Morgunblaðið - 08.12.1987, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987
Saga Sigrid Undset
um Kristínu Lafranz-
dóttur endurútgef in
SETBERG hefur sent frá sér
nýja útgáfu sögunnar um
Kristínu Lafranzdóttur eftir
norsku skáldkonuna Sigrid
Undset. Skáldkonan hlaut á
sinum tíma Nóbelsverðlaunin
og átti þetta rit stóran þátt i
þeirri viðurkenningu. í kynn-
ingu forlagsins segir svo um
bækurnar:
„í sögunni sem gerist á fjórt-
ándu öld flæðir lífið í fang
lesandans í allri sinni fjölbreytni.
Við fylgjumst með Kristínu sem
ung hittir Erlend, örlagavaldinn
í lífi sínu, ástarsögu þeirra og
þeim miklu sviptingum sem eiga
sér stað í kringum hana.
Kristín háir harða baráttu í
sál sinni. Vilji hennar er bundinn
eigingjarnri kröfu holdsins og
ástarinnar og synd hennar elur
af sér synd, samkvæmt lögmáli
guðs.
Höfundur skyggnist langt inn
í hugskot persónanna af sál-
fræðilegu raunsæi og þær verða
lifandi og lesandanum kærari en
ella af því að síst er dregin dul
á að þær hafa flestar sínar veiku
hliðar.
Kristín Lafranzdóttir er ein-
hver stórbrotnasta ástar- og
ættarsaga sem rituð hefur verið
á norræna tungu og bókin varð
til þess að Sigrid Undset hlaut
Nóbelsverðlaunin.
í engri sögu Sigrid Undset rís
list hennar hærra. Hvergi sýnir
hún betur fjölþætta hæfileika
sína, merkilega samofíð raunsæi
og ímyndunarafl, heitt, ástríðu-
þrungið skap og efablandna
skynsemishyggju. Skáldverkið er
þýtt af Helga Hjörvar og Am-
heiði Sigurðardóttur. Frábær-
lega vel unnið verk sem unun
er að njóta.
Nú kemur ritverkið í nýrri og
glæsilegri útgáfu, 3. bindum, alls
1250 blaðsíður."
Málaðu
tilveruna
með
LACOSTE
litum
LACOSTE
HERR>1F4L4l/íRSLUN'
>
LAUGAVEGI 61 - 63 SÍMI 14519
r ngtfA? R0ST
aTASTELIKE KNASENf „ &\\.\£
SMAAKT ALS SASOR^
geroosterde •• tostad°
MAIS SNACK
EMPACADO EN
BOESA DE ALUMINiO KNUSPRIG DURCH
PARA MANTENER SU FRISCHHALTE-
FRESCURA PACKUNG
-> F0LIEP0SE BEVARER
SPROHETEN F0LIEP0SE BEVARER
FRISKHEDEN
>
s
iHÆ
FORPACKADI
AROMBEVARANDE
FOLIE
FRAIS GRÁCE AU
SACHET EN
ALUMINIUM
VERS DDOR
VERPAKKING
IN FOUE
Bögglast þú við flók-
inn undirbúning þeg-
ar von er á vinum?
Gerðu. þér lífið létt og
gestunum gott með að
bjóða þeim girnilegt og
stökkt
Bugles með maís- og
ostabragði; tilbúið beint
úr pakkanum 1 skálina.
Ljúffengt eitt sér eða með
ídýfu.
S
:
m.
ARGUS/SÍA