Morgunblaðið - 29.04.1987, Síða 56

Morgunblaðið - 29.04.1987, Síða 56
Búðardalur: Tugir manna fengu matareitrun í fermingarveislum NOKKRIR tugir manna í Dölum og víðar hafa veikst af mata- reitrun, sumir svo alvarlega að þeir hafa verið lagðir inn á sjúkrahús. Talið er að fólkið hafi veikst af mat í þremur ferm- ingarveislum sem haldnar voru í Búðardal um páskana. Verið er að rannsaka sýkilinn sem veldur matareitruninni, en hann er líklega af salmonellutegund, og rekja hvaðan hann er kom- mn. Sigurbjöm Sveinsson, heilsu- gæslulæknir í Búðardal, sagði í gær að 30 Dalamenn hefðu veikst matareitruninni og §öldi ann- '*arra gesta í fermingarveislunum. Hann sagði að sumir hefðu orðið alvarlega veikir og þrennt svo illa haldið að orðið hefði að leggja þau inn á sjúkrahús. Sagði hann að gerðar hefðu verið ráðstafanir til að allir sem á þyrftu að halda fengju læknishjálp og leiðbeining- ar. Sigurbjöm sagði að unnið væri að ræktun og greiningu sýkilsins og væm niðurstöður væntanlegar í dag. Sagði hann að ýmislegt •*£gnti til að hér væri um salmon- ellusýkingu að ræða. Heilbrigðisfulltrúinn á Vestur- landi hefur gert vettvangskönnun og tekið sýni af matarhráefnum hjá veitingasölu í Búðardal sem útbjó kalda borðið i fermingar- veislumar. Ekki er talið að salmonellan sé þaðan komin, þún hafí borist með hráefni, en veit- ingasölunni var eigi að síður lokað til bráðabirgða að ráði heilsu- gæslulæknanna í Búðardal. Sýni vom send til rannsóknar hjá Holl- ustuvemd ríkisins. Halldór Run- ólfsson, deildarstjóri hjá hollustu- vemdinni, sagði að niðurstöður myndu líklega liggja fyrir á morg- un. Hann sagði að margt benti til að um salmonellusýkingu væri að ræða. Kjúklingar og majones væm algengir sýkingarvaldar erlendis og beindist rannsóknin því í fyrstu einkum að þessum tegundum, en jafnframt væm önnur matvæli í rannsókn, svo sem svínakjöt, nautakjöt og hangikjöt. Morgunblaðið/Ragnar Axelsson Steingrímur Hermannsson baðst lausnar fyrir ráðuneyti sitt í gær, en forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, óskaði eftir því að stjóm- in sæti þar til ný stjórn hefur verið mynduð. Víkurskip: Með aukin umsvif i Karíbahafi Skipafélagið Víkur hefur fest kaup á 1.700 tonna gámaflutn- ingaskipi til siglinga milli eyja í Karíbahafi. Kaupverðið var 185 þúsund dalir, eða 7 millj. króna. Það var keypt á uppboði í New York og að sögn Finnboga Kjeld, eiganda Víkurskipa, er ár liðið síðan honum var boðið skipið á 700 þúsund dali eða 27 millj. kr. „Það kemur fyrir að maður gerir góð kaup,“ sagði Finnbogi. Flóabát- urinn Drangur, sem Víkurskip eiga og er í siglingum í Karíbahafi, annar ekki þeim flutningum sem bjóðast milli eyjanna. „Við rekum fyrirtæki í Flórída sem heitir „Víkurshipping USA“ og annað á eyjunum sem heit- ir „Sea Cop“. Einn íslendingur starfar við fyrirtækið í landi en sam- tals em fimm íslendingar þama á okkar vegum," sagði Finnbogi. „Á nýja skipinu, sem heitir Grindavík, er einn íslendingur en ég efast um að hann verði til frambúð- ar. Skipið siglir undir fána Panama þannig að við verðum með ódýra skipshöfn á því,“ sagði Finnbogi. Stjórnarmyndunarviðræður fara hægt af stað: Beðið eftir skilyrð- um Kvennalistans Könnunarviðræður vegna hugsanlegrar stjórnarmyndunar virðast fara heldur hægt af stað, þótt þreifingar eigi sér víða stað og menn séu að kanna jarðveginn. Enn liggur ekkert fyrir um afstöðu Kvenna- lista til hugsanlegs stjórnarsamstarfs við Sjálfstæðisflokk og Alþýðuflokk, en kvennalistakonur munu samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins ætla að hafa skilyrðalista sinn fyrir þátttöku í ríkisstjórn tilbúinn einhvern næstu daga. Morgunblaðið/Einar Falur ^Brúnaþungur íbæjarferð Meðal stjómmálamanna er talið, að erfítt geti orðið að ná samning- um við Kvennalistann um stjómar- myndun. Steingrímur Hermannsson formaður Framsóknarflokksins mun leggja mikla Jáherzlu á myndur þriggja flokka ríkisstjómar með Sjálfstæðisflokknum en sömuleiðis ríkir ekki bjartsýni á að það takist. Framsóknarmenn munu telja það liggja beint við að Steingrími verði falið umboð til stjórnarmyndunar en sú skoðun á ekki mikinn hljóm- gmnn meðal alþýðuflokks- og sjálfstæðismanna. Forystumenn Alþýðuflokksins hafa af því nokkrar áhyggjur að staða Þorsteins Pálssonar í Sjálf- stæðisflokknum sé ekki nægjanlega sterk, í kjölfar kosningaúrslitanna. Þannig geti farið svo að eldri þing- menn Sjálfstæðisflokksins leggi meiri áherslu á áframhaldandi sam- starf við Framsóknarflokkinn en yngri mennimir og alþýðuflokks- menn. Ljóst er að það er áhugi meðal framsóknarmanna fyrir áframhald- andi stjómarsamstarfi við Sjálf- stæðisflokk og vilja þeir leita eftir samstarfi við þriðja flokkinn, að lík- indum Alþýðuflokk. Þeir útiloka þó ekki samstarf við aðra flokka og hafa rætt lítillega við talsmenn Borgaraflokksins. Eins munu þeir hafa í hyggju að ræða við kvenna- listakonur. Heyrast þær raddir einnig úr röðum þingmanna Sjálfstæðis- flokksins utan af landi, að út frá stefnumálum í byggðamálum verði staða ríkisstjómar með aðild Sjálf- stæðisflokks, Alþýðuflokks og Kvennalista ekki nægilega sterk. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra gekk á fund frú Vigdísar Finnbogadóttur forseta íslands kl. 15 í gær og baðst lausn- ar fyrir ráðuneyti sitt. Forsetinn bað ríkisstjóm Steingríms að sitja áfram þar til ný ríkisstjórn hefur verið mynduð. Búist er við því að V esturlandskj ördæmi: 48 atkvæði komu ekki fram Yfirkjörsljórn óskar eftir opinberri rannsókn YFIRKJÖRSTJÓRN í Vestur- landskjördæmi hefur óskað eftir opinberri rannsókn vegna þess að 48 atkvæði hafa ekki komið ffálii I kjördæminu. Þegat atkvæði höfðu veríð talin ( kjördæininu koíri í ijós, að sam- 'infættit bókum undirkjörstjórna höfðu 48 fleiri greitt atkvæði en talning gaf til kynna. Að sögn Sig- urðar Guðbrandssonar, sem sæti á í yfirkjörstjóminni, hefur verið unn- íð að því sleitulaust siðatt á laugar- dagskvöld að fittiia út hvers vegtia þessa ttiisræmis gætirí „Vintia okk- ar hefur etigatt áratigur boríð, svo við höfum nú óskað eftír opinberri rannsókn," sagði Sigurður. „Við kunnum enga skýringu á þessu ennþá." Sigurður kvaðst engum getutn vilja leiða að því hvaða áhrif þessi 48 atkvæði gætu haft á rtiÖurstöður kosnittganna. Rútiari Guðjónssýtíi, sýslumanni Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, barst ósk yfirkjömefndar um opinbera rannsókn um kl. 20.30 í gærkveldi. Hann sagði í samtali við Morgun- blaðið að hann hefði þegar óskað eftir því við Rannsóknarlögreglu ríkisins að málið yrði rannsakað á hennar vegum. Bogi Nilsson, rann- sóknarlögregÍUstjórí, sagði að ertti hefði hann ekki séð neih gögn um málið, en hafíst yrði handa við rann- sóktt málsins í dag. forsetinn ræði óformlega við for- menn stjómmálaflokkanna áður en hún ákveður hvetjum hún felur umboðið til stjómarmyndunar. Sjá nánar á bls. 2 og 20. Nauðlendingin í Smjörfjöllum: Flugmaður- inn missir flugleyfið FLUGMAÐURINN sem nauð- lenti vegna bensínleysis yfir Smjörfjöllum í síðust viku, missir flugskírteinið um tíma. Hann verður látinn gangast undir bók- legt- og verklegt hæfnispróf að lokinni endurþjálfun að sögn Skúla Jóns Sigurðssonar hjá loft- ferðaeftirlitinu. „Það er algengt að_ mönnum verða á ýmis asnastrik. í þessu til- viki var augljóst hvað hafði gerst og þess vegna gáfum við strax upp orsökina. Það er engin leið að út- skýra þetta," sagði Skúli. Bensín- mælir er í flugvélinni og það fyrsta sem mönnum er kennt er að kanna jafnframt hvort bensín er á tönkun- ttttt ttteð þvf að Ííta á þá því ekki má treysta á mæla. í þessu tilviki Var fiugvélitt kaskótryggð ög ttiutl tryggittgaféiagið bera skaðatih.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.