Morgunblaðið - 08.12.1987, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987
Ragnarsbakarí:
Flestir komnir til starfa aftur
Ný brauð voru keyrð út 1 gærmorgun
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Flestir starfsmenn Ragnarsbakarís voru komnir til starfa i gærmorg-
un og þessar konur voru að forma pylsubrauð.
VEÐUR
Keflavík.
STARFSEMIN hjá Raguarsbak-
aríi var að komast í eðlilegt horf
í gær og flestir starfsmenn
komnir aftur til starfa. Hermann
Guðmundsson, nýr fram-
kvæmdastjóri, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að unnið væri af
kappi við að ná til fyrrverandi
viðskiptavina og ekki væri hægt
að segja annað en viðtökur hefðu
verið góðar, því allir sem sam-
band hefði verið haft við ætluðu
að halda áfram að skipta við
bakariið sem verður rekið áfram
undir nafninu Ragnarsbakarí.
Fyrirtækið var úrskurðað gjald-
þrota á miðvikudaginn og þá misstu
um 50 manns vinnuna fyrirvara-
laust. Á föstudagskvöld náðu
Ármann Reynisson og Pétur
Björnsson úr Reykjavík samningum
við skiptaráðandann um kaup á
I DAG kl. 12.00:
/ / /
V / / /
/ / / /
/ Heimlld: Veðurstofa islands
(Byggt á veöurspá kl. 16.15 i gaer)
VEÐURHORFUR I DAG, 8.12.87
YFIRLIT á hádegi i gæn Yfir Bretlandseyjum er 1029 mb hæð en
á suð-vestanveröu Grænlandshafi er 990 mb lægð á hreyfingu
norð-norö-austur. Hlýtt verður um allt land.
SPÁ: í dag lítur úr fyrir sunnan- og suð-vestan golu eða kalda á
landinu. Dálítil súld verður á Suðurlandi og á annesjum vestan-
lands og framan af degi veröur rigning við norðurströndina. Á
Austurlandi og í innsveitum Norðurlands verður þurrt. Hiti 5—10
stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
MIÐVIKUDAGUR OG FIMMTUDAGUR: Á vestan- og suð-vestan-
verðu fandinu verður hæg sunnan- og suö-austan átt með Iftilsháttar
súld eða rigningu á annesjum, annars staðar verður hægviðri og
skýjað, en að mestu úrkomulaust. Hiti 4—5 stig um sunnan- og
vestanvert landið, en eitthvað svalara í öörum landshlutum.
TÁKN: y, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- 10 Hitastig: 0 gráður á Celsius
A stefnu og fjaðrirnar • Skúrir
-(^ Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. V *
V Él
(A Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka
* / / / — Þokumóða
Hálfskýjað * / * •> Súld
/ * / * Slydda / * / oo 4 Mistur Skafrenningur
M Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
m VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hlti veður Akureyri S alskýjað Reykjavik 7 rigning
Bergen +2 léttskýjað
Helsinki +10 léttskýjað
Jan Mayen 2 súld
Kaupmannah. +2 léttskýjað
Narssarssuaq 4 rlgnlng
Nuuk +6 skýjað
Osló +5 léttskýjað
Stokkhólmur +8 léttskýjað
Þórshöfn 1 alskýjað
Algarve 13 rlgnlng
Amsterdam 2 léttskýjað
Aþena 16 skýjað
Barcelona 12 mistur
Berlín 0 snjókoma
Chicago vantar
Feneyjar 7 þokumóða
Frankfurt 2 hálfskýjað
Glasgow 2 mistur
Hamborg +1 snjóél
Las Palmas 15 skýjað
London 5 skýjað
LosAngeies 13 rlgnlng
Lúxemborg +1 anjókoma
Madríd 11 akýjað
Malaga 14 alskýjað
Mallorca 18 úrkoma
Montreal vantar
NewYork 1 heiðsklrt
Parfs 2 skýjað
Róm 16 skýjað
Vin 2 mistur
Washington +1 léttskýjað
Winnipeg 0 þokumóða
Valencla vantar
bakaríinu og voru þá strax gerðar
ráðstafanir til að koma starfseminni
í gang aftur. Nýju eigendumir
héldu fund á laugardaginn með
starfsfólkinu sem ákvað að snúa
aftur til starfa, og á sunnudaginn
var hafinn undirbúningur að bakstri
á brauðum sem síðan voru bökuð
og keyrð út í gærmorgun.
Starfsfólkið fékk greidd laun um
mánaðamótin með innistæðulaus-
um ávísunum, en nú hafa þær
fengist innleystar í Utvegsbankan-
um sem gerði samkomulag við
Verslunarmannafélag Suðurnesja.
Þar voru flestir starfsmennirnir fé-
lagar.
Hermann Guðmundsson sagði áð
rekin yrði hörð markaðsstefna og
stefnt að enn frekari framleiðslu-
aukingu. „Við teljum okkur hafa
góða möguleika á að auka fram-
leiðsluna um allt að helming eða
jafnvel enn meir. En það eru mark-
mið til lengri tíma sem kalla á enn
fleira starfsfólk", sagði Hermann
ennfremur.
- BB
Sjálfvirkur sleppibúnaður
bj örgunarbáta:
Siglingamálastjóri
vill breyttar reglur
„Siglingamálastofnun hefur til-
kynnt okkur að verið sé að gera
gagngerar breytingar á reglu-
gerð um sjálfvirkan sleppibúnað
björgunarbáta og ef þær tillögur
sem stofnunin er með á borðinu
hjá sér ná fram að ganga muni
sjálfvirkur sleppibúnaður af Óls-
engerð ekki fullnægja þeim
kröfum sem Siglingamálastofn-
un gerir um slíkan búnað í öllum
minni bátum,“ sagði Artúr Boga-
son, formaður Sambands smá-
bátaeigenda í samtali við
Morgunblaðið. „Okkur hefur sem
sagt verið sagt það óbeint," sagði
Artúr, „að okkur sé bannað að
setja Ólsenbúnaðinn um borð í
báta okkar af öryggisástæðum".
Magnús Jóhannesson, siglinga-
málastjóri staðfesti í samtali við
Morgunblaðið, að það væri rétt að
þetta mál væri í endurskoðun og
umræðu hjá Siglingamálastofnun
með hliðsjón af þeim slysum sem
átt hefðu sér stað á undanförnum
árum og búnaðurinn komið við
sögu. Siglingamálastjóri sagði að
málið væri nú til umræðu í sigling-
aráði, en fyrir liggi ákveðnar tillög-
ur sem eigi eftir að taka afstöðu
til. Ef þær verði samþykktar þá
fullnægi Ólsenbúnaðurinn ekki
þeim kröfum sem verði gerðar.
Morgunblaðið hafði samband við
Karl Olsen hjá Vélsmiðju Ol Olsen,
en hann vildi ekki tjá sig um málið
Landhelgisgæslan:
að svo stöddu, enda hefði hann
ekki heyrt um endanlegar tillögur
að breytingu á reglugerðinni.
Umferðarnefnd
Reykjavíkur:
Fundur um
umferðar-
skipulag gamla
austurbæjarins
UMFERÐARNEFND
Reykjavíkur gengst fyrir
opnum fundi um skipulag
umferðar í gamla austur-
bænum í Reykjavík. Fund-
urinn verður á morgun,
miðvikudag, kl. 20.30 í
gamla Verslunarskólanum
við Grundarstíg.
Guttormur Þormar verk-
fræðingur kynnir tillögu sína
að nýju umferðarskipulagi fyrir
svæðið, sem afmarkast af
Lækjargötu, Fríkirkjuvegi, Sól-
eyjargötu, Hringbraut, Bar-
ónsstíg, Eiríksgötu, Njarðar-
götu, Skólavörðustíg og
Bankastræti, en einnig Njáls-
götu og nágrenni.
Þyrla sótti veikan
mann í Gísla Arna
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar,
TF-SIF, sótti á sunnudag veik-
an sjómann um borð í nótar-
skipið Gisla Árna RE sem
staddur var á loðnumiðunum
norður af landinu. Talið er að
sjómaðurinn, sem er 25 ára
gamall, hafi fengið vægt
hjartaáfall og flutti þyrlan
hann á Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri.
Beiðni um sjúkraflug barst
Landhelgisgæslunni fyrir hádegið
á sunnudag. Gísli Árni RE var þá
staddur skammt suðaustur af Kol-
beinsey, um 60 mílur norðnorð-
austur af Siglufirði. Læknir var í
þyrluáhöfninni og seig hann niður
í skipið. Eftir að hann hafði búið
sjúklinginn undir flutning voru
báðir hífðir upp í þyrluna. Var lent
á nýja þyrlupallinum við Fjórð-
ungssjúkrahúsið um klukkan 15.
Er þetta í fyrsta skipti sem lent
er með sjúkling á pallinum.
Flugstjóri í sjúkrafluginu var
Benóný Ásgrímsson og með hon-
um voru Bogi Agnarsson flugmað-
ur, Sigurður Steinar Ketilsson
stýrimaður og Friðrik Sigurbergs-
son læknir. Sigurður Steinar sagði
í samtali við Morgunblaðið að
sjúkraflugið hefði gengið á allan
hátt vel. Hann gat þess að áhöfn-
in á Gísla Árna væri þjálfuð í
samvinnu við þyrluáhöfnina eftir
nám í Slysavamaskóla sjómanna.