Morgunblaðið - 03.12.1987, Page 76
Þar vex sem vel er sáð!
flforgmtfrlafrtfe
Framtíð
ER VIÐ SKEIFUNA
aana
# SUZUKI
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Vestmannaeyjar:
Gosminj-
,ar skulu
standa
GOSMINJAR skulu standa, er
svar bæjaryfirvalda í Eyjum við
áskorun nokkura ibúa þess efnis
að húsarúst frá goslokum yrði
rifin niður og fjarlægð. Húsinu
hefur nú verið lokað og það girt
af.
Fyrir nokkru sendu íbúar við
Kirkjubæjarbraut og nokkrar ná-
lægar götur bæjaryfírvöldum
undirskriftalista þess eftiis að hús
eitt, sem staðið hefur autt og opið
frá goslokum, yrði rifíð. Húsarúst
^þessi stendur efst við Kirkjubæjar-
braut og er að hluta niðurgrafíð í
jaðri jarðhlaups sem skreið úr Eld-
felli í gosinu.
Böm hafa mikið notað húsið fyr-
ir leiki og álíta foreldrar að bömun-
um stafí slysahætta af því.
Bæjaryfírvöld vísuðu beiðni foreldr-
anna til Gosminjanefndar. Nefndin
hafnaði fyrir sitt leyti ósk þeirra
og taldi að húsið yrði að vemda
vegna gildis þess sem gosminja.
Hafa bæjaiyfírvöld í Eyjum nú lát-
Jfrið negla fyrir glugga og hurðir
hússins og girða það af að hluta.
Ætti nú mestu áhyggjum að vera
létt af foreldrum í nágrenninu, en
fátt segir af hrifningu bamanna.
— Bjarni
DAGUR
XI TILJÓLA
Morgunblaðið/GSV
Sigurður Ringsted og nýútsprungnar stjúpur í garði hans við Helgamagrastræti á Akureyri.
Gular og bláar stjúpur úti í garði
Akureyri
EINMUNA veðurblíða hefur ríkt á Norðurlandi undanfarnarvik-
ur og er nú svo komið að blóm í görðum hér á Akureyri eru
farin að ruglast heldur betur f ríminu. Þau eru nefnilega farin
að blómstra, að minnsta kosti stjúpumar í garðinum hjá Sigurði
Ringsted, fyrrverandi bankaútibússtjóra Iðnaðarbankans. Hann
býr við Helgamagrastræti og sagðist hann fyrst hafa tekið eftir
knúppunum á stjúpunum sinum á mánudaginn. Þær em gular
og bláar.
Sigurður sagði að stjúpumar
hefðu fallið eins og önnur blóm í
haust þegar fór að snjóa, en nú
hefðu þær lifnað á ný. „Við erum
með stjúpur í kerjum á stéttinni
hjá okkur og hafa þær náð að sá
sér sjalfar á stéttina og vaxa villt-
ar. Þetta er lygilegt," sagði
Sigurður.
Hann sagði að þetta hefði aldr-
ei gerst áður. Hann myndi þó eftir
því eitt sinn þann 20. nóvember
er hann var á leið til vinnu að
hann fann á leiðinni þijá útspr-
ungna fífla. Þeir voru vitanlega
settir í vatn og fengu að piýða
anddyri bankans í nokkra daga.
„Maður fær ef til vill blómvönd
úr garðinum á jólaborðið ef veður-
blíðan helst. Eg ætla ekkert að
róta við blómunum að sinni heldur
mun ég leyfa náttúrunni að sjá
um þetta á meðan vel viðrar."
Stefnir í
hlýjasta ár
síðan 1972
VEÐURFAR hérlendis hefur
verið mjög gott það sem af er
árinu, og minnir það á hlýinda-
skeiðið 1925-60, að sögn Páls
Bergþórssonar veðurfræðings.
Sumarið var mjög hagstætt
viðast hvar á landinu, og vetur-
inn mildur, fyrir utan nokkuð
kuldakast í október.
Heldur hlýrra hefur verið suð-
vestanlands en í meðalári, úrkoma
heldur minni, en sólskin 45 stundum
undir meðallagi. Ef hiti í desember
verður í meðallagi verður árið 1987
það hlýjasta sfðan 1972. Ástæðan
fyrir hlýindunum nú er sú að um
okkur leika nú suðlægir vindar, en
samkvæmt upplýsingum frá Veður-
stofunni er lítil ástæða til að spá
áframhaldandi hlýindaskeiði.
„Menn hafa verið að ræða um að
nú væru áhrif kolsýrunnar í loftinu
að koma í ljós, en sennilega er þetta
aðeins tilviljun, og segir ekki mikið
til um framhaldið," sagði Páll Berg-
þórsson.
Faxamarkaður:
Karfi seldur
á metverði
KARFI var seldur á hæsta verði
sem fengist hefur á fiskmörkuð-
unum til þessa, á Faxamarkaði i
gær. Seld voru 37,6 tonn af karfa
úr Jóni Baldvinssyni RE á meðal-
verðinu 32,36 krónur.
Andrés Hallgrímsson, starfsmað-
ur Faxamarkaðar, segir að verð á
karfa sé um 24 kr. að jafnaði á
fískmörkuðunum, en í gær hafi
karfínn farið hæst á 35 kr. og lægst
á 30,50. Fiskurinn hafí verið seldur
til Garðskaga hf. í Garði og fari
líklega í frystingu.
Franskar kartöflur:
Engin innflutnings-
leyfi í næstu viku
Innflutningsnefnd maljurta falið að gera tillögur
um möguleika innlendu framleiðendanna
Landbúnaðarráðuneytið gefur ekki út nein innflutnings-
leyfi fyrir frönskum kartöflum í þessari viku, öðrum en þeim
sem þegar eru á leið til landsins. Ráðuneytið tilkynnti innflytj-
endum þessa ákvörðim á mánudag. Jafnframt fól ráðherra
innflutningsnefnd garðávaxta að kanna innflutninginn og
möguleika til að framleiða þessa vöru úr innlendu hráefni
og að gera tillögur um skipan mála í framtíðinni. Tillögur
nefndarinnar eiga að liggja fyrir á mánudag.
Sveinbjöm Eyjólfsson fulltrúi í
landbúnaðarráðuneytinu orðar
þetta þannig að ráðuneytið hafí
-y„tímabundið frestað afgreiðslu
innflutningsleyfa fyrir franskar
kartöflur". Fái innflytjendur ekki
' áritun á tollpappíra nema fyrir
þeirri vöru sem væri á leiðinni til
laiídsins. Innflutningsnefndini
hefði verið falið að kanna innflutn-
ing á frönskum kartöflum, kart-
öflubirgðir landsmanna og
möguleikana á framleiðslu á
frönskum kartöflum úr íslensku
hráefni. Þá hefði nefndinni verið
falið að gera tillögur um skipan
mála. Eftir það kæmi í ljós hvort
innflutningurinn yrði óbreyttur,
hann takmarkaður eða alveg
stöðvaður.
Innflutningsnefnd matjurta er
skipuð samkvæmt ákvæðum i bú-
vörulögum og eru í henni tveir
fulltrúar bænda, tveir fulltrúar
innflytjenda (skipaðir af viðskipta-
ráðherra) og oddamaður tilnefnd-
ur af landbúnaðarráðherra.
Nefndinni er ætlað það hlutverk
að láta landbúnaðarráðherra í té
rökstutt álit um hvort innflutnings
matjurta og blóma sé þörf og hve
mikils. I búvörulögunum segir að
landbúnaðarráðherra hafi með
höndum leyfisveitingar til innflytj-
enda kartaflna, nýs grænmetis,
sveppa og blóma og innflutningur
þessara vara sé því aðeins leyfður
að innlend framleiðsla fullnægi
ekki eftirspum.
Samtök kartöflubænda hafa oft
farið fram á að innflutningur
franskra kartaflna verði stöðvaður
þegar innlend framleiðsla sé á
markaðnum, ekki síst frá því ljóst
varð í haust að mikil offramleiðsla
var á kartöflum í landinu í ár.
Hey í hreyfíl Flugleiðaþotu
DC-8 VÉL frá Flugleiðum dró i
sig hey í flugtaki á flugvelli í
Banjul i Gambiu í fyrradag og var
vélin ferjuð á þremur hreyflum
til Lúxemborgar þar sem skipt
var um hreyfil. Vélin, sem ber
einkennisstafina TF-FLE, var í
leiguflugi fyrir Scanair og á leið
til Stokkhólms.
„Það var aldrei nein hætta á ferð-
um," sagði Steinn Logi Bjömsson,
forstöðumaður upplýsingasviðs
Flugleiða, í samtali við Morgun-
blaðið. „Vélin var. í flugtaki og dró
þá í sig hey úr heysátu á túni í
grennd við flugvöllinn. Slökkt var á
hreyflinum, samkvæmt reglum um
svona atvik, og lent aftur. Það fund-
ust engar skemmdir á hreyflinum
en vélin var feijuð til Lúxemborgar
á þremur hreyflum þar sem skipt
var um hreyfil af öryggisástæðum."
TF-FLE hefur verið í leiguflugi
fyrir Scanair síðan í september og
mun halda því áfram út apríl.
Suðurnes:
Gjaldheimta
sett á stofn
FULLTRÚAR sveitarfélaga á
Suðumesjum og Jón Baldvin
Hannibalsson, fjármálaráðherra,
undirrituðu i gær samning um
stofnun Gjaldheimtu Suðurnesja,
sem staðsett verður f Njarðvfk.
Gjaldheimta Suðumesja er fyrsta
gjaldheimtan af tíu sem fyrirhugað
er að stofna út um land og hefst
starfsemi hennar þann 1. janúar
næstkomandi.