Morgunblaðið - 11.11.1987, Blaðsíða 40
Morgunblaðið/GSV
Verið var að þvo Dagstjörnuna í Siippstöð Akureyrar þegar myndin
var tekin í gærmorgun.
Dagstjarnan í slipp
DAGSTJARNAN, sem Útgerðar-
félag Akureyringa keypti af
Jazzdagar
Ríkisútvarpsins:
Tónleikar í
Alþýðuhúsinu
STÓRSVEIT Tónlistarskólans á
Akureyri heldur tónleika í Al-
þýðuhúsinu, 4. hæð, annað kvöld,
fimmtudagskvöld. Stjómendur
verða Norman H. Dennis og Mika-
el Ráberg, sem einnig mun leika
á básúnu.
Þessa dagana, eða frá 7.-14. nóv-
ember, er kynnt jazztónlist á jazz-
dögum Ríkisútvarpsins, meðal
annars eru beinar útsendingar frá
jazztónleikum. Af því tilefni kom
sænska tónskáldið og básúnuleikar-
inn Mikael Ráberg til að vinna með
stórsveitum landsins.
Kynnir á tónleikunum verður
Gestur Einar Jónasson. Tónleikamir
verða sendir út í beinni útsendingu
á rás 2, en þeir heflast kl. 17.45.
Útsending hefst kl. liðlega 18.00.
Stjömunni hf. i Keflavík, er nú
komin til Akureyrar. Skipið var
tekið upp í slipp sl. mánudag í
allsheijarklössun, að sögn Vil-
helms Þorsteinssonar, fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins, en
vonir standa til að skipið geti
haldið á miðin fyrir áramótin.
Ekki er þó búið að ráða mann-
skap á skipið og óvíst er enn um
nýtt nafn á það. Kaupverð nam 180
milljónum og er skipið 743 brúttó-
lestir að stærð.
Amtsbókasafninu færðar góð-
ar gjafir á 160 ára afmælinu
Á ÞESSU ári era liðin 160 ár
frá því að Grímur Jónsson amt-
maður á Möðravöllum stofnaði
Bókasafn norður- og austur-
amtsins, sem nú heitir Amts-
bókasafnið á Akureyri, og naut
við það aðstoðar ýmsra góðra
manna. Af stofndegi safnsins
fara engar sögur, en nú hin
síðari ár hefur 9. nóvember ver-
ið gerður áð afmælisdegi
safnsins þvi þann dag árið 1968
var bókasafnshúsið við Brekku-
götu vígt og tekið í notkun.
Þessara tímamóta var minnst
nú á afmælisdaginn i lestrarsal
safnsins af stjóra og starfsliði
safnsins ásamt fáeinum gestum.
Menningarmálanefnd Akur-
eyrarbæjar færði safninu að gjöf
málverk af Árna Jónssyni, sem var
amtsbókavörður á árunum
1962-1970 og átti hvað mestan
þátt í að bókasafnshúsið var reist.
Hann færði safnið jafnframt í það
nútíma horf sem það er nú í, að
sögn Lárusar Zophoníassonar
bókavarðar. Kristinn G. Jóhanns-
son listmálari færði bókasafninu
að gjöf málverk sín af skáldunum
Morgunblaðið/GSV
Málverk af Áraa Jónssyni fyrrverandi amtsbókaverði. Listamað-
urinn Kristinn G. Jóhannsson stendur til hægri, en til vinstri er
ekkja Árna, Guðrún Bjaraadóttir, og sonur, Bjarni Árnason.
Braga Sigurjónssyni og Kristjáni
frá Djúpalæk en áður hafði hann
gefíð safninu málverk af skáldun-
um Guðmundi Frímann og Heið-
reki Guðmundssyni.
Séra Bolli Gústavsson í Laufási
færði safninu einnig góðar gjafir,
sem voru teikningar af Akureyrar-
skáldunum Davíð Þorvaldssyni og
Páli J. Árdal og vestur-íslenska
skáldinu K.N., en hann var fæddur
Akureyringur.
Fiskiðjusamlag Húsavíkur:
Tæplega níu milljóna króna
tap var á rækjuvinnslu
FISKIÐJUSAMLAG Húsavíkur
kemur út með um 7,5 milljón
króna hagnað, samkvæmt
bráðabirgðauppgjöri fyrstu
átta mánuði ársins. Frystingin
hefur samkvæmt uppgjörinu
gefið tæplega 1,7 milljónir kr.
í hagnað, saltfisksöltun rúmar
9 milljónir, Ítalíuskreið tæpar
5,4 milljónir og fiskbúð rúmar
950.000 krónur. Hinsvegar er
ljóst að tap hefur orðið á rækju-
vinnslu upp á tæpar 8,8 milljón-
ir króna og á síldarniðurlagn-
ingu upp á rúmar 940.000
krónur.
Tryggvi Finnsson fram-
kvæmdastjóri FH sagði í samtali
við Morgunblaðið að rekja mætti
þessa slöku stöðu á rækjuvinnsl-
unni til verðfalls á erlendum
mörkuðum okkar í Bretlandi og
meginlandi Evrópu. „Við verðum
áfram í gangi með rækjuvinnsl-
una. Það koma auðvitað upp
sveiflur ár frá ári, en mér sýnist
markaðshorfur fara batnandi. í
augnablikinu erum við með rækju
af Galta, Júlíusi Havsteen auk
þess sem við höfum fengið ein-
staka farma af öðrum bátum.
Þrymur frá Patreksfírði er til
dæmis búinn að landa einu sinni
hjá okkur og verður eitthvað
áfram fram eftir desember," sagði
Tryggvi.
Hann sagði að í ráði væri að
selja síldamiðurlagninguna. Menn
hefðu spurst fyrir um kaup, en
enginn kaupsamningur hefði þó
litið dagsins ljós ennþá. Þá væru
uppi vangaveltur um það hjá fyrir-
tækinu hvort kaupa eigi helmings-
hlut Bjama Aðalgeirssonar í Galta
ÞH, en FH á helming á móti hon-
um nú þegar. Síldarverksmiðrjur
ríkisins á Húsavík eru til sölu og
hefur Fiskiðjusamlagið gert tilboð
í þær eignir. Tryggvi sagðist þó
ekki búast við áframhaldandi
rekstri síldarverksmiðju, heldur
væri verið að athuga aðra mögu-
leika varðandi nýtingu húsnæðis-
Morgunblaðið/GSV
Bjarni Rafnar læknir tekur á móti gjafabréfinu úr höndum Bjargar Pétursdóttur formanns klúbbsins.
Lengst til vinstri er Vignir Sveinsson fyrir hönd framkvæmdastjóra og hjá stendur Friðrika Áraadótt-
ir yfirljósmóðir auk lionessa úr Ösp.
Lionessuklúbburinn Osp:
Bjartsýnn á aðsókn
í fjallið í vetur
— segir ívar Sigmundsson f orstöðu-
maður Skíðastaða í Hlíðarfjalli
Gaf fæðingardeild FSA sam-
dráttar- og hjartsláttarrita
Lionessuklúbburinn Ösp hefur
afhent fæðingardeild Fjórðungs-
sjúkrahúss Akureyrar gjafabréf
að upphæð 150.000 krónur til
kaupa á svokölluðum „monitor"
fyrir fæðingardeUdina.
Lionessuklúbburinn safnaði pen-
ingunum á Akureyri dagana 8.-11.
október með því að ganga í hús og
selja plastpoka. Þær vildu sérstak-
lega þakka bæjarbúum fyrir hlýjar
móttökur enda seldist eitt og hálft
tonn af plastpokum á þessu tíma-
bili. Monitorinn er til þess að skrá
samdrátt og hjartslátt móður og
barns. Fæðingardeildin átti gamalt
tæki, en með þessu nýja er mun
betur hægt að fylgjast með því
hvaða áhrif fæðingin hefur á bam-
ið og hvort samdrættir vinna rétt
hjá konum, að sögn Bjama Rafnar
læknis sem tók við gjafabréfinu.
Klúbburinn er um það bil árs-
gamall um þessar mundir og eru
félagar alls 34. Lionessumar hyggj-
ast einbeita sér að einu sérstöku
verkefni á ári hveiju og er það
fæðingardeildin í ár sem fær að
njóta lionessanna. Þær hafa nú ráð-
ið sig í vinnu á kvöldin í súkkulaði-
verksmiðjunni Lindu til að pakka
inn konfekti fyrir jólamarkaðinn.
Ágóði af vinnu þeirra mun renna
til kaupa á fleiri tækjum fyrir fæð-
ingardeildina.
„VIÐ FENGUM metaðsókn í
fjallið I fyrra og kvíðum engu
nú. Ég er mjög bjartsýnn á
aðsókn í vetur ef veður- og
snjóskilyrði verða okkur hag-
stæð,“ sagði ívar Sigmundsson
forstöðumaður Skíðastaða i
Hliðarfjalli í samtali við Morg-
unblaðið.
ívar sagði að í fyrra hefði
skíðavertíðin hafíst um mánaða-
mótin nóvember/desember. „Við
höfum oft opið um helgar í des-
ember ef snjór er nægur, en
byijum fyrst af krafti um jól eða
upp úr áramótum. Veturinn í
fyrra var okkur sérstaklega hag-
stæður, og spilaði þar mest inn
í sá góði snjór, sem við fengum.
Þá fengum við mjög góða um-
fjöllun og ef snjórinn verður eins I
góður, má búast jafnvel við betri
aðsókn í vetur. Lítið var um biðr-
aðir og brekkur voru vel til
hafðar." ívar sagði að engar
stórframkvæmdir hefðu farið
fram í fjallinu síðan í fyrrasumar
þegar einni lyftu í viðbót var
komið fyrir. Þó eygðu menn
smávon til þess að fá í fjallið
nýjan snjótroðara, sem væri
númer eitt, tvö og þrjú á óskalist-
anum. Beiðni um hann verður
lögð fram með fjárhagsáætlun
Skíðastaða á næstu dögum.