Morgunblaðið - 03.12.1987, Qupperneq 63

Morgunblaðið - 03.12.1987, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987 63 hennar og hugmyndaflug. Hún var hjálpsöm og ætíð reiðubúin að leggja þar hönd að sem eitthvað bjátaði á. Og nú skiljast leiðir. Við íjöl- skyldan á Akureyri þökkum Hildi fyrir allar þær stundir sem við höf- um átt saman og biðjum guð að láta þá daga sem enn eru óorðnir milda þann harm sem að foreldrum, systrum og öðrum vandamönnum er kveðinn og breyta í hugljúfa minningu um góða stúlku sem of fljótt var kölluð til annarra heima. Kristín, Jóhannes, Skúli, Erla og Tómas. Hildur er látin. Enn einu sinni bregður skugga á minningar menntaskólaáranna, tímabils í lífi fólks sem oft er talið með þeim ánægjulegustu þar sem lífsþróttur- inn er óþijótandi, hugurinn fijáls og skuldbindingar litlar. Þessi yfir- vegaða og lífsglaða stúlka úr menntaskóla sem ég kynntist fyrst í frönsku tímum í 1. bekk í MT haustið 1973 er ekki lengur meðal okkar. Við Hildur vorum saman í bekk seinustu 3 árin í menntaskóla og kynni okkar uxu jafnt og þétt eins og oft gerist meðal bekkjar- systkina. í huganum streyma minningar frá þessum árum, minningar um góðan og traustan bekkjarfélaga sem ávallt var tilbúin að drífa í hlut- unum og taldi ekkert eftir sér. Hildur var sjálfstæð í hugsun sem sést best á þeirri óvenjulegu leið sem hún valdi eftir stúdentspróf, öðlaðist m.a. réttindi sem smiður. Sá sem þetta skrifar átti þess ekki kost vegna búsetu erlendis að sækja 10 ára útskriftarafmæli stúd- enta frá MT 1977 sl. vor sem Hildur tók þátt í að undirbúa og stjóma. í september sl. bauð Hildur nokkr- um bekkjarsystkinum úr MT heim til sín þegar ég var staddur á landinu. Er ég hitti Hildi þá höfðu leiðir okkar ekki legið saman í rúm- lega 10 ár. Kvöldstund í stofunni hjá Hildi, þar sem við rifjuðum upp gamlar endurminningar og ræddum hvað á daga okkar hafði drifíð er mér hugstæð. Það er erfitt að sætta sig við þá hugsun að þetta hafi verið seinasti samfundur okkar, en þó er það mér mikils virði að hafa átt þess kost að eyða kvöldstund á heimili Hildar með gömlum bekkjar- félögum. Ég mæli örugglega fyrir munn allra bekkjarsystkina Hildar úr 4.-X í MT 1977 er ég votta foreldrum og aðstandendum Hildar mína inni- legustu samúð og hluttekningu. Lárus S. Ásgeirsson Hún Hildur okkar er dáin. Við viljum ekki trúa þessu. Við viljum að þetta sé draumur og bíðum eftir því að vakna og martröðin taki enda. Sorgin og treginn er sár og erf- itt að koma orðum að þeim hugsun- um og þeim minningum sem sækja að á stundum sem þessari. Við kynntumst Hildi í mennta- skóla, Menntaskólanum við Tjöm- ina. Strax fyrsta daginn kom í ljós að við, Hildur og Magga, vorum nánast alnöfnur og má segja að á þessari stundu hafí kynnin byijað, kynni sem urðu að mikilli vináttu. Hildur var ávallt boðin og búin að rétta hjálparhönd þegar mikið stóð til. Alveg sama hvað var, flutn- ingar eða veisluhöld, alltaf birtist Hildur og bauð aðstoð sína. Þegar við giftum okkur var hún potturinn og pannan í öllum skreytingum og þær voru listavel gerðar. Enda lék i alít sem laut að handiðn í höndum hennar. Hún var völundur í höndum , og hugmyndarík í öllu handverki, hvort sem um trésmíðar, leður- vinnu, pijónaskap eða annað var að ræða. Og svo voru gerðar upp- skriftir svo aðrir mættu nýta sér hugmyndina. j Stelpumar okkar hafa misst góð- an vin og félaga. Þær munu minnast Hiddý sinnar. Það að Hild- ur ætlaði að passa var þeim til- hlökkunarefni. Ævinlega gaf hún sér tíma til að tala og leika sér við þær, þegar hún kom í heimsókn. Og jólapakkamir til þeirra frá Hildi settu ætíð mikinn svip á jólin. Gjaman einhver smíðisgripur og pakkamir svo listilega skreyttir. Og skrautið hafði hún sjálf útbúið af smekkvísi og nostursemi. Já, það er erfítt fyrir okkur að sætta okkur við orðinn hlut. For- eldrar og systur eiga þó um sárast að binda. Við sendum þeim og öðr- um vandamönnum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Öll eigum við góða minningu sem lifír. Magga og Doddi Hún Hildur Sigurðardóttir er dáin, aðeins 30 ára. Við áttum sam- starf um skeið við Heimilisiðnaðar- skólann. Hún helgaði sig handverkinu. Lauk, eftir stúdents- próf, prófum bæði við iðnskóla og kennaraháskóla og vann eftir það aðallega við kennslu og smíðar, auk ýmissa annarra verkefna sem hún tók að sér, því Hildur var óvenju fjölhæf. Hún sérhæfði sig m.a. í leðuriðju, þ.e. að búa til ýmsa gripi úr leðri og kenndi um nokkurra ára skeið þá grein á námskeiðum við Heimilisiðnaðarskólann og Heimil- isiðnaðarfélag íslands, en þar var hún félagi. Hún sat í skólanefnd frá vori 1985. Snemma árs 1985 tók hún að sér skólastjóm í tvo mánuði og leysti það verkefni með miklum ágætum. Á síðastliðnu sumri ann- aðist hún breytingar á innréttingum í hluta af gömlu húsnæði Heimilis- iðnaðarskólans. Það verk vann hún af sama dugnaði, fyrirhyggju og smekkvísi sem annað. Og orð henn- ar stóðu eins og stafur á bók. En nú er ég ekki viss um að hafa munað eftir að þakka henni eins og vert hefði verið. Hildur Margrét Sigurðardóttir var góð stúlka og ég sakna henn- ar. Aðstandendum hennar votta ég einlæga samúð og sendi þeim sam- úðarkveðjur frá Heimilisiðnaðarfé- lagi íslands og samstarfsfólki Hildar við Heimilisiðnaðarskólann. Sigríður Halldórsdóttir Við kynntumst Hildi fyrst þegar hún byijaði að kenna smíði í Æf- ingaskólanum. Það hafði vantað smíðakennara í rúmt ár, en í fyrra kom Hildur og tók það starf að sér. I fyrra kenndi hún líka eðlisfræði og tók að sér leðurvinnunámskeið. Hildur reyndist okkur mjög góður kennari og vildi sjá framfor meðal nemenda sinna. Það er okkur mikill missir að sjá á bak henni. Okkur brá mjög er við heyrðum um andlát hennar. Við vottum hennar nánustu sam- úð okkar. Fyrir hönd 7. bekkjar Æfínga- skólans, Vala og Sigga í dag verður kvödd hinstu kveéju ástkær systurdóttir mín, Hildur Margrét Sigurðardóttir, kennari og húsgagnasmiður. Hildur Margrét var elst þriggja dætra hjónanna Sigurðar Tómassonar og Rann- veigar Gunnarsdóttur. Kynni mín af þessari frænku minni ná þvf aft- ur ailt til þess tíma er hún í heiminn vaí borin. Hún var fyrsta bama- bam foreldra minna og sem oft er í fjölskyldum þykir það nokkur við- burður þegar ný kynslóð kemur fram á sjónarsviðið. Seinna nafn þessarar frænku minnar var nafn ömmu hennar og móður minnar en fyrra nafnið einnig ættartengt. Öll þessi atriði auk fjölda annarra tengdu því Hildi Margréti mér og mínum. Ég minnist með ánægju sam- verustunda bama minna og Hildar Margrétar en sérstaklega þó elsta sonar míns sem aðeins er nokkmm mánuðum yngri. Hildur Margrét var gagnvart honum strax í hlut- verki þess eldri og reyndari og urðu þau strax á fyrstu ámnum nokkrir mátar. Vinskapur þeirra jókst síðan á unglingsámnum þegar þau dvöld- ust sitt á hvomm bænum í sama túninu þar sem systir mín og ég höfðum einnig átt okkur sumar- heimili ekki svo ýkjamörgum ámm áður. Hildur Margrét ólst upp á heim- ili foreldra sinna við ástríki og hlýju í sínum systrahópi og bar nokkuð snemma á því að hún hefði áhuga á að skapa með huga og höndum og síðar kom í ljós að hún hafði bæði sköpunargleðina og handlagn- ina. Hildur Margrét lauk kennara- prófí frá Kennaraháskólanum, með sérgrein handmennt, en síðar settist hún aftur á skólabekk og lærði húsgagnasmíði sem hún þó ekki stundaði svo neinu nam að sveins- prófí loknu því raðvinna á verkstæði var ekki það sem við hana átti. Smíðar stundaði hún eftir sem áður í framhaldi af námi sínu auk þess sem hún kenndi eftir því sem tæki- færi gáfust, bæði leðurvinnu hjá íslenskum heimilisiðnaði en einnig um tíma við smiðadeild KHÍ. Jöfn- um höndum með kennslustörfum við Æfíngadeild Kennaraháskóla íslands, þar sem hún var komin í fast kennslustarf, stundaði hún teiknivinnu fyrir tímaritið Lopa og band, sinnti verkefnum i leðurvinnu sem upp komu og á síðastliðnu sumri vann hún að innréttingu fyr- ir íslenskan heimilisiðnað í kennslu- - hléi frá fastastarfí sínu. Við frændsystkinin eignuðumst með árunum tvo sameiginlega þætti til viðbótar því sem áður var til að ræða þegar við hittumst. Bæði vor- um við kennarar, bæði tvö iðnaðar- menn og það með nokkru stolti. Ég á í minningu um góða frænku, minninguna um síðastliðið sumar . þegar við sameiginlega með góðri aðstoð foður hennar og fleiri ætt- ingja unnum að endurbótum á sumarhúsi afa Hildar og föður míns. Þama sem annars staðar þar sem _ hugur og hög hönd hennar fóru um, breyttust hlutir til betri vegar. Jafnframt vinnunni fór auðvitað ekki hjá því að við kennaramir og smiðimir, en auk þess bæði sporð- drekar, settumst niður og ræddum saman um sameiginleg áhugasvið og það sem þeim fylgir. Það sem minningin geymir em allt góðar minningar um þessa ósér- hlífnu, duglegu, skýru en umfram allt glöðu og hressu frænku mína. Ég og fjölskylda mín biðjum þess að algóður Guð vaki yfír foreldrum hennar og systmm, afa í móðurætt og ömmu í föðurætt ásamt öðmm ættingjum og styrki þau í trúnni á að nú gangi Hildur Margrét sæl á Guðs vegum. Veri frænka mín sæl og hafí þökk fyrir okkar kynni. Þórarínn B. Gunnarsson t Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaöir og afi, HAFSTEINN SIGURÐSSON, Smáratúni, Þykkvabæ, sem lést í Borgarspítalanum 27. nóvember verður jarðsunginn frá Hábæjarkirkju laugardaginn 5. desember kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á félag velunnara Borgarspit- alans. Sigurjóna Sigurjónsdóttir, Friðsemd Friðriksdóttir, Heimir Hafsteinsson, Særún Sæmundsdóttir, Friðsemd Hafsteinsdóttir, Jón Thorarensen, Sighvatur Borgar Hafsteinsson, Una Sölvadóttir, Kristborg Hafsteinsdóttir, Nói Sigurðsson, Sigrún Linda Hafsteinsdóttir, Eyjólfur Reynisson, Bryndís Ásta Hafsteinsdóttir, Rúnar Karlsson og barnabörn. t Minningarathöfn verður um móður okkar, tengdamóður og ömmu, GUÐRÚNU ÓLAFSDÓTTUR frá Unaðsdal, fimmtudaginn 3. desember kl. 15.00 í Fossvogskirkju. Jarðsett verður frá Unaösdalskirkju laugardaginn 5. desember kl. 2. e.h. Bílferð verður frá Umferðarmiðstöðinni á föstudag kl. 9. f.h. Bátsferð verður frá (safiröi á laugardag. Börn, tengdabörn og barnabörn. t 'Eiginmaöur minn og faðir okkar, ÞÓRÐURBOGASON frá Varmadal, Hólavangi 14, Hellu, verður jarðsunginn frá Oddakirkju laugardaginn 5. desember kl. 14.30. Kristfn Sigfúsdóttir og börn. t Innilegar þakkir fyrir vinsemd og hlýhug vegna andláts og útfarar mannsins míns, föður, tengdaföður og afa, ÁGÚSTS KRISTJÁNSSONAR prentara, Furugrund 24, Kópavogi. Sigurlaug Jónsdóttir, Pálína Oswald, Kristján A. Ágústsson, Bryndís Konráðsdóttir, Jón F. Ágústsson, Hallfríður Ólafsdóttir, Þórður Agústsson, . Anne S. Svenson, Guðríður Ágústsdóttir, Gunnlaugur Gunnlaugsson og barnabörn. t Öllum þeim sem með einum eða öðrum hætti heiðruöu minningu, PÁLS GUÐMUNDSSONAR frá Höfða, f Kirkjuhvammshreppi, flytjum við bestu þakkir. Herdfs Sturludóttir, Guðmundur Már Sigurðsson, Ragnhildur Karlsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, AUÐAR JÓNSDÓTTUR frá Ölvaldsstöðum. Þorlákur Þórarinsson, Stella Ragnheiður Sveinsdóttir, Jón Hafþór Þorláksson, Helga Elfnborg Jónsdóttir og barnabörn. t Innilegt þakklæti til þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÓSKARS KORTSSONAR, Stlllholtll, Akranesi. Hulda Óskarsdóttir, Þórarinn Guðmundsson, Ester Óskarsdóttir, Aðalsteinn Haraldsson, Sigrún Óskarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls unnusta míns, sonar okkar og bróöur, BIRGIS GRÉTARSSONAR, Ölduslóð 45, Hafnarfirði. Hanna Björk Guðjónsdóttir, Agnes Eymundsdóttlr, Grótar Geir Guðmundsson, Guðmundur Lúðvfk Grótarsson, Ingi Valur Grótarsson. t Þökkum innilega hlýhug og samúö við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÖNNU KRISTMUNDSDÓTTUR, Hjarðarhaga 44. Gústaf Jóhannesson, Sólveig M. Björling, Ingibjörg Jóhannesdóttir, Sveinn Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.