Morgunblaðið - 03.12.1987, Síða 50
I í
TTto
Imas Go«/on
Samskipti foreldra og
-að ala upp ábyrga æsku
í bókinni mælir höfundurinn Dr. Thomas Gordon með aðferðum sem miða
að gagnkvæmum skilningi milli foreldra og bama og niðurstöðum sem byggjast
á sameiginlegri lausn vandamálanna. Þannig geta bömin litið á sig sem ábyrga
aðila við hlið foreldra sinna.
Aðferðir Thomasar Gordons em heimsþekktar, bókin hefur verið þýdd á
-fjölmörg tungumál og hvarvetna orðið metsölubók. gw
I bók
\góð bók
(É
Morgunblaðið/Sveinn J. Þórðarson
Krakkarnir sem tóku þátt í þvi að setja íslandsmet í snú snú.
Islandsmet í snú snú
sett á Barðaströnd
Barðaströnd.
ÍSLANDSMET í snú snú var sett
á Barðaströnd fyrir stuttu.
Krakkar úr 4.-9. bekk grunn-
skóla Barðastrandar settu íslands-
met í snú snú fyrir skömmu. Byijað
var kl. 14.00 á laugardegi og var
lokið kl. 18.00 á sunnudeginum,
alls 28 klukkustundir. Átján krakk-
ar tóku þátt í þessu. Foreldrar og
fleiri sveitungar fylgdust vel með
allan tímann og lauk þessu með því
að allir fóru í snú snú við mikinn
fögnuð.
S.J.Þ.
Skipulagsstofa
höfuðborgarsvæð
isins lögð niður
Á AÐALFUNDI Samtaka sveit-
arfélaga á höfuðborgarsvæðinu
var samþykkt að sveitarfélögin
hættu rekstri Skipulagsstofu
höfuðborgarsvæðisins í byrjun
næsta árs. Var nýrri stjjóm sam-
takanna falið að annast nauðsyn-
legar breytingar á rekstri
samtakanna. Samþykkt var að
stofna ferðamálasamtök höfuð-
borgarsvæðisins og voru þrír
KENWOOD
ÞAÐ VERÐUR ENGINN FYRIR VONBRIGÐUM MEÐ KENWOOD HEIMILISTÆKIN
Djúpsteikingarpottur
FYRSTA FLOKKS
HEIMILISTÆKI
GÓTT VERÐ-GÓÐ KJÖR GÓÐ ÞJÓNUSU
HEIMILIS- OG RAFTÆKJADEILD
[hIheklahf
I8 B ÍLaugavegi 170-172 Simi 695500
Hradsuðukanna Brauðrist
Straujárn Rafmagnshnífur
Dósaopnari
Rafmagns-
steikarpanna
Brauðrist, hraðsuðuketiU Samloku-
brauðrist
aðilar tilnefndir í undirbúnings-
nefnd auk þeirra sex sem fyrir
voru.
í frétt frá samtökunum segir að
á aðalfundinum hafi verið lagt fram
og samþykkt „Svæðisskipulag höf-
uðborgarsvæðisins 1985-2005“,
sem viðmið við áframhaldandi
skipulag þessa svæðis og verður
svæðisskipulagið sent hlutaðeig-
andi aðilum.
Þá samþykkti aðalfundurinn að
skora á samgönguráðherra að beita
sér fyrir, að veitt verði fjármagn
til áframhaldandi athugunar á sam-
ræmingu almenningssamgangna á
höfyðborgarsvæðinu.
I nýkjörinni stjóm samtakanna
eiga sæti Magnús Sigsteinsson
Mosfellsveit, sem jafnframt er
formaður, Hilmar Guðlaugsson
Reykjaví, varaformaður, Guðni
Stefánsson Kópavogi, Lilja
Hallgrímsdóttir Garðabæ, gjald-
keri, Sólveig Ágústsdóttir Hafnar-
firði, Guðrún K. Þorbergsdóttir
Seltjamamesi, Einar Guðbjartsson
Kjalamesi, Guðrún Ágústsdóttir
Reykjavík, Valgerður Guðmunds-
dóttir Hafnarfirði, Valþór Hlöðvers-
son Kópavogi, ritari, Guðbrandur
Hannesson Kjósahreppi og Ásgeir
Sigurgestsson Bessastaðahreppi.
Þokkaleg við-
brögð við
blóðsöfnun
VIÐBRÖGÐ við blóðsöfnunará-
taki Blóðbankans í Háskóla
íslands hafa veríð þokkaleg, en
Setu þó hafa veríð betrí, að sögn
lafs Jenssonar, yfirlæknis.
Um 20-30 háskólanemar komu
fyrsta daginn sem átakið stóð yfir,
en síðan hafa um 5-6 komið á dag.
Ólafur sagði að einnig hefði verið
nokkuð um að nemendur úr fram-
haldsskólunum hafi komið til að
gefa blóð eftir að skýrt var frá átak-
inu í Morgunblaðinu á laugardag-
inn.
Ólafur sagði að desember væri
alltaf annasamur mánuður hvað
blóðnotkun snertir, og því væri
„ þörfin á blóði aðkallandi, og reynt
væri að safna eins miklu og hægt
væri fyrir hátíðamar.