Morgunblaðið - 14.06.1987, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 14.06.1987, Blaðsíða 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1987 „Ég er hræddur við smáfiska- drápið“ afla eða í lélegustu og ódýrustu pakkningar. Þannig þurfa allir aðil- ar í þessu dæmi að hafa aðhald til þess að ýtrasta hagkvæmni og nýt- ing verði viðhöfð og þann farveg þarf að fínna þeirri þróun sem á sér stað. Við þurfum markvisst að skipuleggja alla þessa hluti betur. Það hefur til dæmis sýnt sig að þessi stóru frystihús hér í Eyjum hafa haft betri afkomu upp á síðkastið en áður þrátt fýrir minni afla til vinnslu. Það er ekki alltaf magnið sem segir til um afkomuna. Það væri einnig fróðlegt að vita hvað stórt hlutfall af gámafískinum er í eigu frystihúsa og saltfiskverk- enda, ég er sannfærður um að það er yfír 50% af gámafískinum sem þeir eiga og svo eru þessir aðilar að úthrópa einstaklinga sem setja sinn afla í gáma, í sumum tilvikum físk sem þeir geta ekki selt íslensk- um fískverkendum." — „En hvar á að setja mörkin í gámaútflutningnum?" „Það er vissulega erfitt að segja til um hvar mörkin eigi að vera. Þeir sem eru með lítinn kvóta eru að reyna að gera sér meiri mat úr kvótanum og það er skiljanlegt, því allt er þetta meira og minna happa- drætti, en vonandi minnkar þetta vandamál þegar fískverðið er orðið frjálst, því þá er ég sannfærður um að það minnkar gámafískurinn úr landi. En í sambandi við gámafísk- inn úr landi og stöðuna eins og hún er væri líklega skynsamlegast að setja mörk á afla hvers báts. Þetta er svo erfitt við að eiga. Mannskap- urinn vill hugsanlega senda aflann út og það kann að stangast á við hagsmuni þeirra sem verka í landi eða útgerðarinnar og ekki síst hags- muni landverkafólksins sem einnig er inni í þessari mynd og það verð- ur ekki hjá því komist að hugsa um það líka, það á sinn rétt og ef markaðurinn dettur niður erlendis getum við ekki ætlast til þess að vel þjálfað fólk bíði tilbúið í landi til þess að vinna aflann í dýrustu pakkningar og þá getur líka vel verið að við séum búnir að tapa dýrmætustu mörkuðunum, þannig að það er að mörgu að hyggja í þessu sambandi. Það er tómt rugl að senda endalaust afla út og láta Skipshöfn Sigurjóns í vetur en þeir öfluðu tæplega 1.500 tonna. verðið hrynja niður. Þetta getur borgað sig, en það verður að hafa hönd á þessu eins^og öðru sem á að skila árangri. í vetur sendum við út afla í gámum og fengum fyrir hann 16 milljónir króna, með- alverð á kíló til skipta var 30 kr. og 80 aurar. Skiptaverðið hér heima miðað við verð á þessum físki hér heima hefði verið 22,50 kr.“ Ég spurði Siguijón um veiðidag- bókina hans sem hann er kunnur fyrir að færa af mikilli nákvæmni, en þar er sett á blað dýrmæt reynsla fískimannsins, en tilfínningin sem aflaklóin hefur verður aldrei sett í kort, hún er gáfa sem vex með hveijum og einum eftir því sem landið liggur. „Jú, ég geri veiðidagbók, sem er hemaðarleyndarmál, sem er þó ekki meira afgirt en svo að þeir sem hafa beðið um hafa fengið aðgang að henni. Aður lágu menn á þessum upplýsingum eins og um gull væri að ræða og ef einhver bað um upp- lýsingar þá var það eins og menn væru að biðja um bankabók viðkom- andi til eigin afnota. Þú spurðir um aflasamsetning- una í vetur. Þetta voru um 600 tonn af þorski, en hitt var mest ufsi og eitthvað um 140 tonn af kolanum, en ég á eftir eitthvað um 280 tonn af þorski. Við erum byij- aðir á snurvoðinni aftur og þar er eiginlega allt koli. Ur 50 tonnum fáum við eitthvað 3-4 tonn af öðrum físki. Langlúran er nær einlit í þessu og hún er nýtt hráefni til vinnslu, skapar mikla vinnu, en það vantar meiri tilþrif í sölumennskuna, því það er hent hráefni fyrir tugmilljón- ir króna, sandkola og öðrum kola- tegundum sem er örugglega hægt að selja. Upphafíð að langlúruveiðunum var það að blaðamaður sem fór í róður með Kristjáni bróður mínum á Emmunni, humarróður, fór að velta því fyrir sér, hvort það væri ekki hægt að selja langlúruna sem kom upp í humartrollið. Ég held að þessi vinni nú hjá Marbakka í sölumennsku á fiski, en það er ábyggilega búið að veiða um 3.000 tonn af langlúru síðan í fyrra, Gulli á Gandí hefur veitt 700-800 tonn, Dalaröstin annað eins og við og fleiri með minna. Söluverðið er 80—90 kr. út, en við fáum 25 kr. greitt fyrir kílóið hér heima, hátt í þorskverð. Það er engin spuming að við eig- um mikla möguleika í sjávarútveg- inum með meiri nýtingu og skipulagningu og ekki síst með mun harðskeyttari sölumennsku ogjafn- framt verðum við að taka fyrir smáfiskadrápið og dreifa sókninni á nýjar tegundir sem sannað er að geta skilað okkur miklu. Grunnur- inn í þessu öllu saman er þorskurinn og við þurfum að gæta þess eins og sjáaldurs augna okkar að ganga ekki of nærri þorskstofninum. Mér fínnst satt að segja ganga of hægt að taka á þessu. Ég vil að það sé samráð við okkur, leitað upplýsinga og álits um lokanir og friðun svæða, að Hafrannsókn láti sína menn fylgjast með okkur á viðkvæma tímanum, því fískurinn hrygnir á svo misjöfnum tíma en þessar skrif- borðslokanir passa ekki við stað- reyndimar f náttúrunni sjálfri og til dæmis er þessi endalausa lokun á Selvogsbankanum algjörlega út í hött að mínu mati. Það hefur verið lokað þama í 15 ár til þess að friða þorskinn, en ef það er enginn þorsk- ur þama þá er þetta engin friðun. Við erum kannski að djöflast í físki þama rétt fyrir hrygninguna og þar með að eyðileggja fyrir framtíðina í stað þess að hinkra aðeins á með- an hrygningin gengur yfír. Ég held að menn geri sér ekki grein fyrir því hvað fískurinn er að minnka. Hér við Eyjar var fískurinn ri I -/ I Auövitað er engum sama hvar hann eyöir langþráðu sumarfríi sínu. Paö er öruggt að fríið verður eins og best verður á kosið ef þú velur hina frábæru aðstöðu okkar á Alcudia ströndinni á Mallorca. Ströndin er sú stærsta og besta á Mallorca, glæsileg íbúðahótel, stórgóð aðstaða, þaulvanir fararstjórar og sérstakur barnafararstjóri tryggja að öll fjölskyldan nýtur sumarleyfisins eins og best verður á kosið. Sökum mikillar eftirspurnar höfum við fjölgað ferðum tilMallorca og eigum því laus sæti 20. júní og 6. júlí. Aðrar ferðir eru nánast uppseldar. Ef þér er ekki sama velur þú Alcudia með Polaris. FERÐASKRIFSTOFAN POLAfílS Kirkiutnroi 4 Sími 622 011 Kirkjutorgi 4 Sími 622 011 4-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.