Morgunblaðið - 08.12.1987, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 08.12.1987, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987 Rít um Bólu-Hjálm ar eftir Eystein Sigurðsson BÓKAÚTGÁFA Menningar- sjóðs hefur gefið út ritið Bólu-Hjálmar eftir dr. Eystein Sigurðsson, en það fjallar um ævi og skáldskap Hjálmars Jónssonar frá Bólu og skiptist í tíu meginkafla. Má nokkuð ráða efni bókarinnar af kafla- fyrirsögnunum: Uppruni og yngri ár, Hjónaband og fyrstu búskaparár, Kveðskapur fram um 1829, Um form og stíl, Rímnaskáldið, Bragarhættir og stíll rímna, í Blönduhlíð, Ljóða- gerð fram til 1853, Kveðskapur eftir 1853, Að lokum. Útgefandi kynnir bókina og höfund hennar svofelldum orðum á kápu: „Bók þessi er um Hjálmar Jóns- son frá Bólu, ævi hans og skáld- skap. Eysteinn Sigurðsson segir í öllum meginatriðum ævisögu hans, en Qallar einnig mikið um kveðskap Hjálmars, rekur hann sundur eftir tímabilum og yrkis- efnum, skilgreinir verk skáldsins Bólu-Hjálmar og leggur mat á þau. Ennfremur er útskýrt hver séu helstu stíl- og formeinkenni Hjálmars, alþýðu- Dr. Eysteinn Sigurðsson skáldsins snjalla sem orti í sárri fátækt beinskeyttar vísur og dýr kvæði. Ritið skiptist í tíu kafla. Ey- steinn gerir svofellda grein fyrir verki sínu í formála: „Markmið mitt við vinnuna að þessu verki hefur verið tvíþætt. í fyrsta lagi hef ég viljað taka saman yfirlit um skáldskap Hjálmars, einkenni hans og stöðu í bókmenntasög- unni, sem gæti komið bókmennta- fræðingum, kennurum og öðrum sérfræðingum að gagni. í öðru lagi hef ég sett mér það djarflega markmið að skrifa þetta jafnframt sem bók um Hjálmar fyrir alla almenna lesendur, og að ekki væri nauðsynlegt að hafa margra ára háskólanám í bókmenntum að baki til að geta haft af henni fullt gagn og gaman." Höfundur bókarinnar, dr. Ey- steinn Sigurðsson, er íslensku- fræðingur að mennt. Hann varð cand. mag. frá Háskóla íslands Gódar bækur til ad GEFA OG EIGA Spaugsami spörfuglinn, Þröstur Sigtryggsson skipherra hjá Landhelgisgœslunni lýsir lífshlaupi sínu í léttum dúr og skopast bæði að sjálfum sér og samferðamönnum. Hann hefur frá mörgu að segja, allt frá grátbroslegum atvikum í landlegum til grafalvarlegra atburða í landhelgisdeil- um. Þröstur er ekki bara skipherra, Sgtirdór Stgurdorsson hann er húmoristi og sögumaður af guðs náð. Sigurdór Sigurdórsson skráði. Þetta er umfram allt fyndin og upplífg- andi bók. mJGSm SPQRFUGUNN SKtcn? ~ iirÉiBliiir iflHiin n íslandsmyndir Mayers 1836 hefur að geyma listaverk sem franski málarinn Auguste Mayer vann þegar hann var liðsmaður franska vísindamannsins Paul Gaimards í íslandsleiðangri hans árið 1836. Myridirnar sem hér eru litprentaðar í ákaflega fallegri og vandaðri útgáfu eru stórmerkar heimildir um íslenskt þjóðlíf á fyrri tíð. Þær eru hátt í 200 að tölu og þeim fylgir ítarlegur texti á íslensku, frönsku og ensku. Bókinni fylgir ennfremur litprentað kver með fágætri frumgerð kvæðanna, sem flutt voru Gaimard til heiðurs í veislunni góðu í Höfn 1839. Gullregnið eftir Andérs Bodelsen er spennandi saga sem segir frá fjórum börnum sem fínna fíársjóð grafinn í jörðu. Þau ákveða að geyma hann í von um fundarlaun. En biðinni fylgja ýms erfið og óvænt vandamál. Framhalds- þátturinn um Gullregnið hefur notið gífurlegra vinsælda í danska sjónvarpinu. .h. / Goð og hetjur í heiðnum sið eftir Anders Bæksted bætir úr brýnni þörf fyrir vandað rit á íslensku um goðsögur og hetjusagnir norrænna manna. Helstu sögurnar eru raktar og sýnt hvernig hin heiðnu lífsviðhorf birtast ljóslifandi í hetjum fornsagnanna, lífi þeirra, framgöngu og örlögum. Bókin er ríkulega myndskreytt. Þýðandi er Eysteinn Þorvaldsson. / Upp er boðið ísaland er saga einokunar- verslunar á íslandi: Dönum hafa löngum verið kenndar hörmungar þær sem þjóðin mátti þola á öldum áður. í bókinni er gerð grein fyrir fjölmörgum öðrum ástæðum sem skiptu sköpum fyrir bágborinn hag þjóðarinnar, t.d. íhaldssemi og stéttaskipting íslendinga sjálfra. Ritið er doktorsritgerð Gísla Gunnarssonar. Á Edgar Cayce, undralæknirinn og sjáandinn er margföld metsölubók um dulargáfur Edgar Cayce, spádóma hans og lækningar, sem enn eru vísindunum óræð gáta. Bókin hefur verið ófáanleg um árabil en er nú prentuð í þriðja sinn vegna mikillar eftirspurnar. jÁj
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.