Morgunblaðið - 08.12.1987, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987
37
81 erlent leigu-
skip á síðustu
níu mánuðum
Óttast um atvinnuöryggi íslenskra
farmanna, segir Guðmundur Hall-
varðsson, formaður Sjómannafélags
Reykjavíkur
Leiguskipum hefur fjölgað mikið í kaupskipaflotanum undanfarin
ár, enda hefur innflutningur aukist. Frá 1. desember á síðasta ári
og fram til 1. febrúar í ár, eða á tveimur mánuðum, voru 27 erlend
skip tekin á leigu af íslenskum skipafélögum. Frá því í febrúar og
til 24. nóvember, eða á tæpum níu mánuðum, bættist 81 erlent skip
í kaupskipaflotann, þar á meðal 24 vegna flutninga á fiskimjöli, 18
vegna lýsisflutninga, 17 vegna saltfiskflutninga og jafn mörg vegna
saltflutninga og 4 til kolaflutninga. Stjórn Sjómannafélags Reykjavík-
ur hefur lýst yfir áhyggjum sínum vegna þessa og óttast að með
sama áframhaldi heyri íslensk farmannastétt brátt sögunni til.
Guðmundur Hallvarðsson, for-
maður Sjómannafélags Reykjavík-
ur, sagði að þessi mikla fjölgun
sýndi ljóslega að áhyggjur stjómar
Sjómannafélagsins um þróun
íslenskrar kaupskipaútgerðar og
atvinnuöryggi íslenskra farmanna
hefðu við rök að styðjast. „Þessi
þróun er mjög alvarleg og samtök
íslenskra sjómanna verða þegar að
gripa til róttækra ráðstafana, eigi
íslensk farmannastétt ekki að heyra
fortíðinni til,“ sagði Guðmundur.
„Með aukningu erlendra leiguskipa
hefur íslenskum kaupskipum fækk-
að og ég held að sú fækkun hafí
leitt til þess að farmenn eru nú 300
færri en áður var og tel ég þá var-
lega áætlað. Þó er rétt að taka fram
að á þremur þessara leiguskipa eru
íslenskar áhafnir."
Guðmundur sagði, að ef bornar
væru saman skrár yfir íslensk skip
kæmi í ljós, að 1. janúar 1977 hefðu
íslensk flutningaskip verið 50 og
samtals verið 66.752 rúmlestir. Tíu
árum síðar, eða 1. janúar 1987
hefðu skipin verið 34 og rúmlestir
þeirra samtals 51.234. „íslenskum
kaupskipum hefur því fækkað um
16 og rúmlestatala minnkað um
15.518,“ sagði Guðmundur. „Þegar
litið er á vöruflutninga um
Reykjavíkurhöfn kemur í ljós, að
árið 1976 voru flutt samtals
452.103 tonn en árið 1986 voru
flutt 787.423 tonn. Síðustu 10 árin
hafa því flutningar aukjst um
335.320 tonn, eða 74%. Á sama
tíma hefur íslenskum kaupskipum
fækkað um 34% og rúmlestirþeirra
eru 30% færri en áður var. Eg tek
það fram að í þessum tölum um
flutninga eru til dæmis ekkí teknir
með flutningar á olíu, sementi og
lönduðum sjávarafla.“
Guðmundur benti á að íslensk
verkalýðshreyfing hefði harðlega
mótmælt hugmyndum um innflutn-
ing á erlendu vinnuafli. „Stjórn
Sjómannafélags Reykjavíkur tekur
heils hugar undir þau mótmæli, en
ná þau ekki til íslenskrar farmanna-
stéttar? Við höfum marg oft bent
á þessa óheillavænlegu þróun á
undanförnum árum, en án sjáanlegs
árangurs," sagði Guðmundur Hall-
varðsson, formaður Sjómannafé-
lags Reykjavíkur.
Anna Guðný Guð- Björn Th. Árnason Sigurður I. Snorra-
mundsdóttir son
Verk eftir Glinka
og Beethoven á
Háskólatónleikum
ÁTTUNDU Háskólatónieikar vetrarins verða haidnirí Norræna hús-
inu miðvikudaginn 9. desember kl. 12.30-13.00. Á tónleikunum flylja
Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari, Björn Th. Árnason fagott-
leikari og Sigurður Ingvi Snorrason klarinettuleikari verk eftir
Beethoven og Glinka.
Fyrra verkið á efnisskrá tónleik-
anna er dúett fyrir klarinettu og
fagott eftir Ludwig van Beethoven.
Seinna verkið er Trio Pathétique
eftir rússneska tónskáldið Mikhail
Ivanovieh Glinka.
Anna Guðný Guðmundsdóttir
lauk burtfararprófi frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík. Framhalds-
nám stundaði hún við Guildhall
School of Music and Drama í Lon-
don. Hún kennir við söngdeild
Tónlistarskólans í Reykjavík.
Björn Th. Árnason lauk einleik-
araprófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík árið 1976. Hann stund-
aði framhaldsnám við Tónlistar-
skólann í Vínarborg frá 1976-1980.
Björn er félagi í íslensku hljóm-
sveitinni.
Sigurður I. Snorrason stundaði
nám hjá Vilhjálmi Guðjónssyni og
Gunnari Egilson í Tónlistarskólan-
um í Reykjavík. Framhaldsnám
sótti hann til Vínar hjá Rudolf Jett-
el við tónlistarskólann þar. Sigurður
er félagi í Sinfóníuhljómsveit ís-
lands.
VERIÐ VEL KLÆDD UM JÓLIN
Iðunnar-peysur á
dömur,
herra
og börn.
Glitpeysur á dömur.
Jakkapeysur á
dömur og herra.
Dömublússur og
herraskyrtur frá
OSCAR OF SWEDEN.
Dömubuxur, pils og
buxnapils frá GARDEUR
í Vestur-Þýskalandi.
y JL. PRJÓNASTOFAN
Uaunru
Verslunin eropin
daglegafrá kl. 9-18,
laugardaga frá kl. 10-16.
Kreditkortaþjónusta.
Skerjabraut 1 v/Nesveg, Seltjarnarnesi.
<jjj) Melabo
HrrncHílKAS 1
RAFHLÖÐUBORVÉL Verð: Tilboðsverð:
100 wött, í tösku 13.541
HÖGGBORVELAR
480 wött, í tösku
500 wött, 1
1000 wött, í tösku i8>m
1.210
9.068
16.529
STINGSÖG
450 wött, í tösku
9.221
SLIPIROKKAR
620 wött,
115 mm skíía
11280 8.482
900 wött, „
125 mm skífa 1 10.486
B.B. BYGGINGARVORUR
SUÐURLANDSBRAUT4