Morgunblaðið - 03.12.1987, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 03.12.1987, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987 33 Valtýr Sigurðsson skipaður borgarfógeti VALTÝR Signrðsson héraðs- dómari hefur verið skipaður dómari við borgarfógetaemb- ættíð í Reykjavík. Tekur skipun hans gildi frá og með 1. janúar 1988. Valtýr Sigurðsson útskrifaðist frá lagadeild Háskóla íslands árið 1971 og hóf þá starf sem fulltrúi við embætti sýslumanns Gull- bringusýslu og bæjarfógetans í Keflavík, Njarðvík og Grindavík. 1974 var hann skipaður aðalfull- trúi við sama embætti og undan- farin ár hefur gengt starfi hérðasdómara við það embætti. Aðrir sem um embætti borgar- fógeta sóttu voru: Gréta Baldurs- dóttir, dóamarfulltrúi við borgarfógetaembættið í Reykjavík, Jón Finnbjömsson, aðstoðarmaður hæstaréttardóm- ara, Ólafur Sigurgeirsson, aðal- fulltrúi við borgarfógetaembættið og Sveinn Sigurkarlsson, aðalfull- trúi sýslumannsins í Gullbringu- sýslu og bæjarfógetans í Keflavík, Njarðvík og Grindavík. Einn um- sækjandi óskaði nafnleyndar. Valtýr Sigurðsson Heimildarmynd um Geysisslysið 1950 frumsýnd í sjónvarpi: Forráðamenn Loftleiða vildu ekki að myndin yrði sýnd almenningi —sýning myndarinnar bönnuð þar til nú HEIMILDARMYND um Geysis- slysið á Vatnajökli 1950 verður sýnd í Ríkissjónvarpinu 29. des- ember, en meginuppistaða hennar er kvikmynd sem Eðvarð Sigurgeirsson tók af björgunar- leiðangri Akureyringa á Vatna- jökul, og hefur verið bannað að sýna þar til nú. Jón Magnússon um auglýsingu 16 lækna gegn bjórnum: Reynt að drepa sjálfstæða hugsun með „ofurvaldi sérfræðinganna4 ‘ „MÉR FINNAST þetta vera hinar furðulegustu auglýsingar,“ sagði Jón Magnússon, fyrsti flutnings- maður bjórfrumvarpsins, þegar Morgunblaðið spurði hann álits á auglýsingu sem birtist gegn frumvarpinu í dagblöðum i gær og 16 læknar skrifa undir. „Það er nánast örþrifaráð þegar á að rugla fólk í ríminu með því að reyna að tefla fram mönnum sem gefa í skyn að þeir hafi meira vit á hlutunum en Jón og Gunna.“ „Þetta er ekki í fyrsta skipti sem reynt er í almennum þjóðfélagsmál- um að drepa niður sjálfstæða hugsun fólksins með því sem er Vopnafjörður: Tilraunaframleiðsla á þorski í Tanga 60-70 manns sagt upp vegna breytinga ásamt trillunum sem hafa aflað vel að undanfömu. Tangi hefur nýlega hafið til- raunaframleiðslu á þorski sem seldur er á Bretlandsmárkað á hag- stæðu verði. Við framleiðsluna er notuð lítil Marks & Spencer skurð- arvél með þremur hnífum, og eru hnakkastykki snyrt, sporðar og þunnildi skorin af. Aðeins úrvals trillufiskur er notaður í þessa fram- leiðslu. ENDURBÆTUR eru fyrirhugað- ar hjá frystihúsinu Tanga hf. á Vopnafirði á næstunni og hefur um 60-70 starfsmönnum verið sagt upp störfum þar til fram- kvæmdum lýkur, en áætlað er að þær taki þrjár til fjórar vik- ur. Ennfremur hefur fyrirtækið nýlega hafið tilraunaframleiðslu á þorski á Bretlandsmarkað og í hana fer aðeins úrvals fiskur úr smábátum. Breytingar verða gerðar á pökk- unarsal og vélasal Tanga á meðan skuttogarinn Brettingur verður í slipp í Póllandi, en auk hans landa Lýtingur, Eyvindur Vopni og nokkr- ir smábátar hjá Tanga. Trollbátur- inn Eyvindur Vopni hefur haldið uppi vinnu í fyrirtækinu í haust Smygl í Vetti SU 3: Reyndist vera kókain og hass KOMIÐ hefur í ljós að fíkniefn- in, sem fundust um borð í Vetti SU 3 við komu skipsins til lands- ins á mánudag, voru kókaín og hass, en ekki amfetamín og hass. Tveir skipveijar voru í gær úr- skurðaðir í gæsluvarðhald vegna innflutnings efnanna. Tollverðir og starfsmenn fíkni- efnalögreglunnar leituðu um borð í skipinu, sem var að koma frá Eng- landi. Þá fundust tæp 20 grömm af hvítu dufti, sem í fyrstu var ta- lið amfetamín. Nú hefur hins vegar komið í ljós að efnið var kókaín, en auk þess fundust tæp 600 grömm af hassi. Hvert gramm af hassi er selt á um 1000 krónur hér á landi, eri grammið af kókaíni á um 8-10 þúsund krónur. Verðmæti smyglsins um borð í Vetti er því um 7-800 þúsund krónur. Annar skipverjinn var úskurðað- ur í 10 daga gæsluvarðhald, en hinn í 5 daga. kallað ofurvald sérfræðinganna,“ sagði Jón Magnússon. „Það er ákaf- lega hættulegt ef menn játast undir það, að það séu einhveijir fáir út- valdir sem séu marktækir í sambandi við umræður um áfengis- mál eins og auglýsingaherferð Stórstúku íslands ber með sér.“ Geir H. Haarde, sem er með- flutningsmaður að frumvarpinu, sagði að sér finndist óviðeigandi að bendla læknadeild Háskólans við deilur um þetta málefni. „Mér er vel kunnugt um að það eru skiptar skoðanir um bjórinn í læknastétt eing og meðal annarra hópa manna. Ég held að það færi betur á því að þessir virðulegu læknar og prófess- orar snéru sér að því að finna lækningu við þessum sjúkdómi, áfengissýkinni, í stað þess að reyna að koma í veg fyrir að þau 90% þjóðarinnar, sem ekki misnota áfengi, fái aðgang að léttustu teg- und áfengis. Ég sé ekki betur en þessir pró- fessorar, sem margir hveijir eru ekki sérfræðingar í áfengisvörnum, vilji frekar halda fólki við sterkustu drykkina." Ingi Bjöm Albertsson, meðflutn- ingsmaður, sagði lækna- og heil- brigðissamtök um allt land vera að semja svona ályktanir um þessar mundir en það væm líka skiptar skoðanir um málið í þessum stétt- um. „Mér fínnst að svona samtök- um nánast beri að álykta á þennan veg og sé ekkert óeðlilegt við það,“ sagði Ingi Bjöm. Guðrún Helgadóttir, sem einnig er meðflutningsmaður að fmm- varpinu, sagðist ekkert hafa um þessa auglýsingu að segja. Sigrún Stefánsdóttir, umsjónar- maður myndarinnar, sagði í samtali við Morgunblaðið að myndin varp- aði nýju ljósi á það sem gerðist, kvikmynd .Eðvarðs Sigurgeirssonar kæmi þama í fyrsta sinn fyrir sjón- ir almennings. „Eðvarð fékk leyfí til að fara með björgunarleiðangrin- um og taka myndina með því skilyrði af hálfu Loftleiða að hún yrði ekki sýnd almenningi." sagði Sigrún. „Það þótti ekki góð auglýs- ing fyrir fyrirtækið, sérstaklega þar sem þetta var snemma í sögu þess, en nú hefur banni Flugleiða við sýningu myndarinnar verið aflétt." í sjónvarpsmyndinni ræðir Sigr- ún einnig við áhöfn Geysis og þáttakendur í björgunarleiðangrin- um, meðal annars lýsir flugmaður vélarinnar tildrögum slyssins. Einn- ig verður sýnt úr mynd sem tekin var þegar náð var í bandaríska skíðaflugvél af Vatnajökli sem tengdist Geysisslysinu. Skíðavélin kom frá Grænlandi og var ætlunin að bjarga áhöfn Geysis. Tókst að lenda henni á Vatnajökli, en ekki að koma henni á loft aftur, þannig að vélin var skilin eftir og komst síðan í eigu Loftleiða eftir að henni var náð af jöklinum. Skrifað í skýin - þriðjabindi KOMIÐ er út þriðja og siðasta bindið af minningaþáttum Jó- hannesar R. Snorrasonar flug- stjóra, Skrifað í skýin. Bókin er gefin út af Snæljósi sf. og prent- uð í Odda. í fréttatilkynningu frá útgefanda segir m.a.: „Þessi síðasta bók höf- undar spannar tímabilið allt frá árum sjóflugsins og þar til hann lét af störfum í stjómklefanum, aldurs vegna, haustið 1980. Hafði hann þá flogið Boeing-þotum Flugfélags Islands hf. og Flugleiða hf. frá þeim degi er hann flaug hingað til lands fyrstu íslensku þotunni sumarið 1967.“ Jóhannes R. Snorrason Lagastofnun Háskóla Islands: Óheimilt er að draga meðlög frá námslánum LAGASTOFNUN Háskóla íslands telur stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna hafa skort heimild til þess að setja það ákvæði í úthlutunarreglur Lánasjóðs íslenskra námsmanna, að meðlags- greiðslur dragist frá námsláni. Bendir stofnunin á að meðlög séu samkvæmt 23. barnalaga og dómi Hæstaréttar eign barns, sem samkvæmt skattalögum teljist ekki til tekna foreldris. Aðdragandi þessa máls er sá, fordæmi Hæstaréttar fyrir því að að við gerð síðustu úthlutunar- reglna í vor, var sett það ákvæði inn í reglumar, að meðlagsgreiðsl- ur til lánþega sjóðsins skyldu teljast til tekna og dragast sem slíkar frá námslánum. Regla þessi var samþykkt í stjórn sjóðsins með atkvæðum ríkisstjómarfulltrúanna gegn atkvæðum námsmanna. Gagnrýni kom á þessa reglu á fundum Stúdentaráðs síðastliðið sumar og samdi Valborg Snævarr, einn fulltrúa Vöku, félags lýðræð- issinnaðra stúdenta greinargerð um málið, þar sem hún taldi þessa reglu bijóta í bága við ákvæði bamalaga og skattalaga. Lægi meðlag teldist eign bams en ekki foreldris. Greinargerð Valborgar var lögð fyrir sjóðsstjóm, en fulltrúar ríkis- stjómarinnar höfnuðu henni og neituðu að leggja málið fyrir lög- fræðing sjóðsins. Leitaði Stúd- enta-ráð þá álits Lagastofnunar H.í. að tillögu Valborgar. í áliti lagastofnunar segir m.a. að hvorki í lögum 72/1982'!um námslán og námsstyrki, né reglu- gerð nr. 578/1982 séu leiðbeining- ar um það, hvaða fjárafli teljist til tekna námsmanns og hafi áhrif á ákvörðun lánsfjárhæðar til skerð- ingar. „Úrlausn þess, hvort það sé í samræmi við íslenskar réttarregl- ur að telja meðlög greidd bami til tekna einstæðs foreldris veltur að okkar áliti að því, hvort stjóm Lánasjóðs íslenskra námsmanna sé samkvæmt gildandi lögum heimilt að setja ákvæði í þá veru í úthlutunarreglumar." Síðan segir í dómnum: „Sam- kvæmt fortakslausu ákvæði 23. gr. bamalaga nr. 9/1981, og dómi Hæstaréttar frá 23. júní 1954, sbr. Hrd. 1954:433 á bamið sjálft réttinn til meðlags. Samkvæmt 2.tl. A.liðar 7.gr. laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignarskatt telj- ast bamsmeðlög ekki til tekna foreldris að því leyti sem meðlagið takmarkast af fjárhæð bamalífe- yris samkvæmt 14.gr. laga nr. 67/1971 um almannatryggingar. Þegar litið er til framangreindra ákvæða bama- og skattalaga og að því gættu að bamsmeðlag gegnir samkvæmt eðli sínu því hlutverki að standa straum af út- lögðum kostnaði við uppeldi bams, er það álit okkar, að umrætt skerð- ingarákvæði úthlutunarreglna stjómar Lánasjóðs íslenskra náms- manna eigi sér hvorki beina stoð í lögum nr. 72/1982 né fái sam- rýmst því viðmiðunarsjónarmiði 3.gr. laganna að taka beri eðlilegt tillit til fjölskyldustærðar, fram- færslukostnaðar og tekna náms- manns. Samkvæmt þessu teljum við, að stjóm Lánasjóðs íslenskra námsmanna skorti að óbreyttum lögum heimild til þess að setja slíkt skerðingarákvæði í úthlutunar- reglur sjóðsins. Það vom Sigurður Líndal pró- fessor og Þorgeir Örlygsson, dósent sem sömdu álitsgerðina fyrir hönd lagastofnunar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.