Morgunblaðið - 14.06.1987, Blaðsíða 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1987
Grindavík
A línu allt árið
og afla vel
Rætt við Halldór á Freyju úr Garði
í Grindavík voru strákarnir á
Freyju úr Garði að gera klárt
fyrir siglingu. Það var búið að
loka öllu og það var rétt gefinn
timi tíl að skreppa heim og
kveðja vini og vandamenn. Hall-
dór Sveinbjöm Þórðarson skip-
stjóri var í brúnni, hörku
skipstjóri og aflakló. Hann missti
vinstri handlegginn í slysi um
borð I Viðey sem hann var á
1964, lenti með handlegginn á
milli skips og ljósastaurs á
bryggjunni. Tveimur mánuðum
síðar tók hann við skipstjóm á
litlu Freyju eins og hann orðar
það, en nú er hann skipstjóri á
stóm Freyju.
Þetta gekk þokkalega vel í vet-
ur, sagði hann, við enduðum í 730
tonnum fyrir utan það sem er í
bátnum núna, en það eru um 60
tonn, mest þorskur.
í vetur vorum við sitt á hvað,
ýmist norður á Breiðafirði eða sunn-
an við Reykjanes, en líklega vorum
við nú meirihlutann af vertíðinni
norðanmegin. Mest af aflanum var
þorskur.
Staða sjávarútvegsins leggst
ekkert verr í mig, en hún hefur
verið. Ég er ánægður með hana að
mestu leyti, í höfuðdráttum er sjáv-
arútvegsstefnan ágæt að mínu
mati.Maður er svo sem ekkert vel
hnútum kunnugur hjá öllum aðilum
og ég þekki ekki nógu vel til hjá
togurunum, en ef það er verið að
moka fyrir borð allt að tugum tonna
í túr af smáfiski og öðru þá er það
auðvitað mjög alvarlegur hlutur og
þarf að takast föstum tökum eins
og reyndar ýmsir endar í fiskveiði-
málunum. Við erum á aflamarki og
eigum eftir talsvert af kvótanum,
m.a. vegna þess að línan í janúar
og febrúar er utan kvóta og að
auki keila og fleira sem við fáum
slatta af á línunni, en við erum á
línu allt árið og erum líklega eini
Morgunblaðið/Ámi Johnsen
Halldór Þórðarson skipstjóri á
Freyju úr Garði.
báturinn á landinu af þessari stærð-
argráðu sem erum á línu allt árið.
Nei, það er klárt að ef það er
eitthvað sem maður hefur áhyggjur
af þá er það smáfiskadrápið, það er
í raun og veru eina áhyggjuefnið.
Fyrir mína parta vildi ég að farið
yrði að athuga betur hinar ýmsu
sérveiðar, humarinn og fleira, en
þó sérstaklega humarinn. Það vant-
ar meiri rannsóknir á því hvað er
í rauninni óhætt að vinna úr sér-
stofnunum. Það hefur til dæmis
aldrei verið önnur eins veiði á humri
og um þessar mundir og nær allur
flotinn sem er á humri má segja
að moki honum upp.
Jú, hljóðið í mannskapnum er
ágætt, ég er með unga og bjartsýna
menn og ég er mjög ánægður með
hvemig hljóðið er í þeim, það er
frekar hvatning heldur en hitt. Nú,
við verðum að öllum líkindum úti í
Þýskalandi á sjómannadaginn og
höldum þá upp á daginn þar. Síðan
er það framundan að skvera, sinna
venjulega viðhaldinu fram í ágúst
og síðan er það línan aftur. Þessi
bátur hefur verið nær stanslaust á
línu síðastliðin 7 ár. Síldin hefur
komið inn á milli. En það er klárt
mál að línan skilar góðum fiski, það
er ekki nokkur spuming. Við erum
6 á sjónum og það em 6 sem beita
upp á akkorð. Ég er mikið með
sömu mennina ár eftir ár. Freyjan
er 120 tonn og þróunin er sú að
byggja yfir þessa báta, það er auð-
vitað allt annað að vinna undir
þiljum í þessu, en við ísum alltaf í
hillur og leggjum upp hjá Karli
Njálssyni í Garði.
Nei, ég á engin uppáhaldsmið,
maður er suður í Skeijadýpi í dag
og norður á Fláka á morgun, út
og suður.Ég fer með 90 bala í
tveggja daga róður, tvær umsetn-
ingar, en það má segja að við
stöndum vaktir á línunni, 4 tíma á
dekki og 4 tíma í koju, þetta er
ekkert svipað og áður, miklu að-
gengilegra. Sem betur fer er margt
í rétta átt í sambandi við sjósóknina
hjá okkur, en það er vissulega
margt ógert og margt sem er brýnt
að gera í þá átt að fullnýta alla
möguleika sem fiskveiðamar bjóða
upp á.
- áj.
Á bryggjusporðinum í Grindavik má oft sjá bæði eldri og yngri renna færi.
1
V estmannaeyj ar
„Menn eru sáttir og sælir
í góðum félagsskap“
— segja þrír Eyfellingar í Eyjaflotanum,
Svavar, Helgi og Sigurjón
Frá vinstri: Svavar Þór Lárusson, Kristján Helgi Guðmundsson og
Sigurjón Eyþór Einarsson. Morgunblaaið/Ámi Johnsen
Þrír Eyfellingar stigu út úr
einni flugvél Vals Andersen á
Vestmannaeyjaflugvelli. Þeir
voru að koma frá Skógarsandi,
en Valur hefur um árabil haldið
uppi flugi milli lands og Eyja á
litlum vélum og nýlega keypti
hann til landsins tveggja hreyfla
vél fyrir sjö farþega. Eyfelling-
amir þrír höfðu skroppið frá
Eyjum á heimaslóð á fasta-
landinu, en þeir eru allir skip-
verjar á Bylgjunni frá
Vestmannaeyjum, með Matta
Óskars. Við tókum Eyfellingana
tali, Svavar Þór Lárusson, Guð-
mund Helga Kristjánsson og
Siguijón Eyþór Einarsson. Svav-
ar byijaði á Bylgjunni í fyrra,
Helgi í vetur og Siguijón var
vikugamall um borð þegar við
hittum þá félaga, en í gegnum
tíðina eru þeir æði margir Eyfell-
ingamir sem hafa sótt sjóinn frá
Vestmannaeyjum, hörkumenn og
traustir.
„Ég skrapp hingað út í Eyjar til
þess að skemmta mér eina helgi
með félögum mínum," sagði Sigur-
jón, „ætlaði að vera eina nótt, en
lenti á Bylgjunni."
„Mér líkar vel til sjós,“ sagði
Svavar, „líkar vel við sjóinn og það
er gott að vera á góðum bát sem
gefur góðar tekjur, en allur okkar
fiskur fer í gáma. Við þremenning-
amir erum allir úr sveitinni, hrein-
ræktaðir sveitamenn, en okkur líkar
vel í Eyjum. Það getur verið erfitt
á sjónum á vetrartímanum eins og
til dæmis í marz í vetur. Þá var
kolvitlaust veður, en þetta venst svo
sem.“
„Ég var eina vertíð á Kristbjörg-
unni hjá Guðfinni," sagði Helgi og
síðan er þetta önnur lotan á Bylgj-
unni, en ég hætti í kringum
sjómannadaginn og fer í búskapinn
heima. Mér hefur líkað ágætlega
héma, en sveitin kallar í mann á
sumrin, heyskapurinn og allt stúss-
ið í kringum þessar 120 rollur sem
við eram með og kýmar auk
hrossa."
„Ég hafði nú hugsað mér að fara
einhvemtíma til sjós, en þetta var
tilfallandi eins og ég sagði áðan,
það vantaði mann og ég sló til. Ég
var sjóveikur í rúman sólarhring
og var nú helst á því að skella mér
fyrir borð á meðan það stóð yfír,
maður vissi ekkert hvað var upp
og hvað niður á bátnum, en mér
hefur gengið tiltölulega vel að ná
sambandi við sjóinn á þessum stutta
tíma. Ég skaust bara heim af því
að strákamir tóku sig til, þetta er
fljótfarið héma yfir Eyjasund og
ekki nema 7 mínútna flug að Bakka
í Landeyjum.
„Það liggur sem sagt vel á okk-
ur, “ sagði Svavar, „það er gott
hljóð í strákunum um borð, góður
andi og menn sáttir og sælir í góð-
um félagsskap og með góðar tekjur.
Ég reikna með að fara í Stýri-
mannaskólann hér í Eyjum í vetur,
vantar aðeins tíma til að það gangi
upp.“
Einar J. Gíslason afhendir Sigurði Georgssyni aflakóngi Vestmannaeyja verðlaun á sjómannadaginn sl.
ár, en það ár varð Sigurður aflakóngur Vestmannaeyja þriðja árið í röð. Nú í ár er hann næsthæstur
yfir landið en þess má geta að Einar J. Gislason hefur flutt hugvekju í þijá áratugi á sjómannadeginum
í Vestmannaeyjum.