Morgunblaðið - 03.12.1987, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987
41
10. ársþing íþróttaráðs LH á Húsavík:
Hestamenn samþykkja
að leggja ráðið niður
Kemur til framkvæmda að undangenginni stofnun sér-
sambands hestamanna innan ÍSÍ
HESTAMENN stigu afdrifaríkt
skref í væntanlegri inngöngu í ÍSÍ
þegar samþykkt var að íþróttaráð
Landsambands hestamannafé-
laga yrði lagt niður að lokinni
stofnun sérsambands hesta-
manna. Gerðist þetta á ársþingi
íþróttaráðs LH, sem haldið var á
Húsavík um helgina. Auk þing-
fulltrúa voru mætdr á fundinn
Sigurður Magnússon, fram-
kvæmdastjóri ISÍ og Valgarð
Halldórsson, starfsmaður ÍSÍ, og
kynntu þeir uppbyggingu samtak-
anna og hvaða áhrif innganga
hestamanna hefði fyrir starfsemi
þeirra.
Þingið, sem var hið tíunda í röð-
inni, verður því að öllum líkindum
það síðasta sem haldið hefur verið í
nafni íþróttaráðs LH. Næsta þing
sem haldið verður í Mosfellsbæ að
ári verður fyrsta ársþing væntanlegs
sérsamabands. Það kom fram í máli
Sigurðar Magnússonar að á borðinu
hjá honum væru erindi frá sjö hér-
aðs- og ungmennasamböndum, þar
sem gerð er grein fyrir væntanlegri
inngöngu íþróttadeilda í samböndin.
Sagði Sigurður að nú vantaði aðeins
herslumuninn á að hægt væri að
stofna sérsamband hestamanna og
hvatti hann þær íþróttadeildir sem
ekki hefðu nú þegar gengið frá um-
sóknum um aðild að viðeigandi
héraðs- og ungmennasamböndum að
gera það hið fyrsta. Þá kom fram í
máli Sigurðar að áður en að stofnun
kæmi myndi framkvæmdastjóm ÍSÍ
taka málin til frekari umfjöllunar og
einnig yrði að ganga frá lagasetn-
ingu og ýmsum tækniatriðum fyrir
hið nýja sérsamband. Taldi Sigurður
ekki ólfklegt að hægt yrði að boða
til formlegrar stofnunar á fyrri hluta
næsta árs.
Fáar tillögur lágu fyrir þinginu
að þessu sinni og enginn þeirra mjög
stefnumarkandi nema sú sem áður
er getið. Af því sem samþykkt var
má nefna tillögu frá íþróttadeild
Léttis á Akureyri, þar sem lagt var
til að tekið yrði upp 250 metra skeið
á íþróttamótum, en þó með þeim
fyrirvara að þetta verði til reynslu á
næsta keppnistímabili og það síðan
Leiðrétting
í Morgunblaðinu í gær var rangt
farið með nafn útibússtjóra Al-
þýðubankans á Blönduósi. Það var
í frétt þess efnis að Alþýðubankinn
á Blönduósi hefði gefíð sjúkrabfl
Skagstrendinga. Rétt er nafnið Öm
Bjömsson.
Beðist er velvirðingar á þessu.
lagt fyrir þingheim að ári. íþrótta-
deild Harðar lagði til að stjóm
íþróttaráðs beitti sér fyrir breyting-
um á reglum um fótabúnað hrossa
í gæðingakeppni til samræmis við
það sem gildir í íþróttakeppni. Var
þar átt við 10 millimetra skeifur án
plasts, sem lejrfðar em í íþrótta-
keppni en ekki í gæðingakeppni. Var
þessi tillaga samþykkt samhljóða.
Einnig var samþykkt tillaga, þar sem
farið var nákvæmlega í saumana á
því hvemig fótabúnað væri leyfílegt
að nota í íþróttakeppni. Frá íþrótta-
deild Fáks kom fram tillaga um
lágmarksstig til þátttöku { Islands-
mótum. Að síðustu var svo valinn
staður fyrir næsta íslandsmót, en
þar lágu fyrir tvö boð um mótsstaði,
annað frá íþróttadeild Sörla í Hafn-
arfirði og hitt frá íþróttadeild Harðar
í Mosfellsbæ, og var boði Harðar
tekið.
Það vakti nokkra athygli að Ey-
firðingar mættu þama fylktu liði, en
þeir hafa lýst því yfir að þeir myndu
starfa innan ISÍ að undangenginni
úrsögn úr LH sem allt bendir til að
muni gerast eftir stofnun sérsam-
bandsins. Stungu þeir upp á Jónasi
Vigfússyni frá íþróttadeild Funa í
stjómarkjöri og hlaut hann kosningu.
Kemur hann inn í stjómina fyrir
Ragnar Tómasson sem ekki gaf kost
á sér til endurkjörs. Pétur Jökull
Hákonarson formaður, Lisbeth Sæ-
mundsson og Þorsteinn Hólm Stef-
ánsson vom endurkosin, en auk
þeirra em í stjóm Hulda Sigurðar-
dóttir, Guðmundur Sveinsson og
Hafliði Gíslason.
P
1
Aðventukvöld
kirkju heymarlausra
AÐVENTUKVÖLD í kirkju
heyrnarlausra verður fimmtu-
dagskvöldið 3. desember og hefst
kl. 20.00 í Hallgrímskirkju.
Táknmálskórinn syngur aðventu-
sálma og yngstu bömin úr Heym-
leysingjaskólanum leika helgileik.
Sigríður Kolbeinsdóttir, sem er
elst meðal heymarlausra, segir
hvemig jólin vom þegar hún var
lítil stúlka og Halldóra Jónsdóttir
túlkar fyrir heyrandi.
Vilhjálmur G. Vilhjálmsson segir
frá aðventukertum og merkingum
þeirra og Geirlaug Helgadóttir túlk-
ar fyrir heyrandi.
Júlía Guðný Hreinsdóttir táknar
ljóðið „Jól“ eftir Stefán frá Hvíta-
dal og Gunnar Salvarsson les fyrir
heyrandi.
í lok aðventukvöldsins verða
kaffíveitingar í félagi heymar-
lausra. Verið öll velkomin til
aðventukvöldsins.
(Fréttatílkynníng)
Ók á brott
frá slas-
aðri konu
ÖKUMAÐUR, sem ók bifreið
sinni aftan á aðra með þeim af-
leiðingum að sú stórskemmdist
og kona slasaðist, ók á brott og
hefur ekkert til hans spurst
siðan.
Atburður þessi varð um kl. 16.50
á föstudag, 27. nóvember, á gatna-
mótum Langholtsvegar og Klepps-
vegar. Kona ók bifreið sinni af
gerðinni Daihatsu eftir Langholts-
vegi. Þar sem Langholtsvegur
liggur að Kleppsvegi er stöðvunar-
skylda og þar stöðvaði konan bifreið
sína. Skipti þá engum togum að
annarri bifreið var ekið mjög harka-
lega aftan á hennar. Við árekstur-
inn kastaðist konan fram í rúðu og
skarst á höfði. Bifreið hennar er
talin ónýt. Þegar konan áttaði sig
á því hvað hefði komið fyrir kom í
ljós að sá sem ók aftan á hana var
á bak og burt. Talið er að hann
hafí ekið grárri bifreið og telur lög-
reglan að hún hljóti að vera mikið
skemmd eftir áreksturinn.
Slysarannsóknardeild lögregl-
unnar í Reykjavík biður ökumann
þennan um að gefa sig fram. Þá
þiggur lögreglan einnig með þökk-
um allar upplýsingar um málið.
INNLENT
Karpov á peð yfir í hróksendatafli
Skák
Margeir Pétursson
Það dró til tíðinda í gærkvöldi
f æsispennandi heimsmeistara-
einvígi Kasparovs og Karpovs.
Nítjánda skákin fór í bið eftir
40 leiki og er ekki útséð tun það
hvort áskorandinn, Anatoly
Karpov, nái forystunni. Hann
hefur peð yfir og hagstæða stöðu
f hróksendatafli, en það verður
þó mjög erfitt fyrir hann að
brjóta varnir Kasparovs á bak
aftur þegar skákin verður tefld
áfram f dag f Sevilla. Staðan í
einvfginu er 9—9 og ræðst það
því af sfðustu sex skákunum hvor
verður heimsmeistari f skák'
næstu þijú árin.
Kasparov hefur enn ekki náð sér
á strik síðan -í elleftu skákinni.
Hann varðist í gær með hinu
trausta Tartakover afbrigði, en
Karpov tókst samt, með nýrri leikja-
röð að gabba heimsmeistarann út
í óhagstæða stöðu. Staða Kasp-
Burtfararprófstónleikar
Gunnars Guðbjörnssonar
GUNNAR Guðbjömsson, tenór,
lýkur‘8. stigs prófi sínu með tón-
leikum föstudaginn 4. desember
kl. 20.30 í sal Nýja tónlistarskól-
ans f Armúla 44. Við píanóið
verður Guðbjörg Siguijónsdótt-
ir.
Gunnar hóf nám í Tónlistarskóla
Garðabæjar, en kennarí hans þar
var Snæbjörg Snæbjamardóttir.
Undanfarin ár hefur kennari hans
verið Sigurður Demetz í Nýja tón-
listarskólanum. Viðfangsefni
Gunnars á tónleikunum á föstu-
dagskvöldið eru eftir Bononcini,
Mozart, Schubert, Strauss, Gunnar
Reyni Sveinsson, Poulenc, Lalo og
Boito.
Aðgangur að tónleikunum er _____________
ókeypis og öllum opinn. Gunnar Guðbjömsson
arovs varð mjög þröng og hann brá
á það ráð að fóma peði. Fómin var
greinilega djúphugsuð, en Karpov
tókst þó að komast út í endatafl
án þess að þurfa að gefa peðið til
baka.
Endataflið leit mjög vel út fyrir
áskorandann í fyrstu, en hann á
eftir að yfirstíga gífurlega mikla
tæknilega örðugleika í framhaldinu
ef hann á að geta fært sér um-
frampeðið í nyt. Hróksendatöfl eru
líklega allra erfíðustu endatöfl sem
hægt er að fá upp, sterkustu skák-
menn misstíga sig oft illilega í þeim.
Það er ljóst að mikið er eftir af
þessari skák, sem er ein þeirra
merkilegustu í einvíginu. Nú reynir
loks verulega á þolrifín í aðstoðar-
sveitum meistaranna við biðstöðu-
rannsóknir.
19. einvfgisskákin
Hvftt: Anatoly Karpov
Svart: Gary Kasparov
Drottningarbragð
I. Rf3 - d5, 2. d4 - Rf6, 3. c4
— e6, 4. Rc3 — Be7, 5. Bg5 —
0-0, 6. e3 - h6, 7. Bh4 - b6
Þeir félagar hafa báðir lagt
traust sitt á Tartakover afbrigðið
þegar mikið hefur verið í húfí.
8. Be2 - Bb7, 9. Bxf6 - Bxf6,
10. cxd5 - exd5, 11. 0-0
Eðlilegasti leikurinn í stöðunni,
en fyrr í einvígjum Kasparovs og
Karpovs hefur hér jafnan verið leik-
ið 11. b4I? Heimsmeistarinn lék
þeim leik t.d. f átjándu skákinni á
mánudaginn. Það er athyglisvert
að báðir keppendur hafa leikið 11.
0-0 löngu áður en innbyrðis einvígi
þeirra hófust. Karpov beitti leiknum
gegn Spassky f einvígi þeirra 1974
og Kasparov notaði hann gegn
Torre f Moskvu 1981.
II. - Rd7
Kasparov lék þessu að bragði,
en Viktor Korchnoi, sem nú er
staddur á Spáni, gagnrýndi leikinn
og sagði hann ónákvæman. 11. —
c5 kann að vera betra.
12. b4 - c5, 13. bxc5 - bxc5, 14.
Db3!
Þetta er sterkara en 14. Hbl —
Bc6 og komin er upp sama staðan
og í 18. skákinni. Byrjun Karpov
hefur því heppnast vel.
14. — cxd4, 15. Rxd4 — Bxd4,
16. exd4 - Rb6, 17. a4
Hvítur er kominn með mjög
hættulegt frumkvasði á drottning-
arvæng og Kasparov ákveður nú
að fóma peði til að létta á stöðunni.
17. - Hb8, 18. a5 - Rc4, 19.
Bxc4 — bxc4, 20. Dxc4 — Dd6!
Eftir langa þvingaða leikjaröð er
komið upp mjög athyglisvert enda-
tafl. Ef uppskipti á einu hrókapari
yrðu í stöðunni væri svarta staðan
gjörsamlega vonlaus, en með alla
hrókana á borðinu eru vamarmögu-
leikar hans þokkalegir, því báðir
hvítu hrókamir em bundnir við að
valda frípeðið. Peðastaðan á kóngs-
væng gefur hvíti heldur ekki vonir
um að komast í gegn þar.
Fram til þess að skákin fer í bið
gerast engir stórir hlutir. Karpov
liggur ekkert á, umframpeðið
hieypur ekki í burtu og því skiljan-
legt að hann vilji kryfja þettá
merkilega endatafl til mergjar með
aðstoðarmönnum sfnum f nótt.
29. Hfal - Kf8, 30. Kf2 - Ke7,
31. Ke3 - Ke6, 32. Ha5 - Hd6,
33. Hla2 - Hc6, 34. h4 - Hd6,
35. Kf4 - Hb6, 86. H2a3 - Hc6,
37. He6+ - Kf6, 38. Hf5+ -
Ke6, 39. Hfa5 - Hb6, 40. He5+
- Kf6
Þetta er hugmynd Kasparovs
með peðsfóminni. Hann vinnur nú
tíma vegna hótunarinnar 21. —
Ba6. Leikurinn felur einnig í sér
lúmska gildru: 22. a6? — Bxg2, 23.
Kxg2 - Dg6+, 24. Khl - Hfc8
og hvítur vinnur manninn til baka
og stendur betur.
21. Dc5 - Dxc5,22. dxc5 - Hbc8
Alls ekki 22. Hbc8?, 23. Hfbl -
Hxc5, 24. Re4 og leppun svarta
biskupsins á b7 verður svarti óbæri-
leg. Karjxiv fínnur nú einu raun-
hæfu leiðina til að tefla til vinnings.
Ef hann léki t.d. 24. Hfbl — Hxc5,
25. Hxb7 — Hxc3, 26. Hxa7 heldur
svartur auðveldlega jafntefli með
26. - Hfc8, 27. g3 - Hcl+, 28.
Hxcl — Hxcl+, 29. Kg2 — Hal,
því hrókur hans er á réttum stað á
bak við hvíta frípeðið.
23. a6 - Ba8, 24. Rb5 - Hxc5,
25. Rxa7 - Be4, 26. f3 - Ha8,
27. fxe4 - Hxa7,28. Ha4 - Hc6
í þessari stöðu fór skákin f bið
og Karpov, sem hefur hvítt, lék.
biðleik. Það verður ekki séð í fljótu
bragði að hvítur geti komist neitt
áleiðis, en hróksendatöfl leyna mik-
ið á sér og bjóða oft upp á meiri
möguleika en þá sem blasa við aug-
um. Þrátt fyrir þrönga stöðu
Kasparovs og mikla óvissuþætti
spái ég þvi að biðskákin endi með
jafntefli.