Morgunblaðið - 03.12.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAJÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987
Bók um Kristínu Jónsdóttur
listakonu gefin út hjá Þjóðsögu
BÓKAÚTGÁFAN Þjóðsaga
hefur gefið út bókina „Kristín
Jónsdóttir — Listakona í gró-
andanum" eftir Aðalstein
Ingólfsson iistfræðing. I bók-
inni er sagt frá lífshlaupi
Kristinar og listsköpun, en auk
þess eru birtar 65 litmyndir auk
svart-hvítra mynda og Ijós-
mynda. Þá eru i bókinni tvö
erindi um myndlist sem Kristín
samdi fyrir útvarp á sjötta ára-
tugnum. Hafsteinn Guðmunds-
son sá um útlit bókarinnar og
Kristján Pétur Guðnason sá um
ljósmyndun listaverka. Prent-
smiðjan Oddi sá um setningu,
litgreiningu, prentun og bók-
band.
Morgunblaðið/Ami Sæberg:
Frá blaðamannafundinum þar sem bókin um Kristínu Jónsdóttur var kynnt. Frá vinstri er Hulda
Valtýsdóttir, dóttir Kristínar, Hafsteinn Guðmundsson bókaútgefandi og Aðalsteinn Ingólfsson list-
fræðingur höfundur bókarinnar. Næst eru bamabörn Kristínar, Kristín Gunnarsdóttir, Kjartan
Thors, Kristín Thors, Stefán Thors og Helga Gunnarsdóttir sem heldur á dóttur sinni Evu Kristinu
Michaelsdóttur. Næst henni á myndinni er Guðrún Gunnarsdóttir eiginkona Stefáns Thors, Gunnar
Hansson eiginmaður Huldu Valtýsdóttur og Michael Dal eiginmaður Helgu Gunnarsdóttur.
Kristín Jónsdóttir að starfi í málarastofunni á heimili sinu á
Laufásvegi 69. Myndina tók Ólafur K. Magnússon ljósmyndari,
Iíklega á árunum 1950—1955.
Kristín Jónsdóttir var einn af
brautryðjendum íslenskrar mál-
aralistar og jafnframt fyrsta
íslenska konan sem gerði myndlist
að ævistarfi. Kristín var fædd að
Amamesi við Eyjaijörð og stund-
aði nám við Konunglegu listaaka-
demíuna í Kaupmannahfofn frá
1911 til 1916. Kristín bjó í Kaup-
mannahöfn til 1924, en flutti þá
til íslands ásamt manni sínum,
Valtý Stefánssyni, búfræðingi og
síðar ritstjóra Morgunblaðsins, og
Helgu dóttur þeirra. Kristín and-
aðist árið 1959.
Aðalsteinn Ingólfsson höfundur
bókarinnar sagði, þegar bókin var
kynnt fyrir blaðamönnum, að ótal-
margt hefði komið sér á óvart
þegar hann fór að vinna að henni.
Reyndar hefði sýning á verkum
Kristínar árið 1980 varpað ljósi á
að hún var einstakur listamaður.
„Það kom mér á óvart hve
Kristín var sjálfri sér samkvæm
í öllu sem hún tók sér fyrir hend-
ur,“ sagði Aðalsteinn. „Oft hefur
verið talað um hana sem blóma-
málarann í niðrandi tón, en
blómamyndir hennar eru alveg í
sér flokki í íslenskri listasögu.
Þegar betur er að gáð eru þessar
uppstillingar mjög góðar og einnig
margar og sérstakar manna-
mjmdir hennar. Það kom mér
einnig þægilega á óvart hve hún
tók málstað yngri listamanna.
Hún var óhrædd við að segja skoð-
un sína og styðja þá með ráðum
og dáð.“
Hafsteinn Guðmundsson bóka-
útgefandi sagði að hann hefði oft
verið spurður að því hvemig hon-
um hefði dottið í hug að gefa út
ævisögu þessarar listakonu. Haf-
steinn sagði að eiginlega mætti
rekja aðdraganda þess til áranna
1929—1942 er hann starfaði hjá
ísafold. „Ég átti þá dagleg sam-
skipti við Valtý Stefánsson rit-
stjóra og vann stundum við
Morgunblaðið. Ég held að síðan
hafi alltaf blundað í mér hugur
til hans og hans fólks. Ég stend
í þakkarskuld við Valtý og þessi
bók er kannski árangur af því
trausti sem hann sýndi mér. Ég
vissi vel hvað kona hans var að
fást við og á þetta spor rambaði
ég,“ sagði Hafsteinn.
Hulda Valtýsdóttir, dóttir
Kristfnar, sagði að það hefði verið
ættingjum Kristínar mikið gleði-
efni þegar Hafsteinn kom að
máli við þá fyrir tveimur árum
og lýsti áhuga á að gefa út bók
um hana. Hún sagðist gera sér
grein fyrir að þetta hafi verið erf-
itt verk, en Hafsteinn hafi unnið
það af hugsjón. Hulda sagði að
sama væri að segja um hlut Aðal-
steins Ingólfssonar og þakkaði að
lokum þeim Hafsteini ásamt
starfsmönnum Prentsmiðjunnar
Odda fyrir störf þeirra.
Bókin „Kristín Jónsdóttir —
Listakona í gróandanum" er 197
blaðsíður að stærð.
Loðnuveiðin:
Víkingur
AK með 3
milljóna kast
Loðnuveiðar ganga vel um
þessar mundir og í gær náðu að
minnsta kosti tvö skipanna að
fylla sig í einu kasti og önnur
fengu mjög góð köst. Vikingur
AK fékk 1.300 tonn í kasti og
Hrafn GK 650. Verðmæti loðn-
unnar í kasti Víkings er um þijár
milljónir króna.
Eftirtalin skip höfðu síðdegis til-
kynnt um afla: ísleifur VE 720 á
austurleið, Albert GK 750 á austur-
leið, Hrafn GK 650 til Neskaupstað-
ar, Keflvíkingur KE 540 á
austurleið, Jón Finnsson RE 1.120
á austurleið, Eskfirðingur SU 630
til Neskaupstaðar, Guðrún Þorkels-
dóttir SU 700 til Eskifjarðar,
Magnús NK 530 á austurleið, Þórs-
hamar GK 600 á austurleið, Víking-
ur AK 1.300 til Akraness,
Sighvatur Bjamason VE 690 til
Vestmannaeyja og Þórður Jónasson
EA 710 í Krossanes.
Handtekinn
fyrir árás
á konu
MAÐUR í Reykjavík, 45 ára gam-
all, var handtekinn í síðustu viku
eftir að hann hafði veitt konu tölu-
verða áverka. Hann skar hana
með gleri og veitti henni einnig
áverka með barsmíðum.
Atburðurinn varð á heimili manns-
ins í Breiðholti í síðustu viku. Konan,
sem maðurinn hefur átt í sambandi
við um nokkum tlma, kom þangað,
en þeim varð sundurorða. Senna
þeirra endaði með þvf að maðurinn
barði konuna og veitti henni áverka
á hálsi með brotnu gleri. Ekki munu
áverkar þessir vera miklir, en lög-
reglan lítur slíka árás mjög alvarleg-
um augum.
Maðurinn var úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 23. desember og
gert að sæta geðrannsókn.
Þingflokkur sjálfstæðismanna:
Matthías og Halldór vald-
ir í stjórn Byggðastofnunar
ÞINGFLOKKUR sjálfstæðis-
manna ákvað í gær að bjóða
þingmennina Matthias Bjarnason
og Halldór Blöndal fram til
stjómar Byggðastofnunar sem
kosið verður I á Alþingi í dag.
Aðrir frambjóðendur drógu sig
til baka fyrir fundinn og voru
Matthias og Halldór sjálfkjörnir.
Þingflokkurinn hafði frestað í
tvígang að ákveða fulltrúa sína í
stjóm Byggðastofnunar þar sem
margir vildu komast I stjómina. Þrír
Ragnarsbakarí úrskurðað gjaldþrota:
Um fjörutíu manns misstu
vinnuna fyrirvaralaust
KefUvfk.
RAGNARSBAKARÍ var úrskurð-
að gjaldþrota hjá bæjarfógeta
Keflavikur i gær. Ragnar Eð-
valdsson eigandi bakarisins
stöðvaði reksturinn og óskaði
eftir að búið yrði úrskurðað
gjaldþrota. Akvörðunar er að
vænta hjá skiptarétti i dag um
nánara áframhald málsins.
Um 40 manns hafa unnið hjá
Ragnarsbakaríi og á þriðjudags-
kvöldið var haft samband við þá
starfsmenn sem til náðist og þeim
tilkynnt að þeir þyrftu ekki að
mæta til vinnu daginn eftir því
reksturinn hefði verið stöðvaður.
Ragnarsbakarí var með stærri
bakaríum á landinu og seldi vömr
sínar um allt land.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins höfðu staðið yfir samn-
ingaumleitanir með sölu á bakaríinu
sem átti - í rekstrarörðugleikum.
Afturkippur kom í söluna og í kjöl-
farið ákvað Ragnar að óska eftir
gjaldþrotaskiptum.
aðrir þingmenn, Eggert Haukdal,
Pálmi Jónsson og Ólafur G. Einars-
son, höfðu sóst eftir tilnefningu
þingflokksins, en Halldór, Ólafur og
Eggert sátu I stjóminni síðastliðið
kjörtímabil. Flokkurinn hafði þá
þingstyrk til að fá þijá stjómarmenn
kosna, en tvo núna. Þorsteinn Páls-
son formaður flokksins náði fram
samkomulagi um Matthías og Hall-
dór og drógu hinir sig til baka fyrir
fundinn.
Matthías Bjamason sagðist hafa
verið farinn af fundi þegar þetta mál
kom upp, þurft að sinna öðmm erind-
um. Hann kvaðst ekki hafa verið I
framboði og hefði þessi tilnefning
því komið nokkuð óvænt. Matthías
sagðist alltaf hafa setið í sljóm
Framkvæmdastofnunar og forvera
hennar nema þau tímabil sem hann
gegndi ráðherraembætti.
Olafur G. Einarsson sagði að ekk-
ert sérstakt samkomulag hefði verið
gert um þessa kosningu. „Þetta er
tilraun til þess að koma á sæmilegum
friði í þingflokknum en ekki hefur
farið mikið fyrir slíku," sagði Ólafur.
Pálmi Jónsson sagðist ekkert hafa
um þessa niðurstöðu að segja annað
en að þingflokkurinn hafi fallist á
tilmæli formanns flokksins um þessa
tvo menn og því hafi ekki farið fram
nein kosning.
Byggðastofnun heyrir undir for-
saðtisráðuneytið og kemur það því í
hlut Þorsteins Pálssonar að skip<
formann stjómar. Þorsteinh sagðis
í gærkvöldi ekki tilkynna hver yrð
formaður fyrr en eftir kosninguna
dag.
ÍYnhi$»a-
i dag
-Bli
JHoi'SunhínÍib
VIÐSKIÍTIAIVINNULÍF
n
Hækkn vextir-
bankti vi'gna \ 3kj. «|
ríkisvixla? ' •
- rrrRrrwwiw
j t mlOOO
\ miHjónú*
; btuHhuiri
% ^ < frrvúhilu-
kortniu
ÞORSKAFLINN í 12 AR
197S til19R6
blað B