Morgunblaðið - 08.12.1987, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987
33
Bréf séra
Böðvars í bók
Garðabær:
Rekstri malbikunarstöðvar
í Smárahvammslandi hætt
BRÉF séra Böðvars eftir Ólaf
Jóhann Signrðsson er komið út
að nýju, en sagan birtist fjrrst í
safninu Leynt og ljóst árið 1965.
Það er bókaforlag Máls og menn-
sem gefur bókina út.
kynningu útgefanda segir:
„Bréf séra Böðvars sýnist í fljótu
bragði ekki segja frá miklum við-
burðum. Aldraður prestur og
heiðursmaður, séra Böðvar S.
Gunnlaugsson, fer í gönguferð
umhverfís Tjömina með konu sinni
og hitta þau hjón gamlan kunn-
ingja á leiðinni, Gússa að nafni.
En frásögnin er útsmogin og býr
yfír mörgum leyndardómum, hún
sýnir sífellt á sér nýjar hliðar eftir
því sem lesandinn skoðar hana bet-
ur.“
Bókin er 121 bls. í kiljubroti,
prentuð hjá Nerhaven bogtrykkeri
í Danmörku. Teikn sá um gerð
kápu.
Ólafur Jóhann Sigurðsson
SAMKOMULAG hefur náðst milli
bæjaryfirvalda f Garðabæ og mal-
bikunarstöðvar Hvammsvíkur hf.
um að framleiðsla á malbiki eða
olfumöl í Smárahvammslandi verði
hætt eftir 15. des. 1987.
Undanfarin ár hefur staðið styr
um rekstur malbikunarstöðvarinnar
og hafa fbúar Garðabæjar margsinnis
orðið fyrir ónæði og óþægindum
vegna mengunar, er stafar af fram-
leiðslu á malbiki en samningar fyrir-
tækisins um afnot að lóð í Garðabæ
rann út 1. des.
í frétt frá bæjarstjóm Garðabæjar
segir að fyrirtækið fái áfram aðstöðu
f Smárahvammi til 30. mars 1988,
en á þeim tíma mun fyrirtækið vinna
að brottflutningi stöðvarinnar svo og
öðrum lausafjármunum af að minnsta
kosti 25.000 m2 þess lands sem fyrir-
tækið hefur haft til afnota. „Verði
við þann brottflutning staðið, munu
bæjaryfírvöld í Garðabæ taka til at-
hugunar að ganga til samninga við
fulltrúa Hvammsvíkur hf. um áfram-
haldandi afnot af 5.000 m2 af lóðinni
til 1.12. ’88.“
JQLATILB0Ð
JAPIS NR.1
FULLKOMIN SAMSUNG
HUÓMTÆKJASAMSTÆÐA
MEÐ GEISLASPILARA
f þetta er ekki jólatilboð
ársins hvað þá?
Önnur eins kjarakaup bjóðast
ekki á hverjum degi.
Því er um að gera að drífa
sig af stað áður en það er
um seinan.
Það er nú einu sinni þannig
með þessa samstæðu að
magnið er takmarkað og
eftirspurnin mjög mikil.
Þriggja geisla geislaspilari.
60 vatta magnari.
Hálfsjálfvirkur plötuspilari
með audio-technica hljóðdós.
Stafrænt (digital) útvarp.
16 stöðva minni FM MB LB.
Tónjafnari.
Tvö kassettutæki með
raðspilun.
„High-Speed-Dubbing".
Dolby.
Hljóðnematengi.
Hljóðnemamixer.
Tveir hátalarar í dökkum
viðarkassa.
39.800,—stgr.
JAPISS
BRAUTARHOLT 2 • KRINGLAN • SÍMI 27133