
annað stigið, sem þeir viður-
kenndu að hefði verið óverðskuld-
að,“ sagði Lárus. „Danir eru hátt-
skrifaðir í knattspyrnuheiminum,
en undirbúningur okkar skilaði sér
svo sannarlega og ef svo heldur
sem horfir þurfum við ekki að kvíða
framtíðinni. Við megum samt ekki
ofmetnast, en það er gaman að
byrja vel," bætti hann við.
Rúnar Kristinsson, sem lék sinn
19. landsleik, bar af hvað tækni
og leik snerti og var bestur á vellirí-^
um, en fékk að sjá gula spjaldið
ásamt einum Dana. Haraldur Ing-
ólfsson var einnig mjög góður, en
annars léku íslensku strákarnir
mjög vel. Næsti leikur verður gegn
Belgum á Laugardalsvelli 26. maí,
en þeir gerðu einnig 1:1 jafntefli
við Dani.
Lið íslands: Karl Jónsson, Þrótti, Eg-
ill Örn Einarsson, Þrótti, Bjami Bene-
diktsson, Stjörnunni, Þormóður
Egilsson, KR, Valdimar Kristófersson,
Stjörnunni, Rúnar Kristinsson, KR, Stein-
ar Adólfsson, Val, Gunnlaugur Einars-
son, Val, Haraldur Ingólfsson, ÍA, Ólafur
Viggósson, Þrótti Neskaupsstað og Áml
Þór Árnason, Þór Akureyri.
Islenska liðið undirbýr
sig af mikilli alvöru
Frá Skúla Unnari Sveinssyni blaöamanni M<
ÍSLENSKA landsliðið í knatt-
spyrnu undirbýr sig af mikilli
alvöru fyrir Evrópuleikinn gegn
Frökkum í kvöld. Æfingar, hvíld,
kvikmyndir og fleira kemur þar
inn f og er greinilegt að Sigfrid
Held er ákveðinn stjórnandi, þó
svo hann hafi ekki hátt né sé fyrir-
ferðamikill.
Eitt af því sem einkennir allan
undirbúning landsliðsins, og sýnir
hve ákveðinn Held er, er hversu
erfitt er að ná tali af leikmönnum.
Blaðamenn fá að fylgjast með æf-
ingum hjá þeim, elta þá síðan á
hótelið sem þeir búa á og freista
þess þar að ná sambandi við þá.
Eina leiðin til þess er að hringja á
herbergi þeirra og mæla sér mót
unblaösins f Parfs
í anddyri hótelsins við einn og einn
í einu. Ekki mega þeir þó vera of
lengi í anddyrinu, því blaðamenn
mega aðeins trufla þá í samtals
tuttugu mínútur, þ.e. ef tala á við
fjóra leikmenn þýðir það fimm
mínútur fyrir hvern.
Enginn hætta?
Á hótelinu sem liðið dvelur á
eru geysilegar öryggisráðstafanir
vegna tíðra sprenginga í París i
vetur. Leitað er í töskum og pinkl-
um hjá hverjum þeim sem inn
kemur, nema íslenska landsliðinu.
Þegar þeir koma inn af æfingum
með stórar íþróttatöskur ganga
þeir framhjá vörðunum sem kinka
góðlátlega kolli til þeirra, svona
rétt eins og þeir vilji undirstrika
að enginn hætta stafi af íslending-
um. Vonandi afsanna strákarnir
það á Parc des Princes leikvang-
inum í kvöld.
Sáu Platoon
Eftir síðari æfinguna í gær
brugðu strákarnir sér í kvikmynda-
hús, sem er á hótelinu þar sem
þeir búa. Það var ekki mynd af
verri endanum sem þeir sáu,
Óskarsverðlaunamyndina Platoon.
það virðist vera orðinn fastur liður
hjá Held að fara með strákana í
bíó til að láta þá gleyma um stund
þeim leik sem framundan er, þvi
síðan hann tók við landsliðinu hafa
strákarnir séð margar myndir.
S-in þrjú
hjá Frökkum
Knattspyrna:
Víkingurvann
VÍKINGUR vann Þrótt 2:0 í
Reykjavíkurmótinu f meistara-
flokki karla í gærkvöldi.
Bæði mörkin voru skoruð í
seinni hálfleik. Trausti Ómars-
son skoraði fyrra markið og
Atli Einarsson það seinna undir
lok leiksins.
HENRY Michel, þjálfari franska
landsliðsins hefur sett sér og liði
sínu þrjú markmið fyrir leikinn í
kvöld. Þeir ætla að sigra, skora
mikið af mörkum og skemmta
sér, eða með öðrum orðum hafa
gaman af leiknum. Þeir stefna
semsagt á 3xS Frakkarnirl
Markmið þessi eru í sjálfu sér
góðra gjalda verð, en við verðum
að vona að þau standist ekki öll.
Frakkar eru hins vegar staðráðnir
í að gera sitt besta til þess að svo
megi verða, enda finnst mörgum
tími til kominn að þeir fari að
standa sig. Þeir hafa ekki skorað
mark í fjórum síðustu landsleikjum
og stefna að því að bæta þar um
í kvöld.
MorgunblaðiÖ/Símamynd/B. Valsson
• I gærmorgun æfði íslenska landsliðið á íþróttavelli í Gevallois-
Perret, sem or smábær rétt utan við París. Af þvf tilefni afhentu
forsvarsmenn knattspyrnufélags bæjarins, þeir Dubus og Mantler,
Atla Eðvaldssyni, fyrirliða íslenska liðsins, fána félagsins. Atli þakk-
aði fyrir sig með þvf að gefa þeim fána íslenska landsiiðsins.
Áttatíu íslendingar
mæta á völlinn
ÍSLENDINGAR verða í miklum
minnihluta á meðal þeirra 35.000
áhorfenda sem búist er við að
komi á leik íslands og Frakka f
kvöld.
Um það bil 80 íslendingar komu
til Parísar í hópferð frá íslandi í
fyrrakvöld til þess að sjá lelkinn
og verða þeir að hafa hátt ef þeir
ætla að hafa við Frökkunum sem
verða í meirihluta.
Ekki er loku fyrir það skotið að
einhverjir (slendingar, sem hér eru
við nám mæti til leiks og hvetji
landann. Ekki er þó víst að náms-
menn fjölmenni á leikinn, því
miðaverð samsvarar 900 islensk-
um krónum og er það fullmikið,
þegar námsmenn á erlendri grund,
sem lifa á námslánum, eiga í hlut.
Bein
útsending
LANDSLEIKURINN í París verður
í beinni útsendingu í íslenska
sjónvarpinu. Útsendingin hjá
Bjarna Felixsyni hefst klukkan
17.55, en flautað verður til leiks
klukkan 18. Þess má geta að ieik-
urinn verður ekki sýndur beint f
Frakklandi.