Morgunblaðið - 03.12.1987, Síða 13

Morgunblaðið - 03.12.1987, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987 13 Krossey, Hornafirði: 400 tonn af fiski ónýt vegna amm- óníaksmengimar TJÓN vegna fiskbirgða, sem eyðilögðust er ammóniakleiðsla í frystigeymslu frystihúss Kaup- félags Austur- Skaftfellinga á Höfn, Krossey, rofnaði og geymslan fylltist af ammóníaks- lofti, er talið nema 15-16 mijjón- um króna. Á fjórða hundrað tonna af fiski, mest sUd, eyði- lagðist. Eftir óhappið stöðvaðist vinnsla í húsinu í fimm daga og nemur rekstrartjón af þeim sök- nm 7-8 miljjón krónum. Óhapp þetta varð að morgni 18. nóvember þegar bretti hrundi bak við stæðu sem stóð upp við vegg í frystigeymslunni. Rakst það á ammóníaksleiðslu sem lá utan á veggnum og rofnaðileiðslan. Ekkert ammóníak var á leiðslunni þegar óhappið varð, að því er segir í hér- aðsfréttablaðinu Eystrahomi, og var enginn starfsmaður í geymsl- unni þegar efni var hleypt á leiðsl- una. Því varð óhappsins ekki vart fyrr en geymslan var orðin full af eitruðum ammóníaksgufum. Á flórða hundrað tonna af fiski eru ónýt. Útskipun í Skaftafellið var nýhafin er óhappið varð og náðist með því móti að bjarga um 600 tonnum frá skemmdum. Unnið var að því að tæma geymsluna fram á miðnætti föstudagsins 20. nóvem- ber en að því loknu var hafist handa við viðgerð og hreinsun á geymsl- unni svo að hægt væri að hleypa á hana frosti á nýju. Af þessum sök- um lá niðri vinnsla í húsinu í fímm daga. Birgðatapið, 15- 16 milljónir eins og áður sagði, verður bætt af tryggingafélagi, en tap vegna rekstrarstöðvunarinnar ber fyrir- tækið óbætt að sögn Elvars Einars- sonar frystihússtjóra. Elvar sagði að verðmæti daglegrar framleiðslu í húsinu væri á bilipu 1,2- 1,4 millj- ónir króna og nemur því tapið 6- 7 milljónum. Vinna hófst að nýju í Krossey mánudaginn 23. nóvember og eru Homfirðingar nú önnum kafnir við að safna nýjum birgðum í frystigeymsluna. Sjóflutningar varnarliðsins: Baltic losaði ekki í Njarðvíkurhöfn Keflavik. BÆJARRÁÐ Keflavíkur hefur sent Steingrími Hermannssyni utanríkisráðherra mótmæli vegna brots á samkomulagi sem hefur verið um að sjóflutningar varnarliðsins fari um Landshöfn Keflavík-Njarðvík. Tilefnið er að 24. nóvember sl. sigldi flutninga- skip Eimskipafélagsins Baltic framhjá Njarðvíkurhöfn til Reykjavíkur og losaði þar 93 gámaeiningar. Guðfinnur Sigurvinsson forseti bæjarstjómar sagði í samtali við Morgunblaðið að þegar þessir flutn- ingar hefðu verið ákveðnir hefði þáverandi utanríkisráðherra Matt- hías Á. Mathiesen gert samkomulag við Eimskfp um að flutningamir færu um Landshöfn Keflavík- Njarðvík. „Við viljum ítreka með þessu að samkomulagið verði hald- ið, því þetta er mikið hagsmunamál fyrir Suðumesjamenn," sagði Guð- fínnur ennfremur. Jón Norðfjörð framkvæmdastjóri Skipaafgreiðslu Suðumesja sagði að Eimskip hefði gefíð þá skýringu að skipið hefði verið á eftir áætlun og því siglt beint til Reykjavíkur þar sem viðkoma í Njarðvík hefði tafið enn frekar áætlun þess. „Ég tel þetta ekki rétt, skipið var hér fyrir utan laust eftir miðnætti og hefði það komið við í Njarðvík hefði verið hægt að losa það á 4 tímum. Baltic hefði því átt að geta verið komið til Reykjavíkur um morgun- inn og það hefði ekki seinkað áætlun skipsins að koma við í Njarðvíkurhöfn," sagði Jón Norð- fjörð. BB Varðveisla Isa- fjarðarkirkju Undirskriftarlistar um varð- veislu ísafjarðarkirkju liggja nú frammi á nokkrum stöðum. Undirskriftarlistar þessir verða sendir sóknamefnd ísafjarðar- kirkju, með þeim óskum að hún fái að vera á sínum stað, vonandi end- urbyggð með þeirri stækkun sem hægt er (vísast til greinar er birtist í Morgunblaðinu 18. nóvember síðastliðinn). Samkvæmt myndum af kirkjunni eftir brunann virðist hún ekki verr farin en Iðnaðar- mannahúsið í Reykjavík og allir vita hvað viðgerð gekk fljótt og vel fyrir sig. Einnig má minna á þegar viðbyggingin undir orgelið var bætt við kirkjuna, þá fóm nokkrir graf- reitir þar undir, svo það er ekkert nýtt að grafreitir sem undir kirkjur fara séu greyptir inn í kirkju, t.d. í Hólakirkju og víðar. Andlit staðar- ins er kirkjan í garðinum og hvíta fallega sjúkrahúsið. Þessar tvær byggingar em mjög vel staðsettar á eyrinni og hafa um langan aldur þjónað þessum sérstæða kaupstað. Þess vegna er það ósk okkar og von að núverandi íbúar staðarins og aðfluttum sem fráfluttum takist að stilla hugi saman og styrkja þetta málefni vel og vandlega. Is- lendingar um allt land em famir að kunna að meta verðmæti gam- alla húsa. Eyrarkirkja er samein- ingartákn staðarins og verður vonandi áfram. í Reykjavík liggja listamir frammi í Sölutuminum Lækjargötu 2, versluninni Heijólfí, versluninni Garðarsbúð, Húsgagnaversluninni Viðju og Pennanum I Kringlunni, í Eklen í Hveragerði, Samkaupum í Njarðvík og hjá Sturlu Halldórssyni hafnarverði á ísafírði. Fjóla Sigmundsdóttir og Garðar Pálsson 5.000,- á mánuði, 19.000,- útborgun með Visa og Euro 2ja ára ábyrgð. húsgagna-höllin REYKJAVlK MÐBLER Mjúku, mlleguog þægílegu Dallas áklæða settin eru komin aftur í mörgum litum og öllum stærðum. 3+2+1 kr. 79.590,- 3+1+1 kr. 72.960,- Hornsófar, 5 sæta kr. 72.960,- Hornsófar, 6 sæta kr. 76.260,-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.